Þjóðviljinn - 11.03.1945, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJINN. — Sunnudagur 11. marz 1945.
(MÓÐVIIJI
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Emar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 12, sími 2270.
Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 21 S.’t.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastræti 17.
Djóðfylking Indlands
í frelsisbaráltunni
Lygaherferð íslenzku möndulblaðanna
Lygamöndullinn á íslandi snýst hratt um þessar mundir.
Daglega dreifir hann blöðum sínum: Vísi, Alþýðublaðinu qg
Tímanum út til fólksins, til þess að reyna að fylla það með lyg-
um um viðkvæmasta utanríkismál íslands: það hvort ísland
skuli taka þátt í samstarfi hinna sameinuðu þjóða eða vera útilok
að frá því. Þessi íslenzku möndulblöð birtast ekki svo að þau séu
ekki barmafull af þvættingi og óhróðri um þetta mál. Og til-
gangurinn er auðsær:
í fyrsta lagi á að reyna að rægja Sósíalistaflokkinn með því
að telja fólki trú um að hann hafi heimtað að Möndulveldun-
um væri sagt stríð á hendur.
í öðru lagi á að reyna að sverta íslenzku þjóðina í augum
hinna sameinuðu þjóða, þessi möndulblöð 'hamra sífellt á því
í greinum sínum, sem þau vita að þýddar eru á erlend mál, að
íslendingar vilji ekkert á sig leggja fyrir hinar sameinuðu þjóð-
ir. Með þessu eru íslenzku möndulblöðin að reyna að dylja þá
staðreynd að Jslendingar hafa fært meiri fórnir og lagt meira
fram til styrjaldarrekstursins en t. d. þær sameinuðu þjóðir, sem
nú á síðasta augnabliki hafa sagt Þýzkalandi stríð á hendur.
Tilgangur möndulblaðanna með því að níða íslenzku þjóðina í
augum hinna sameinuðu þjóða, er að reyna að einangra hana
svo að hún verði útilokuð frá samstarfi þeirra um nýsköpun
atvinnulífsins í heiminum og geti ekki fengið keypt nógu snemma
m
tæki þau, sem hún þarf að fá til^ess að umskapa atvinnulíf
sitt. Þessi landráðailýður svífst einskis til þess að reyna að spilla
fyrir framkvæmd nýbyggingaráformanna, hve dýrt sem það kynni
að verða þjóðinni.
í þriðja lagi á svo að reyna að sverta hinar sameinuðu þjóð-
ir í augum íslendinga — og gengur Alþýðublaðið þar fram fyr-
ir skjöldu með vísvitandi lygum sínum um hinar sameinuðu
þjóðir, er það segir að þær hafi sett íslendingum þau skilyrði
fyrir þátttöku í San Fransisco-ráðstefnunni að segja Möndul-
veldunum stríð á hendur eða heyja styrjöld gegn þeim. Það er
varlaAúð betra að búast en slíkum ósannindum frá hálfu þessa
fyrirlitlega ofstækissnepils, sem óskaði Hitler sigurs 1 -stríðinu
og áleit eyðingu hans á Sovétríkjunum „menningarafrek“.
Þessi möndulblöð hafa nú í hálfan mánuð haldið áfram lyg-
um sínum um þessi mál, þrátt fyrir óskir ábyrgra aði-lja um
það að helzt verði um þau þagað. Tilgangur þeirra er auðsjáan-
lega að berja lygina svo rækilega inn í fólkið á þeim stutta
tíma sem þjóðinni er þörf á að þagað sé um málið, að enginn
trúi sannleikanum, þegar hann verður birtur. Þessi brögð skulu
ekki takast. Vér-setjum hér fram eftirfarandi staðhæfingu í dag
og ætlum að það muni sannast á sínum tíma að hún hafi við
rök að styðjast.
íslandi hafa ekki verið sett nein skilyrði um að
segja Möndulveldunum stríð á hendur eða heyja styrj-
öld.
, Enginn stjórnmálaflokkur hefur lagt það til að
segja Möndulveldunum stríð á hendur eða vopna Is-
lendinga til að heyja stríð.
