Þjóðviljinn - 22.03.1945, Page 2
2
ÞJÓÐVILJINII
Fimmtudagur 22. marz 1945.
Frá vinnustöðYurn
og verkiýdsíélögum
Sjómaður þakkar
Hákoni Jónassyni
é
Fræðslustarfsemi verka-
lýðsfélaganna
Á síðasta fundi Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna, brá svo
undarlega við, að einn af full-
trúunum hneykslaðist, að því
er virtist á orðinu fræðslustarf-
semkL Maður þessi setti þetta
orð 1 samband við áróðursstarf-
semi sérstaks stjómmálaflokks.
Án þess að ég ætli að fara að
taka upp hanzkann fyrir Sósíal-
istaflokkinn, verð ég að segja
það að enginn flokkur þarf að
skammast sín fyrir að gangast
fyrir fræðslustarfsemi, enda
mimu allir flokkar hérlendis
reka áróðursstarfsemi sína að
einhverju leyti með fræðslu
starfsemi, sem vel er skiljan-
legt frá , sjónarmiði hvaða
flokks sem er, en stundum er
þetta ef til vill minna virði fyr-
ir þann sem fyrir verður. Áróð
ur stjómmálaflokkanna og
fræðslustarfsemi er í því fólgin
að móta dómgreind manna í
mót flokkanna.
Menn em fræddir um óskeik
ulleik þeirra stefna, skoðana op
kennisetninga, sem flokkurinn
telur vera rétt og fylgir. Á
þetta jafnt við, hvort sem flokk
urinn heitir Framsóknarflokk-
ur, Sósíalistaflokkur, Sjálfstæð-
isflokkur eða Alþýðuflokkur.
Það er því vindhögg, sem sleg-
ið er með fullyrðingu um á-
róðursstarfsemi eins flokks
fremur en annars.
Mér skildist á þessum sama
ræðumanni, að fræðslustarf-
semi verkalýðsfélaganna yrð:
bezt fyrir komið með því að
senda smárit inn á heimil:
verkamanna. Ekki hef ég trú á
að slík aðferð yrði vænleg til
árangurs. Það má minna a.
bæklinginn um orlof. Hann var
að vísu ekki sendur inn á heim
ili hvers verkamanns, heldur
seldur vægu yerði. Eg ætla að
fullyrða, að ekki meira en helm
ingur verkamanna hér haf?
lesið þennan bækling, og er hér
þó um að ræða mál, sem alla
verkamenn varðar mikið. Að
alatriði þeirra laga ættu verka-
menn að kunna utanbókar
Þá hafði þessi sami maður
litla trú á hinni fyrirhuguðu
lesstofu verkamanna, og er ég
honum þar að nokkru leyti
sammála. Hitt er annað mál, að
ég er óviss um að hans rök-
stuðningur fyrir sinni skoðun
hafi verið réttur, enda aðeins
byggður á þeirri staðhæfingu
að verkamenn mundu ekki
nenna að sækja slíka lesstofu
að loknum vinnudegi. Annars
virtist mér sem hugur þeirra
manna, sem á þetta mál minnt-
ust á fundinum, eingöngu vera
bundinn við hlutverk þessarar
stofnunar, sem upplýsingastöðv
ar, þar sem menn gætu kom-
ið og leitað sér upplýsinga um
verkalýðsmál. Eg vil sízt draga
úr gildi þvílíkrar stofnunar, en
álít að vel megi reka hana í
sambandi við skrifstofu Full
trúaráðsins, án annars tilkostn-
aðar en þess, er nauðsynleg
handbókakaup út’heimta
Upplýsingastöð er staður þar
sem menn geta fengið að viti
staðreyndir. Það eitt felur ekk;
í sér neina menntun. Er jafn-
vel hæpið að kalla það fræðslu
starfsemi. Við erum ekkert
menntaðri og lítið fróðari fyr-
ir það þó við vitum einhverja
staðreynd, ef við vitum ekkert
um hvers vegna hlutimir erv
svona, en ekki öðruvísi.
