Þjóðviljinn - 06.01.1945, Síða 7

Þjóðviljinn - 06.01.1945, Síða 7
Laugardagur 6. janúar 1945. ÞJÓÐVILJINN 7 HALVOR FLODEN: Maurakóngurinn Þá laut Steinn niður að honum og hvíslaði: „Eg er með ost og smjör í pokanum mínum.“ Ágúst leit aðeins upp en grúfði svo höfuðið niður aftur. Steinn sótti malpokann sinn og tók upp matinn. „Svona, drengur. Ætlarðu ekki að borða?“ „Jú — þakka þér fyrir — en.“ Ágúst reis upp og þurrkaði sér um augun. Hann brosti ofurlítið og fór að borða. „Færðu aldrei ost í nesti, Ágúst?“ „Nei. Þú getur líklega ímyndað þér það.“ „En hvernig hefurðu þá orðið svona sterkur og seig- ur — eins og maur.“ Ágúst hrökk við, þegar hann heyrði nefndan maur. En nú var Steinn að gera að gamni sínu, svo að hann þók því vel. „Og þú ert sterkur eins og — maurakóngur. Er það a£ því að þú hefur fengið svo mikið að éta?“ Þeir töluðu um alla heima og geima, en mest um það, hvað biði þeirra mikið verkefni uppi í holtunum. Það var mikið verk að reisa aftur allt, sem óvináttan hafði eyðilagt. „En ég er svo hræddur um, að aldrei verði hægt að bæta úr því öllu“, hugsaði Steinn. Draurmirinn hennar Astu. (Þýtt); Þegar Ásta varð sjö ára, skrifaði ,hún niður á blað allt, sem hana langaði til að fá í afmælisgjöf. Sveinn bróðir hennar hjálpaði henni til að stafa í orðin. Hann var tveim árum eldri en hún. Ásta var nýlega farin að ganga í skólann og kunni ekki mikið enn. Hún skrifaði á blaðið, að sig langaði til að eiga brúðu, sem gæti lagt aftur augun. Sveinn hafði rifið hárið af gömlu brúðunni í Indínánaleik og það var ekki sjón að sjá brúðuvesalinginn síðan. ÞETTA VINIR I ERICH MARIA REMARQUE: Fyrr á öldum þótti sú lækn- mg gefast bezt í Englandi gegn brjálsemi, að fleygja sjúkling- unum þeim að óvörum aftur á bak í keldu nokkra, sem heitir St. Nims. Yrði sjúklingurinn ró- legur við þetta, var farið með hann til næstu kirkju og guði þakkað. En léti hann engan bil- bug á sér finna, var hann látinri liggja í keldunni, þar til von- laust þótti, að hann sæi að sér. Árið 1547 var loks reist geð- veikrahæli í. Englandi. En sú stofnun var jafnframt almenn- ingi til skemmtunar. Sjúkling- arnir voru öðruhvoru hafðir til sýnis í járngrindabúrum fyrir 1 penny. Sóttu þessar „sýning- ar“ um 30 þúsundir manna ár- j lega. Þeir vitfirringar, sem ekki voru ofstopagjarnir, voru látn- ir hafa ofan af fyrir sér með betli. En til þess að þeir þekkt- ust frá þeim, sem vitrari þótt- ust, var fjögra þumlunga breið- ur járnhringur festur á vinstra handlegg þeim. Og um hálsinn báru þeir nautshorn í fééti og áttu að blása í það úti fyrir hús dyrum, þar sem þeir komu. í París var fyrsta geðveikra- hælið reist rúmlega öld síðar. Væri sjúklingunum ekki batriað þar eftir nokkrar vikur. voru þeir fluttir til verri stofnana, sem líktust fangelsum. Þar voru þeir klæddir tötrum og hlekkj- aðir. Á sunnudögum og hátíð- um voru þeir almenningi til sýnis fyrir lágt gjald. Múhameðstrúarmenn urðu fyrstir til að stofna geðveikra- hæli. Það var reist í Kairo árið 1304. En það fyrsta í Evrópu var í Valencia á Spáni. kallaði ég til Lenz. . Það getur verið, að hann þurfi að skipta um hjól.