Þjóðviljinn - 06.01.1945, Síða 4

Þjóðviljinn - 06.01.1945, Síða 4
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 6. janúar 1945 þJÓÐVlMlNN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflolckurinn.. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson. Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 13, sími 3370. Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 318ý. Askriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði. Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastrœti 17. Fiskflutningarnir og afkoma fiskimanna Eitt af þeim atriðum, sem samið var um í málefnasamningi stjómarflokkanna var að reyna að tryggja bætta afkomu fiski- manna og vitanlega hlýtur ríkisstjómin að gera það, sem í hennar valdi stendur til þess að framkvæma þann þátt mál- efnasamningsins. Uppsögn brezku samninganna skapar í þessu sambandi erf- iðleika, sem gera það enn nauðsynlegra að gripið sé til tafar- lausra og róttækra ráðstafana til þess að tryggja í senn hag fiskimanna, — bæði útvegsbænda og hlutasjómanna, — og þjóðarheildarinnar. Tillögur fiskimálanefndar benda á þær ráðstafanir, sem tafarlaust þarf að framkvæma, enda hafa þær hlotið ótvíræðan stuðning fiskimanna við Faxaflóa- Til þess að hægt sé að framkvæma þær þarf skipakost og um útvegun hans liggja þegar fyrir tillögur, sem enga bið þola. Hér er á ferðinni eitt þýðingarmesta mál þjóðarinnar, því gjaldeyrir hennar byggist að verulegu leyti á þessum útflutningi. Það er vitanlegt að n^kkrir eigendur eða leigjendur fisk- flutningaskipa munu hafa hugsað sér að nota það tækifæri sem bauðst er brezki samningurintn féll úr gildi, til að maka krókinn á kostnað fiskimanna. Útflutningur ísfisks hefur verið góður gróðavegur undanfarin ár og yrði vafalaust eins í ár. En vitanlegt er að fiskimenn mega alls ekki við lækkun á núverandi fiskverði, heldur þurfa að fá hækkun og hana veru- lega, ef þess er nokkur kostur. Slíkt er ekki aðeins nauðsynlegt vegna útvegsmannanna sjálfra. Það er einnig nauðsynlegt vegna hlutamannanna. Það er algerlega óþolandi að þeir sjómenn, sem hætta lífi sínu á vetrarvertíðinni hér sunnanlands, búi við versnandi kjör, þvert á móti þurfa einmitt þeirra kjör að batna. Og þetta er líka nauðsyn fyrir þjóðfélagið sem heild, því fáist ekki líkindi fyrir því að afkoma fiskimanna verði betri en undanfarið, þá verður erfitt að fá sjómenn á bátana á vetrar- vertíðinni. Það eru til innanlands og utan þó nokkuð af smáskipum, sem hentug eru til ísfiskflutninganna. Ríkisvaldið þarf að tryggja notkun þessa skipaflota — og það fyrst og fremst með hagsmuni fiskimanna fyrir augum, því á því ríður fyrir þjóðina að þeirra hagur sé tryggður í.nútíð og framtíð. Það verður m. a. að taka smáskipin sem nú eru höfð í Ameríkuferðum — og að ljtlu gagni koma þar vegna smæðar sinnar — í fiskiferðir, ef hægt er að fá stór leiguskip í staðinn til Ameríkuferðanna. Tímarnir krefjast bess að flutningaskipaflota þeim, sem þjóðarbúið getur ráðið yfir, sé einbeitt á það sem nauðsynlegast er og þannig að skipin notist sem bezt hvert á sínu sviði- Á þessum stríðstímum hafa allar ríkisstjórnir alger umráð yfir flutningaskipum landa sinna og beita þeim flota eins og þjóðinni er nauðsynlegast. Við íslendingar tölum um sjómennina okkar sem „hermenn“ þjóðarinnar, sem „hetjur hafsins“, og við vitum allir