Þjóðviljinn - 20.03.1945, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.03.1945, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 20. marz 1945. ÞJÓÐVILJINIT 3 Lj)r LÍFI ALÞÝÐUNNAR A 8BEhI OVERNIG lízt þér á veðr- ið?“ spyr ég Grím grenjaskyttu, sem situr á eld- hússtólnum, líkari fatahrúgu en manni og fæst við þriðj?. kaffibollann með hægri hendi, en með þeirri vinstri ryðst hann hart um á lummudiskinum með miklum árangri mér tii lítillar ánægju. „Útlitið er kuldalegt, og nú gildir ekkert nema klæða sig vel. Farðu í fjórar peysur og stóra frakk- ann, og svo má sá gamli vor- kenna þér í minn stað. En flýttu þér að komast í leppana og hella í þig kaffinu, því að við þurfum að komast sem fyrst upp eftir“. Grímur sagði víst satt, það var bezt að klæða sig vel. Enda var nú hvíta- sunnuhret gengið í garð. Grenjandi norðan stórviðri með nístandi kulda. Þokubakkinn, sem stöðugt hefur farið vax- andi, eftir því sem liðið hefur á daginn, ógnar með snjókomu með kvöldinu. Það væri sann- arlega notalegri tilhugsun að mega halda sig innan veggja, en hírast upp á heiði, svefn- laus og kaldur, og eiga ekki afturkvæmt til byggða með fullri sæmd, fyrr en okkur hef ur tekizt að gjöreyða heimili einnar blásnauðrar fjölskyldu heiðarinnar. í nótt og ef til vill næstu nætur áttum við að liggja á greni. Lágfóta hafði g'ert ónotalega vart yið sig undanfarna daga Sex eða sjö ær höfðu komið lámblausar heim, og sumar þeirra báru þess merki, að þær hefðu komizt í tæri við skolla. í gær, á hvítasunnudag, var hafin leit að greninu, og fannst það. Grenjaskyttunni var þegar gert aðvart, en hún hlýddi kalli slnu þegar í stað, sem góðum embættismanni ber. Grímur var skyttan, en ég var fenginn hon- um til aðstoðar. Ekki var það þó fyrir kunnáttu mína í þess- um efnum, því að ég hafði aldrei legið á greni og aldrei banað tófu. En ég var kunnug- ur á grenstaðnum og líklegri til að þola kuldann en maður sá, sem vanur var að vera með Grími og var í raun réttri að- alskyttan. En hann var nú far- inn að eldast og treysti sév ekki til að liggja í svona veðri. Hélt ég á byssu hans með mér. Grímur sagði það mannlegra að hafa eitthvað í hendinni. Segir nú ekki af okkar ferð, fyrr en við nálguðumst gren- staðinn. Tók Grímur þá að spyrja mig í þaula um alla staðháttu, og ég leysti úr öllum spurningum eftir beztu getu. Þar næst kom langur pistill um, hvað ég ætti að gera og hvað ég mætti ekki gera. Hljóðaði hann eitthvað á þessa leið: Við skulum láta skothylkin í, en gæta þess vel, að öryggið sé í lagi. Svo skulum við læð- ast eftir lægðinni í áttina til grenisins. Við verðum að fara varlega, svo að ekkert heyrist. Eitt misstig eða annað lítið ó- happ getur kostað okkur mikla fyrirhöfn. Ef þú kemur auga á rebba, þá gerðu hér strax að- vart, en umfram allt hávaða laust. Eg tel mig nú hafa numið til fulls þessa grenjafræði og legg af stað beint á grenið. En ég hef ekki farið langt, þegar þrifið er um handlegg mér heldur óþyrmilega- Hvað hafði ég nú gert? „Ertu alveg bandvitlaus", hvíslaði Grímur. „Við verðum að fara hina lægðina, svo að vindurinn standi af greninu Hann er lyktnæmur skal ég segja þér“. Við læðumst nú eftir ýms um krókaleiðum upp í urðina, og tók ég það ráð, að halda mig að baki húsbóndans, svo að ég gerði enga bölvun með fram'hleypni minni. Eins og áður er getið, var grenið í urð, og voru grenis- munnarnir margir. Þetta var til hagsbóta fyrir íbúa þess, er. miður heppilegt fyrir okkur. Víðsvegar um urðina gat að líta ræfrildi af lömbum og fugl- um, og sýndi aðburðurinn það greinilega, að þarna var aflað með ötulleik. Grímur skoðar allt nákvæm lega og reynir að gera sér sem gleggsta grein fyrir öllu: Hvort dýrin munu vera inni, hvað hvolparnir séu gamlir, um hvaða holu þau munu leggia leið sína o. s. frv. Að síðustu rennir hann aðgætnum, vökul- um