Þjóðviljinn - 27.03.1945, Blaðsíða 2
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 27. marz 1945.
Bæjarstjérn Hafnarfjarðar
er enn sama sinnis
Fyrir nokkru sagði Þjóðviljinn
frá þeirri furðulegu ráðstöfun bæj-
arstjórnar Hafnarfjarðar að fyrir-
skipa verkamönnum í bæjarvinn-
unni að fara í skipaafgreiðslu hve-
nær sem er, að öðrum kosti fái
þeir ekki bæjarvinnu.
GÖMUL DEILA
Hafnfirzkir verkamenn telja að
með þessari ráðstöfun sé gengið á
sjálfsákvörðunarrétt sinn, jafn-
framt því að hún sé með öllu til-
efnislaus.
Deila um þetta atriði varð fyrst
s. I. vetur þegar verkamenn voru
sendir úr Krýsuvíkurveginum til
vinnu við skipaafgreiðslu. Náðist
þá samkomulag milli Hlífar og bæj
arstjórnarinnar, samkomulag er
eigi varð séð annað en báðir aðilar
myndu við una, en svo varð þó
ekki. Um miðjan fe'brúar sagði
bæjarstjórnin verkamönnum stríð
á hendur á nýjan leik.
ÞETTA VAR EKKI NEITT
KOSNINGARLOFORÐ
Bæjarstjórnin í Hafnarfirði hef-
ur fyrr gefið út ýmiskonar yfirlýs-
ingar um það sem hún hyggðist
gera. Fyrir bæjarstjórnarkosning-
ar hefur hún gefið út ýmsar yfir-
lýsingar um liitt og annað, sem
framkvæmast skyldi, en það hafa
verið kosningaloforð, kosningalof-
orð, sem átakanlega oft gleymd-
uát að afloknum kosningum (t. d.
fleiri togarar fyrir Bæjarútgerðina,
báta'höfn o. fl.). En nú var bæjar-
stjórninni alvara. Nú skyldu orð
bæjarstjórnarinnar ekki ómerk
falla. Þeir verkamenn sem mót-
mæltu því að láta framselja sig frá
einum atvinnurekanda til annars,
voru tafarlaust reknir. (Það er ó-
neitanlega léttara verk að reka
nokkra verkamenn úr bæjarvinn-
unni en t. d. byggja .bátahöfn!!).
VIRDING Á9GEIRS, LOFTS
& CO. FYRIR VILJA VERKA-
MANNA
Eins og áður er sagt náðist sam-
komulag í þessu máli s. I. vetur
og verkamenn mótmæltu þessari
ágengni bæjarstjórnar á rétt þeirra
og brotinu á áður gerðu samkomu-
lagi.
Verkariiennirnir í bæjarvinnunni
mótmæltu. Stjórn Hlífar mót-
mælti. Fundur í Hlíf mótmælti.
Mótmæli þessi sendi stjórn Hlíf-
ar til bæjarstjórnarinnar og lýsti
sig reiðulbúna til umræðna um mál-
ið.
Þessum mótmælum og bréfi Hlíf
arstjórnarinnar hefur bæjarstjórn
enn ekki svarað. — Það er um-
hugsunarefni að á næsta ári eftir
lýðveldisstofnunina skuli bæjar-
stjórn eins af stærstu bæjum lands-
ins á þennan hátt auglýsa van-
þekkingu sína á samskiptavenjum
siðaðra manna í lýðfrjálsu landi.
LEITAÐ TIL IIINS „VEIKARA
KYNS“
Fyrir nokkru gerðist býsna ó-
venjulegur atburður í þessu máli.
Einn þeirra verkamanna sem
rekinn hafði verið var kallaður fýr-
ir bæjarstjórn og honum sagt að
hann gæti fengið bæjarvinnuna aft
ur ef hann gengi að skilyrðum bæj-
arstjórnarinnar. Verkamaðurinn
neitaði.