hve erfitt og blóðugt það stríð er, sem þeir heyja við Ægi. Það er skylda þjóðarinnar að gera það, sem í hennar valdi stendur til þess að tryggja atvinnu þeirra og batnandi afkomu. Og ráðstafanirnar til þess þola enga bið lengur. Vísindaleg vinnubrögð Hver eru þau einkenni vísinda-- legra vinnubragða, sem sýna, að vísindamenn eru að ná tökum á einhverju sérstöku rannsóknar- sviðiP — Setjum svo, að við ber- um efnafræði, dýrafræði eða jarð- fræði saman við sömu fræðigrein- ar fyrir hundrað árum síðan. — Hvað kemur í ljós? Vissulega er þekkingin meiri núna. — En þekkingin er svo miklu betur skipulögð núna, að það er langtum auðveldara að afla sér hennar, og mikilvægur hluti þekkingarinnar er í því fólginn að vita, hvar maður á að leita stað- reyndanna. — Enginn kann utan- bókar bræðslumark 10.000 efna- sambanda, en hver efnafræðingur veit, hvar hann á að gá að bræðslu- marki 100.000 efnasambanda. En athyglisverðasta framför vís- indanna er, að þau eru að verða stærðfræðilegri og styðjast meir við tilraunir. Andstæðingar vísindalegra vinnubragða segja, að hin' aukna notkun stærðfræðinnar þýði ekki annað en það, að vísindamenn haldi, að þeir geti mælt allt og loki augunum fyrir öllum öðrum hliðum veruleikans, sem ekki er hægt að mæla. Þetta er lieimska. — Það er hægt að telja þá liluti, sem skipt- ast í einingar, svo sem eins og menn, stjörnur eða frumeindir. — Sirma eiginleika, svo sem lengd, er hægt að mæla. — Oðrum eigin- leikum, sem ekki er hægt að mæla, er þó hægt að skipta i flokka eða röð. T. d. getum við ekki sagt, að Sigurður sé tvisvar sinnum skyn- samari en Bjarni og fimm sinnum hagmæltari en Jón. En við getum sagt, að hann skari fram úr þeim á báðum sviðum. Löngu áður en við höfðum nokkra hugmynd um, hvort kal- steinninn hafði myndazt fyrir þrjátíu þúsundum eða þrjátíu milljónum ára var augljóst, að kolalögin voru eldri en kalkið og að rauði sandsteinninn var eldri en kolalögin. — Og röð án mæl- inga er alveg nægileg undirstaða fyrir stærðfræðing. — T. d. getum við sagt, að konur séu yfirleitt dökkeygari en karlmenn af sömu þjóð og á sama aldri, og e. t. v. líka, að Svertingjar séu yfirleitt tónhneigðari en Evrópumenn. — Slíkan samanburð er aðeins hægt að gera eftir að þúsundir manna hafa verið rannsakaðar, og maður þarf að beita töluvert flókinni stærðfræði til að prófa, hvort mis- munur sá, sem vart verður við, getur stafað af tilviljun. ★ Það liggur ekki í augum uppi, hvers vegna stærðfræðin á að vera svona máttugt hjálpargagn. — Það er hægt að finna upp heimspeki- leg rök fyrir þvi, e. t. v. er betra að halda sér við þá staðreynd, að stærðfræðileg vinnubrögð geta leitt til stórra stökka fram á við í vís- indunum. Sennilega er útvarpið athyglis- verðasta dæmið. — Maxvell bjó til jöfnur um samband raforku og segulmagns. — Þessar jöfnur sögðu fyrir um tilveru útvarps'bylgna, og Herz uppgötvaði þær. — Benda má líka á það, að tilraúnir manna til að fljúga báru engan árangur, á meðan þær voru í því fólgnar að stæla fugla og leðurblökur, heldur þörfnuðust þær margbrotinnar stærðfræðikenningar. Annað einkenni framsækinna vísinda eru tilraunir. — Ruther- ford hafðí mynd af Galileo í her- bergi sínu og dáðist mjög að hon- um. — „Ef Galileo hefði ekki ver- ið sá, sem hann var“, sagði hann einu sinni við mig, „hefði mér aldrei dottið í hug að