augum veiðimannusins yf- ir umhverfis og bendir mér svo að koma á eftir sér. En mér er öðruvísi farið. Hugurinn hvarflar frá einu til annars. Áður en ég veit af, er ég farinn að bera kjör þessara villtu öræfabarna saman yið kjör okkar mannanna- Það leynir sér ekki, að hér búa engir miðlungar. Hér er aflað, svo að ekki skortir. Þá, sem hér búa, hlýtur að bera hátt á þingum félaga sinna. En með þessu framferði sínu hafa þeir nú kveðið upp dóm sinn. Þann dóm, sem við Grímur eigum nú að fullnægja. Harðan, misk- unnarlausan dóm. Og þó vav hér aðeins aflað daglegs brauðs fyrir sig og sína, en engu safn- að eða eytt fram yfir nauðsynj- ar. En ef hér byggi nú einhver velmetinn borgari okkar mennt aða þjóðfélags, hvernig mynd um við dæma hann? Jú, hon um myndi hælt og hrósað á hvert reipi fyrir dugnað, ráð- deild og framsýni. Og væri hann hæfilega aldinn að árum, myndi hann áreiðanlega hafa verið sæmdur einhverjum virðu legum krossi. Það mundi ekki vera sérstaklega um það rætt, þótt eitthvað af aflanum hans væri ekki betur fengið en lambsræfrildin þarna í urðinni Nei, þjóðfélagið mundi áreiðan- lega sjá sóma sinn í því að sjá jafn aflasælum sóknara fyrir betri og fullkomnari aðstöðu til nýrra fanga og þoka honum feti ofar í stiga metorðanna Og seint mundi okkur Grími, fátækum bónda og umkomu- lausum afdala unglingi, hlotn- ast sá heiður að stíga fæti okk- ar á eignarlóð hans. En það er nú sitt hvað að vera refur á fjórum fótum og eiga greni í gróðurlausri urð inni á íslenzkri afrétt, en vera á tveimur og búa í lúxusvillu borgarinnar. Voð erum nú komnir að litlu þaklausu grjótbyrgi, sem er skammt frá greninu- Það hef- ur verið hlaðið fyrir löngu síð- an og ætlað til að skýla skot- manni. í byrginu liggja tveir steinar. „Þægileg sæti“, hugsa ég strax. Við komum okkur nú sem bezt fyrir í byrginu. Eg læt vera mitt fyrsta verk að hag- ræða bakpokanum mínum, því að í honum áttum við kaffi á geymum og eitthvað fleira. En Grímur einblíndi á urðina með byssuna á hnjánum. Þannig biðum við, óratíma að mér fannst, hreyfingarlaus- ir og steinþegjandi. Eg var far inn að finna til stirðleika og kulda, en þorði mig hvergi að hræra. Allt í einu sá ég eitt- hvað bærast skammt frá okkur í urðinni. l£g hnippti í félaga minn. Hann tók viðbragð, og um leið var byssan komin í sikti. Mikil og voldug tvíhleypa. Ekki datt mér í hug að hreyfa mitt vopn. Þarna kom rebbi aftur í ljós neðar í urðinni, en aðeins brot úr sekúndu. Nú skaut hann framlöppunum upp á stein. sperrti eyrun og starði í áttina til okkar. Hann hafði auðsjáan lega orðið okkar var. Eftir augnablik myndi hann verða horfinn í urðina. Eg leit til Gríms, ætlaði hann ekki að skjóta? Um leið sá ég vísifingur hægri handar krepp- ast um gikkinn, því fylgdi ör- lítill smellur. Byssan hafð: klikkað. Samtímis tók rebbi undir sig stökk og þaut af stað. „Ekki er hann bráðfeigur“, hugsaði ég. En í sama bili kvað við hár hvellur. Eg hrökk við, því að ég átti ekki von á, að Grím- ur reyndi að skjóta aftur, þeg- ar rebbi var kominn á harða sprett. Skerandi ýlfur og dýrið kast- aðist til hliðar, brölti síðan af stað með aflyana afturfætur Grímur hljóp á eftir, og þeir hurfu suður í lægðina. Brátt kvað við annað skot, og eftir nokkrar mínútur kom Grímur og hélt á máttvana líki fjallabúans. „Þetta gekk nú bærilega, ref- urinn unninn, og þá hlýtur tæf an að nást líka, sennilega er hún inni og þurfum við varla að vonast eftir að sjá hana í bráð“, sagði Grímur um leið og hann settist í byrgið og fór að leita að tóbaksglasinu sínu. En ég gat ómögulega glaðzt eins fullkomlega yfir þessum sigri og hann. Hvort það stafaði af barnslegri viðkvæmni eða ég var þetta kjarbminni en aðrir, að ég þöli ekki að sjá blóð án þess að vikna, yeit ég ekkv Ef til vill var það líka af því, að það var Grímur, sem skaut, en ekki