Þá er kona hans boðuð með hon
um á fund bæjarstjórnar og mál-
ið rætt við þau sameiginlega.
Þessir heiðursmenn virðast hafa
trúað á gömlu kenninguna um að
konan sé „hið veikara kyn“ og
myndi hún verða auðsveipari að
ganga að skilyrðum en maður-
inn. Þetta reyndist misskilningur.
Konan sagði blátt áfram að mað-
urinn gæti ekki heilsu sinnar vegna
unnið hin ýmsu erfiðu störf við
skipavinnu. Auðvitað var krafist
sannana. Daginn eftir Jagði mað-
urinn fram læknisvottorð. — Hann
hefur ekki enn verið tekinn í bæj-
arvinnuna.
HVAÐ VELDUR?
Nú mun e. t. v. einhverjum
detta í hug, að bæjarstjórnin sé
hér að framkvæma nauðsynlega
ráðstöfun ti! þess að vinnan við
framleiðsluna þurfi ekki að tefjast.
Við skulum athuga það nánar.
I verkamannafélaginu Hlíf eru
5—600 manns. í bæjarvinnunni í—
síðan hún var hafin aftur fyrir
kröfu Hlífar •— hafa verið 30—40
manns. Atvinnuleysi hefur vcrið í
bænum í allan vetur. Eitthvað af
mönnum hefur leitað vinnu annars
staðar.
Það er því fjarstæða að halda því
fram, að þegar frá eru dregnir þeir
30—40 menn, sem i bæjarvinn-
unni hafa verið og hinir ér aðra
vinnu hafa fengið, að J)á fáist ekki
nægir menn til skipaafgreiðslu í
Hafnarfirði, þótt þessum 30—40
bæjarvinnumönnum sé ekki skip-
að niður á bryggju. Enda hefur
það komið fyrir að þeir sem ekki
hafa verið í bæjarvinnunni hafa
gengið atvinnulausir á sama tíma
og bæjarvinnumennirnir hafa verið
sendir í skipaafgreiðslu. Auk þess
hefur Hlíf lýst því yfir að hún
telji að vinnan við framleiðsluna
eigi að ganga fyrir og öruggt að
nægir menn muni fást til skipa- ,
afgreiðslu með frjálsu samkomu-
lagi.
Það var sú tíð, að atvinnurek-
endur í Hafnarfirði höfðu öll ráð
verkamanna í hendi sér. Undan-
farin ár hefur þetta verið á annan
veg.
Af þessu síðasta fyrirskipana- .
brölti bæjarstjórnarinnar verður .
ekki annað ráðið en að Jæssir menn
stjórnist fyrst og fremst af löng-
uninni til þess að láta verkamenn
sjá og finna, að enn séu það at-
vinnurekendur sem völdin hafa.
STÓR LÖNGUN LÍTILLA
K4RLA
Litlir karlar eru oft haldnir stórri
löngun til þess að virðast stórir.
Til þess að fullnægja þessari löng-
un sinni grípa þeir oft til átak-
anlegra örþrifaráða. Slíkt virðist '
Naeturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæ j arskólanum,
sími 5030.
Ljósatimi ökutækja er frá kl.
19.10 til kl. 6.00.
Næturvörður er í Laugavegs Apó-
teki.
Næturakstur: Hreyfill, sími 1633.
'Útvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 2. flokkur.
19.25 Hljómplötur.
19.30 Ávarp um Frakklandssöfnun-
ína (Eiríkur Sigurbergsson
viðskipafræðingur).
20.20 Tónleikar Tónlistarskólans:
a) „Salomo", ouverture eftu'
Hándel.
b) St. Pauls svíta eftir Holst.
Strengjasveit leikur. Dr.
Urbantsehitsch stjómar.
20.50 Erindi: Um stjórnskipun ís-
lendinga. -— Mannréttindi.
(Gunnar Thoroddsen prófes-
sor).
21.15 Hljómplötur: Lög leikin á
píanó.
21.20 Erindi: Um „Paul Lange og
Thora Parsberg" (Vilhjálmur
Þ. Gíslason).