gera tilraun- ir. — Ég myndi bara hafa skoðað og reiknað eins og gömlu grísku stj örnuf ræðingarnir“. Grikkir skildu gildi stærðfræð- innar, en þeir uppgötvuðu aldrei þá stórmerkilegu staðreynd, að vilji nmður skilja einhvern hlut eða hræringar, er bezta ráðið að reyna að breyta honum og sjá hvað skeður. ★ EFTIR Maður uppgötvar ekki eðli þess, fyrr en maður reynir að breyta þvi'. Fremur fáir af hagfræði- eða ,stjórnmáIavísinda‘-prófessorunum við háskóla okkar hafa gert þessa tilraun. — Margir prófessorar í Sovétríkjunum voru byltingar- menn í æsku sinni. Reyni maður að breyta skipulagi þjóðfélagsins, hvort sem það er launaskipulagið, hegnipgarlögin, hýsingin, staða kvenna eða ýmis- legt annað, rekst maður á mót- spyrnu, alveg eins og maður rékst á mótspyrnu, þegar maður reynir að breyta hreyfingarstefni einhvers hlutar. Þessi mótspyrna getur verið í nafni réttlætis, föðurlandsástar, trúarbragða, velsæmis eða ein- hverra annarra .meginreglna. — En í níu af hverjum tiu tilfellum kemur í Ijós, að hún stafar af stéttaskiptingunni í þjóðfélaginu, B, S. Haldane prófessor • Augljósasta mælanlega einkenni hlutar er fyrirferðin, það næsta er þyngdin. — En það, sem er mikil- vægaSt fyrir eðlisfræðing og það stöðugasta, er cfnisþéttleikinn. — Efnisþéttleiki hlutar er mældur með því að abhuga, hvað hann veitir mikla, mótspyrnu gegn til- raunum til að setja hann á hreyf- ingu eða breyta hreyfingu hans með því að brcyta hraða hans eða stefnu. — Þunginn er minni við miðjarðarlínuna eða uppi á fialli. — Efnisþéttleikinn er sá sami. Augljósustu eiginleikar hlutar eru litur, lögun, harka, hiti o. s. frv. — En sá eiginleiki, sem mest veltur á, er efnasamsetningiii. — Hana er aðeins hægt að finna með því að breyta henni eða reyna að gera það. — Efnagreiningin er í því fólgin að breyta efni því, sem athugað er, á ýmsa vegu, athuga t. d„ hvort það leysist upp í vatni, í brennisteinssýru, í ether, og svo framvegis. Töluverður fróðleikur fékkst um starfshætti h'kamans með því að athuga áhrif sjúkdóma og meiðsla á hann, en þó miklu meiri með tilraunum á mönnum og dýrum. — Það var til dæmis kunnugt, að matarbitar leysast smám saman upp á leið sinni gegnum magann og þarmana. — í fyrstu var álitið, að þetta stafaði af hreyfingu inn- yflanna, líkamshitanum o. s. frv. En tilraunir leiddu í Ijós, að ýmsir meltingarvökvar geta starfað á- gsetlega utan líkamans. Pavloff uppgötvaði með frekari tilraunum taugar þær, sem stjórna kirtlavessunum (secretions), og Starling komst að því, að þeim er líka stjórnað af hormónunum í blóðinu. — Athuganir mundu að- eins hafa leitt í ljós, að einhvers konar vökvi kom úr kirtlunum, þegar matur var etinn, en ekki hvaða vökvi þetta var eða hvað stjórnar rennsli hans úr kirtlunum. Marx komst að því, að sama regla gildir um þjóðfélagið. — sem er varin með hinum furðuleg- ustu aðferðum. — í hinu stétt- laúsa þjóðfélagi Sovétríkjanna eru stórkostlegar breytingar aftur á móti framkvæmdar með miklum hraða. Þroskuð þjóðfélagsvísindi verða, eins og eðlisfræði, efnafræði eða líffræði, að byggjast á fullkömn- um upplýsingum í töluformi, þ. e. a. s. hagskýrslum. — En þau verða einnig að byggjast á reynslu karla og kvenna, sem hafa reynt, með góðum árangri, litlum eða engum, að breyta þjóðfélaginu í stað þess að áthuga það eingöngu. Hvar byrja þjóðvegirnir