Þjóðviljinn - 26.05.1945, Síða 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 26. maí 1945.
KRON hefur félagsmálastarfsenti aD nýju
Guðberg Kristínsson ráðínn félagsmálafulltrúí KRON
Eins og frá var skýrt í Þjóðviljanum í gær hélt stjóm
KRON nýlega fund með stjómum verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík til að ræða aukið samstarf milli verkalýðsfélaganna og
KRON.
Þá hefur KRON hafið félagsmálastarfsemina að nýju, en
hún hefur legið niðri frá því Guðmundur Tryggvason hætti
störfum sem félagsmálafulltrúi félagsins. Guðberg Kristinsson
hefur nú verið ráðinn félagsmálafulltrúi KRON.
í tilefni af fregn þeirri er Þjóð
viljinn birti í gær hafði frétta-
maður Þjóðviljans tal af Guð-
berg Kristinssyni og spurði
hann um starfseimi KRON.
BREYTINGAR Á STJÓRN
KRON
— Það hefur margt verið rætt
um KRON undanfarið. Það
munu hafa orðið einhverjar
breytingar á stjórn félagsins?
— Já, svarar Guðberg. í stað
Felix Guðmundssonar, sem var
formaður KRON, var á síðasta
aðalfundi kosin í stjórnina frú
Guðrún Guðjónsdóttir.
Sigfús Sigurhjartarson var
kosinn formaður í stað Felix
Guðmundssonar, Theódór B.
Líndal var kosinn ritari og Þor
lákur Ottesen varaformaður.
— Hverjir eru aðrir í stjórn
félagsins?
— Hjörtur B. Helgason, Krist
jón Kristjónsson. Sveinbjöm
Guðlaugsson, Guðm. Tryggva-
son og Ólafur Þ. Kristjánsson. j
KRON IIEFUR FÉLAGSMÁLA
STARFSEMI AÐ NÝJU
— Þú hefur verið ráðinn fé-
lagsmálafulltrúi KRON?
— Já, það starf hefur legið
niðri í 3 ár, en áður gengdi Guð
undur Tryggvason því starfi
og vann hann á sínum tíma
mikið og gott starf 1 þágu fé-
lagsins.
— í hverju er starf þetta fólg
ið?
— Það er fólgið í því að sjá
um hina félagsiegu hli'ð í starf-
serni KRON, fá fólkið í, félag-
ínu til að auka viðskipti sín og
félagslegt starf, afla nýrra fé-
lagsmanna og annast aðra fé-
lagslega útbreiðslustarfsemi. —
Mun ég verða til viðtals fyrir
félagsmenn í skrifstofu félags-
ins á venjulegum ákrifstofutíma
og e. t. v. lengur fram eftir,
1—2 kvöld í viku.
AUKIÐ SAMSTARF VIÐ
VERKLÝÐSFÉLÖGIN
— Hvað getur þú sagt mér
um starfsemi hinnar nýju
stjórnar?
— Fátt eitt ennþá. Eg hef
þegar sagt þér frá að hún hefur
endurvakið félags- og út-
breiðslustarfsemina, og í beinu
framhaldi af ráðningu minni
samþykkti svo stjórnin á fundi
sínum 15. b. m. eftirfarandi til-
.lögu:
„Stjóm KRON ákveður að
bjóða stjórnum allra starfandi
verkalýðsfélaga í Reykjavík,
stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfé-
laganna, stjórn Alþýðusam-
■bands íslands og stjórn Banúa-
lags starfsmanna ríkis og bæja
á fund með sér til að ræða
starfsemi framangreindra félags
samtaka og KRON.
Skal einkum athuga:
a) Hvort verkalýðsfélögin
sjái sér ekki fært að láta fara
fram athugun á hve margir og
hverjir af meðlimum hvers fé-
lags eru starfandi meðlimir
KRON, og hvetja síðan þá
þeirra, sem ekki eru í félaginu
að ganga í það.
b) Hvort félögin vildu ekki
ljá auglýsingum frá KRON, á-
samt hvatningu um að ganga í
félagið, rúm í skrifstofum sín-
um.
c) Hvort ekki væri æskilegt
að samstarf gæti tekist með
KRON og Alþýðusambandi ís-
lands um útgáfu tímaritsins
Vinnan.“
Þessi fundur var svo haldinn
23. þ. m. Umræður voru fjörug-
ar að afstaðinni ýtarlegri ræðu
Sigfúsar Sigurhjartarsonar, og
virtist mér fundarmenn mjög
sammála um að vinna beri skipu
lega að framgangi og eflingu
neytendahreyfingarinnar, og að
þann styrk sem til þess þyrfti
bæri fyrst og fremst að fá frá
verkalýðs- og launþegasamtök-
unum.
— Hvað hyggur þú um þetta
samstarf?
— Þessu samstarfi verður
haldið áfram af hálfu KRON
við öll þau verkalýðsfélög er
því vilja sinna, en næsta skref-
ið er að stjómir félaganna taki
þetta mál fyrir í félögunum og
upp úr því hef jist svo hið skipu
iega samstarf.