21.45 Hljómplötur: Kirkjutónlist.
Ritstjóraskipti við Útvarpstíðindi.
Páskahefti Útvarpstíðinda er ný-
komið út og flytur margskonar efni:
Viðtal við Harald Björnsson um
þjóðleikhúsið, sem nú er unnið við
af kappi, grein um leikritið Paui
Lange og Tora Parsberg eftir B
Björnsson, er flutt verður í útvarp-
ið um páskana undir stjórn frú
Gerd Grieg, eru í því tilefni birt
ummæli forustumanna Leikfélagsin*1
um störf frúarinnar hér á landi og
nokkur orð um Björns. eftir Vilhj.
Þ. Gislason (kafli úr grein úr Leik-
skrá). Þá er viðtal við Sigurð Ein-
arsson um skáldskap, útvarp og
heimsviðhorf, grein um Samkór
Reykjavíkur og stjórnanda hans, á-
samt mynd af kórnum, birt eru um
mæli Tómasar Guðmundssonar og
Kristmanns Guðmundssonar um no.
ræna samvinnu og viðtal við Guð-
laug Rósenkranz um næstu viðfangs
efni Norræna félagsins. Að lokum
má nefna smásögu og afmæliskveðj-
ur er fóru á milli þeirra Gísla Ó1
afssonar frá Eiríksstöðum og Jó-
seps Húnfjörð,' en þeir skiptust á
kvæðum.
Þá er þess getið, að með þessu
hefti láti þeir Gunnar M. Magnúss
og Jón úr Vör af ritstjórn, en við
taki Vilhjálmur S. Vilhjálmsson og
Þorsteinn Jósepsson blaðamenn.
HEIMILISRITIÐ, marzheftið. er kom-
ið út, og flytur m. a.: NobelsoerSlaunin,
sfðari grein Skúla Þórðarsonar mag.
(með mörgum myndum); Kið munum
k°ma aftur, sögu um einmana, nýgifta
stúlku og freistingar hennar, eftir Anya
Seton; Eg gleymi þuí aldrei, sanna frá-
sögu hermanns um viðskipti hans við
Arabahöfðingja; Gestur á sumarhóteli,
gamansaman kafla úr „Rekkjusiðum", ó-
prentaðri bók; Berlínardagbók blaÓa-
manns, eftir Wiiliam L. Shirer; Skin og
skúrir, framhaldssögu eftir Joan Marsh;
Dularfulla vitamáliS, glæpamannasögu
eftir Michael Hervey og 50 skrítlur og
skopsögur.
nú hafa hent bæjarstjórnina í Hafn
arfirði.
Það getur á sinn hátt verið
næsta broslegt — en öllu gamni
fylgir nokkur alvara. og hafnfirzk-
um verkamönnum finnst frekja lít-
illa karla hafa þegar gengið nógu
langt og mál sé að hún nemi
staðar.
Ilafnfirzku r verkamaður
viat?ptéMurink>
Hjátrúarfull þjóð?
Ó. Þ. skrifar mér um hjátrú,
slúðursögur, drauma o. fl.
„íslenzka þjóðin hefur löngum
verið hjátrúarfull. Trú hennar á
allskonar yfimáttúrlega hluti hefur
þó jafnan verið gripin úr lausu lofti
og tíðum farið út í öfgar. Með auk-
inni þekkingu hefur þó íslenzka al-
þýðan, að mestu leyti, losað sig út
álögum þessara hindurvitna. En.i
er þó til hópur manna hér á landi
sem trúir á afturgöngur, anda, vof-
ur og spádóma og reynir að koma
öðrum til að trúa slíku með sér.
