Þjóðviljinn - 24.05.1945, Page 8

Þjóðviljinn - 24.05.1945, Page 8
/ Listamannaþing, helgað 100 ára dánarminn- ingu Jðnasar Hailgrímssonar hefst á iaugard. þldÐVILHNN Listamannaþing, helgað 100 ára dánarminniœgu Jónasar Hallgrímssonar hefst hér í bænum á laugardaginn kemur. Þetta er annað þing Bandalags íslenzkra listamanna — fyrsta þingið var haldið 1942 —' en í Bandalaginu er þessi 5 félög: Félag ísl. rithöfunda, Fél. ísl. leikara, Fél. ísl. tónlistar- manna, Fél. ísl. myndlistarmanna og Fél. ísl. arkitekta, Flutt verður erindi um Jónas Hallgrímsson, ennfremur verð- ur leiksýning, þar sem ofið er saman efni úr kvæðum og ritum Jónasar. I»á verða einnig hljómleikar og rithöfundakvöld. Þingið stendur yfir frá 26. til 31. þ. m. Bandalagið kaus á sínum tíma nefnd til að undirbúa þingið. Árni Kristjánsson er formaður nefndarinnar, en með honum eru í nefndinni: Guð- mundur Einarsson, Halldór Kiljan Laxness, Lárus Pálsson og Sigurður Guðmundsson. — Framkvæmdastjóri þingsins pi- Bagnar Ólafsson lögfræðingur. Þeir Árni Kristjánsson og Halldór Kiljan Laxness skýrðu blaðamönnum í gær frá vænt- •anlegu fyrirkomulagi þingsins. ÞINGIÐ SETT Þingið verður sett n. k. laug- ardág kl. 3 í hátíðasal Háskól- ans, verða þar viðstaddir með- limir Bandalagsins og boðsgest- ir þeirra. Fyrst syngur blandaður kór undir stjórn Páls Isólfssonar, ísland farsælda frón, við lag sem Jón Leifs hefur raddsett. Bandalagið hefur kjörið Davíð Stefánsson forseta þings- ins og setur hann þingið, en gefur því næst forseta íslands, Sveini Bjömssyni, orðið, mun hann flytja stutt ávarp. Að ræðu forsetans lokinni flytur Davíð Stefánsson ræðu. Þvínæst verður þjóðsöngurinn sunginn. „MYNDABÓK JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR“ Leiksýning hefst í Tripoli- leikhúsinu kl. 8V2 um kvöldið. Áður en leiksýningin hefst verður flutt inngangsljóð (pro- logus) sem Tómas Guðmunds- son hefur ort. í leiksýningu þessari eru ofin saman atriði úr kvæðum og rit- um Jónasar Hallgrímssonar, verða þar atriði úr Gamanbréf- inu, Grasaferð, Skrímslinu góða og stúlkunni 1 tuminum, Kossa- vísum, Ferðalokum og Huldu- ljóðum. Halldór Kiljan Laxness hefur undirbúið efnið undir leiksýninguna, en Félag ísl. myndlistamanna sér um sýn- inguna, og verður Lárus Páls- son leikstjóri. Lárus Ingólfsson hefur málað leiktjöld og teikn- að búninga. Páll ísólfsson hefur samið músik við leiksýninguna: for- leik, marz, söngva og undirleik við framsögn. Sýning þessi hefur verið nefnd „Myndabók Jónasar Hall grímssonar“. PRÓF. ÉINAR ÓL. SVEINS- SON FLYTUR RÆÐU UM JÓNAS HALLGRÍMSSON Á sunnudaginn kl. 2 flytur prófessor Einar Ól. Sveinsson, f. h. heimspekideildar Háskól- ans, ræðu um Jónas Hallgríms- son. Ræðan verður flutt 1 há- tíðarsal Háskólans og verður henni útvarpað. Kxistján Kristjánsson. söngv- ari syngur úr ljóðum Jónasar Hallgrímssonar og Lárus Páls- son leikari les nokkur kvæði hans. MINNISMERKI JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR AFHJÚPAÐ Klukkan 3V2 verður afhjúpað minnismerki Jónasar Hallgríms sonar. Lúðrasveit Reykj'avíkur leikur undir stjóm Alberts Klahn. Forsetinn leggur blóm- sveig á fótstall líkneskisins en því næst flytur Matthías Þórð- arson þjóðminjavörður ræðu -— en hann var í