Þjóðviljinn - 18.04.1945, Síða 7

Þjóðviljinn - 18.04.1945, Síða 7
Miðvikudagur 18. apríl 1945. í> JOÐVTLJINIÍ ? Mikkjel Fönfaus: Hraknmgar bjórafjölskyldnnnar SJÖUNDI KAFLI Bragðarefur fer að heiman. . Það var komið fram í júlí. Gömul kona var á ferð gangandi vestan við Miklavatnið. Hún teymdi á eftír sér. og talaði við sjálfa sig í sífellu. Stundum yrti hún þó á hundinn. En hundurinn leit ekki einu sinni á hana. Hann var orðinn því vanur, að hún væri alitaf tautandi. ‘Þaö var farið að skyggja. Báðum megin við veginn var skógur en þvert yfir hann lá símaþráðurinn. Þegar kom út úr skóginum beygði vegurinn til hægri. Þar var bóndabær og vegur heim íúnið. Kerlingin með hundinn gekk þangað heim. Bærinn var lokáður. Fólkið var farið að sofa. Úti á. túninu var vagn, með fjórum hjólum og á honum stóð stór kassl Yitlausa Gunnhildur gekk hratt í áttina að fjárhús- ins. Hún var stór vexti en lotin í herðum. Andlitið var hrukkótt og hún var illa til fara. En þó hafði hún hatt með langri strútsfjöður. Hún nam staðar og horfði grunsgmlega á íbúðarhús- ið. Jú, það voru áreiðanlega allir háttaðir. Þá hélt hún áfam að fjárhúsdyrunum.. Hún vissi, að þar voru þrjár fjórar kindur, sem ekki voru hafðar úti. Dyrnar voru læstur með hengilási. Hún Mppti í lásinn, en fann óðar, að hann gaf ekki eftir. „Vont fólk!“ tautaði Vitlausa Gunnhildur og sneri við út túnið með hundinn í eftirdragi. Það var ekki í fyrsta sinn, sem Gunnhildur reyndi að opna fjárhúsið eftir að fólkið var háttað. Og þetta var ekki eini bærinn, þar, sem fjárhúsi var læst fyrir henni. Gunnhildur hafði aldrei á ævi sinni verið með réttu ráði. Nú bjó hún alein í kofa og hafði hundinn þar hjá i sér. Tartarar sem voru á ferð, höfðu gefið henni hundinn. Hún fékk peninga frá hreppnum, þegar hún þurfti þess með, annars sá hún um sig sjálf að miklu leyti. Þegar Gunnhildur var ung, eignaðist hún barn. Það WtmETIA Fáeinir prestar í Bandaríkj- unum tóku það ráð fyrir nokkr um árum að fara um dreifð- ustu byg^ðir landsins í Fordbíl, á hverjum var komið fyrir kap- ellu. Þar gat presturinn fram- kvæmt ýmis embættisverk, svo sem hjónavígslur, barnaskímii og jafnvel venjulega guðsþjón- ustu, ef áheyrendur stóðu úti. e Orðið þrætuepli, sem til er 1 mörgum málum, á uppruna í grískri goðafræði. Þrætugyðj- an kom í veizlu og kastaði gullnu epli meðal gestanna, á hvað var ritað: „Til fegurstu konunnar“. Sem vænta mátti urðu afleiðingarnar hinar háska legustu. Það er engin nýtízku kurt- eisi, að gestirnir verði að bragða á öllum réttum, sem þeim eru bomir. Indíánakynflokkur nokk ur fylgdi þessari reglu svo stranglega, að hver sá gestur, sem ekki bragðaði alla réttina hvort sem hann var saddur eða svangur og sagði um leið ,.Hznea-wek“ (sem ekki virð- ist auðvelt heldur) var álitinn fjandmaður f jölskyldunnar. Síamsbúar tóku þessa kurt eisisvenju með enn meiri al- vöru: Gestur, sem leyfði sér að ganga framhjá einhverjum rétti hiá þeim, var talinn fjand- maður allrar ættarinnar og blátt áfram rétt dræpur. „Vertu rólegur. Það er ég. Þú hefur ekki ímyndunarafl til að finna upp á svona hlutumu Eg var í ,5róman.tísku“ skapi þá. Eg hugsaði ekki um annað en kirkjuklukkumar, blómin og sálmasönginn. En nú er ég orð- in .,nervös“ og það er þér að kenna. Alltaf fylgja þér ein- hver vandræði. Ertu með vott- orðin?