Þessar „trúuðu“ sálir reyna sífellt
að koma af stað ýmsum furðusög-
um án minnsta tilefnis. Oft þarf
ekki annað en maður deyi, eðlileg-
um dauðdaga, þá er farið á kreik.
haldnir „fundir“ og sá látni látinn
birtast ættingjum sínum, tala til
þeirra o. s. frv. Aðrir þjást sífellt
af draumum, sem þeir halda að
séu ákaflega merkilegir og sem
valda draumamanninum geysilegra
áhyggna. Allt þetta er býsna ógeðs-
legt fyrir þá, sem verða að um-
gangast þetta fólk, eða verður fyrir
ásókn þess, án þess að hafa sjálfir
áhuga fyrir kuklinu.
* „Stríðsyfirlýsingin“ og
slúðurberarnir
Það er furðulegt hve geysimiklu
er hrúgað upp af slúðursögum hér
í Reykjavík, jafnt og þétt. Það virð
ist vera atvinna fjölmenns hóps
manna — og kvenna að ljúga upp
allskonar sögum og láta náungann
hlaupa með þær. — -Það væri synd
að segja, að íslendingar væru ekki
skáldhneigð þjóð. — Til hins er
verra að vita, að þessar slúðursög-
MINNINGAR- OG MENNINGARSJÓÐ
UR KVENNA. Gjafir sendar KRFÍ. —
Dánargjöf Bríetar Bjarnhéðinsdóttur kr.
2000,00; Gjöf KRFi til minningar um
Bríeti Bjarnhéðinsdóttur kr. 1000,00; Gjöf
frá félagskonum KRFÍ til minningar um
Bríeti Bjarnhéðinsdóttur (meðtalin gjöf
Landsfundar kvenna kr. 525,00) kr.
3000,00; frá frú Steinunni H. Bjarnason
kr. 100,00. — Gjafir frá ýmsum kven-
félögum til minningar um Bríeti Bjarn-
héðinsdóttur: Frá Þvottakvennafélaginu
Freyju kr. 500,00; frá félagskonum í
Þvottakvennafélaginu Freyju kr. 800,00,
samtals kr. 1300,00; frá Verkakvenna-
félaginu Framsókn kr. 500,00; frá Lestr- i
arfélagi kvenna kr. 500,00; frá Kvenfélagi I
Alþýðuflokksins kr. 300,00; frá kvenfélagi |
Hellissands kr. 100,00; frá Kvenfélagi
Húsavíkur kr. 300,00; frá Kvenfélaginu
Hörpu, Rangárvöllum kr. 100,00; frá
Kvenfélagi Aðaldæla kr. 100,00; frá Kven
félaginu Fjólan, Vatnsleysuströnd kr.
150,00 og frá 2 félagskonum í sama fé-
lagi kr. 20,00, samtals kr. 170,00; frá
Kvenfélagi Stykkishólms kr. 250,00; frá
kvenfélagi í Flóanum kr. 100,00; frá Kven
félagi Mývetninga kr. 160,00; frá Verka-
kvennafélaginu Einingunni, Akureyri kr.
500,00; frá Kvenfélagi Svalbarðsstrand-
ar kr. 200,00; frá Kvenfélaginu Freyju,
Víðidal kr. 100,00; frá Kvenfélagi Gaul-
verjabæjarhrepps kr. 50,00; frá Kvenfé-
laginu Snót, Vestmannaeyjum kr. 942,70;
frá Kvenfélagi Bólsstaðarhlíðar kr. 233,00.
Samtals kr. 14207,70. — Gjafir til minn-
ingar um aðrar konur: Thorvaldsensfé-
laginu Hringnum, til minningar um frú
Kristínu Jacobsson kr. 1000,00; frá Thor-
valdsensfélaginu til minningar um frú
Þórunni Jónassen kr. 1000,00-; til minning
ar um frú Guðnýju Aðalsteins kr. 1000,00
til' minningar um frú Guðbj. Stefánsdótt-
ur, Garði kr. 100,00. Samtals kr. 3100,00.
Samtals gjafir alls kr- 17307,70.
