Þjóðviljinn - 24.05.1945, Side 1

Þjóðviljinn - 24.05.1945, Side 1
10. árgangur. VILJINN Finuntudagnr 24. maí 1945. 112. tölublað. t------------------------------- Æ. F. R. Munið félagsfundinn á Skóla- vörðustíg 19 kl. 9 í kvöld. Umræðuefni: 1. Rauðhólaskálinn. 2. Æskulýðsráðstefnan í Lon- don. 3. Félagsmál. _______________________________J f. „Stjórn44 Dönitz tek- in höndum Dönitz og allir meðlimir hinn- ar svonefndu ríkisstjómar hans hafa verið settir i varðhald á- samt öllum meðlimum þýzka herforingjaráðsins. Friedeburg hershöfðingi, sá sem undirritaði uppgjöfina fyr- ir Montgomery réð sig af dög- um með því að taka inn eitur, til þess að losna við fangavist- ina. Það voru hermenn úr 11. brezku loftfluttu herdeildinni sem framkvæmdu handtökurn- ar. Meðal þeirra sem teknir voru var Jodl hershöfðingi, sem und- irritaði allsherjaruppgjöf Þjóð- verja, og Speer, fyrrverandi her- gagnaframleiðsluráðherra Þýzka lands. Handtökurnar hófust kl. 10 í gærmorgun og var fljótt lok- ið. Auk þessara „háttsettu“ stríðsglæpamanna hafa einnig verið handteknir þúsundir lægra settra þýzkra foringja. Þegar hershöfðingjarnir voru spurðir hvar Himmler héldi sig, neituðu þeir að svara. Dönitz ætlaði að hafa með sér 8 töskur, en varð að skilja allar eftir nema eina. Streicher, hinn illræmdi Gyð- ingahatari og ein ógeðslegasta veran af hinum nazistisku glæpa mönnum var tekinn höndum í Austurríki í gær. ChurchilS fallð að mynda brádabírgðaráðuoe^tí Brezka samsteypustjómin sem setið hefur við völd s. 1. 5 ár, hefur nú beðizt lausnar vegna væntanlegra þingkosninga. Brezka þingið verður rofið 15. júní n. k. Konungurinn hefur heðið Churchill að mynda bráða- birgðastjóm sem starfi þangað til úrslit í kosningunum era kunn. Það var á hádegi í gær, sem Ghurchill gekk á fund Breta- konungs í Buckinghamhöll og lagði fram lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt. Kl. 4 gekk hann aftur á fund kon- ungs og fól konungur honum þá að mynda bráðabirgðastjóm, er sæti við völd, þar til úrslit, í kosningunum verða kunn, eða um 2 mánaða bil. 15. júní n. k verður svo brezka þingið rofið. Búizt er við að þingið muni gerbreytast við kosningarnar, en nú eru bráðum liðin 10 ár síðan að almennar þingkosning- ar fóm fram í Bretlandi. Meg- inflokkar brezka þingsins eru Ihaldsflokkurinn, sem hefur 359 þingmenn og Verkamanna- flokknum sem hefur 164. Við það að samsteypustjórnin hefur hætt störfum, losna 30 ráðherrastöður í brezku stjóm- inni. Eru það að mestu leyti embætti fulltrúa Verkamanna- ÞING VERKAMANNA- ' FLOKKSINS' Á þingi Verkamannaflokksins í gær voru mörg og mikilvæg mál á dagskrá. Bevin gerði grein fyrir stefnu Verkamannaflokks- ins í utanríkismálum. Hann sagði að ef Verkamannaflokkur inn kæmist til valda mundi hann vinna að sífellt bættri sambúð og samvinnu Bretlands við Sov- étríkin og Bandaríkin. í innan- landsmálum mundi flokkurinn beita sér fyrir þjóðnýtingu allra mikilvægustu atvinnugreina og þær atvinnugreinar, sem ekki yrðu þjóðnýttar yrðu undir sterku eftirliti ríkisvaldsins. Atlee, formaður flokksins hélt einnig ræðu í gær.Hann sagði að hin mikla reynsla, sem brezka verklýðshreýfingin hefði að baki sér, mundi verða henni mikil- væg 1 þeim átökum er framund- an væru. Rúml. 200 kafbátar hafa gefizt upp 44 þýzkir kafbátar hafa nú gefizt upp fyrir herskipum Bandamanna eða í brezkum höfnum. í Flensborg gáfust upp 15, 10 Osló, 40 í Bergen, 1 í Kiel og um 100 í höfnunum á vesturströnd Frakklands. Sýrlandsdeilan Ekkert hlé er enn á deilunum í Sýrlandi og Libanon. Stúdentar fóru í hópgöngu um stræti Beiruts í gær í mót- mælaskyni við ráðstafanir Frakka í Sýrlandi og Libanon. Mótmælagöngur voi'u einnig farnar í Damaskus, þar sem for- sætisráðherra Sýrlands hélt ræðu yfir mannfjöldanum. í San Francisco báru fulltrú- ar Sýrlands og Libanons fram mótmæli stjórna sinna við ráð- stefnuna. Endurskoðun frönsku stjórnar- innar Stjóm frönsku þjóðfrelsis- hreyfingarinnar hefur skorað á de Gaulle að endurskoða stjóm sína, þar sem ekki sé tekið nœgi- legt tillit í henni til hinnar greinilegu meirihlutaafstöðu vinstri flokkanna í frönskum stjórnmálum, ems