Þjóðviljinn - 08.03.1945, Page 7

Þjóðviljinn - 08.03.1945, Page 7
Fimmtudagur 8. marz 1945. 7 Mikkjel Fönhus: Hrakningar bjórafjölskyldunnar Þau gengu meðfram tjörninni og komu að stíflunni sem bjórahjónin höfðu hlaðið í lækinn. Stíflan var tvær álnir á hæð og margra álna löng, Og svo þétt var hún og þykk, að það gat varla heitið, að vatn seytlaði í gegnum hana. Vatnið í tjörninni hafði líka flætt yfir alla mýrina. „Hefði þessi náungi hlaðið stífluna við Straumár- fossinn, mundi hún líklega ekki hafa brotnað í vor“, sagði Toggi. Hallvarður gamli tuggði skeggið. Hann var reiður. Nú hafði hann átt í málaferlum út af mýrinni í tvö ár, og þegar hann loksins fékk hana, kemur bjórinn og leggur mýrina undir sig. Þetta ætlaði Hallvarður ekki að þola bótalaust. Bjórinn skyldi fá fyrir ferðina. Hallvarður og Toggi réðust á stífluna, fyrst með höndum og fótum, en það dugði ekki neitt. Þá fengu þeir sér staura og fóru að brjóta hana niður. Það var erfitt verk. Hallvarður þurrkaði af sér svitann og sagði .. / við Önnu: „Þér er bezt að fara heim. Við þurfum enga rakstrar- konu í dag“. Þegar þeir höfðu hamazt á stíflunni góða stund, fór að losna um hana og vatnið ruddi sér braut. Lækjarfarvegurinn fylltist á augabragði og leirugt vatnið flóði langt út á bakkana. Það tók með sér lurka og sprek, sem lágu á bakkanum og músafjölskylda, sem átti holu í trjárót, drukknaði. Blómin á bakkanum voru nær dauða en lífi og fáeinar sóleyjar flutu með straumnum niður lækinn. Daginn eftir hafði vatnið í mýrinni sigið, svo að Hallvarður og Toggi fóru að slá. Mýrin var illa sprottin. Alla næstu viku voru rigningar annan hvern dag, svo að ekki var til neins að hirða um heyið í mýrinni og enginn kom þangað. Svona var veðráttan stundum. Framan af sumrinu höfðu verið sífelldir þurrkar, svo að. grasið skrælnaði. En loksins, þegar farið var að heyja, komu illviðri og ekkert strá hirtist. Hallvarður gamli fór bara með Önnu út í mýrina. Það þurfti ekki tvo karlmenn, til að hirða um þetta lítilræði. En þegar þau komu út eftir varð Hallvarði ónotalega bilt við. Vatnið flaut yfir mýrina, alveg eins og um daginn, og hlaðan var orðin að hólma í miðju vatninu. Allt heyið var farið. Það var þýðingarlaust að ætla sér, að tína það saman víðs vegar, eftir að vatninu hefði verið hleypt af. Hallvarður sagði ekki neitt. Hann stóð lengi í sömu sporum og stgrði fram undan sér. Svo sneri hann við í áttina heim. „Komdu“, sagði hann við Önnu. Þegar þau höfðu gengið um stund, nam hann allt í einu staðar og sagði: „Ef bjórinn getur komið af stað syndaflóði, þá get ég látið koma dómsdag“. „Dómsdag!“ sagði Anna undrandi. „Já, dómsdag“, sagði Hallvarður gamli. 0 Bjórarnir heyrðu einhver þung og undarleg högg í nánd við húsið. Bjórapabbi og bjóramamma lágu niðri í bælinu hjá ungunum. En þau voru vön að heyra alla leið niður, ef gengið var framhjá, hvort sem það voru menn eða skepnur. Hljóðið barst svo vel gegnum göngin, sem lágu um urðina og niður í bælið. Höggin komu nær og nær, seinast var farið að berja ofan á húsþakið. ÞJÓÐVILJINIí ERICH MARIA REMARQUE: VINIR sjúkrahúsi, en sjúkrahús var það þó. Gangarnir voru hvít- málaðir og alls staðar gljáði á gler og nikkel, hreint og fágað. Yfirhjúkrunarkona tók á móti okkur og opnaði dyrnar að herberginu, þar sem Pat átti að vera. Það var númer 79. Þetta var sólríkt herbergi, í meðallagi stórt. Kvöldsólin skein inn um breiðan gluggann. Á borðinu voru gul og rauð blóm. Út um gluggann sást óendanleg fannbreiða. Það var eins og litla sveitaþorpið hvíldi í stórri, mjúkri sæng. „Hvernig kanntu við þig?