Allur óhróður íslenzku Möndulblaðanna um stefnu ríkis-
stjórnarinnar í þessurn málum, um hinar sameinuðu þjóðir og
um Sósíalistaflokkinn, eru fyrirlitlegar tilraunir til lýðæsinga,
byggðar á forsendum, sem upphafsmenn skrifanna vita að eru
lognar, og framdar í þeim höfuðtilgangi að eyðileggja fyrir
íslandi út á við og einangra þjóðina í heiminum.
Éslenzka þjóðin þarf að gjalda varhuga við þessum ábyrgðar-
lausa afturhaldslýð, sem einskis svífst, til þess að reyna að maka
krókinn fyrir sig. Það, sem nú er að gerast í utanríkismálum,
er einn prófsteinninn á það hve vel fær þjóð vor er til þess
að vera sjálfstæð og stjóma utanríkismálum sínum sjálf. Mönd-
ulblöðin íslenzku eru að reyna að einangra hana og eyðileggja.
Og það má þeim ekki takast.
Það er komið í Ijós, að akuryrkja
og iðnaður Indlands eru ekki þéss
megnug að fullnægja kröfum stríðs
ins eða tryggja íbúunum velmeg-
un á friðartímum. Þessu verður
ekki breytt með öðru móti en að
frelsa Indland úr hinum drepandi
greipum hins erlenda auðvalds.
Það er ekki hægt að framkvæma
áætlanirnar um blómlegan og sam-
einaðan heims'búskap á grundvelli
friðar og allsnægta, nema Indland
verði leyst undan hinu sligandi
oki hinnar erlendu sérhagsmuna-
klíku, sem styðst við nakið vopna-
valdið.
Nýlendugræðgi heimsyaldasinn-
anna kom fyrri héimsstyrjöldinni
áf stað. Sama græðgin og löngun
éftir að kæfa byltingar alþýðunn-
ar kom þeirri síðari af stað. Við
þurfum á frjálsu Indlandi að halda
til að koma í veg fyrir þriðju
heimsstyrjöldina.
En þó að við ræðum við brezka
iýðræðissinna um rök mannkyns-
sögunnar, þá munum við vel, að
engin þjóð eða stétt hefur fengið
frelsi sitt með rökræðum einum.
Indverska þjóðin sviptir hinum
siðferðilega grundvelli undan
drottnurum sínum með því að
sýna fram á hið ómótmælanlega
réttmæti krafna sinna, en hún hef-
ur heldur ekki gleymt að smíða
frelsisvopnin.
Fyrsta vopnið er vitundin um
hið sögulega hlutverk sitt og
skyldu. Hinum fjölmörgu milljón-
um Indverja af öllum stéttum og
stigum, þjóðflokkum og trúarflokk
um er orðin frelsisnauðsynin ljós.
„Við verðum að ha'fa okkar eigin
stjórn“, er viðkvæði allra Ind-
verja.
En sannfæring er ekki nóg, við
þurfum skipulagningu og hún verð
ur að leiða til athafna.
Indverska þjóðin er líka búin
að smítfa þetta vopn, — skipulagn-
inguna. í áratuga efnáhags- og
stjórnmálabaráttu hefur hún mynd
að Congress-flokkinn, sem er hin
voldugasta þjóðfylking frelsisvina
úr öllum stéttum.
Congressinn er fyrst og fremst
alþýðleg hreyfing, sem vill sjálf-
stætt Indland með stjórnarskrá,
sem sé samin af þjóðfundi, og hann
sé kosinn á grundvelli almenns
kosningaréttar, en ekki á grund-
velli séáhagsmunasamtaka, eins og
fólst í hinum alræmdu Cripps-til-
lögum.
Þar sem máttarstólpi hreyfing-
arinnar er alþýðan, er sjálfstæði
Indlands og frelsi alþýðunnar óað-
skiljanleg samstæða í hugmyndum
hennar um framtíðina.
Þar sem þetta er sam'fylking
allra stétta, baga henni stéttamót-
setningar, þegar þeir ríku reyna að
nota mátt hennar sér til framdrátt-
ar. En fjöldinn er nógu sterkur
og varkár til að koma í veg fyrir,
að hún verði verkfæri arðræningja.
