Þjóðviljinn - 20.03.1945, Page 3

Þjóðviljinn - 20.03.1945, Page 3
2 Þ TÓÐV3 LJ INN Þriðjudagur 20- marz 1945. Kaupkúgunaraðferðin á Eyrarbakka Að gefnu tilefni, langar mig að skýra frá aðdraganda og gangi hinnar svokölluðu frysti- hússkaupdeilu hér á Eyrar- bakka, þar sem mér og fleir- um er borið á brýn að við sé- um að setja fótinn fyrir það mikla menningarfyrirtæki og lífæð plássins, eins og þeir kom ast að orði form. Verkamanna- félagsins og framkvæmdastjóri frystihússins, þeir heiðurssam- herjar í þessu máli. Þegar frystihúsið tók til starfa í fyrsta skipti síðastliðið vor, kom til kasta Verkamanna félagsins að semja um kaup og kjör. Þá var það svo, að það var samþykkt, að hafa sömu kjör og voru við Stokkseyrar- frystihúsið, en það mun hafa verið í grunnlaun 2-10 kr. á tímann. En þá var búið að segja upp samningum þar, og átti taxtinn að hækka hjá þeim eins og hanrt gerði. Við geng- um út frá því að okkar taxti j fylgdi Stokkseyrartaxtanum þangað til annar hvor segði honum upp, en það var ekki gert og látið afskiptalaust af Verkamannafélaginu. Eg vil taka það fram, að ég xnælti eindregið á móti þessum samningi og vildi láta félags- taxtann okkar gilda við frysti- húsið eins og aðra atvinnurek- endur hér. Eg hefði auðvitað átt að ganga út eins og farið er að tíðkast hjá krötunum, þegar þeir eru í minni'hluta, en gerði það ekki og skrifaði undir þenn an samning með það fyrir aug- um að þetta bættist með hækk uninni á Sto.kkseyrartaxtanum En þetta var ekki nefnt af hvorugum aðilanum þar til í vetur eftir aðalfund, þá kallar form. Verkamannafél. saman hina nýkjörnu stjórn og var ba tekið fyrir kaupgjaldið við frystihúsið. Þá kom það í ljós, að meiri hluti stjórnarinnar vill vinna við sama kaup og hafði verið greitt áður, og gekk for maður lengst í því og taldi húsið (frystihúsið) svo illa statc að það gæti ekki borgað hærra -og ekki einu sinni það. Þá lét hann strax fara að skína í það, að þeir yrðu að loka húsinu, ef þeir yrðu að borga hærra kaup og jafnvel með þessu kaupi sem var. Þrátt fyrir þetta var sam- þykkt tillaga svohljóðandr „Ákveðið er að hafa sömu kjör sem borguð eru við frystihúsið á Stokkseyri, og bera það til samþykktar undir félagsfund11. Nokkru seinna er fulltrúa- ráðið kallað saman og er þetta mál rætt þar. Á þeim fundi bið ég form. að skrifa undir fund- argerðina frá síðasta fundi sem áðurgreind samþykkt var gerð, en hann neitar með þeim for- sendum, að hann sé búinn að fá aðra skoðun á málinu- En í millitíðinni hafði hann frétt að taxtinn hjá frystihúsinu á Stokkseyri hefði hækkað. Og hann er með reikninga frá frystihúsinu hér, og ætlar að sýna okkur svart á hvítu hvort húsið gæti borgað fólkinu við- unandi kaup og síðan kom hann með lokunarhótanir frá Magn- úsi Magnússyni, en hann er for- maður frystihússstjórnarinnar og er líka í Verkamannafélag- inu. Það var engin ákvörðun tek- in en Kristján lofaði að halda fund í Bárunni sem hann og líka gerði til að ræða þetta mál. Á þeim fundi mætti Magn- ús Magnússon og las upp alia raunasogu frystihússins og var hún heldur bágborin. Það var raunalegt að sjá þá báða formennina Kristján og Magnús, standa upp til skiptis allan fundinn út og berjast eins og ljón fyrir jafn lúalegri kaup • kröfu og