KRON FJÖLGAR SÖLU-
BÚÐUM
— Hvað hefur KRON margar
sölubúðir nú?
— Félagið hefur nú matvöru-
verzlanir á eftirtöldum stöðum:
Skólavörðustíg 12, Grettisgötu
46, Hverfisgötu 52, Garðastræti
2, Bræðraborgarstíg 47 og Þver-
veg 2. Þá hefur KRON sérvöru-
verzlun á Skólavörðustíg 12:
skóverzlun, vefnaðamörur og
karlmannafatadeild. Glervöru-
búsáhalda- og járnvörudeild
hefur félagið í Bankastræti 2;
bókabúð í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu; fatapressun- og
hreinsun á Grettisgötu 2 ' og
efnagerð á Hverfisgötu 52.
Auk þess mun félagið á næst-
únni setja upp tvær nýjar mat-
vörubúðir, aðra í Laugames-
hverfi og hina í Kleppsholti.
Allar þessar vérzlanir, sem
ég hér hef nefnt eru í Reykja-
vík, en auk þeirra hefur félag-
ið þrjár búðir í Hafnarfirði,
eina í Keflavík, eina í Sand-
gerði og eina í Grindavík.
Guðberg Kristinsson.
AÐSKILNAÐUR DEILDANNA
I HAFNARFIRÐI OG
KEFLAVÍK
— Hvernig er með hinn marg
umtalaða aðskilnað deildanna í
Hafnarfirði og suður með sjó?
— Deildirnar í Hafnarfirði og
Keflavík hafa óskað eftir að-
skilnaði, b. e. a. s. að þessar
deildir yrðu sjálfstæð kaupfé-
lög, og finnst mér það mjög eðV.
leg ákvörðun þar sem þessar
deildir eru orðnar mjög stórar
og' umfangsmiklar, enda hefur
stjórn KRON og aðalfundur
tekið mjög vinsamlega í þetta
mál og fengið fyrir sína hönd
þá lögfræðingana Ragnar Ólafs
son og Theódór B. Líndal til
þess að semja um þessi mál, en
Hafnarfjarðardeildin hefur feng
ið Sveinbjörn Jónsson lögfræð-
ing og Keflavíkurdeildin Guð-
mund I. Guðmundsson lögfræð-
ing til samninga fyrir sína
hönd.
SKIPULAGSBREYTINGAR
— Eg hef heyrt að það standi
til skipulagsbreytingar í félag-
inu?
— Já, fyrir liggja tillögur til
laga'breytinga um að fækka'
framkvæmdastjórum úr þrem
í einn og ennfremur tillögur um
að fækka deildum í félaginu,
o. fl.
Þessar tillögur verða endan-
lega afgreiddar á framhaldsað-
alfundi, sem halda á fyrir 1. á-
gúst, en eins og þú veizt var
aðalfundi frestað, með tilliti til
þess skilnaðar sem deildirnar í
Hafnarfirði og Keflavík hafa
óskað eftir.
KRON GREIÐIR FÉLAGS-
MÖNNUM 420 ÞÚS. KR.
í ARÐ Á S.L. ÁRI
— Hefurðu meira að segja
um félagið og starfsemi þess?
— Já, geta má þess að félag-
ið mun skila til félagsmanna
420 þús. kr. í arð fyrir viðskipt-
in á árinu, auk þess sem félagið
hefur lagt í varasjóð kr. 133
þús. 906,36 og í arðjöfnunarsjóð
kr. 4 793,17 — útborgun á arði
mun fara fram upp úr næstu
mánaðarmótum, og mun það
verða auglýst þá.
— Nokkuð fleira?
— Nei, ekki að sinni, en bú
getur hóað í mig seinna við
tækifæri. J. B.
Verklýðsfélag Hrútfirð •
inga gengur í Alþýðu-
sambandið
Verklýðsfélag Hrútfirðinga
samþykkti 25. marz s.l. að sækja
um upptöku í Alþýðusamband
íslands og var félagið tekið í
Alþýðusambandið á fundi Al-
þýðusambandsstjómarinnar 18.
þ. m.
Stjóm félagsins .er þannig
skipuð:
Formaður: Rögnvaldur Helga
son.
Ritari: Þorsteinn Jónasson.
Gjaldkeri: Pétur Matthíasson.
í félaginu eru nú 31 félags-
maður. — Kauptaxti félagsin.;
er kr. 2,10.
Nýir samningar á Sandi
Verklýðsfélagið Afturelding á
Sandi gerði nýja kaup- og kjata
samninga við atvinnurekendúr
þar á staðnum, þann 17 þ. m
eftir viku verkfall.
Samkvæmt hinum nýja samn
ingi hækkar kaup karlmanna
í almennri dagvinnu úr kr. 1,90
í 2,10 á klst., kaup kvenna og
unglinga úr kr. 1,35 í kr. 1,50,
skipavinnukaup er óbreytt, kr.
2,40. Heimilt er að vinna í vökt
um í frystihúsum, tveim 8
stunda vöktum.