Milljónir Indverja hafa sýnt hreyf-
ingunni óibuganlega hollustu og
hafa dáið fyrir hana og farið í fang-
elsi fyrir hana hundruðum og þús-
undum saman.
1 }
I sjálfstæðisbaráttunni hafa ýms
ar þjóðir Indlands vaknað til nýrr-
ar meðvitundar og byrjað að hugsa
sér frelsið sem rétt sinn til að
mynda óháð þjóðríki á grundvelli
sameiginlegra lífsskoðana og sam-
eiginlegrar sögu.
Fimm þessara þjóða, sem eiga
sameiginlega trú og trúarsögu og
eru skipulagðar í Múselmanna-
bandalaginu, litu á sjálfstæðið sem
rétt til að stofna fullvalda ríki,
sem þær kalla Pakistan, — við hlið
hins sjálfstæða Ilindustans, þar
sem Múselmenn eru ekki í meiri
hluta. En þótt Pakistan sé sveipað
skikkju Islamstrúar, er lýðræðið og
óibeitin á heimsveldis’hyggjunni
lýðræðissinnáfIokkurinn“, „ind-
ver.ska verkamannasambandið“,
Hindu Máhasabha o. s. frv., sem
lifa á stuðningi landeigendanna og
lögreglunnar, hafa öll farið hinar
mestu hrakfarir í hvert sinn sem
þau hafa ráðizt á hin miklu þjóð-
legu fjöldasamtök.
★
Nú er það hinnar lýðræðissinn-
uðu brezku þjóðar að ákveða,
hvort það sé í samræmi við hags-
muni hennar að láta það viðgang-
ast, að frelsis- og hagsmunabaráttu
samtök Indverja séu moluð af
harðstjórninni fneð lögregluofsókn-
um.
Indverska sjálfstæðishreyfingin
það, sem gefur því kraftinn til at-
hafna.
Sameiginleg markmið alþýðunn-
ar knýja hana til sameiginlegra á-
taka.
★
Ýmsar stéttir í þjóðfrelsishreyf-
ingunni háfa líka myndað sín eig-
in stéttasamtök.
Hin kúgaða verkalýðsstétt hef-
ur skipulagt voldugt verkalýðsfé-
lagasamband og veit vel, að brezku
einokrararnir og indversku sér-
hagsmunaklíkurnar taka höndum
saman um að halda hinu miskunn-
arlausa arðráni við.
Verkalýðsstéttin, sem er fram-
sæknasta stétt nútímans og fram-
herji sósíalismans og höfuðsmiður
hins nýja heims hefur líka mynd-
að sinn eigin Kommúnistaflokk á
Indlandi. Ilann er sterkasti flokk-
urinn í indversku verkalýðs'hrevf-
ingunni og á ítök í Congress-hreyf-
ingunni og Múselmannabandalag-
inu.
Ilin kúgaða bændastétt treystir
samtök sín í bændafélögunum.
Iienni er það vel ljóst, að hinir er-
lendu drottnarar og hinir innlendu
landeigendur eru samherjar, og að
peningalánararnir og landeigend-
urnir eru öflugustu þjóðfélagsstoð-
ir hins erlcnda, spillta stjórnkerfis
í Indlandi.
Allri samtakaorku stéttanna og
þjóðarbrotanna er beitt í baráttu
fyrir einu og sama takmarki, —
frelsun Indlands undan hinu er-
lenda oki. l
Ilinum niiskwnnarlau.su lögreglu
ofsóknum hefur ekkþ tekizt að
rjúfa samtökin.
Lævíslegar klofningstilraunir
flokka, sem stofnaðir hafa verið
með stuðningi lögreglunnar, leyni-
legra fjárframlaga frá ríkisstjórn-
inni og leigðra liðsmanna úr hópi
kvislinga, sem reknir hafa verið
úr Congress-hreýfingunni og öðr-
um samtökum, liafa ekki orðið
harðistjórninni að liði.
