Þjóðviljinn - 18.04.1945, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 18.04.1945, Qupperneq 8
KRON kmnítt^atnarí illliða Reiaoim aoarar tailiaraMaldlao Pað hefur engan fulltrúa fengið hosmti í ReYhíavíh, stðan það hóf herferðína t 7. deíld Látum það líka tapa 5. og 16. deild ÐVILIINN Kosning fulltrúa í 3. deild, fór fram í gærfcvöld. Unnu ei» ingarmenn einn sigurinn enn, fengu alla fulltrúana kosna, 31 ;að tölu. Er þá aðeins eftir að kjósa í tveimur deildum; 5. deild og 116. deildL Fundur 16. deildar verður föstudaginn 20. apríl kl. &30 í Mjólkurstöðinni, en fundur 5. deildar mánudaginn 23. apeíl kl. 8,30 í Listamannaskálanum, (ekki fimmtudaginn 19. apríl eins og áður var ákveðið). Framsóknarhyskið og taglhnýtingar þeirra, Vísis- og Alþýðu- blaðsmenn, hafa nú fengið verðugt svar hjá alþýðu Reykjavíkur, vð sundrungarbrölti sínu innan KRON. I»essi þokkalega þrenning jheíur tapað kosningu í hverri einustu deild í Reykjavík, síðan vupjwist varð um klæki hennar á fundi 7. deildar, en þar fékk ihúri 11 fulltrúa kosna. Kronfélagar í 5. og 16. deild! Látið Tímavisisalþýðublaðsklík- una fá þá útreið sem hún hefur unnið til. Látið hana tapa í 5. og 16. deild, eins og hinum, Deildarsvæði 16. deildar nær yfir allt innan Rauðarárstígs (stök númer) að Kringlumýrar- vegi, auk þess öll Höfðatúnin, Hljómleikar í hátíðasal Menntaskólans Illjómleikar verða haldnir í há- tíðasal Menntaskólarus n.h. laugar dag Jcl. 6 síðdegis. Eru það fyrstu hljóinleikarnir af þremu'r sem áformað er að halda í vetur, með svipuðu sniði. Hafa þeir Árni Kristjánsson og Ragnar Jónsson haft forgöngu um þetta. Á hljómleikunum á laugardag- inn verður flutt eitt af me.stu verkum Bachs í Kunster Fuga. Þar sýnir Bach meðferð 15 Fuga og 4 Ganons, þar sem tekið er til meðferðar eitt stef í öllum hugs- auLegum myndum. Verk þetta samdi Bach árið 1749, en lauk aldrei við það til fulls. Hér verður þetta mikla verk Bachs flutt allmikið stytt, eða nánar tiltekið: 6 Fugur og 2 Can- ons. Strokhljómsveit dr. Viktors Urbantschitchs flytur verkið, Sig ríður Björnsdóttir leikur á Cem- balo en Páll ísólfsson skýrir verk- ið áður en hljómleikamir hefjast. í næstu viku verður flutt tón- verk frá 16 öld og eitthvað eftir nútíma höfunda. Amerísk blást- urshljóðfærasveit, undir stjórn CorLeys h 1 jórnsveitarstjóra, leikur. Framsókn á Ítalíu Bandarískar sprengj ulfl u g v élaæ héldu áfram árásum í gær, þriðja daginn í röð, á stöðvar Þjóðverja á leiðinni til Bologna. Bretar eru komnir yfir Silaro- ána á fleiri stöðum. Bandaríkjamenn hafa tekið tvær hæðir í viðbót við þær fyrri, tæpa 20 km. fyrir suðvestan Bol- ogna. Aðrar hersveitir Bandaríkja- manna eru aðeins 13 km. frá Bol- ogna. Laugarnesveg allan og Kirkju- sand. Deildarsvæði 5. deildar er vestan Frakkastígs (rétt númer með), upp Njarðargötu, beygir niður Freyjugötu (stök númef með), niður Bjargarstíg á Berg- staðastræti 21 og þaðan niður Bergstaðastræti (stöku númer- in) og Smiðjustíg (rétt númer), þaðan um Lindargötu (nr.12'—2 ekki með) og niður Klapparstíg. Kafbátahætta enn umhverfis Bretland Einn af ráðherrum Bandaríkja- stjórnar sagði í gær, að kafbáta- hættan væri enn mjög alvarleg á hafinu umhverfis Bretland. Sagði hann Þjóðverja gera all't, sem þeir gætu til að tefja sigling- ar milli BretLands og meginlands- ins. Hann sagði, að kafbátarnir væru að vísu fa^rri en áður, en þeir væru líka miklu betur út- búnir og erfiðari viðureignar. Henderson biður um frið vegna San Francisco-ráðstefn- unnar Arthur Henderson einn af foringjum verkamannaflokksins brezka, lét svo um mælt í gær í tilefni af orðrómi um sam- vinnuslit