Það má vel vera, að stofnun
þessarar svokölluðu fyrirhug-
uðu lesstofu, beri vott um auk-
inn áhuga fyrir menriingarmál •
um verkalýðsins, og er það
gleðilegt. En hún er ekki nema
lítið hænufet á leiðinni ti1
menntunar verkalýðsins. Mennt
un verkalýðsins verður að ná
út yfir stéttarlegar upplýsing-
ar og stéttarlegt uppeldi.
Stéttarlegur þroski er mik •
ilsverður og óhjákvæmilegur í
baráttunni fyrir betri lífskjör-
um, en hann er ekki einhlítur
til skilnings á hinum veiga-
mestu andlegu verðmætum, svo
sem listum og vísindum tii
dæmis.
Takmark fræðslustarfsemi með
al verkamanna verður að vera
það, að leiða þá inn í ljós þess
skilnings og þeirrar þekkingar,
sem felur í sér aðganginn að
því fegursta, sem lífið hefur að
bjóða.
Það er tilgangslaust fyrir
vei’kalýðsfélögin að ætla sér að
hefja fræðslustarfsemi undir-
búningslaust, og sá undirbún-
ingur verður fyrst og fremst að
kanna hug verkamanna sjálfra
1 þessum málum, glæða vilj *
þeirra og þrá eftir aukinni
menntun. Eg vil minna á þau
áígildu sannindi, að það er
aldrei of seint að byrja að afla
sér fræðslu og skilnings á því
sem raunverulega er einhvers
virði. Það er ekkert hlægilegí
þó sextugur verkamaður bvrji
þá að afla sér þeirrar þekking-
ar sem hann þráir, þó hann
byrji þá að læra að lesa sér
til varanlegrar ánægju.
J. Agnars.
Aðalfundur Samvinnu-
félagsins Hreyfill
Hreyfill mun stofna bifreiða-
viðgerðarverkstæði og verzlun.
Aðalfundur Samvinnufélags-
ins „Hreyfill“ var haldinn 14.
marz þ. á. Formaður félagsins
Bergsteinn Guðjónsson skýrð.
frá starfsemi félagsins og gat
þess m. a. að á s. 1. ári hefði
bifreiðum á bifreiðastöð félags-
ins fjölgað um nálega helming
og eru bifreiðarnar nú 120, en
voru í íyrstu aðeins 65. Félag-
ið rekur einnig verzlun með
benzín og smurningsolíur og
hefur sú starfræksla orðið fé-
Framli. á 8. síðu.
Við erum margir sjómennirv
ir, sem þökkum Hákoni Jónas-
syni skrif hans um öryggismál-
in, þökkum honum fyrir að
gerast baráttumaður fyrir hönc
stéttar sem hefur verið bæld
og kúguð með valdaaðstöðu
nokkurra manna, sem átt hafa
atvinnutækm.
Ef við næðum saman og
bregðum upp myndum af stað
reyndum, þá eru dæmin mörg
og sagnirnar ótrúlegar fyrir þá
sem ekki eru kunnugir þeim að
ferðum sem' beitt hefur verið.
Að vísu hafa margir haldið að
hin mikla minnimáttarkennd
hefði rénað nú um stríðstímann,
breytt hugsunaibætti manna
að verulegu leyti, svo þeir
lægju ekki hundflatir fyrir sín-
um atvinnuyfirboðurum, að
náðin að vera í skipsrúmi gerði
menn ekki að „barbörum“ sinn-
ar tíðar. En þörfin er miki!
fyrir hið daglega brauð svo að
menn gleyma stundum sínum
félagslegu skyldum. Það væri
efni í doktorsritgerð ef safnað
væri saman öllum þeim sögum
sem myndazt hafa við að halda
mönnum hræddum við að missa
atvinnuna, ef þeir sýndu rétt-
an stéttarskilning, kæmu fram
sem menn gæddir félagslegum
þroska. Mönnum hefur verið
ógnað ef þeir lásu vissar bæk-
ur og blöð, ef þeir tilheyrðu
ekki þeim flokkum sem þjón-
uðu atvinnurekendavaldinu.
jafnvel af þeir töluðu í sínu
stéttarfélagi um eðlilegar rétt-
arbætur. Alla hugsun manna
um málefni almennt hefur ver
ið reynt að skerða með vald-
boði þess og þeirra sem ráða
yfir atvinnutækjunum.