og bezt hafi komið fram í sveitastjómarkosn ingunum. de Gaulle heldur rdeðu í kvöld og er búizt við að hann muni gefa mikilvæga yfirlýsingu. Viðræður fara nú fram milli frönsku verklýðsfélaganna og stjórnarinnar um verkföllin í landinu, því að verkföll halda enn áfram, þó að verkföllum námamanna sé lokið. Flest verk- föllin eru gerð í mótmælaskyni yfir því, að stjórnin hefur ekki enn framkvæmt þá liði stefnu- skrár sinnar, er snerta þjóðnýt- ingu mikilvægustu atvinnu- greina. Samkomulag er um það milli verklýðshreyfingarinnar og stjórnarinnar að lífsnauðsynlegt sé fyrir frönsku þjóðina að auka framleiðsluna, og að tilgangs- laust sé að auka kaup verka- manna, ef öll nauðsynlegustu farmfærsluverðmæti skortir. 1 mill j. stolinna bóka Bandarísku hersveitimar í Austurríki hafa fundið einn mesta ránsfeng Þjóðverja, bóka safn með 1 millj. binda. Safn þetta fannst skammt frá Klagenfurt í héraðinu Kárnten í Austurríki. Mesti hluti safnsins var úr bókasöfn- um í París og Kieff og hafði að geyma ómetanleg verðmæti. í höll, sem Himmler hafði látið reisa sér 1 Austurríki fund ust einnig mjög dýrmætir. list- munir allra tegunda.________ flokksins. Kjósa á um 650 fulltrúa til þingsins, en 1650 eru í fram- boði, 600 frá íhaldsflokknum, 600 frá Verkamannaflokknum, 300 frá Frjálslynda flokknum og 20—30 frá Kommúnista- flokknum og Commonweai • flokknum. Kommúnistar hafa ekki fleiri fulltrúa í framboði til þess að lið vinstri aflanna sundrist ekki í viðureigninni við íhaldið. 50 bonur eru í framboði, en 14 sitja nú á þingi. Búizt er við að kjósendur séu um 33 millj. Mesta loftárás styrialdarinnar á Tokio Mesta loftárás styrjaldarinnar var í gær gerð á Tokio, höfuð- borg Japans. Það voru 550 risaflugvirki frá Marianaseyjunum, sein gerðu árásina og vörpuðu þær niður 4500 smál. af íkveikjusprengj- um. Árásin hófst kl. 10 1 gærmorg un og stóð í P/2 klst. Um % millj. íkveikjusprengna var dreíft yfir Tokio, sem öll stóð í ljósum logum er flugvélamar flugu burt. Lítilla vama af hálfu Japana varð vart. MISSTU 450 FALLBYSSUR Slim, yfirforingi 14. hersins í Burma, skýrði frá því, að japanski herinn í Burma hefði misst 450 fallbyssur á s. 1. mán- uðum. Hann sagði að slíkt fall- byssutjón væri táknrænt fyrir það, hvílíkan gífurlegan ósigur japanskí herinn í Burma hefði beðið. Litlar fréttir hafa annars borizt af bardögum á Kyrra- hafssvæðinu. SílðaFeerHiiiðlDmF á SiDlBliFði n ShaðaMd eloa að ue?a homnaF upp BBgafra ||p||| — Aívínnamálafáðljen'a sfeípay Éiilið lllll fjðtfra manna byfgín^arsijórn Atvinnumálaráðherra skipaði 5. þ. m. fjögra manna byggingarstjórn fyrir síldarverksmiðjumar sem ákveð- ið er að reisa á Siglufirði og Skagaströnd. Eiga sæti í nefndinni Trausti Ólafsson efnafræðingnr (formaður), Þórður Runólfsson vélaverkfræðingur, Snorri Stefáns- son vélfræðingur og Magnús Vigfússon byggingámeist- ari. Verkefni byggingarstjórnarinnar er að gera fullnað- aráætlanir um alla tilhögun þessara verksmiðja, ann- ast um kaup á efni og vélum og hafa á hendi allar byggingaframkvæmdir. Miðað er við að nefndin skili verksmiðjunum til vinnslu fyrir síldarvertíð næsta sumar, vorið 1946. í viðtali við Þjóðviljann lagði atvinnumálaráðherra áherzlu á þá gífurlegu þörf, sem nú er fyr ir auknar síldarverksmiðjur. Á næstu vertíð mætti gera ráð fyr- ir að öll sænsku skipin verði komin og sennilega fleiri, og } eykst þörfin þá um allan helm- ing. Undanfarin sumur hefur það valdið sjómönnum og skipaeig- endum miklu tjóni hvað skipin hafa oft. orðið að bíða eftir af- 1 Framhald á 5. síðu. Eitt mesta verkf ræði afrekstríðsins Nýlega hefur verið skýrt frá einu mesta verkfræði-afreki styrjaldarinnar. Eru það olíuleiðslur sem lagð ar voru neðansjávar um Erm- arsund til Frakklandsstranda. Um þessar olíuleiðslur höfðu 120 milljóhir lítra af olíu ver- ið fluttir í stríðslok í Evrópu. Ennþá er dælt um þær 1 millj. lítra á dag. Leiðsl- urnar eru 20 talsins og fór um þær nær allt olíumagn, sem Bandamannaherimir á vestur- vigstöðvunum þurftu að nota. 25 þús. smál. matvæla eru nú á leið til Noregs, mest frá Bret- landi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.