þarna kom fram. Þeir sögðu, að við yrðum að fórna fyrir þetta menningar- tæki og lífæð plássins. Það var fólkið, sem hefur ótryggasta og lægst launuðu vinnuna sem átti að fórna, með öðrum orð- um: við áttum að rétta við reksturshalla hússins með því' að vinna fyrir það kaup sem þessum herrum þóknaðist að borga okkur og var formaður- inn okkur ekki slíkur liðsmað - ur sem Magnúsar í þeirri bar- áttu, því að þegar einn félags- maður stóð upp og mótmælti þessu gerræði þeirra félaga. þá réðust þeir báðir á hann með persónulegum svívirðingum. En ekki treystu þeir félagar sér til að láta taka neina ákvörðun þarna á þessum fundi. Það sýndi sig, Magnús minn, að það var ekki nóg að tryggja sér meiri hluta stjórnarinnaT- eins og kom betur í ljós síðar. Eg hélt því hinsvegar fram að það væri ekki rétta leiðin að eyðileggja félagssamtökin til að rétta við fjárhagslegan halla á frystihúsinu. sem við áttum engan þátt í að gera svona slæman, eins og þeir félagar sögðu okkur að væri, en hitt er vitanlegt að með slíku fram- ferði eins og þeir komu fram, væri ekki til að efla húsið, því að ef það yrði vinna hér i plássi, eins og gott útlit er fyr- ir, gæti farið svo að ekki feng- ist fólk til að vinna í húsinu fyrir taxta Magnúsar og Krist- jáns. Eftir þennan fund boðaði formaður stjórn og tmnaðarráð saman og þar var 'samþykkt með 4 gegn 3 að bjóða stjórn frystihússins að mætast þanT!- ig að þeir greiddu kr- 2.27 á tímann í grunnlaun og félágs- taxtann að öðru leyti óbreytt- an, hinsvegar lögðum við til að taxtinn yrði greiddur óbrevttuf að öllu leyti, en það var fellt Síðan var stjóminni falið að semja við stjóm frystihússins. en þegar þeir heyrðu þessar hræð(ilegu kröfuh, þá settu þeir skilyrði ef þeir ættu að líta við þessu þ. e. a. s. að borga kr. 2.27. Það sem þeir komu með var þetta: „Stjóm Hraðfrystihússins á Eyrarbakka fer fram á við stjóm Bámnnar að hún beri undir opinberan fund félagsins að mönnum yrðu gefnar frjáls- ar hendur við að vinna eftir- og helgidagavinnu fyrir sama gmnnkaupi ef þeir óska þess og þörf krefur“. Þegar okkur var afhent þetta glæsilega svar, varð Krist- jáni að orði: „Heldur hefði ég viljað hafa sama lága kaupið. og þetta hefði ekki komið“. Þarna blöskraði honum fanta- skapur stjórnarinnar, en það kast leið brátt frá, því að á næsta fundi, þegar þetta svar var lagt fram fyrir fundinn, sagðist form. lítið ætla að segja um þetta plagg, en eitt sagðisc hann vita, að við myndum stórþéna á þessu, því að ef við samþykktum ekki þetta, bá létu þeir ekki vinna neina eft- irvinnu eða helgidagavinnu. En það undarlega skeði, að menn voru ekki hrifnir af þessari fjáröflunarleið, nema ef það hafa verið tveir eða þrír með- stjórnendur Kristjáns. Síðan var plaggið borið upp til samþykktar og var þetta I indæla tilboð fellt með öllum greiddum atkvæðum- 3—4 sátu hjá og það er hægt að ímynda hér, hverjir það hafa verið. Síðan var stjórninni falið að tilkynna stjórn frystihússins hvaða útreið krafa þeirra fékk í félaginu og fór Kristján til Magnúsar. Sagði Magnús að þeir myndu ekki semja við okk- ur, en láta þetta mál bíða þar til aðalfundur yrði haldinn með hluthöfum og láta þá ákveða hvort eigi að loka, eða borga kr. 2.27 í grunnlaun, en ekki vissi hann hvenær hann