Samtök verkfallsbrjóta og aft-
urhaldssinna, svo sem „róttæki
hefur verið vinveitt baráttu þjóð-
anna fyrir lýðræðinu. Hún hefur
verið sú fyrsta til að lýsa óbeit
sinni á fasismanum, og það er
harðstjórnin, sem hefur hindrað
hervæðingu henmir í stríðinu gegn
fasismanum. Ásamt Kínverjum er
hún heilbrigðasta og öflugasta
stoð velmegunar og lýðræðis í heim
inum.
í dag er sjálfstæðisdagur Ind-
lands (greinin birtist 26. janúar,
— þýð.) haldinn hátíðlegur af ó-
vopnuðum milljónunr alþýðunnar,
en bannaður áf hinum vojjmuðu
h undruðum harðst jórnarinnar.
Brezkir lýðræðissinnar verða að
halda upp á hann með því að krefj-
ast þess, að pólitísku fangarnir
séu látnir lausir tafarlaust, að
bundinn sé endir á lögregluofsókn-
irnar og að stofnuð sé frjáls, inn-
lend stjórn, sem útrými öngþveit-
inu með hungursneyðinni.
Þá er hægt að nota alla‘orku
þessa meginlands, sem nú er lam-
að af örvæntingu og eymd, í hinni
miklu baráttu fvrir heimi friðar
og allsnægta.
F rakklandssöf nunin
Eftirfarandi gjafir hafa borizt:
Sigurgeir Sigurðsson biskup 100
kr., Jóhannes Gunnarsson biskup
100 kr., Ragnhildur Pétursdóttir,
Háteig 100 kr., Alexander Jóhann-
esson 100 kr., Brynjólfur Magnús-
son , Flókagötu 14, 500 kr., Einar
Einarsson skipherra 500 kr., Valder
mar Guðmundsson, Holtsgötu 16,
50 kr., Karl Magnússon læknir,
Keflavík, 100 kr., Eiríkur Eiríksson,
Vesturvallag. 4, 10 kr., starfsfólk
hjá Klæðav. Andr. Andréssonar 755
kr., Kristín Jensdóttir, Elliheimil-
inu, 30 kr., Lýður Illugason, Karlag.
2, 50 kr., N. N. (afhent frú Aðalbj.
Sigurðard.) 1000 kr. — Miklar fata-
gjafir hafa borizt, auk þeirra er
ungfrú Thora Friðriksson hefur
safnað, m. a. frá Katrínu Jónsd.,
Hringbr. 141, Rannveigu Runólfs-
dóttur, Klæðav. Andr. Andréssonar,
Dagbjört Jónsdóttir, Bjargarst. 6,
Maríu Elíasdóttur, Grundarstíg 19,
Gerði Hjörleifsdóttur, Þórdísi Daní-
elsdóttur, Hrannarstíg 3, Þóru Á-
gústsdóttur, Bræðraborgarstíg 11,
Guðrúnu Heiðberg, Austurstræti 14,
Fjórða og síðasta greinin um sjálfstæðis-
baráttu Indverja eftir S. A. Dange, forseta
indverska verkalýðsfélagasambandsins
ANNAÐ SAMSÆRI ÞYZKU
HERFORINGJANNA
Enn hefur komizt upp um nýtt
samsæri innan þýzka hersins gegn
Hitler, eftir því sem brezka blaðið
Cavalcade skýrir frá.
Sextán háttsettir þýzkir herfoi-
ingjar hafa reynt að taka völdin
handtaka -,,foringjann“ og semja
frið við Bandamenn.
Uppreisnin átti að hefjast þegar
tilkynnt væri um fund Roosevelts,
Stalins og Churchills og friðarskiL
málarnir áttu að leggjast undir þá
En Hitler varð fyrri til og for-
ingjar samsærismannanna voru hand
teknir áður en til uppreisnarinnar
kæmi. „Hreinsuninni" var lokið,
þegar Himmler gerði sér nýlega ferð
til austurvígstöðvanná. Hann var
sendur þangað til að koma í veg
fyrir uppreisnina.
HINN ILLI ANDI
Handtaka og aftaka a. m. k
tveggja háttsettra herforingja á
austurvígstöðvunum jók á glund-
roðann í þýzka hernum þar og varð
rauða hernum til hjálpar í sókn
hans.