gömlu minnis- varðanefndinni er Stúdentafé- lagið kaus 1907. ÍSLENZK TÓNLIST FLUTT í TJARNARBÍÓ Um kvöldið kl. 9.15 verður flutt íslenzk tónlist í Tjamar- bíó. Verða þar flutt verk eftir Hallgrím Helgason, Helga Páls- son, Karl O. Runólfsson og Jón Nordal. Strengjahljómsvejt Tónlistar- I félagsins, Bjöm Ólafssoti 0g • Ámi Krístjánssort og Strengja- kvartett Tónlistarskólans rnunu flytja verkin. RITHÖFUNDAKV ÖiLD Mánudagsfcvöldið kl. 8V2 hefst rithöfundakvöld í hátíða- sal Háskólans. Þessir lesa úr verkum sínum: Eýjólfur Guðmundsson, Svanv hildur Þorsteinsdóttir, Guð- mundur Böðvarsson, Steinn Steinarr og Guðmimdur Daní- elsson. LEIKSÝNING — MYND- LISTAMANNAKVÖLD Á þriðjudagskvöldið verður léiksýningin: Mýndábók Jönas- ar Hallgrímssonar, endurtekin í Iðnó. Það kvöld er einnig ákveðið myndlistamannakvöld í útvarp- inu, er Félag ísl. myndlista- marma sér um. KIRKJUHLJÓMLEIKAR Á miðvikudaginn verða kirkjjuhljómleikar. Páll ísólfs- son íeikur á orgel en Pétur Jónsson óperusöngvari syngur. ANNAÐ RITHÖFUNDA- KVÖLD — ÞINGSLIT Á fimmtudagskvöldið verður annað rithöfundakvöld og lesa þá þessir. Gunnar Gunnarsson, Snorri Hjártar, Ragnheiður Jónsdóttir, Jóhannes úr Kötl- um, Sigurður Röbertsson og Ólafur Jóhann Sigurðsson. Þingslit fara fram þá um kvöldið. Skilnaðarhöf listamanna verð ur um kvöldið 1. júní að Hótel Borg. Frá stiinaffdvalancfnd BnMMii ihiíi Wf 310 Hn Nýlega er fullskipuð nefnd til að annast um sumarvist barna á dvalarheimilum í sumar. Nefndin hefur þegar til umráða dvalarheimili fyrir allt að 300 börn, og verður eigi aukið við það fyrr en séð er, hve margar umsóknir berast. v Nefndin er þannig skipuð: Frá ríkisstjóm íslands: Sig- urður Sigurðsson, berklayfir- læknir. Frá bæjarstjórn Reykjavíkur- Katrín Pálsdóttir, bæjarfull- trúi, Haraldur Ámason kaup- maður. Frá barnaheimilisnefnd Vor- boðans: Jóhanna Egilsdóttir húsfrú. Frá Rauða Krossi íslands: Scheving Thorsteinsson, lyf- sali. Rekstur barnaheimilanna verður með öðrum hætti en undanfarið, þar sem ríki og bær taka ekki á sig neina fjár- hagslega ábyrgð umfram þær fjárveitingar, sem veittar hafa verið. Mun nefndin því krefjast fulls meðlags með bömum þeirra er vel geta borgað, en fjárveiting hins opinbera, verð- ur notuð til styrktar þeim, sem enga getu hafa til að greiða fullt meðlag. Mun sumardvalamefnd opna skrifstofu í Hótel Heklu þriðju daginn 29. þessa mán., og verð- ur opin daglega kl. 14 til 19. Verður þar tekið á móti um- sóknum um sumardvöl fyrir börn á aldrinum 4 til 9 ára Allar slíkar umsóknir verða að hafa borizt nefndinni fyrir laug ardagskvöld 2. júní, ef þær eiga að verða teknar til greina. Er gert ráð fyrir að sumar- dvöl bamanna hef jist um miðj- an næsta mánuð og verði allt að 10 vikum. Ráðning starfsfólks á sumar- dvalarheimilin byrjar í dag og fer fram til naestu mánaðar móta á skrifstofu Rauða Kross íslands í Mjólkurfélagshúsinu kl. 17 til 19 daglega, nema laug ardaga. Kortiö sýnir austur-varnarsvæöi Bandaríkjahersins. öruncrt hersiiiiWingi Framhald af 5. síðu. tign frá óbreyttum hermanni í Erershöfðingja. Hann fór til vígstöðvanna í Frakklandi í fyrri heimsstyrjöld inni 1917 og seinna fil Þýzka- lands. Var hann þá sæmdur heið ursmerkjunum „the Distinguis- ed Service Medal“ og „the Púrple Heart“, einnig; fronsku heiðursmerki. , Hann hefur síðan í fyrri heims styrjöldinni gegnt fjölda þýð- ingarmikilla starfa í þjónustu hersins. í ágúst 1943: var hann gerður fulltrúi yfirfbringjans yfir austur-varnarsvæðinu og 8. október sama ár var hann skip aður y'firmaður sama varnar- svæðis. 