yrði haldinn (en að öllum líkindum einhvern tíma á þessu ári). Hann sagðist ekki láta vinna eftir- og helgidagavinnu, en það þýddi, sagði hann, að frysti- húsið tæki ekki við fiski á laugardögum, svo að bátarnir gætu ekki róið á þeim dögum. Fyrir þetta er varaformaður látinn bera okkur það á brýn, að við eyðileggjum atvinnu fólksins bæði á sjó og landi. Þetta er maður sem talar mest á milli funda. Slíka dagskrár- liði er hann látinn annast fyr- ir þá. Kommúnistagrýlan er hér enn við líði og‘ nota þeir sér það af mesta dugnaði. Svona standa sakir í þessu máli nú, en Kristján sagði að fólkið mundi vinna upp á vænL anlega samninga!! HAFNFIRÐINGAR! HAFNFIRÐINGAR! SÖNGSKEMMTUN heldur GUÐMUNDUR JÓNSSON í Hafnarfjarðarbíó miðvikudaginn 21. þ. m. kl. 7,15 e. h. Við hljóðfærið: Fr. Weisshappel Aðgöngumiðar seldir í Hafnarfjarðarbíó frá kl. 4 Orrborginní Næturíæknir er í laeknavarðstof- unni i Austurbæjarskólanum, sími 5030. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunn. Nýkomin amerísk, prjónuð ullar- útiföt á telpur og drengi Treyja, buxur, húfa og vettlingar. Mjög smekklegir litir. Verzlun Anna Gunnlaugsson Laugaveg 37. Næturakstur: B. S. í. sími 1540 Ljósatími ökutækja er frá kl. 18.50 til kl. 6.25. Útvarpið í dag: 18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur. 19.00 Enskukennsla, 2. flokkur. 19.25 Hljómplötur: Lög úr óperett um og tónfilmum. 20.20 Tónleikar Tónlistarskólans: Tríó ( G-dúr eftir Smetana (Tríó Tónlistarskólans leikur). 20.50 Erindi: Um sjórnskipun ís- lendinga. — Dómstólar (Gunn- ar Thoroddsen prófessor). 21.15 Hljómplötur: Lög leikin á píanó. 21.20 Upplestur: Tvær smásögur (Þorsteinn O. Stephensen). 21.45 Hljómplötur: Krikjutónlist. Það er ekki hagur félagsins eða frysti’hússins, sem þessir herrar bera mest fyrir brjósti. Nei, ónei. Þetta er beint fram- hald af famkomu Alþýð.uflokks mannanna á síðasta Alþýðusam bandsþingi. Það var dagskipun þeirra um leið og þeir hlupu út, að skapa innbyrðis sundrung og öngþveiti í kaupgjaldsmál- um og yfirleitt öllum hags- munamálum hvers félags, sem þeir hafa aðstöðu til að beita sér í. Eitt get ég sagt M. M. og K. G. og þeirra fylgifiskum, að þeir eru ekki menn til að eyði- leggja þá einingu sem búið er að skapa innan verklýðsstéttar- innar nú á síðustu árum, en þetta hefur unnizt með þrot- lausri baráttu fólksins sjálfs. Nú liggja fyrir mörg og að- kallandi verkefni, sem við þurf um að fara að snúa okkur að og búið er að fela okkur af félaginu, það eru allt hagsmuna mál fólksins hér. Komdu Kristján, við skulum ganga heilir og ótrauðir að því starfi og láttu þig það litlu skipta, hvort það særir hégóma dýrð stóru kratanna fyrir sunn- an. Láttu þá sjálfa kyrja út- fararsönginn yfir sér og fvrir- alla muni láttu þá ekki raska sálarró þinni. Eyrarbakka, Andrés Jónsson. TIL liggur leiðin MUNIÐ Kaffisöluna Hafnarstræti 16 Rðgnar ðlafsson Hæstaréttarlögmaður og löggiltnr endurskoðandi Vonarstræti 12, sími 5999. Skrifstofutími 9—12 og 1—5. > Fjölbreytt úrval !; ? af glervörum, búsáhöldum og 5 5 matvöru. % í VerzluninNova \ 5 Barónsstíg 27. — Sími 4519. í Iðnnemi getur komizt að í málara- iðn og skiltagerð. SKILTAGERÐIN Aug. Hákansson Hverfisgötu 41.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.