Hafnarfjarðarvegur og Suðurlandsbraut? Samgöngumálaráðuneytið hefur tilkynnt bæjarráði, að það hafi úr- skurðað, að þjóðvegurinn Suður- landsbraut skuli teljast ná að þeim stað næst innan við býlið Tungu í Reykjavík, þar sem fyrirhuguð gata norður mýrina kemur að Suð- urlandsbraut, og að þjóðvegurinn Iíafnarfjarðarvegur skuli teljast ná að Laufásvegi í Reykjavík. Vegamálastjóri hafði vakið at- hygli ráðuneytisins á því, að þar sem Reykjavík sé nú tekin að byggjast meðfram Suðurlands- braut og, Hafnarfjarðarvegi út fyr- ir mörk kaupstaðarlóðarinnar, en þangað hafa þessir þjóðvegir verið taldir ná, fram að þessu, sé eðli- legast að ákveða, að þjóðvegurinn Suðurlandsbraut skuli ná að þeim stað næst innan við býlið Tungu, sem áður segir hér að fraanan, og þjóðvegurinn Hafnarfjarðarvegur skuli ná að vegamótum hans og Laufásvcgar. Ráðuneytið hefur fallizt á þessa tillögu vegamála- stjóra. HopðiFlaiðssíldin • if N eltir iFH FFlfFiNn Nýkomið er út rit eftir Árna Friðriksson fiskifræðing, er nefnist Norðurlandssíldin, og er fyrst í flokki rita Fiskideildar Atvinnu- deildar Háskólans. Þetta er mikið rit, 340 bls. að stærð, með yfir 50 myndum og 70 töflum og ýtarlegum útdrætti á ensku. Bókinni er skipt í sjö kafla, og nefnast þeir Síldveiðar íslend- inga, Eldri rannsóknir, Viðfangs- efni, gögn, aðferðir, Norðurlands- síldin, Lífskjörin við Norðurland, Hugmyndir um lifnaðarhætti Norðurlandssíldarinnar, Niður- lagsorð, töflur, heimildarrit. I formála segir höfundur m. a.: „Þegar öllu er á botninn hvolft, er það ljóst, að það er ekki ein- ungis æskilegt, heldur einnig nauð- synlegt, að draga hér saman í eitt á íslenzku það sem nýtt hefur komið fram um lifnaðarhætti síld- arinnar, síðan Fiskarnir (rit Bjarna Sæmundssonar) komu út. Þetta réttlætist ennfremur af þeirri stað- reynd að við stöndum nú á tíma- mótum um þekkingu okkar á síld- inni. Vona ég að það verði álit les- andans, eftir lestur þessarar bókar, að við séum komnir á áfangastað, að fyrsti áfanginn á hinni erfiðu braut til fullrar þekkingar á „duttl- ungum“ síldarinnar, sé nú að baki lagður. Eigi fer heldur hjá því, að vísindamenn, sem árum saman hafa unnið að einhverjum við- fangsefnum fyrir þjóð sína, þrái það, að gefa henni einhvern ár- angur, þegar hægt er. Þjóðin á einnig heimtingu á því, ef rann- sóknirnar eru gerðar á hennar veg- um, og fyrir hennar fé, eins og hér hefur átt sér stað. Hvort árangur- inn af síldarrannsóknunum hefur orðið mikill eða lítill, óljós eða greinilegur, læt ég góðfúsa lesend- ur um að dæma. Aðalatriðið er, að í þessari bók er gerð tilraun til þess að draga saman í eitt handa íslenzkum lesendum allt það helzta, sem við vitum nú um síld- ina, en kjarninn í bókinni verður vitanlega árangurinn af okkar eig- in starfi. En svo er önnur hlið á þessu máli. I ritum Fiskideildar hefur verið tekið upp það fyrirkomulag, að láta hverri ritgjörð fylgja út- drátt á einhverju Víðlesnu máli. Þetta er eigi aðeins gert til þess að okkur sjálfum opnist leið til bóka- skipta, heldur viljum við á þenn- án hátt stuðla að því, að útlend- ingar eignist hlutdeild í niðúrstöð- um okkar, alveg eins og þeir gefa okkur hlutdeild í sínum, í bókum, er þeir íita á málum, sem við skilj- um. Með danska visindamenn í broddi fylkingar hafa útlendingar af ýmsu þjóðerni stundað hér fiski- rannsóknir áratugum