8 stunda vinnudagur er
fyrsta sinn samningsbundinn
hjá öllum atvinnurekendum á
Sandi.
Tðnlístin
Tónlistin, tímarit Félags ís-
lenzkra tónlistarmanna, 3.-4.
hefti árgangsins 1944, er fyrir
nokkru komin út og er þar
með árgangi þessum Iokið.
Heftið flytur þessar greinar:
Hugleiðingar um fomíslenzkan
kirkjusöng, eftir Sigtrygg Guð-
laugsson; íslenzk tónlistarmál.
eftir Hallgrím Helgason, stutt
grein en kemurvíða við; Tónlist
arheiti og táknanir með skýr-
ingum; Yfirlit yfir sögu tónlist-
arinnar, eftir Hallgrím Helga-
son; Pétur Jónsson óperusöngv-
ari sextugur; Tóríbókmenntir,
þar sem rætt er umútgefnar inn
lendar tónsmíðar; Hljómleika-
líf Reykjavíkur; Endursagt i'n
tónheimum; Bréf abálkur og
ýmsar stuttar greinar. Þá flytur
heftið einnig tvö lög á nótum:
Fyrr var oft í koti kátt, eftir
A. J. Johnson, og Kyrrð eftir
Jón Björnsson.
Eins og sjá má af þessari
upptalningu er efni ritsins all
fjölbreytt. Tónlistin er eina
tímaritið sem gefið er úc hér
á landi um þessi mái. Urn áskrií
endafjölda þess er þeim, sem
þetta ritar, ekki kunnugt. en
Tónlistin er rit sen þvrfti að
fara víða. Ættu tónhstarunn ■
endur ekki að láta sig vanta
þetta rit.
Fni m lil n
Fratm og Valur kepptu í
fjórða sinn til úrslita í fyrra-
kvöld.
í þetta sinn tókst að fá úrsiit
en áður höfðu félögin alltaf skil
ið jöfn.
Fram vann Val með 2:0.
Sex læknis-
embasttl laus
Sex héraðslæknisembætti
hafa nýlega verið auglýst laus
til umsóknar, og eru það þessi.
í Búðardalshéraði; Flateyjar-
héraði; Ögurhéraði; Hesteyrar-
héraði; Ámeshéraði og Bakka-
gerðishéraði.
Embættin verða öll veitt frá
1. sept. næstkomandi, en um-
sóknarfrestur er til 31. júlí. —
Laun eru samkvæmt lögum.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum.
Sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki.
Ljósatími ökutækja er frá kL
22.25 til kl. 2.45.
Næturakstur: Aðalstöðin, sími
1383.
Útvarpið í dag:
15.00 Dagskrá Listmannaþingsins
Hátíðasalur Háskólans):
Setning þingsins.
Forseti íslands talar.
Forseti Listamannaþingsins
flytur erindi.
16.00 Fréttir.
19.25 Hljómplötur: Samsöngur.
20.30 Dagskrá Listamannaþingsins
(Tripoli-leikhúsið):
a) Þættir úr ritverkum Jón-
asar Hallgírmssonar, færð-
ir í leikform.
b) Tónleikar.
Hallgrímssókn. Messað á morgun
kl. 11 f. h., sr. Ragnar Benedikts-
son. (Mæðradagurinn).
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Ragnhildur
Jóhannesdóttir, Guðrúnargötu 3 og
Finnur Richter, brunavörður, Hring
braut 145.
Þróttur, biað um iþróttir, gefið
út af íþróttafélagi Reykjavikur, hef
ur verið sent Þjóðviljanum.
í blaðinu eru þessar greinar:
„Óþrjótandi verkefni biður íslenzkr
ar æsku“, eftir Vilhjálm S. Vil-
hjálmsson blaðamann; Sundnám-
skeið að Reykjanesi við ísafjarðar.
djúp fyrir meir en hálfri öld; Guð-
mundur Stefánsson g^ímukappi, eft-
ir Guðmund Hofdal; íþróttaannaáll
og í fgðmi fjalla, upphaf ferðaþátt-
ar eftir Ólaf Björn.
Ritstjórar Þróttar eru þeir Þor-
björn Guðmundsson blaðamaður og
Þorsteinn Bernharðsson fyrrv. for-
maður Í.R.
FRAKKLANDSSÖFNUNIN:
Peningagjafir: Barnaskóli S. D. A
Vestmannaeyjum 1650 krónur, ErL
Guðm. 100 kr. Safnað af Ellerup
lyfsala á Seyðisfirði 500 kr. Sr. Áre-
líus Níelsson, seld kort 510 kr. Safn
að af frú Svanhildi Þorsteinsdóttur
6880 kr. Johansson sendiherra 100
kr. Safnað af Birni Þorgrimssyni
887 krónur. Sól Hafnarfirði 500 kr
Kvenfélag Stokkseyrar 360 kr. Kon-
ur í Hvolsvelli, afh. af sýslumanni
B. Björnssyni 630 kr. N. N. 200 kr
N. N. 2000 krónur. — Kærar þakkir