Það hefur verið gengið un.
boi'ð í skipin til að fá menn
til að sigla á skipum sem ekki
hafa verið talin sjófær, til þess
að hafa öll plögg í lagi ef eitt-
hvað kæmi fyrir. Sem betur
fer hafa mai'gir sjómenn mót-
mælt slíkum aðferðum, talið
sér misboðið. Það sagði mér
einu sinni sjómaður sem var í
Hollandi fyrir stríð, að þangað
hefði kopiið skip frá Island'
sem hefði vakið blaðaumtal,
það var gat á skipinu og skip-
stjórinn vildi fá að sigla því
yfir til Englands til viðgerðax,
því í þessu ásigkomulagi kom
það hlaðið frá íslandi. En hon-
um var bannað að hreyfa skip-
ið milli hafna nema viðgerð
færi fram á því þegar. En hér
er leyft að skip sem verða fyr-
ir áföllum fái að fara til Eng-
land án þess að vera tekin í
slipp til skoðunar og þess
munu vera dæmi að skipshöfn
sem hefur farið fram á að skip
væri skoðað fullkomlega, tekið
í slipp og dittað að því laus
lega, hefur orðið að víkja eft-
ir nokkra mánuði, ekki þótt
nógu auðsveip, að minnsta kosti
benda sterkar líkur til þess.
Eða hin tíðu mannaskipti á
sumum skipum fyrir stríð.
hvaða þöglar sagnir hafa verið
þar að verki? Væri ekki hægt
að kryf ja það til mergjar.
En hún er orðin í fjarlægð
sagan um mótorbátinn sem vav
stigið niður úr dekkinu á eftir
að hann fékk skoðunarvottorð
en þó mun vera hægt að ná í
sannar heimiltir. Það er hollr,
fyrir okkur almennt að rifia
upp ýmsar sagnir og sanna við-
burði, með því erum við að
færast nær því marki að fá að
ráða einhverju um öryggismál
in sjálfir, eða eigum við að láta
það tíðkast lengur að hægt sé
að kasta mönnum í land sem
hafa frjálsmannlegar skoðanir,
þora að bera ábyrgð á orðurr.
sínufn? Er ekki rétt að fara
fram á það almennt af sjómönn
um að Hákon fái sitt pláss aft-
ur, því annars er ekki gott að
segja hver verður að víkja
næst af vinnúvígvelli íslenzkra
sjómanna .
Þetta er stéttardómur, sem
við meðlimir Sjómannafélags
Reykjavíkur verðum að kveða
niður allir sem einn.
Sjómaður.
Aðalfundur Kvenna-
deildar Slysavarnafé-
lagsins
Aðalfundur Kvennadeildar
Slysavarnafélags íslands í Rvíkt
var haldinn í Oddjellowhúsinu
laugardaginn 19. marz og stóð
yfir frá kl. 8,30 til laust eftir
miðnœtti.
/
Reikningar deildarinnar voru
lagðir fram endurskoðaðir og
voru niðurstöðutölur reikning-
anna sem hér segir:
Tekjur samtals kr. 77.877,99.
Gjöld samtals kr. 27.004,30.
Skuldir engar
Eignir samtals kr. 156.697,34.
Eftir að reikningarnir höfðu
verið bornir upp og skýrðir af
gjaldkera, frú Sigríði Péturdótt-
ur, voru þeir samþykktir í einu
hljóði.
Því næst var samþykkt að
greiða til Slysavarnafélags ís-
lands af tekjum ársins 1944 kr.
27.000,00 til kaupa á sjúkrabif-
reið.
Þessu næst fór fram kosning
stjórnar. Úr stjórninni áttu að
ganga: Frú Guðrún Jónasson,
fr. Inga Lárusdóttir og frú Ásta
Einarsdóttir og voru þær allar
endurkosnar. Fyrir í stjórninni
voru: Frú Sigríður Pétursdóttir,
frú Ingibjörg Pétursdóttir, frú
Lára Schram og frú Gróa Pét-
ursdóttir.