14. júlí 1944 skipaði hermála- ráðuneytið hann förmann rann- sóknarréttar varðandi árás Jap- ana á Pearl Harbour 7. des. 1941. Umferðaslys í gær varð maður að nafni Bjargmundur Sveinsson, til heimilis að Njálsgötu 64, fyrir bifreið á Vesturgötunni. Meidd- ist hann allmikið á höfði og var fluttur á Landspítalann. Slys þetta vildi til kl. 3.25 í gær. Bifreiðin R 2712 var á vesturleið neðarlega á Vestur- götunni. Bjargmundur var á gangi eftir gangstéttinni vinstra megin þar til hann beygði út á götuna í veg fyrir bifreið- ina. Féll hann framan á bif- reiðina, en síðan á götuna. Aðal meiðslin eru á höfðinu, því hann mun hafa lent með höf- uðið á framrúðu bifreiðarinn- ar og brotnaði hún við árekst- urinn. Bjargmundur var þegar flutt- ur á Landspítalann og var Þjóðviljanum tjáð í gærkvöld að hann hefði góða rænu og liði mjög sæmilega eftir atvik- um. Minningargjafir í Barnaspítala- sjóð Hringsins: Kr. 10.000.00 — tíu þúsund krónur — frá frú Vigdísi Erlendsdóttur og Hallgrími Jóns- syni, fyrrv. skólastj., um syni þeirra þrjá: Jónas, f. 13. janúar 1907, d. 12. des. sama ár; Ólaf Davíð, f. 29 ágúst 1911, d. 17. marz 1914 og Er- lend Óskar, f. 9. febrúar 1914, d 4. mrz sama ár. — Minningargjöí til minningar um Jens Guðmunl Guðmundsson, kr. 300.00, frá Hrafnhildi og Ágústi. — Kærar þakkir til gefenda frá stjóm Hrings ins. Athugun á hæfni bandarískra togara til veiða hér við land Þriggja manna nefnd farin til Ameríku Þriggja manna nefnd er ný- farin til Ameríku til að athuga, hvort þau tœki og skip, sem nú eru notuö við botnvörpuveiöar í Bandaríkjunum hœfa aöstæðum hér viö land, og ef svo' er ekki, þá hvaöa bre-gtingar séu nauö- synlegar. Nefndarmenn eru Pétur Sig- urðsson sjóliðsforingi, Hafsteinn Bergþórsson framkvœmdgstjóri og Aðalsteinn Pálsson skipstjóri. Jafnframt var Pétri SigurÖs- syni falið að athuga tilboð um smíði fiskiskipa í Bandaríkjun- um og önnur atriði er það mál varða. Tilboð um togara, sem hingað hafa borizt frá Bandaríkjunum, hafa yfirleitt mætt tortryggni íslenzkra útgerðarmanna, og hefur borið á ótta við að banda- rískir togarar mundu ekki vel nothæfir til veiða við ísland. Úr þessu ætti að fást skorið með vesturför þeirra þremenn- inganna. Breytingar á bandarísku stjórninni Nokkrar breytingar 'r.afa orðið á stjórn Trumans forseta. 3 ráð- herrar hafa sagt af sér. Þeir ráðherrar sem sagt hafa af sér eru dómsmálaráðherrann, verkamálaráðherrann og land- búnaðarmálaráðherrann. Enn- fremur hafa fleiri embættis- menn stjórnarinnar sagt af sér. Nýir menn hafa verið skipaðir í embættin. Það var tilkynnt í Washing- ton í gær, að Harry Hopkins væri farinn til Moskvu til við- ræðna við Stalín. Davies, fyrrv. sendiherra Bandaríkjanna í Sov- étríkjunum er á förum til Lon- don til viðræðna við Churchill. Truman forseti mun fara til San Francisco og ávarpa ráðstefnuna á síðasta allsherjarfundi hennar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.