“ „Það hef ég ekki hugmynd um“, sagði Marteinn og rétti hendurnar fram á borðið. „Það er allt í .réttu Iagi“, j sagði Nielsen og Ring kinkaði | kolli: . Já, allt“. tEg treysti ykkur nefnilega ekki“, sagði Ásta tortryggin. „Þið emð hver öðrum „foT' skrúfaðri“ allir þrír. Gefið þið mér nú portvín. Prestar geta fundið upp á að spyrja um ótrúlegustu hluti. Ef hann spyr mig nú til dæmis, hvort ég eigi bam — hverju á ég þá að svara?“ „Auðvitað segirðu nei, mann- eskja“, sagði Marteinn. ,,En ef hann kemst svo að því, að ég hefi logið. Hvað þá? Eg á nefnilega dreng". „Þú hefðir átt að segja mér það fyrr“, sagði Marteinn og reyndi að láta sem hann værí móðgaður. „Hvað kemur þér það við? Þú ert ekki prestur. Mig langar bara til að vita, hvort prestur- inn getur neitað að gifta okkui af þessum ástæðum“. Svaramennimir litu hvor á annan. Þeim kom saman um. að þetta gæti ekki verið nein hindrun. Ásta hristi höfuðið. „Þið vitið ekkert. Það er líka annað/sem mig langar til að fá upplýsingar um. Á ég að hafa hattinn þegar ég geng upp að altarinu, eða á ég að taka hann af mér? Ójá! þið gónið hver á annan eins og sauðir. Þið vitið hvorki í þenn- an.heim né annan, hvað brúð- kaup snertir. Gefið þið mér eitt glas, ef ég á ekki að fara að gráta“. 4. Meðhjálparinn tók á móti þeim í dyrunum svartklæddur og hátíðlegur. Ásta tók í hand- legg hans og leit hvasst á hann: „Heyrið þér — þér hljótið að vita allt, áem kemur giftingu við. Á ég að hafa hattinn?" Meðhjálparinn leit á hatt- inn, feimínn og alvarlegur. Þetta var stór hattur, skreyttur einhverju gljáandi, sem líkt- ist hefilspónum. „Það eru engin ákvæði um það í kirkjubókinni“; sagði meðhjálparinn. „En mér dettur ekki í hug að hafa hattinn. Presturinn get ur skemmt hann, þegar hann blessar yfir mig. Og þetta var dýr hattur“. „Þá takið þér hattinn af vð- nr“, sagði meðhjálparinn hóg vær. ,,Já, takk. En ég verð að hafa hattinn. Eg er ókrulluð", sagði Ásta gröm. „Hann ætti bara að reyna að skemma hattinn. En segið þér mér eitt- Er ég völt á fótunum? Síðasta port- vínsglasið sveif á mig“. Ásta gekk fáein skref, virðu- leg í hreyfingum. En þegar hún sneri sér við til að heyra dóm meðhjálparans, hafði hann forðað sér bak við súlu. „Þú ert ekkert óstöðug"1', sagði Marteinn gramur. „En það er líka asnalegt að drekka port- vín á morgnana“. ,,Hvað á maður að gera, Þegar maður er „nervös“?“ :sagði Ásta og andvarpaði. Það var heldur ekki laust við að hún væri óstyrk. Þegar hún gekk inn kirkjugólfið við hönd Uielsen stundakennara og prest urinn stóð reiðubúinn að taka á móti þeim, staðnæmdist hún allt í einu, reif af sér hattinn og setti hann ofan á lampa, sem stóð á einum kirkjubekkn- um. Preslurinn lagaði á sér gler- augun. Hann var ekki viss um að hann hefði séð rétt. Þetta voru undarleg hjónaefni. Brúð- guminn vírtist dauðskelkaður og brúðurinn gréf. Ojæja. Það bar að minnsta kosti vott um að hún skildi alvöru þessarar athafnar og bar lotningu fyrir guðs húsi. Presturinn var hinn mildasti í garð brúðhjónanna og fram- kvæmdi hjónavígsluna eftir því sem lög og reglur bjóða. 