Þjóðviljinn - 02.03.1945, Blaðsíða 3
3
Föstudagur 2. marz 1945
ÞJÓÐVILJINN
ÍÞRÓTTIR
' \
★ RITSTJÓRI. FRÍMANN HELGASON
Skjaldarglíman
Það er ekki ætlan mín að
fara að skrifa neinrí ritdóm
um þessa glímu eða kepp-
endurna. Það mun Stefán Run-
ólfsson ef til vill gera síðar. I
raun og veru ætti þetta grein-
arkorn ekki fremur að heita
,„Skjaldarglíman“ en „Glíman“
Mig hefur oft langað, sem „leik-
maður“, að gera samanburð á
þeirri glímu sem mér var
kennd og þeirri glímu sem ég
sé hér á glímumótum, en það
verður að bíða betri tíma.
Það er staðreynd að glíman
er vinsæl, það sýnir aðsóknin
að glímumótunum. Það virðist
því vera tími til kominn að
fjölga glímumótunum. Eins og
er fara hér fi'am aðeins tvær
glímur á ári sem að kveður.
Aðeins tvö kvöld á ári fá áhorf-
endur að sjá íþróttina, og að-
eins tvö kvöld fá keppendumir
tækifæri til að sýna list sína.
Þeim er ekki oftar leyft að
njóta þeirrar þjálfunar sem ligg
ur í bví að koma framogkeppa.
Það atriði út af fyrir sig er mik-
ilsvirði og er lengi að lærast.
Það er því eðlilegt að hér
komist á Reykjavíkurmót í
glímu, eins og öðrum íþróttum.
Ætti hið nýstofnaða ^límuráð
Reykjavíkur að hrinda þessu í
framkvæmd.
Þegar áhuginn er orðinn svona
almennur og margir sem æfa
er sannarlega tími kominn til
að flokka allar glímur sem
fram fara. Eg hef fyrirhitt þó
nokkra menn sem segjast ekki
fara á kappglímur meðan att er
til keppni 200 punda manna,
við annan, sem er ef til vill
rúm 100 pund. Þetta er svo
ójöfn aðstaða sem hvergi þekk-
ist í svipuðum íþróttum að
leyfð sé.
Þetta ættu glímumenn að at-
huga og koma á. Eg hef oft
veitt því athygli, að ramminn
utan um sjálfa keppnina er oft
daufari og þunglamalegri en
æskilegt væri. Á ég þar sér-
staklega við dómara og glímu-
stjóra. Hér á ég ekki við hvort
allt sé rétt og vel gert af þeirra
hálfu eða ekki, heldur klæðn-
aðinn. Ef við tökum t. d. Skjald
arglímuna síðustu, þá eru þess-
ir starfsmenn eins og þeir séu
teknir úr áhorfendahópnum.
Þeir eru í sínum venjulegu
starfsfötum, með klút upp á
brjóstvasann. Þeir ganga um
gólfið á sínum venjulegu götu-
skóm (sumir).
í hverri keppni álít ég að
dómarinn sé þátttakandi, hann
er þarna í rauninni að iðkun
íþrótta, hann og starf hans
setja oft mikinn svip á keppn-
ina. Hugsum okkur að glímu-
dómarar hefðu sérstakan bún-
ing, við skulum segja hvítan
jakka, svartar buxur og hvíta
skó. Þeir stæðu svo eins og
vera ber, umhverfis keppend-
ur og keppnissvæðið í þessum
búningi, að störfum sínum.
Mundi glíman og ramminn ut-
an um hana ekki fá íþrótta-
legri svip, meiri glæsibrag, og
það á hún skilið.
Að sjálfsögðu kemur að -því
að glímudómarar og glímu-
stjórar hafi tilskilin próf og
þá verður þetta um leið lög-
giltur búningur dómaranna.
Eg efast ekki um að þegar
forráðamenn glímunnar fara
að veita þessu athygli, sann-
færast þeir um að þetta mál
er ekkert hégómamál Eru
þarna mál sem glímuráðið
væntanlega lætur til sín taka.
Fimleikðþing baldii
á mánudag
Á mánudaginn kemur verður
fyrsta þing fimleikamanna hald
ið hér í bænum. Mun það vera
í fyrsta sinn sem fimleikamenn
halda þing til að ræða mál sín.
Má það raunar furðulegt heita
að jafnfjölmenn íþrótt og það
íþrótt sem nær til allra aldurs-
flokka, skuli ekki hafa betur
kerfisbundið starf en raun hef-
ur á orðið.
Má því gera ráð fyrir að þar
komi mörg mál fram og marg-
ar skoðanir, sem ekki er að
undra, þar sem segja má að
hver l\afi etið úr sínum poka.