Samþykkt var aé halda áfram
byggingu skipbrotsmannaskýlis
á Skeiðarársandi.
Mikill áhugi og samhelflni
ríkti á fundinum.
Næturl'eknir er i læknavarðstoi-
unni í Austurbæjarskóianum,
sími 5630.
Næturvörður er í Ingólfsapótekí
Næturakstur B. S. t., sím> .
Ljósaíími ökutækja er frá kL
18.50 til kl. 6.25.
Útvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 2. flokkur.
19.25 Hijómplötur: Söngdansar.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar):
a) Lagaflokkur eftir Bizet.
b) ,,Þorpsvalan“ — vals eftir
Strauss eldri.
c) Marz eftir Fucik.
20.50 læstur íslendingasagna (dr
Einar Ól. Sveinsson).
21.20 Hljómplötur: Lög leikin á
cello.
21.30 Frá útlöndum (Bjöm Franz-
son).
21.50 Hljómplötur: Guðrún Þor-
steinsdóttir og Ævar Kvaran.
Frakklandssöfnunin: Fjölda marg
ar fatagjafir hafa borizt, flest frá
gefendum, sem ekki vilja láta naíns
síns getið, auk þess hafa borizt lýs-
istunna frá Lyfjabúðinni Iðunn og
sápa frá h.f. Hrein.
Þá hafa ennfremur þessar pen-
ingagjafir borizt: Safnað af skóla-
börnum í Vestmannaeyjum kr
4634.75, safnað af frú Hebe Jóhann-
esson kr. 1000.00 (sr. Jóp Thoraren-
'sen, G. Jóhannesson, Schopka, Þ.
Stephensen, G: J. Johnsen, Sturla
Jónsson. I. Brynjólfsson. Sig. Guð-
mundsson, Ásta Magnúsdóttir 100
kr. hvert. Pétur Sigurðsson, Ámi
Pálsson, 50 kr. hvor) á. á. (meðl.
All. Francaise) 100 kr. Frú Björns-
son, Bessastöðum 200 kr. Páll
Sveinsson 100 kr. Bjami Sigmunds-
son 25 kr., Ámi Sigurðsson 10 kr
Ónefndur 50 kr. Sigurður og Guðný
50 kr. Bent 50 kr. Sveinn Valdetnars
son 10 kr. Halldóra Sveinsdóttir 10
kr. Sigv. Kaldalóns 20 kr. N. N. 20
kr. Jóh. Kr. Jóh. 11 kr. Björg Ein-
arsd. 10 kr. Sesselja Jónsd. 10 kr.
Jón Marteinsson 20 kr.
Kjör forseta íslands
Kjör forseta íslands skal frarrt
fara sunnudaginn 24. júní 1945.
Framboðum til forsetákjörs
skal skila i hendur dómsrpÁla-
ráðuneytinu ásamt samþykki for
setaefnis, nægilegri tölu með-
mœlenda og vottorðum kjfirkjör-
stjóma um að þeir séu á kjör-
skrá, eigi síðar en fimm vikum
fyrir kjördag.
Forsetaefni skal hafa með-
mæli minnst 1500 kosninga-
bærra manna og mest 3000, er
skiptist þannig eftir landsfjórð
ungum:
Úr Sunnlendingaf jórðungi (V-
Skaftafellss.—Borgarfjarars., að
báðum meðtöldum) séu minnst
840 meðmælendur, en mest 1680.
Úr Vestfirðingafj. (Mýrasýslu
Skaftafellss.—Borgarfjarðars. að
töldum) séu minnst 215 með-
mælendur, en mest 430.
Úr Norðlendingafj. (V.-Húna-
vatnss.—S.-Þingeyjars., að báð-
um meðtöldum) séu minnst
305 meðmælendur, en mest 610.
Úr Austfirðingafj. (N.-Þingeyj
arsýslu—A.-Skaftafellssýslu, að
báðum meðtöldum) séu minnst
140 meðmælendur, en mest 280.