“ Hún leit á mig: „Vel“ Dyravörðurinn kom með ferðatöskurnar hennar. .,Hve- nær verð ég skoðuð?“ spurði Pat hjúkrunarkonuna. „Fyrir hádegi á morgun. Þér ættuð að fara snemma að sofa í kvöld, svo að þér verðið ó- þreyttar“ Pat lagði kápuna á snjóhvítt rúmið. Yfir höfðalaginu hékk óskrifað hitaspjald. Eg spurði, hvort hér væri sími. Hún sagði að tengill væri í herberginu, ekkert vantaði nema símatól- ið sjálft. „Á ég ekki að gera neitt sér- stakt í kvöld?“ spurði Pat. Hjúkrunarkonan hristi höf- uðið. „Ekki neitt í dag. Yður verða ekki gefnar neinar regl- ur fyrr en búið er að rannsaka yður. Það verður klukkan tíu. Eg sæki yður“. Það varð undarlega hljótt í herberginu, þegar hjúkrunar- konan var farin. Pat stóð við gluggann og horfði út. „Ertu þreytt?“ spurði ég. Hún sneri sér að mér. „Nei, ég er ekki þreytt. Eg hef ekki tíma til þess“, „Ætlarðu að hafa fataskipti, eða eigum við að fara niður strax? Það er líklega bezt að við förum niður dálitla stund fyrst“. „Já, það er bezt“. Við fórum niður í hljóðlausu lyftunni og settumst við borð niðri í salnum. Skömmu seinna . kom Helga Guttmann með kunningjum sínum. Hún talaði mikið og var ofsakát. En kæti hennar var dálítið uppgerðar- leg. Mér þótt vænt um. að Pat skyldi þegar hafa eignazt kunn ingja. Fyrstu dagamir eru allt- af erfiðastir. XXIV. Viku síðar fór ég heim. Eg gekk beina leið frá jámbrautar stöðinni til verkstæðisins. Það var komið kvöld. Mér fannst að minnsta kosti ár síðan ég hafði farið með Pat. Köster og Lenz sátu á skrif- stofunni í verkstæðinu. „Þú kemur á réttu augna- bliki“, sagði Gottfried. „Lofaðu honum að komast inn úr dyrunum fyrst“. sagði Köster. „Hvernig líður Pat?“ „Eins vel og hægt er að bú- ast við. En segið þig mér strax, hvað hefur komið fyrir“ Það var þá viðvíkjandi bíln- um, sem við höfðum gert við og skilað fyrir hálfum mánuði. Nú hafði Köster farið til að sækja vinnulaunin. En þá kom það í ljós, að eigandi bílsins hafði allt í einu orðið gjald- þrota og bíllinn hafði fylgt þrotabúinu. „Hvað gerir það?“ sagði ég. „Við förum þá bara til trygg- ingafélagsins“. „Það ætluðum við líka“, svaraði Lenz þurrlega. „En bíllinn er ekki tryggður Það var Otto sagt í dag. Þetta fá- um við fyrir að gera miskunn- arverk á sjúkum og særðum og leggja okkur í lífshættu fyrir bílskrjóðinn. Þama töpum við fjórum þúsundum“. „Hvað eigum við að gera, Otto?“ spurði ég. „Eg hef gert kröfu til þrota- bússtjóranna. En ég hef ekki von um, að það beri mikinn árangur“. „Eini árangurinn verður, að við lokum verkstæðinu“, sagði Gottfried. „Ef til vill“, sagði Köster. Lenz stóð á fætur. ..Ojæja. Við höfum séð hann svartari. Nú held ég að ég fari á kreik með bílgarminn og reyni að nurla saman fáeina aura“. Við Köster sátum kyrrir enn um stund. „Við höfum verið -fjandi óheppnir 1 seinni tíð“, sagði ég. „Eg er gamall hermaður og hef ekki áhyggjur af því sem liðið er. Það er nóg samt. Hvern ig er annars þama uppi á hæl- inu?