‘ „Er ekki jafngott að hafa flöskuna við hendina?1' svaraði Lenz órólegur. Við höfðum öll fengið tauga- óstyrk. Lenz gat ekki staðið kyrr. Eg tuggði sígarettu upp til agna. Pat greip andann á lofti. Það voru bara Valentin og Grau, sem sátu rólegjr og sleiktu sólskinið. Einu sinni erin þutu bílarnir franthjá. Við störðum á Köster. Hann jók hraðann og var nú þriðji í röðinni. „Hvert í heitasta!“ sagði Lenz og fékk sér vænan sopa úr flöskunni. „Það er æsandi að horfa á þetta,“ sagði ég við P*t. „Ógurlega," sagði hún. „Hann hefur æft sig í að fara fram úr hinum, þegar þeir taka beygjurnar. Það er sérgrein hans,“ sagði ég. I „Viljið þér líka hressingu?“ spurði Lenz. „Já, takk,“ hún tók við flösk- unni af honum og saup á henni, eins og það væri sjálfsagður hlutur. „Það gerir yður ekkert.“ sagði Lenz og kinkaði kolli með vel- þóknun. „En viljið þér ekki smurt brauð?“ spurði ég. Hún hristi höfuðið. „Kannski seinna. En nú hef ég enga ró til þess.“ Enn komu kappakstursmenn- irnir. Braumuller var á undan Köster komst í beygjunni á hlið við þriðja bílinn. En allt í einu heltist númer þrjú úr lestinni með sprungið afturhjól. Hann staðnæmdist. við verk- stæðisbás nágranna ekkar. Við- gerðamaðurinn bölvaði. Lenz varð glaður við. Mínútu seinna var bíllinn aftur fecðafær. í næst síðustu hringfex'ðinm var Köster enn sá þriðji í röð- inni. Hann ætlaði að !áta kylfu ráða kasti og skipta ekki um hjól. Þegar síðasta hringferðin hófst náðu áhorfendurnir varla andanum. Mótordynkirnir voru orðnir að skerandi ýlfri og þrumugný. Fyrsti bíllinn fór með mikl- um hraða yzt í beygjunni. Sá næsti kom þétt á eftir honum og virtist ætla að freista þess að fara fram úr honum. Við stukkum á fætur. Nú kom Kö;t er. Hann fór með geysihraða fram fyrir næst fvr«ta bílínn Eg stóíck upp á kassa og dró Pat með mér. Hún stoð á önd :nni af æsmgu. „Hann er næstfyrstur.“ org- aði Lenz Við æpíum og kúJ’uðum. Nú var Köster aðeins tuttugu metra á 1 eftir BraumuiLer. Vagnarnir þustu allir inn á síðustu beygjuna. Lenz ákall- aði alla guði Asíu og Suður- Ameríku. Eg lofaði að verða nýr og betri maður — ef Otto sigraði. Nú komu þeir. Vélin í bíl Braumúllers hóstaði. Eg lét aft- ur augun og treysti mér ekki til að sjá úrslitin. Pat rak upp hljóð. Köst.er fór yfir línuna — tveimur metr urn á undan hinum. Lenz æpti eins og brjálaður maður. Eg kyssti Pat. „Það var þessi bíll, sem þér kölluðuð skrifli áðan,“ kallaði Lenz til viðgerðamannsins. „Látið þér mig í friði, fá- bjáni,“ svaraði hann. Lenz hló. Það var í fyrsta skipti sem ég heyrði „síðasta draumóramanninn“ taka móðg- un hlæjandi en gjalda ekki í sömu mynt. — Við biðum eftir Otto. Hann var hjá dómnefndinni að sækja verðlaun sín. Við reyndum að geta upp á, hvað hann fengi. ..Karl“ kom. Köster og Jupp stukku út. Jupp var eins og Napóleon á sínum beztu árúm. Eyru hans voru glóandi rauð. Hann hélt á nauða ljótum silf- urbikar og þrýsti honum að brjóstinu. „Þetta er sá sjötti, sem ég fæ,“ sagði Köster hlæjandi. „Það er merkilegt hvað þessir menn eiga lítið hugmyndaflug.