saman, okk- ur íslendingum að kostnaðarlausu. Árangurínn af starfi þessará manna hefur fyrst og fremst fallið okkur íslendingum í skaut, eftir því sem hann hefur birzt, og því hvílir sú skylda á okkur íslendingum að leggja okkur fram eftir megni, fara ekki huldu höfði með það, sem við getum lagt til málanna og ætla má, að hafi almennt gildi. Þessi ritgjörð skipar þar að auki sér- stakan sess. Eins og síðar mun koma í ljós, varð ekki hjá því komist, að véfengja ýmsar skoð- anir erlendra vísindamanna, skoð- anir, sem ná ekki aðeins til lifn- aðarhátta íslenzku síldarinnar, heldur einnig þeirrar norsku. Þess vegna tel ég, að nú séu þáttaskipti í síldarrannsóknunum hjá okkur, að lengra verði ekki komizt í bili á þeirri braut, sem rannsóknirnar hafa runnið undanfarin ár. Næsti áfanginn verður að rannsaka til hlítar liðnaðarhætbi rauðátunnar og annarra þýðingarmestu átu- flokkanna, svo og þörungagróður- inn í svifinu við norðurströnd Is- lands á sumrin, uppruna hans og örlög, um leið og sjórinn sjálfur, straumar, hiti og selta verður tek- ið til nákvæmrar atihugunar. Loka- þátturinn verður svo að hefjast, þegar þessi áfangi hefur verið far- inn, og vona ég, að þar getum við hafið samvinnu við aðrar þjóðir, en að því verður vikið í lokakafla þessarar bókar. Annað atriði. en skyldan gagn- vart íslenzku þjóðinni og erlend- um vísindamönnum, hefur einnig hvatt mig til þess að hefjast nú handa og ganga frá riti þessu, um íslenzku síldina. Það er tækifæri það, sem nú býðst til kyrrlátra starfa. Sem stendur höfum við Is- lendingar ekkert rannsóknarskip og þurfum við ]>ví ekki að eyða tímanum í rannsóknir á sjó, nema að því leyti, sem hægt er að not- ast við ýmis skip, þar á meðal varðskipin, til ýmissa minni hátt- ar starfa. Ennfremur getur ekki verið um neina alþjóðasamvinnu á hafrannsóknarsviðinu að ræða, á meðan á heimsófriðnum stendur, svo að einnig þaðan getum við dregið starfskraftana. Þegar stríð-1 inu lýkur, breytist þetta vonandi aftur, ög við fáum þá viðfangs- efni, sem taka hug okkar allan, en það lætur að líkum, að þá verði síður næði til mikilla skrifta. Þess vegna hef ég valið þann kostinn, að gera hreint fyrir okkar dyrum, eins og kostur er, þegár í stað, enda höfum við ýmsar ritgjörðir í smíðum, aðrar en þessa, og vona ég að geta sem fyrst komið þeim á framfæri“. Lýðháskóli Færeyja 45 ára Lýðháskólinn í Færeyjum var stöfnaður af Símun av Skardi og Rasmus Rasmussen kennara. — Var Símun lengi skólastjóri hans. Starf skólails í þágu færeysku 'þjóðarinnar er ómetanlegt. — Það hefpr blátt áfram valdið alda- hvörfum. En skólinn þarf að fylgj- ast með kröfum tímans, og í vet- ur hefur vcrið stofnuð nefnd, sem er að undii’búa mikinn bazar fyrir næstu Ólafsvöku. — Allir Færey- ingar munu vafalaust styðja hann, því að það er staðreynd, að starf skólans. nýtur réttmæts skilnings meðal íbúanna. Væri ekki abhugandi fyrir Is- lendinga að styðja þetta mál? Skólastjóri er nú yngri sonur Símunar heitins, Jóhannes av Skardi. Folihoiifl siOleosi FFainsfiKnarflDhlisins Á fimmtudaginn gerði Hermann Jónasson ýmsar fyrirspum- ir á Alþingi varðandi fisksölumálin og samninga við Breta um þau. Þessar fyrirspumir hafa berlega átt að vera forleikur að ósvífnum þvættingi Tímans um þessa samninga. Allir vissu fyrir fram, að stjómarandstaða Framsóknarmanna mundi verða