Er vonandi að þetta þing verði
til þess að koma betra skipu-
lagi á þessi mál en verið hefur.
Að sjálfsögðu verður skipað
þar nýtt Fimleikaráð. sem hef-
ur með höndum framkvæmd
fimleikamála bæjarins. Að vísu
hefur verið starfandi Fimleika
ráð hér undanfarið, en það hef
ur haft sérlega hljótt um si^
og framkvæmdir þess þá líka
að samt skapi hljóðlátár og fyr
irferðarlitlar.
Knattspyrmiþingið hefst
i þriðjudag
Hið árlega þing 'knattspyrnu
manna hér í Reykjavík hefst á
þriðjudagskvöld. Þing þessi
hafa v.erið hin skemmtilegustu
og mörg merkileg mál þar fram
komin og rædd.
Ekki er Íþróttasíðunni kunn-
ugt um hvaða mál verði sér-
staklega rædd, en gera má ráð
Fi'amli. á 5. síðu.
Erlendar
íþróttafréttir
Sá yngsti og elzti. Yngsti
maður sem mun hafa keppt
x landsliði í knattspymu er
hinn frægi innherji, ungverj-
inn Imra Schlosser. Hann lék
sinn fyrsta leik 15 ára gamall
í landsliði Ungverja 1906, og
var í liðinu til ársins 1928.
Alls lék hann 68 landsleiki,
oftast -sem vinstri innherji, en
nokkrum sinnum útherji og
miðherji.
Elzti keppandi í landsliði er
án efa hinn mikið umræddi
Wales búi Billy Meredith, sem
í aldiarfjórðung (1895—1920)
lé’k 51 sinni sem hægri útherji
í landsliði Wales. Síðast þegar
hann lék yar hann fullra 46
ára. Hann tók þátt í „semitin-
alkeppni11 * fyrir Manchester
City, þá 49 ára gamall.
Yngstu þátttakendur Olym-
piuleika og sigurvegarar.
Yngsti þátttakandi í Olýmpiu-
leikjum er japanska stúlkan
E. Znada og keppti í listhlaupi
á skautum í Gei'mich 1936.
Yngsti olympiski sigurvegar-
inn er Japaninn K. Kitamura,
sem var aðeins 14 ára þegar
hann á Olympiuleikjunum 1932
í Los Angeles vann 1500 m.
sund, frjáls aðfei'ð. Sonja Henie
var 15 ára þegar hún vann
fyrstu gullverðlaun í St. Moi'itz
1928. Yngsti keppandinn í Ol-
ýmpiuleikjum sem tekið hefur
verðlaun” er danáka sundkonan
Inge Sörénsen, sem var 12 ára
þegar hún vann silfurverðlaun
fyrir 200 m. bringusund 1936 í
Berlín.
Elzti Olympiukeppandinn
Sænski skotmaðurinn, O. G.
Swhan. var 64 ára þegar hann
19i2 tók þátt í skotsveitar-
keppni, og var skotið á hlaup-
andi hjört. Hann vann einnig
sömu keppni 1908 í London,
þá 60 ára. Hann hefur aldurs-
metið bæði sem þátttakandi og
verðlaunahafi, því hann. tók
einnig þátt í leikjunum 1920 í
Antwerþen og fék'k þá silfur-
verðlaun. Hann var þá 73 ára
gamall.
Georg Carpentier, sem var
franskur hnefaleikari í öllum
þygndarflokkum frá bantam
og uppúr. Hann var 13 ára þeg-
ar hann byrjaði að keppa og
14 ára vann hann sín,a fyrstu
atvinnumanna meistaratign.
Jack Dempsey vann 26 leiki
sína á „Knockout“ í fyrstu lotu
Handknattleiksmótið
Nú er lokið fyrri hluta handknattleiksmótanna innan húss,
en eins og kunnugt er, eru þau felld' saman og fer vel á því.
í þetta sinn er fyrirkomulag þess gott og sett í eðlilegt horf. Sú
breyting, að skipta því í tvo hluta með hvíld á milli, gerir
þetta auðveldara í framkvæmd og hægara. Það eðlilegasta og
æskilegasta væri að einn léki við alla og allir við einn; þó get-
ur sá fjöldi tekið þátt í einu móti, að nauðsynlegt sé að breyta
til (útslátt). Vel væri hugsanlegt að breyta flokkaskipuninni
í hverjum flokki, ef, fjöldi yrði svona mikill. Um þetta atriði
er nauðsyn að koma á sama fyrirkomulagi um mótin sem gildir
frá ári til árs, en ekki eins og verið hefur, mjög á reiki.