Himmler komst yfir ávarp, sem
undirritað var af 16 háttsettum þýzk
úm herforingjum. í því var Hitler
kallaður „hinn illi andi“ þýzka rík-
isins, og að „stríðsstefna hans cg
hrottaskapur hefði sett óafmáanleg-
an blett á Þýzkaland.11
„Nazisminn er á milli Þýzkalands
og heimsfriðsins,“ stóð ennfremur í
ávarpinu. „Þessvegna verður hann
að upprætast miskunnarlaust.“
HÁTTSETTIR FORINGJAR
Meðal þeirra sem undirrituðu á-
varpið voru marskálkarnir Walter
von Brauchitsch, fyrrverandi yfir-
hershöfðingi þýzka hersins, von
Blomberg, fyrrv. hernaðarmálaráf:-
herra, Fritz Zeitzler, fyrrv. yfirmað-
ur herforingjaráðsins og von Falk-
enhorst hershöfðingi, yfirmaður
þýzka hersins í Noregi. Einnig er
talið, að Guderian hershöfðingi, yf-
iramaður þýzka hersins á austu:-
vígstöðvúnum hafi vitað um og ver-
ið hlynntur samsærinu.
Álitið er, að Werner von der Schul
enberg, fyrrv. sendiherra Þjóðverja
í Moskva hafi átt að vera diplomat-
iskur erindreki samsærismannanna.
HITLER SLÆR FRÁ SÉR
Hitler gerði þegar ráðstafanir til
að koma í veg fyrir uppreisnina,
von Falkenhorst tókst að komast
undan til Svíþjóðar í flugvél. Nokkr
ir aðrir herforingjar voru handtekn
ir og drepnir. Von der Schulenberg
greifi var dreginn í fangelsiíBerlín
Tilkynnt hefur verið að Albert
Vögler, hinn 67 ára gamli forstjóri
die Vereinigte Stahlmarke, hins
gríðarmikla járn-, stál- og kolafyr-
irtækis, sem studdi uppreisnarmenn
ina, sé látinn, og svo er einnig um
dr. Franz Haniel, annan iðjuhöld
Franz von Papen, fyrrv. vara-
kanzlari í fyrsta ráðuneyti Hitlers
og einn færasti diplomat þriðja rík-
isins, er meðal þeirra, sem sagðir
hafa verið handteknir eða drepnir
Skýrt er frá því, að á listanum
yfir þá, sem grunaðir séu um að
hafa verið við riðnir uppreisnina
séu 504 nöfn. ,
Glundroðinn í Berlín gerði blaðp
mönnum frá hlutlausu löndunpm
auðvelt að afla sér upplýsinga um
uppreisnina.
TogarasjómaðurAlþýðublaðs
ins minntur á staðreyndir
Birni Jóhannssyni, Hafnarfirð^ og
mörgum öðrum nafnlausum gefend-
um.
Gjöfum veitir mótttöku verzl.
París, Hafnarstræti 14, Pétur Þ. J.
Gunnarsson, Mjóstr. 6 og öll dag-
blöð bæjarins. Fatagjafir verða sótt
ar ef þess er óskað, og eru menn
beðnir að hringja í síma 2012.
Gjafakortin koma í verzlanir á
miðvikudag.
„Togarasjómaður“ Alþýðublaðs-
ins rausar mikið þessa dagana. Ollu
er að fara aftur síðan á'hrif bless-
aðra Alþýðuflokksmannanna
minnkuðu í verkalýðs'hreyfingunni
segir hann. Þar voru nú mennirnir,
sem höfðu vit á hverju máli og
ekki vantaði dugnaðinn til fram-
kvæmda. í Sjómannafélagi Reykja
víkur, þar er nú allt í lagi, enda
eru það þaulreyndir Alþýðuflokks-
menn, sem þar stjórna. Enda hef-
ur ekki samningum verið sagt upp
síðan 1942, svo menn geta á því
séð hvað góðir þeir eru. Forysta
Sigurjóns og Co. í launamálum
sjómanna og forysta Sæmundar Ól-
afssonar í öryggismálunum það eru
fyrirmyndir, seni vert er að verð-
launa. Þetta er- tónninn í lang-
hundi „togarasjómanns“ Alþýðu-
blaðsins. Það skal nú lítillega at-
hugað, á hve góðum grundvelli
þessar staðhæfingar eru byggðar.