“ „Það væri sannarleg Paradís, ef enginn væri veikur, þar er sólskin og snjór“. Hann rétti úr sér. „Sólskin og snjór. Það er næstum ótrú- legt“. „Þar er allt ótrúlegt" sagði ég- „Hvar verðurðu í kvöld? spurði hann og horfði á mig. Eg seig saman í herðunum, uppgefinn og viljalaus. „Fyrst sæki ég farangurinn minn á stöðina“. „Og ég fer héðan bráðum. Kemur þú líka á barinn á eft- ir?“ „Já, hvað ætti ég annars að gera?“ — — Eg sótti ferðatösjcurn- ar og opnaði forstofuhurðina heima hjá frú Zalweski eins hægt og ég gat. Mig langaði ekki til að hitta neinn. Mér heppnaðist líka að komast inn í herbergi mitt, án þess að frú Zalweski yrði á vegi mínum. Eg sat þar um stund. Blöð og fáein bréf höfðu komið, með- an ég var í burtu. Bréfin voru prentað mál. Enginn var vanur að skrifa mér. En hér eftir muni ég fá bréf, hugsaði ég. Seinast þvoði ég mér og hafði fataskipti. En ég tók ekki upp úr töskunum.. Mér þótti eins gott að eiga eitthvað ógert, þegar ég kæmi heim í kvöld, og yrði aleinn. Eg leit ekki inn í hitt herbergið, þó að ég vissi, að allt væri þar eins og Pat skildi við það. Eg gekk hljóðlega fram ganginn aftur og komst út óáreittur. Síðan fór ég inn á Kafé Int- ernational, til að fá mér eitt- hvað að borða. Alois stóð í dyr- unum. „Eg átti þá eftir að lifa það að sjá þig aftur“, sagði hann. „Já, á endanum koma allir hingað aftur“, svaraði ég. Rósa sat við borð hjá þrem- ur öðrum stúlktím. Þær voru komnar úr fyrsta leiðangrinum og ekki farnar í þann næsta. „Drottinn minn. Ert þú hér, Robert?“ sagði hún. „Spurðu mig ekki allt of mik- ið. En þú sérð, að ég er hér, og sennilega verð ég hér áfram“ „Berðu höfuðið hátt“ sagði hún og horfði rannsakandi á mig. „Þetta batnar allt. Tím- inn læknar allt. Og svo er það búið“. „Já, það er satt. Það er sá mesti sannleikur, sem til er í þessum heimi“. „Það getur Lilly borið vitni um“, sagði Rósa beizklega og nú fyrst tók ég eftir þvi, að Lilly sat við hlið 'hennar. „Hvað er þetta, Lilly?“ sagði ég. „Hvers vegna ert þú hér? Þú ert gift kona ög átt að véra heima“. Lilly svaraði engu. „Heima“, sagði Rósa háðslega, „Jú, það gekk allt eins og í sögu — í ást og eindrægni, meðan Lilly átti peningana sína, og fortíð hennar var gleymd og grafin. En hvað entist sú dýrð lengi? Eitt misseri. Þá hafði hann náð síðasta skildingnum af henni og var orðinn vel stæður, einmitt vegna þessarra peninga. En þá var hann líka orðinn of fínn til að vera kvæntur götustelpu. Þá lézt hann allt í einu hafa komizt að því sanna og krafð- ist skilnaðar. En peningarnir voru auðvitað famir sína leið“ „Hvað var það mikið?“ spurði ég- „Fjögur þúsund mörk. Það er ekkert smáræði. Hvað heldurðu að hún verði að sænga hjá mörgum dónum, áður en hún fær þá upphæð aftur?“ „Fjögur þúsund mörk. Það er ekkert smáræði á þessum tím- um“. Rósa horfði rannsakandi á mig. „Spilaðu nú Robert, til að koma okkur í betra skap“.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.