ég. En ég gat ekki gleymt ang- istarveininu, er dýrið rak upp, þegar skotið hitti. Var það sársauka og hræðslu óp helsærðrar skepnu, eða var það hinzta kveðja og aðvörun viti gæddrar veru til þeirra, sem það unni? Við bjuggum nú aftur um okkur í byrginu. En brátt fór kuldinn að gera alvarlega vart við sig. Það þurfti hlý og góð föt og haldgóðan skjólvegg til þess að verjast þeim fjanda, í stórviðri, frosti og kafalds fjúki, þegar setið er hreyfing arlaus í grágrýtisurð uppi á heiði. Lágum við þarna alla nóttina, en urðum einskis var- ir. Um morguninn kom okku" saman um að skreppa heim, ef hestarnir væru ekki farnir. Fór ég nú að svipast eftir þeim og fann þá brátt. Héldum við nú heim og kom- um ekki aftur í grenið fyrr en undir kvöldið. Enn var sami kuldinn og var því lítið til- hlakk að liggja þarna næstu nótt, og ekki bætti það úr, að nú vorum við ósofnir, en um annað var ekki að gena. Við höfðum ekki verið þarna lengi, er ég tók að dotta og hálfsofa upp við grjótvegginn annað slagið, en á Grím virt- ist ekkert bíta. Hann bara tók í nefið og saup á kaffibrúsan- um, þegar svefninn og kuldinn fóru að angra hann. „Djöfull að mega ekki fá sér í pípu“, heyrði ég hann eitf sinn tauta > við sjálfan sig- „O, láttu það bara effir þér“, bætti ég við. „Má ekki. Það kemur reykj arlykt“. Klukkan var farin að ganga fimm og ennþá höfðum við ekki orðið varir við lágfótu. Eg var orðinn kaldur, syfjaður og hundleiður að hanga þarna og fyrir löngu síðar hættur að geta fest augun á þeim stað, sem mér var ætlað. Allt í einu sá ég, að Grímur tók að iða og losa sig við vettlingana og um leið bar hann byssuna upp að öxlinni. Nú hlaut hann að hafa orð- ið einhvers yar. Jú, niðri í urðinni kom ég auga á tæfuna, þar sem hún stiklaði varfærnislega milli steinanna. Hún var auðsjáan- lega að ráða það við sig, hvort hún ætti að hætta sér lengra eða snúa við. En nú var eins og hún hefði orðið einhvers vísari um návist: okkar. Hún stakk sér á kaf í urðina. „Helvízk“, tautaði Grímur. „Ekki get ég láð henni, þótt hún færi inn aftur. Eg mundi hafa gert það sama“ Eg gat ekki setið á mér að stríða hon- um ögn, þegar ég sá vonbrigðir: í svip hans. Um hálf klukkustund leið án. þess nokkuð bæri til tíðinda. Þá kom hún aftur í ljós, en þá á öðrum stað. Hún stefndi nú austur úr urðinni, þefandi og skimandi í allar áttir. Eg virti hana fyrir mér. Átti ég að miða á hana byssunni. Nei, færið var of langt, og svo var það Grímur, sem átti að hafa veg og vanda þessa starfa. Og þótt í mér væri veiðihug- ur, þá hálfóskaði ég þess, að hún slyppi. Þá kvað við skot. Tæfan kast- aðist til og þaut austur á mel- inn, og hvarf þar sjónum okkar. „Fallega lá hún“, sagði ég við Grím, þar sem hann stóð bölvandi og var að plokka tóma skothylkið úr byssunni með vasahnífnum sínum. „Færið var of langt. Hefur líklega ekkert komið í hana. Þó sýndist mér hún vera lappa brotin“, tautaði hann niður í bringu sína- „Þú hefur auðvitað hugsað sem svo, að hún myndi deyja úr hræðslu, þegar höglin glymdu í grjótinu“, skaut ég inn í. „Ekki var það nú. En hún verður ekki lengi í burtu frá svona ungum yrðlingum, þótt hún yrði hrædd. Hitt má sín meira að komast til þeirra aft- ur. En þegar hún kemur verð- um við að vera viðbúnir að taka á móti henni, en mundu nú að nota byssuna, ef þú færð tækifæri. Eg hef séð þig skjóta svartbak o. fl., og þú getur eins miðað á tófu. Stattu þig nú. Eg verð hér ofar“. Mitt var að hlýða. Eg' lagð- ist niður í stóra gjótu og reyndi að koma mér þar sem bezt fyr- ir. Alllangur tími leið án þess ég yrði nokkurs var. Mér var orðið óhægt að liggja þarna- En þá sá ég, hvar tæfa kom í ca. 500—600 faðma fjarlægð. Hún fór í langan hálfhring um urðina nokkrum sinnum og Framh. á 5. síðu. ★ EFTIR Jens Gudmundsson frá Kinnarstöðum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.