Forysta Sjómannafélagsins barð-
ist á móti launahækkunum fyrstu
ár styrjaldarinnar á meðan mesta
gróðanum var ausið upp. Það er
ekki fyrr en seint á árinu 1942
að nokkur veruleg leiðrétting
fékkst á þessu. Ilverjir voru það
þá, sem gengu fram f.yrir skjöldu
og knúðu fram hækkað áhættufé,
var forysta Sigurjóns og Co. þar
að verki? Nei, ó nei. Hásetar og
kyndarar fragtskipanna eiga nú
þann heiður sjálfir. Og því má
bæta við’ að hin glæsta forysta
Sjómannafélags íteykjavíkur barð-
ist á móti því máli eins lengi og
hún þorði.
Á eftir komu svo samningarn-
ir við togaraeigendur, knúðir fram
fyrir vilja- mannanna á skipunum,
það var ehki lengur hægt að standa
á móti. En forysta Sjómannafé-
lagsins er fullkomlega ábyrg fvrir
því, að í gegnum þá samninga, sem
geriðir voru 1942, náðust ekki raun
verulegar kjara'bætur, ég meina
grunnkaupúhækkun í samræmi við
hækkað grunnkaup annarra stétta.
Eg tel það ekki hólsvert að við
svo búið hefur verið látið sitja síð-
an.
Þegar nú styrjöldin verður um
garð gengin og áhættuféð fellur
niður, þá .munum við sjómenn
finna hvar við erum staddir á
vegi í launamálunum, samanborið
við aðrar stéttir þjóðfélagsins. Það
er ckki hægt að fá mig til að trúa
því að léttara verði eftir stríðið að
fá slíka leiðréttingu og munu þó
allir sjómenn á flotanum vera sam-
m'ála um að hennar sé full þörf. 1
öryggismálum okkar ríkir sama
sleifarlagið. Sæmundur Ólafsson
túlkaði á Alþýðusambandsþingi
stefnuleysi ,,forystunnar“ í þeim
málum.
Nálægt þeim málum mega
að hans dómi ekki koma starf-
andi sjómenn eða stéttarsam-
tök þeirra. Það er að fela söku
dólgunum löggæzluna eins og
hann komst svo eftirminnilega
að orði. Þétta eru staðreyndir
sem tala sínu máli og sýna okk
ur hvar við erum á vegi stadd
ir með forystuleysið í samtök-
um okkar. Eg get ekki skilizt
svo við þetta mál að ég minnist
ekki á framkvæmd togarasamn
inganna frá 1942. Það sorglega
er, að visst atriði þeirra samn-
inga hefur verið og er brotið á
sumum skipunum, og það með
fullri vitund forystunnar í Sjé-
mannafélagi Reykjavíkur. Mér
er ekki kunnugt um það, hve
margir sjómenn hafa kært til
Sjómannafélagsins yfir því að
Englandsferðunum hefur ekki
verið réttilega skipt á milli há-
seta eins og gildandi samningar
mæla fyrir, en það hefur verið
gert. Hvað hefur þá „forystan“
gert? Hún hefur ekkert gert
ti'l þess að gildandi samningar
væru 1 heiðri hafðir. Þetta er
ótrúlegt en satt. Togarasjómað-
ur Alþýðubláðsins getur nú velt
fyrir sér þeim staðreyndum
sem hér hafa verið raktar áður
en hann semur næsta langhund
sinn. Sjómaður.
Sunnudagur 11. marz 1945. —' ÞJÓÐVILJINN
■
Hundar hjálpa brezkuvi hermönnum í jarosprengjuleit í Frakldandi
Tillaga um að sænski herinn takí
sér stöðu við iandamæri Noregs
Aulen bískup eggjar landa sina fil
hfálpar Nordmönnum
Einn af kunnustu mönnum sænsku kirkjxmnar, Áulen
biskup, hefur lagt til að sænskur her taki sér stöðu við allar
aðalleiðimar frá Svíþjóð til Noregs.
