Þjóðviljinn - 29.03.1945, Blaðsíða 1
10. árgangur.
Næsta blað Þjóðviljans
kemur út miðvikudag
eftir páska.
Fimmtudagur 29. marz 1945.
74. tölublað.
Sóknín míkla:
Sveitír úr l. bandaríska hernum stefna tíl Kassel, og hersveítir
' Montgomerys tíl Múnster
Minningarræður
um Lloyd George
Lloycl Georges var minnzt með
ræðum í báðum deildum brezka
jþingsins í gær. Churchill flutti að-
alræðuna í neðri dejldinni, en
Beaveribrook lávarður í efri deild-
inni.
Churchill taldi Lloyd George
upphafsmann að því, að Frjáls-
lyndi flokkurinn og Ihaldsflokkur-
iun hefðu tekið róttækar þjóðfé-
lagsumbætur á stefnuskrár sínar,
— og væri sú stefna nú orðin
krafa nútímans.
Beav-erbrook lýsti aðdáun sinni
á framkomu Lloyd Georgs árið
1916, þegar Þjóðverjar virtust ætla
að vaða yfir allt Frakkland, —
Bandarfkin voru ekki komin í
stríðið enn, og margir hcldu að nú
væri úti um Bandamenn. En ekki
Lloyd George. Hann talaði kjark
í þjóðina og hershöfðingjana og
hamraði látlaust á því, að gagn-
áhlaup yrðu gerð.
Annar ræðumaður í lávarða-
■deildinni sagði Lloyd George hafa
verið frumkvöðul allrar félags-
málalöggjafar á Bretlandi.
Innrás á Cebu
Innrás Bandaríkjamanna á eyna
Cebu, sem er ein af Filippseyjum,
gengur að óskum. Eiga þeir nú um
4 km ófarna til borgarinnar Cebu.
— Mótspyrna Japana hefur verið
lin fram að þessu.
Judas Lie berst við
„bolsévismann“
Blöðin í Osló, sem eru undir
þýzkri stjórn, birtu s.l. mánudag
áskorun frá lögreglustjóra Quis-
lings, Jonas Lie, sem Norðmenn
kalla Judas, til norskra lögreglu-
manna, um að ganga í „norsku
stormsveitina“ til að berjast gegn
„bolsévismanum“ í Finnmörku.
Lie skýrir frá því, að „norska lög-
reglan“ hafi þegar myndað þrjár
liðsveitir og af þeim berjist „þriðja
stormsveitin og lögreglusveitin“
við hlið Þjóðverja í Finnmörku.
Nú á að mynda „fjórðu storm-
sveitina og lögreglusveitina" til að
leysa þriðju sveitina af hólmi, en
hún fær væntanlega leyfi í apríl,
segir hann.
(Frá norska blaðajulltrúamim).
Samkvæmt fréttastofufregnum nálgaðist 3. banda-
ríski herinn borgina Niirnberg í gærkvöldi. — Sam-
kvæmt því hefur hann sótt fram hátt á annað hundrað
kílómetra frá Rín og er rúmlega 100 km. frá fyrrver-
andi landamærum Tékkoslovakíu.
Aðrar hersveitir 3. hersins hafa tekið borgirnar
Wiesbaden, Hanau og hálfa Frankfurt-
1. bandaríski herinn berst í borginni Giessen. —
Sveitir úr honum stefna suður til Frankfurt og norður
til Kassel.
Nú er ekki lengur um neina „víglínu“ að ræða á
vesturvígstöðvunum. Vörn þýzka hersins er skipulags-
laus og herir Bandamanna hafa rekið stóra fleygi inn
að hjarta Þýzkalands. — Enginn utan herstjórnar
Bandamanna (jafnvel ekki þýzka herstjórnin) veit hvað
skriðdrekaframsveitirnar eru raunverulega komnar
langt.
Og engu er hægt að spá um, hvert þær kunni að
vera komnar, þegar þessar línur eru lesnar.
Skriðdrekasveitir 3. banda-
ríska hersins hafa sótt fram um
a. m. k. 90 km. í gær, þ. e. vega-
lengdina frá Wúrzburg til
Núrnberg. — Ekki er kunnugt.
hvort þær hafa tekið Wúrz
burg, en vitanlega hafa skrið-
drekasveitirnar brunað fram-
hjá fjölda borga og bæja og enr.
er barizt í mörgum þeirra langt
að baki fremstu sveitunum.
Ákafir götubardagar geisa í
Frankfurt. Hálf borgin er á
valdi Bandamanna. — Þeir
tóku kunnan flugvöll skammt
frá henni, og á járnbrautarstöð
íúthverfi hennar tóku þeir 400
járnbrautai’vagna, hlaðna birgð-
um.