ósvífin með afbrigðum, en þó munu hafa verið til menn sem létu sér detta í hug að þeir mundu skirrast við að flytja mál sitt svo að til stórtjóns gæti orðið þjóðarheildinni. Þessir menn hafa verið óleyfilega bjartsýnir, það munu þeir sannfærast um, er þeir lesa skrif Tímans um fisksölumálin í gær. Laugardagur 6. janúar 1945 — ÞJÓÐVILJINN Stér byggingarlóð sem næst Miðbænum óskast til kaups nú þegar. SÖLUMIÐSTÖÐIN, Lækjargötu 10 B. Sími 5650. „Algert öngþveiti í fisksölu- málunum. Sinnuleysi og kák ríkisstjórnarinnar“. Þannig eru fyrirsagnir Tímans í gær. Síðan kemur langdreginn ósanninda- vaðall og þvættingur um fisk- sölumálin • og samninginn við Breta og sem virðist beinljnis gerður til þess að skapa ríkis- stjórninni erfiða aðstöðu í þessum málum, en á lausn þeirra veltur afkoma þjóðarinn ar eins og kunnugt er, allt virð Fyrirætlanir Reyk- víkingafélagsins Árið 1943 sendi félagið bæjar- ráði umsókn um lóð undir fyrir- hugaða byggingu félagsins. en fé-x lagið hafði hugsað sér húsbygg- inguna til fundarhalda og fyrir aðra starfsemi sína, en fétagið hef- ur meðal annars á stefnuskrá sinni, að koma upp byggðasafni fyrir Reykjavík, allt frá dögurn Ingólfs Arnarsónar, þar sem hægt væri að sýna hverja framþróun bær Ing- ólfs hefur tekið frá hans tíð, á- samt því að geta sýnt fyrsta bú- stað hans og sýnishorn af bygg- ingarfélagi frá þeim tíma og þá innanstokksmuni og klæðnaði er þá tíðkaðist. Ilefur félagið þegar stofnað hús'byggingarsjóð. Bæjar- rað sendi Skipulagsnefnd umsókn- ina til umsagnar og hefur nýlega borist svar nefndarinnar, en hún kveðst hafa haft samband við for-j stöðumenn félagsins og bent þeim á mög.uleika þess, að félaginu yrði séð fyrir húsakosti i sambandi við fyrirliugaða skrifstofubyggmgu bæjarins. Skipulagsnefnd telur það vel geta samrýmst, að sjá félag- inu fyrir húsnæði í slíkri byggingu. t. d. þannig, að fundahöld gætu farið fram i kaffisal hússins, sem þá yrði ætlaður nægilega stór með hliðsjón af þörfum félagsins. I sam- bandi við slíkan sal mætti einnig koma fyrir herbergjum eða smærri salarkynnum fyrir bæjarsafn. sem opið væri almenningi. Segir Skipu- lagsnefnd ennfremur, að slík til- högun sé sambærileg því. sem tíðk- ast í sambandi við ráðhússbygg- ingar víða erlendis. Reykvíkingafélagið hefur það einnig á stefnuskrá sinni, að koma upp æskulýölsheimili fyrir reyk- víska æsku, þar sem hún á kost á að koma saman á reglusaman og heilbrigðan hátt, undir umsjá góðra æskulýðsleiðtoga. Skipulags- nefndin bendir á í bréfi sínu, að hugmyndin um æskulýðsheimili sé þegar komin til umræðu á öðrum grundvelli. ist þetta gert til að framkalla það hrun sem flokkur þessi hef ur verið að boða og sem hann virðist telja sína einu von. En það vill svo illa til að allt sem gert hefur verið í fisksölumálunum hefur verið gei*t með fullu samþykki fram sóknarmanna. jFormaður Fram- sóknarflokksins, Hermann Jón- asson, er í utanríkismála- nefnd og framsóknarmaðurinn Bjami Ásgeirsson * er formaður nefndarinnar. Jón Ámason á sæti í samninganefnd utanrik- isviðskipta. Allt sem gert hef- ur verið ‘ ivarðandi fisksölu- samninginn við Breta hefur verið gert með samþykki eða samkvæmt tillögum þessara nefnda og framsóknarmennim- ir hafa aldrei gert þar á- greining og ekki borið fram til- Iögur um aðra meðferð þess- ara mála en höfð hefur verið. Þessir