HJÓNAEFNI. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína Anna Elíasdóttir, Kirkju-
stræti 2^ og Jón Svavar Björgvinsson
prentmyndasmiður, Laugarnesv. 37.
ur gera aldrei gagn, heldur oft hið
gagnstæða. Eitt af þeim málum
sem olli á sínum tíma miklum sögu-
burði og umræðum manna á milli
var hin svokallaða „stríðsyfirlýsing“
á hendur Möndulveldunum. Hulan
sem var yfir þessu máli var ekki
einungis notuð til að bera út mein-
litlar og jafnvel hlægilegar slúður-
sögur, eins og það, að ísland hefði
sagt Þýzkalandi og Japan stríð á
hendur og þeir er vildu ganga i
íslenzka herinn ættu að koma
á Vinnumiðlunarskrifstofuna og láta
skrásetja sig þar.
Nei, þetta mál var notað af nokkr
um stjórnmálamönnum þriggja dag-
blaða til að reyna að sverta ákveð-
inn stjórnmálaflokk. Það má með
sanni kalla lúalega aðferð til áróð-
urs — en þrátt fyrir það er hún
þeim sömu mönnum samboðin.
Draumar, sem ekki átti að
birta
Nýlega birti íslenzkt dagblað
stóra grein frá íslenzku yfirvaldi
þar sem rætt er ítarlega um drauma
manns nokkurs nor'ður í landi. I
sambandi við þessa drauma hefur
verið nefnt eitt af strandferðaskipum
okkar. Þetta mun m. a. hafa orð-
ið til þess, að fólk ferðast ekki
nem.a með hálfum huga með skipi
þessu. Það virðist ekki heppileg að-
ferð að hrópa þessa drauma út urn
allt, undir þeim kringumstæðum
sem sjómenn vorir eiga nú við að
búa, auk farþeganna sem verða að
ferðast með strandferðaskipunum.
JJm þetta munu sjómenn vera á
einu máli og kunna þeim litlar
þakkir, sem hér eiga hlut að máli.
Hve merkilegir sem draumarnir
kunna að vera, átti að þegja yfir
þeim a. m. k. nú.
Mannahvörf
Að undanförnu hafa tíðkazt hér
í bænum mannahvörf, sem ekki
eiga sinn líka. Ekki vantar að um
þetta sé ráett og ályktanir dregnar.
Dagblöðin hafa lítilsháttar gert
þetta að umræðuefni, sérstaklega
eitt þeirra. Virðast ummæli Vík-
verja Mbl. mjög ámælisverð og lítt
sæmandi blaðamanni, en fyrir þa
framkomu sína hefur hann þegar
fengið ámæli og skulu þau ekkr
endurtekin hér. En í þessu sam-
bandi hlýtur að vakna sú spurning
hvort lögregla bæjarins gæti ekkL
verið meira á ferli á næturnar, en
hún virðist vera nú, t. d. við höfn-
ina og á öðrum stöðum þar sem
helzt er mannaferð um nætur. Við,
borgararnir verðum að gera þa
kröfu til lögreglu og rannsóknarlög
reglu bæjarins, að' hún láti einskis
ófreistað til að upplýsa þessi mál
og önnur mál er telja verður innan
hennar verkahrings, eins og ákeyrzl-
una á enska flugmanninn á Hafnar-
fjarðarvegi og konuna í Vestur-
bænum sem skeði ekki alls fyrir
löngu.
Getur „pýramídanum
mikla“ líka yfirsézt?
Kunningi minn var að ræða við
mig um spádóma og hjátrú nýlega
Hann sagðist hafa lesið ekki alls-
fyrir löngu grein í dagbl. Vísi um
spádóma „pýramídans mikla“ eins'
og hann komst að orði. Samkvæmt
spádómum hans átti víst eitthvað
stórkostlegt að ske í alþjóðamál-
um 4. eða 5. marz s. 1. En þar
eð nú ekkert skeði þá, fremur
venju, urðum við sammála um að
Pýramídanum hefði kannski yfir-
sézt, eða er það ekki fyrirgefanlegt?
Ó. Þ.“