“ Braumúller kom í ljós. Hann krossbölvaði. „Taktu þessu með stillingu) Óskar,“ sagði Lenz. „Þú vinnur í næstu bamavagnasamkeppni." — Við Pat höfðum gengið lengi fram og aftur um götum- ar. Það leið að miðnætti, og við sátum á bekk í kirkjugarð- mum, dálítið þreytt en þó enn í ofurlítilli kappakstursæsingu. Silfurgrá þoka hvíldi yfir i boi'ginni. Trjákrónurnar sáust ekki ,en við heyrðum, hvernig blærinn ski'jáfaði í þeim ofur hægt. Kringum götuljósin var gulur, titrandi geislabaugur. Aldinborarnir flugu þunglama- lega niður úr trjáliminu og sett ust á döggvotar ljóshlífarnar. Þokan breytti útliti allra hluta. Hótelið framundan okkur varð að feikna miklu gufuskipi sem sigldi undir fullum Ijósum og malbikuð gatan var hafið. Skugginn af kirkjunni, sem sást ekki sjálf, var eins og drauga- legt seglskip með hárri siglu. Og nú fóru lágu húsin líka hvert af öðru á sund í þokunni. Við sátum þögul. Þokan færði allt fjær veruleikanum — okk- ur líka. Pat horfði á mig stór- um, vakandi augum, en þó fannst mér hún ekki sjá mig. Það var eins og hún hlustaði á eitthvað úr f jarlægð, væri heill- uð af því og yi'ði að hlýða, ef það kallaði. Eg gleymi því aldi'ei — hvern ig hún laut að mér, hvernig svipbrigðin liðu yfir andlit hennar — viðkvæmni — ástúð og ósegjanleg ró. Aldrei gleymi ég því, hvernig augu hennar komu nær og nær mér og hún kyssti mig — horfði svo á mig spyrjandi, alvarleg — og lok- aði augunum. Þokan kom nær og nær. Það glitti óglöggt í legsteiriana. Eg vafði frakkanum mínum utan um okkur bæði. Borgin var horf in — tíminn stóð kyrr. — Eg veit ekki, hvað við sát- um lengi svona. Það fór að hvessa. Eg heyrði fótatak í möl inni og óm af lágu samtali. Svo allt í einu veikt gítarhljóð. Eg leit upp. Einhverjir skuggar voru á sveimi í þokunni. Þeir komu nær og nær, urðu þéttari. Nú var þögn. — Skyndilega kvað við söngur: „Ó, líttu upp, syndari, og leita til guðs —“ kvað við hátt og snjallt um allan kii'kjugarðinn, eins og her göngulag. Eg leit á Pat. Söngurinn hélt Æram. Nú skildj ég, hvað um var að vera. „Guð sé oss næstur. Það er Hjálpræðisherinn,“ sagði ég við Pat. Hún veltist um af hlátri. „Helvítis eldur og eilífar kval ír —“ hélt kórinn áfram. „Haldið þið kjafti,“ grenjaði Sterk kai'lmannsrödd einhvers- 'staðar utan úr þokunni. Nú varð augnablikskyrrð. En Hjálpræðisherinn átti því að venjast að tekið væri fram í fyrir honum. Kórinn sótti í sig veðrið, • og beljaði eim-addað: ,,Ó, seg oss, hvað aðhefst þxx, syndanna barn--------“ „Er á stefnumóti," oi'gaði • sama í'ödd og áður. „Og meg- um við svo fá að vera í friði?“ „Um sál þína Djöfullinn hespar sitt garn“, sVaraði kór- inn. „Hættið þið þessum fífla- látum. Þið veiðið, hvort eð er engan,“ gx’enjaSi i'öddin utan úr þokunni. Við skellihlógum bæði. Þessi viðureign var sjaldgæf skemmt- un. Hjálpræðishernum var það auðvitað vel kunnugt, að bekk- ímir í kii’kjugarðinum voru at- hvarf elské,nda, sem hvergi fengu næði í ys borgarinnar. Hann hafði því tekið sig til og lagt í í’ækilegan leiðangur til að frelsa syndugar sálir. Ein- lægnin og trúmennskan leyndi sér ekki í háværu, óæfðu i’ödd- unum. Kii'kjugarðurinn hafði allur íifnað við. Hljóð og skrækir heyrðust úr öllum áttum. Það virtist eins og allir bekkir hefðu verið setnir. Stríðsmaður ástarinnar, sem

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.