Eitt atriði er enn í þessu móti sem er til bóta og fært í
sama horf og er gert annarsstaðar,. og það er að láta leiksterkari
sveitirnar leika fyrst jafnmarga leiki og ákveðnir eru, svo að
sami keppandi bindi sg í sveit og hefur ráðið ákveðið 2 leiki.
Þá byrja lakari sveitirnar í sama aldursflokki (meistarafl. —_
I. fl., B-fl. of s. frv.). Þá er sá ljóður á þessari nýbreytni, að
hafi leikmaður keppt tvo leiki í t. d. I. fl., þá getur hann ektfi
keppt með öðrum sveitum á því móti. Það er viðtekin regla alls
staðar að leikmaður í lakari flokki hefur alltaf tækifærið til
að „vinna sig upp“, það virðist líka það eðlilega að einstakling-
arnir fái að flytjast upp eftir vaxandi hæfni. Það er líka eðli-
legt að félögin vilji á hverjum tíma nota sína beztu menn 1
sterkustu sveitina. Þá má geta þess að þegar t. d. I. fl. lið hefur
leikið tvo leiki og engin breyting orðið á liðinu, þá hefur meist--
araflokkur þess félags í raun og veru ekki tiltækilegan vara-
mann I. fl. sem þá tilheyrði B-liði. Þetta sem nefnt hefur
verið bendir ótvírætt á það að þessu þarf að breyta og færa
til samræmis við það sem gert er annarsstaðar og þrautreynt er.
Þeir sem horft hafa á leiki mótsins eru víst flestir sammála
um að þeir eru æði misjafnir að fegurð og leikni. Það sem ein-
kennir þessa íþrótt okkar er sú harka sem víðast kemur fram.
Þessa hörku má alveg eins kalla ólöglegan leik. Dómararnir hafa
ekki tök á að halda í þeim skefjum, sem lögin beinlínis gera
ráð fyrir. Stafar það mest af því að reglur leiksins eru ekki
strangtúlkaðar á æfingum félaganna. Þar eiga að sjálfsögðu að
fara fram skýringar og kennsla á þeim. Ef til vill finnst sum-
um ég vera heldur ósanngjarn í dómum mínum, en ef við sarn-
eiginlega athugum þetta betur, geri ég ráð fyrir að þið komizt
að svipaðri skoðun og samþykkið að hér þarf breytinga við.
Ef við flettum upp í handknattleiksreglum bls. 12, 7. gr.
b-lið, þá segir þar: ,„Óleyfilegt er: 1) að hrinda, grípa í, stökkva
á, halda utanum eða lúta yfir andstæðin^.“ Hugsum okkur svo
að dómarinn fylgdi þessum ákvæðum stranglega, og stöðvaði
leik í hvert sinn sem slíkt brot ætti sér stað, þá mundi knött-
urinn ekki vera oft í leik eða leikurinn yrði sannkallaður „flautu-
hljómleikur“. Eftir bessari nefndu grein virðist auðsætt að sá
sem hefur knöttinn er í raun og veru friðhelgur. Það er þó ekki
í samræmi við framkvæmdirnar, því áhlaup, ígrip, íhald, yfirlút,
eru stöðugir viðburðir í flestum bessara leikja. Það er jafnvel
komið svo, að menn eru farnir að fá sér flugferðir, og horfa
þá oft niður á höfuð og herðar mótherjanna, og í flestum til-
fellum er þetta óátalið af dómurunum. Það má fullyrða, að ef
félögin tækiu upp rétta túlkun á lögunum ( og hvar ætti að
gera bað annarsstaðar?) mundi leikurinn fá allt annan svip,
verða meira aðlaðandi bæði fyrir keppendur og áhorfendur.
Hanknattleikurinn er enn ung íþrótt hér og ætti ekki að vera of
seint að beina henni inn á bá braut sem öllum er fyrir beztu.
Til þess þarf meira en ákveðna dómara (sem flestir eru venju-
lega óánægðir með). Hér geti Handknattleiksráðið líka haft
.sín góðu áhrif og náð til félaganna fyrir milligöngu þeirra full-
trúa sem þau eiga í ráðinu.
•
og 27. júlí 1918 sló hann Fred
Folton út eftir 13 sek. Áhorf-
endur hafa sennilega talið sig
fá lítið fyrir aðgangseyrinn
Áhuginn samur cg jafn! Frá
Burma er sagt að fyrir nokkru
hafi farið fram knattspymu-
keppni milli enski'a sveita að-
eins 150 m. frá víglínunni; Jap-
anarnir máttu auðvitað ekk'i
vita hvað um var að vera, svo
dómarinn mátti ekki nota
blístru, leikmenn ekki tala og
áhorfendur ekkert láta í sér
heyra. Allt var þetta nokkuð
erfitt, en hvað er ekki á sig
leggjandi?