menn eru því sammála öllu því sem gert hcfur verið en ausa nú upp moldviðri til að torvelda allar iramkvæmd- ir. Því ber ekki að neita að oft hefur stjórnarandstaða á ís- landi verið ósvífin, en siðleysi og sú ósvífni sem fram kemur í skrifum Tímans er dæmalaus enda ekki við góðu að búast, þar sem núverandi forusta Framsóknarflokksins hefur ekkert getað tileinkað sér af gerð Jónasar nema ósvífni og ó- sannsöglina en verður að öðru leyti að bjargast við meðfædda hæfileika. Viðskipti Danmerkur og Þýzkalands Danmörk hefur sem kunnugt er Clearing-samninga við Þýzkalands. — Neyddu Þjóð- verjar Dani til að ganga að þessum samningum á sínum tíma til að fela ránum sínum í Danmörku. Clearing-samningarnir ná til tveggja reikninga. — Á öðrum eru viðskiptin við Danmörku, én á hinum er kostnaðurinn við dvöl þýzka setuliðsins í Dan- mörku, sem Danmörk verður að borga sjálf. I lok ársins 1944 námu þessir reikningar samtals 7 milljörð- um króna. — Hafa þeir hækk- að um 2 milljarða og 700 millj- ónir króna á árinu. — Af þessu er 1 milljarð og 900 milljónir kostnaður vegna þýzka hersins. í lok ársins 1940 átti Dan- SanðffárboOun - ■ Samkvæmt fyrirmælum laga nr. 58, 30. nóv. 1914, ber að framkvæma 'þrifaböðun á öllu sauð- fé hér í lögsagnarumdæminu. Útaf þessu ber öllum sauðfjáreigendum hér í bænum að snúa sér nú þegar til eftirlitsmannsins^með sauðfjár- böðunum, herra lögregluþjóns Sigurðar Gísla- i sonar, símar 3679 og 3944. Borgarstjórinn í Reykjavík, 5. janúar 1945. Bjarni Benediktsson. Undarleg ráðmennska Framhald af 2. síðu. bæði fyrir viðkomandi iðngrein ar og þjóðina í heild, að íslend- ingar séu ekki látnir borga/inri- lend hráefni hærra verði en útlendingar. Og að meðan nauð synlegt þykir að styrkja ein- stakar atvinnugreinar með f jár- greiðslum af almannafé, til þess að bæta upp gildandi'markaðs- verð á framleiðsluvörrim þeirra, þá ætti sízt að framkvæma það á þann hátt — eins og nú er gert — að láta það bitna á þeirri viðleitni að breyta ísl. afurðum sem mest í fullunnar iðnaðarvörur. áður en þær eru seldar út úr landinu. Stjórnarvöldin hafa hingað til tekið þá undarlegu stefnu að daufheyrast við svo að segja öllum kröfum iðnaðarins um leiðréttingu í þessum málum. Nú er þess að vænta að hin nýja ríkisstjórn taki þarna skyn samlegri stefnu. Helgi Guðlaugsson. Naðup eða boia getur fengið fast starf við að hirða leikfimishús Menntaskóí ans. Upplýsingar hjá rektor eða dyraverði. tfWWWWSA#yVAA/WWWV^WVWWW»« UÖN Fangar frelsaðir Framhald af 1. síðu. fangelsislögreglan gat hafzt nokkuð að, klifruðu 15 fang- anna upp stigann og hurfu yf- ir múrinn með frelsurum sín- um. — Hinum megin biðu þeirra vörubílar- ? óskast í matvöru- § búð. i Vinnan hefst 1. !■ marz þ. á. j! Gott kaup. | KRON !; Skrifstofan. Skólav.st. 12. mörk 820 milljónir króna inni í Þýzkalandi. Matvælaástandið virðist vera óbreytt í Danmörku, en afgang- ur sá, sem varð vegna hinnar góðu uppskeru, hefur runnið til Þýzkalands. — Sama er að segja um vörur þær, sem Dan- mörk flutti áður út til Finn- lands.' Þeim útflutningi er nú lokið, og Þýzkaland sjálft dreg- ur æ meir úr útflutningi sínum. SKEMMTILEG Stofa með sérinngangi, bacii og aðgangi ; að síma, er til lei^u í nýju húsi. Tilboð merkt „Austurbær“ send- ist blaðinu AUGLYSIÐ I ÞJÓÐVILJANUM

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.