flokkanna, sem standa að ríkisstjóminni, að það væri illt verk að reyna að stuðla að samvinnuslitum eins og nú stæði á. Að sínu áliti ætti ekki að gera neitt til að stofna ár angrinum af San Francisco-ráð- stefnunni í voða. En það gæti orðið afleiðingin ef brezku full trúarnir þar þyrftu að óttast hörð stjórnmálaátök og jafnve! stjórnarskipti á meðan þeir væru vestra. Henderson sagði, að það væri æðsta skylda Breta að sjá um, að Bretland tæki fullkominn þátt í ráðstefnunni. Islenzkir íþróttamenn heiðra minningu Roosevelts forseta Áður en síðasti leikur- inn fór fram í hnefaleika móti Ármanns í And- rewshöllinni í fyrra~ kvöld kvaddi Benedikt G. Waage, forseti íþrótta sambands íslands sér hljóðs. Lýsti hann hryggð ís- lenzkra íþróttamanna við fráfall Roosevelts Bandaríkjaforseta. Bað hann viðstadda heiðra minningu hans með því að rísa úr sætum. Mannfjöldinn vottaði hinum látna forseta virð ingu sína með því að rísa úr sætum og standa þögull nokkra stund. Húsvíkingar samþykkja kaup tveggja 55 tonna vélbáta Frébtaritari Þjóðviljans í Húsa- vík símar: Alinennur borgarafundur var haldinn hér í gœrkv'óld. Sam- þykkt var að hrep'purinn sendi Nýbyggingaráði beiðni um tvo 55 tonna báta nú þegar. Jafnframt lýsti fundurinn yfir að hann teldi rótt að hreppsnefnd in leitaði hlutafjárframlaga til bátakaupanna. \ Stríðslokin nálgast gOVIET WAR NEWS birti nýlega grein um horfurnar í Evrópustyrjöldinni, eftir rússneska blaðamanninn M. Mikhajloff, og segir þar meðal annars: „Milljónir manna horfa nú daglega á Evrópukortið með eftirvæntingu. I drununum frá hinum einstæðu, stór- kostlegu- orustum í austri og vestri náigast stríðslokin. Sigurskotunum úr fallbysgunum í Moskva er svarað með fréttunum af sigrunum á vesturvígstöðvunum, þar sem Montgömery marskálkur hefur molað vamir Þjóð- verja á norðurhluta vesturvígstöðvanna. Það er verið að framkvæma ákvarðanir Krímráðstefn- unnar, markvíst og kröftuglega, með sókn rauða hersins í austri og brezk-bandarísku herjanna í vestri. Síðustu fregnir af sigrum Bandamanna minna *á þau orð Staííns marskálks, að Þýzkalandi yrði að halda í tangarörmum tveggja vígstöðva, og herða stöðugt að þeim. Töngin er nú að lokast um Þýzkaland af miklu afli. Aldrei fyrr í þessu stríði hefur samvinna Banda- manna á austur- (og vesturvigstöðvunum verið jafnfull- komin. Nazista'herimir eru lokaðir milli tveggja eldveggja, sem færast stöðugt nær hvor öðrum. Hitler brást sú von að vamir Þjóðverja að vestan mundu duga. Bandamanna'hersveitir geisa nú inn á norð- urþýzku sléttuna, en þaðan er auðfarin leið til Berlín. Það er nokkuð síðan að rauði herinn brauzt fram að Oder, þar sem skemmst er til Berlínar. Þjóðverjum hlýtur að vera orðið lióst að orustan um Berlín er komin á dag- skrá, og áróðursmenn nazista reyna að búa þýzku þjóðina undir fregnir af ósigrinum, sem dynur yfir Hitlers-Þýzka- land þegar hersveitir Súkoffs marskálks fara þessa 50 km. sem þeir eiga eftir til höfuðborgar landsins. Þriðja ríkið er að sökkva undan þunga glæpa sinna, eins og Stalín marskálkur spáði. Það er að molast vegna sóknar hinna voldugu afla réttlætis og menningar. Enga miskunn, enga linkind, enga vægð fyrir þessa glæpamenn. Það vildum við sagt hafa við alla þá, sem nú taka þátt í lokaáhlaupinu. Blessun milljóna frelsisunnandi manna fylgir hinum sigursælu herjum Bandamanna. Megi vonir þeirra rætast“. 1 Myndin sýnir bandaríska faUMífarhermcnn lenda á Corregidor, 16. febrúar 1945. — FaUMífarher- mönnurn þesswn var œtlað það hfutverk að auðvelda landgöngu aðalhersins, með töhu strand virkjanna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.