5. Taugaveiklun Ástu var fokir. út í Viður og vind. Hún hló og söng fyrir munni sér, þegar hún lét á sig hattinn frammi í for- kirkjunni. ,.Nú verður gott að fá sér matarbita", sagði hún. Marteinn Askerud ræskti sig og gerðist órólegur: „Okkur langar til — frökin Möller og mig — það er að segja konu mína og mig — langar til að bjóða ykkur upp á, lítilsháttar morgunmat“. „Miðdegismat, auðvitað mað- ur“, sagði brúðurin. „Kallaðu það,. hvað sem þú vilt. Það verður einhver heitur matur og kannske brauð með osti-----“ „Þú ert nirfill. Þetta ætlarðu 'að bjóða okkur á brúðkaups- daginm Þú sem ert nýbúinn að fá arf“. Ásta gleymdi sultinum á leið- inni. Hún stanzaði við búðar- glugga. j„En hvað þetta er ódýrt! Þrjár og fimmtíu! Og þetta er reglulega fínn kragi“. „Já, þetta er laglegt útprjón“, tautaði Marteinn og stillti sig um að geispa. Ásta sneri sér snöggt við og horfði út í bláinn eins og hún væri að tala við allan heim- inn. „Hann heldur, að þetta sé prjónað. Hann heldur víst að hann sé staddur út í eyðihólm anum og móðir hans sé að prjóna sokka“. Fólk sem gekk um Breiðu- götu tók eftir brúðhjónunum og fylgdarliði þeirra. Nielsen stundakennari var í „smoking".. Vátryggingarmaðurinn í svö.rt- um frakka og Marteinn var í’ „diplomat“. Klæðnað brúður- innar var erfitt að telja til nokk urrar sérstakrar tegundar. Ásta horfði dreymandi ahg- um á skó í glugga, sem þau fóru fram hjá. ,.,Nei, hugsa sért Allrahanda skór! Götuskór. ballskór, selskapsskór —“. „Það væri hægt að ímynda sér, að faðir yðar hefði verið skósmiður“, sagði vátryggingar- maðurinn. „Hann var ekki skósmiður. Hann var heildsali og seldi bursta, hef ég heyrt. Annars veit ég það ekki. Eg hef aldrei séð hann — svínið. En skór hafa alltaf verið minn draumur Það er að segja almennilegir skór, sem fara vel á fæti og kreppa mig ekki. Eg hef svo mörg likþorn“. Að lokum lenti brúðfylgdin á Hótel Fönix og þá var farið að ræða um matinn. „Eigum við ekki að fá okkur humar?“ spurði Ásta. „Guð hjálpi okkur“. sagði brúðguminn og rétti upp hend urnar, eins og miðað hefði ver- ið á hann skambyssu. En brúð- urin lét sem ekkert væri. „Skiptið þér yður ekkert af því, sem hann segir. Komið þér bara með humarinn“, hvíslaði hún að þjóninum. Humarinn kom, vínflaska og öl. Óttasvipurinn hvarf nærri því af andliti Marteins litla stund. „Við skulum ekki gera mál- tíðina endasleppa", sagði hann. „Biðjið þið ym kaffi. Eg ætla að bregða mér burt“. „Hvert ætlarðu?" „Eg ætla út og kaupa ciga- rettur í sjálfsala hérna úti. Þær eru ódýrari þar en hérna“. „Hundspottið þitt“, varð brúð- inni að orði. En hún sagði það ekki í illu, bví að nú lá vel á henni. Hún var södd og ham ingjusöm. „Kauptu líka cigarettu,- handa mér“ hvíslaði hún blíð- lega. Og þegar Marteinn kon: inn aftur með tvær öskjur i hendinni, brosti hún þakklæt isbrosi. „Brúðkaup, eru yndisleg“, sagði hún og stundi af sælu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.