Aðrar hersveitir 3. hersins
hafa tekið stórborgina Wies
baden, skammt frá Rín, fyrir
norðan Mainz.
7. HERINN AÐ MAIN
7. bandaríski herinn, sem fór
yfir Rín norðan Mannheim \
fyrradag, hefur sótt fram um
50 km, — að Main fyrir sUnnan
Aschaffenburg. — Barizt er í
Mannheim.
FRAKKAR YFIR RÍN
1. franska herfylkið hefu”
komizt yfir Rín frá Alsace og
inn í Baden.
1. HERINN í GIESSEN
Sveitir úr 1. bandaríska hern
um berjast í Giessen, mikilli
samgöngumiðstöð 70. km. frá
Rín, en 100 km. frá Remagen,
þar sem 1. herinn fór fyrst yfir.
— Aðrar sveitir hans muni’.
komnar miklu lengra. — Stefn?
sumar til borgarinnar Kassei.
sem er meir en 100 km. norð-
ar og austar.
Yfirherstjórnin hefur lagt
fréttabann á ferðir þessara her-
sveita 1. her§ins og sömuleiðis
fremstu hersveita 3. hersins.
„NÆSTUM STJÓRNLAUS
FLÓTTI“
Fréttaritarar með herjum
Montgomerys, nyrzt á sóknar-
svæðinu, segja að undanhalJ
þýzka hersins sé að breytast í
stjórnlausan flótta. — Komast
þeir svo að orði að „eltingar-
leikur“ sé byrjaður þarna. ; —
Hersveitir Mongomerys eru
búnar að ná Rínarbakkanum
frá Wesel til Emmerich á sit.
vald.
Þær eru komnar inn í bæina
Emmerich, Bocholt og Borken
— Aðrar hersveitir stefna liratt
í átt til Múnster.
Aðalstöðvar Montgomerys
eru fluttar á klukkustunda r
fresti.
BANDARÍKJAMENN í
DUISBURG
Sunnar eru Bandaríkjamenn
komnir inn í Duisburg og hafu
tekið útborg hennar, Hamborn.
Þeir eru komnir inn í Dorsten
og eru 10 km. frá Essen.
í Hamborn voru aðalstöðvar
jámhringsins þýzka, sem kennd
ur er við Göring.
BÁGAR ÁSTÆÐUR HJÁ
LUFTWAFFE
Þýzki flugherinn sendi einu
Rússneskur skriðdreki í Búkarest.
6íliOMiFII, BliðP í VlMI
Hann er 15 km frá Austurríkí
Stalín marskálkur gaf út þrjár dagskipanir í gær.
— Sú fyrsta skýrði frá töku pólsku hafnarborgarinnar
Gdynia.
í Ungverjalandi hefur her Malinovskis tekið syðri
hluta borgarinnar Komarom og borgirnar Györ, Csoma
(15 km. frá Austurríki) og Sarvar.
Hersveitir Rokossovskis mar-
skálks tóku Gdynia eftir að liafa
barizt á götunum í einn sólarhring.
— Teknir voru þar 9000 fangar.
— Stalín gat sérstaklega lofsam-
lega um framgöngu pólskrar skrið-
drekahersveitar.
sinn 1 gær 12 flugvélar á loft
til að reyna að trufla eitthvað
hinar látlausu loftárásir Banda
manna. — Tíu þeirra voru
skotnar niður.
Þýzku hermennirnir eru nú
sendir beint út í bardagann
þegar þeir komast á vígstöðv-
ama, án stuðnings stórskotaliðs
eða flugvéla.
Þúsundir þýzkra borgára og
hermanna reyna nú að ryðjast
inn í Svissland með góðu og
illu.
Forseti landsins hefur skipað
svo fyrir að landamæraliðið
skuli tvöfaldað.
Þjóðverjar höfðu til skamms
tíma mikinn hluta Eystrasaltsflota
síns í Gdynia. — Fram að árinu
1924 var hún lítið fiskiþorp. en
Pólverjar breyttu henni í nýtízku
hafnarborg á 10 árum. Hafði hún
130.000 íbúar fyrir stríð.
Akafur bardagi geisar i miðri
Danzig. — Vestari helmingur borg-
arinnar er á valdi Rússa.
Afar mikið herfang var tekið
fyrir vestan Königsberg.
„Á LEIi) TIL VÍNAIl“.
Borgin Györ í Ungverjalandi
liefur 60.000 íbúa. — Stalín komst
svo að orði um hana og Komarom,
að þær væru „mikilvæg virki á
leiðinni til Vanar“.
Hersveitir Malinovskis komust
yfir ána Raba á breiðu svæði og
tóku bæina Csorna og Sarvar. —
Sá fyrri er 15 km frti landamærum
Framh. á 8. síðu.