Kvenfélag
Sósíalistaflokksíns
Aðalfundur verður haldinn á Skólavörðustíg
19 n.k. mánudag kl. 8V2.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Félagsmál.
Skorað á konur að mæta.
STJÓRNIN.
~~r~ - * i~ " n—ii— ~-|~rm—iinmfi.mr
Aulen biskup ritaði grein í
„Eskiltuna Kuriren“ sem var
endurprentuð í „Dagens Nyhet-
et“ og „Stockholms-Tidningen“.
Biskupinn segir, að sú örvænt-
ing, sem nú grípi um sig með-
al nazista, auki hættuna fyrir
Norðmenn.
Eins og nú sé komið, séu eng-
in líkindi til að Svíþjóð geti
með diplomatiskum viðræðum
afstýrt brennum og morðum
nazista. Það er ekki annað en
gott að segja um vinnuna sem
lögð er í að koma upp sænskri
sjálfboðasveit, en nú dugar að-
eins ein aðferð, að láta nægi-
legan hluta hins ágæta sænska
hers taka sér stöðu við leiðimar
til Noregs, í Vármland, Hjemt-
land og Norður-Svíþjóð. Telja
má líklegt að þó væri ekki
nema nærvera sænskra her-
sveita við landamærin nægði
BELGISK BÖRN jœra Montgomerý marskálki blúm eftir að hann
hafði sœmt belgiska föðúrlandsvini heiðursmerkjum.
það til að hafa góð áhrif á
menn örvæntingarinnar. Með
því móti er hugsanlegt að morð
ingjaklíkan í Osló hugsi sig um
áuðr en hún heldur áfram með
óþokkaiðju sína,
Grein Aulens biskups lýkur
þannig: „,Með þessu sýndu Sví-
ar í verki að þeir geta ekki
það rólegir og aðgerðalausir að
náskyld þjóð tortímist vegna
bakað sér þá smán að horfa á
framferðis tillitslausra vitfirr-
inga.“
BÆJARPÓSTURINN
Framhald af 2. síðu.
góða tónlist og njóti hennar á sinn
hátt nú en nokkru sinni áður. Og
það er meira að segja sama æsku-
fólkið sem hefur óblandna ánægju
af því að dansa eftir jasshrynjandi
og tónum. Þetta æskufólk lifir eft-
ir þeirri heilþrigðu lífsreglu, að
kjósa ekki annað hvort skemmtun
eða vinnu, gleði eða alvöru, dans-
músík eða „æðri músík“, heldur
hvort tveggja. Og skyldu þetta ekki
vera heilbrigðari og sannari menn,
þessi æska, en nöldrarar og nátt-
tröll sem halda sig hápunkt þró-
unarinnar og að nútímaæskan hljóti
að vera á helvítisbraut ef hún opn-
ar eyru sín og skynjun fyrir anu-
arri hrynjandi en þeirp úr lögum
Óla Bulls.
Torfi.“
Hljómleikar
Árna Kristjánssonar
Árni Kristjánsson píanóleikari
heldur Beethoven-tónleika í dag,
fyrir styrktarfélaga Tónlistarfé-
lagsins. Viðfangsefnin eru: Sónata
op. 27 nr. 2 cis-moll (Tunglskins-
sónatan), Sónata op. 109 E-dur, 32
tilbrigði í c-moll og Sónata app-
assonata op. 57 f-moll.
S. (t. T. - dansleikur
í Listamannaskálanum í kvöld kl. 10.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7. — Sími 3008.
Danssýning: Kl. 11,30 sýna nemendur Rigmor
Hanson samkvæmisdansa, þar á meðal nýjasta
dansinn La Samba.
S. Ií. T. -- dansleikur
%
Gömlu og nýju dansarnir
verða í Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 10.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6V2, sími 3355.
Nýja hannyrðabókin.
Kross - saumur
kom í bóka- og hannyrðaverzlanir í gær, í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Dásamlega falleg munstur.
MUNSTURÚTGÁFAN.
— *mmm mm, — , "HrnnncUTir^i^R.
UngllBg vantar!
tii að bera blaðið út til kaupenda í
LANGHOLT.
Afgreiðsla Þjóðviljans, Skóíav.st. 19. Sími 2184.