Þjóðviljinn - 30.05.1945, Síða 1
r
10. árgangur.
Miðvikudagur 30. maí 1945
117. tölublað
Orgeltónleikar
Páls ísólfssonar
í Dómkirkjunni kl. 9 í kvöld. —
Leikin verða verk eftir Björgvin
Guðmundsson, Hallgrím Helga-
son, Jón Leifs, Pál ísólfsson og
Sigurð Þórðarson. — Einsöngv-
V.
J
19 menn flugu norður í gær til að annast upp-
setningu vélanna — 16 fljúga norður í dag
Allar líkur benda til þess að hin nýja 10 þús. mála síldar-
verksmiðja, er byggð hefur verið í stað gömlu Rauðku á Siglu-
fírði, muni geta tekið til starfa á síldarvertíðinni í sumar.
Unnið hefur verið af fullum krafti að endurbyggingu verk-
smiðjunnar og er uppsetning véla þegar hafin.
19 menn flugu norður í gær til að setja vélamar upp —
16 munu fljúga norður í dag.
Þjóðviljinn hafði í gær tal
af Snorra Stefánssyni fram-
kvæmdastjóra Rauðku.
Meiri hluti vélanna til verk-
smiðjunnar er nú kominn til
Siglufjarðar, en það sem enn
er ókomið er komið í skip i
Ameríku.
Nítján menn frá vélsmiðj-
unni Héðinn hér í Rvík, flugu
norður í gær, og eiga þeir að
vinna að uppsetningu vélanna.
'Fóru þeir með Catalinaflug-
bátnum, en hann fór ekki alla
leið til Siglufjarðar heldur lenti
í Miklavatni í Fljótum kl. 1
og voru mennirnir sóttir þang-
að frá Siglurírði. — Þoka var
fyrir norðan í gær.
16 menn aðrir frá Héðm
munu fljúga norður í dag ef
veður leyfir.
Hnnið er af fullum krafti að
því að koma verksmiðjunni
upp, og komi það sem enn ev
eftir af vélum í Ameríku í tæka
tíð, getur yerksmiðjan tekið til
starfa í byrjun þessarar síldar-
vertíðar.
Hefur verið unnið að þessu
máli af miklum dugnaði.
VATNSVEITAN NÝJA Á
SIGLUFIRÐI
Þá komu einnig til Sigluf jarð
ar, í gær rör til hinnar nýju
vatnsveitu þar á staðnum. Eru
það 8—10 tomma rör eða mun
stærri en í gömlu vatnsveit
unni.
Hin nýja vatnáveita, sem gert
er ráð fyrir að kosti % milljón
kr., var m. a. ákveðið að byggja
með hliðsjón af þörf nýrra verk
smiðja.
Enn bíður nokkuð af vatns
veituefninu til Siglufjarðar
flutnings hér í Reykjavík.
Stórkostleg loftárás á Jokohama
Hinar stórkostlegu loftárásir risaflugvirkja á Japan halda
stöðugt áfram. í gær var varpað niður 3500 smál. af íkveikju-
sprengjum á Jokohama.
Risaflugvirkin sem þessa loftá-
rás gerðu hafa bækistöðvar sínar
á Iwoeyju, en þetta mun vera
fyrsta stórárásin á Japan sem
þaðan er gerð. Heil hverfi í borg
inni stóðu í björtum logum eftir
árásina.
Jokohama er ein stærsta borg Jap
ans og með mestu hafnarborgum
heims. Mikill iðnaður er í borg-
inni og ýmsar mikilvægustu her-
gagna verksmiðjur Japana eru
þar. Rorgin er mjög nýtízkuleg,
þar sem hún var öll endurreist
eftir jarðskjálftana 1926. Lo'ftá-
rás var einnig gerð í gær á flota-
stöð norðaustan við Tokio.
A Luzoneyju í Filipseyjum
hefur Bandaríkjamönnum orðið
nokkuð ágengt og náðu þeir borg
inni Santa Fé þar á vald sitt í
gær.
Annarsstaðar af Kyrrahafsvíg-
stöðvmnum er tíðindalaust.
Situr við sama í
Sýrlandsdeilunni
Enn situr við sarna í deilu
Frakka, Sýrlendinga og Libanons
búa.
Bidault utanríkisráðherra
Frakka gaf í gær skýrslu uni mál
ið á stjórnarfundi
Opinber tilkynning um skýrslu
hans hefur ekki verið gdfin út,
en fréttaritari einn segir, að hann
hafi sagt, að Frakkar hefðu ekk-
ert skipt sér af innanríkismálum
Sýrlendinga og Libanonsbúa. hins
vegar htfðu þeir farið fram á að
hagsmunir sínir í þessum löndum
yrðu tryggðir, m.a. með því, að
þeir fengju að hafa flugvelli og
flotastöðvar þar, svo og að þeir
fengju að hafa eftirlit með olíu-
leiðslunni sem liggur um löndin
frá írak.
Rockefellerstofnunin
býðst til að gefa 150
þús. dollara til rann'
sóknarstöðvar að
Keldum
Rockefellerstofnimin hefur
ákveðið að veita allt að helm
ing alls kostnaðar við bygg-
ingar rannsóknarstöðvar að
Keldum í Mosfellssveit, og er
miðað við að þetta framlag
geti orðið 150 þúsund dollar-
ar (tæp milljón króna).
Bjöm Sigurðsson læknir,
sem unnið hefur að rannsókn
arstarfi hjá Rockefellerstofn-
uninni, er staddur í Banda-
ríkjunum og er m. a. að at-
huga um undirbúning rann-
sóknarstofnunarinnar.
Ógnaröld í Aþenu
Fasistís/c ógnaröld rílcir í Aþenu
undir vemd ajturhaldssinnanna,
er náðu völdum í Grilclclandi fyr-
ir tilstyrlc byssustingja brezka aft-
urhaldsins.
Fyrir nokkru réðst t. d. lögregl-
an í Alþenu inn í skrifstofur 25
grískra lögfræðinga og fór með þá
á lögreglustöðina. Eina sök þeirra
var, að þeir eru verjendur föður-
landsvina, sem handteknir voru
vegna þátttöku þeirra í bardögun-
um, sem háðir voru í Grikklandi
s. 1. desember.
Liðþjálfi í grísku lögreglunni var
nýlega dæmdur fyrir liðhlaup. I
réttarfiöldunum skýrði hann frá
því, að hann hefði ekki þolað pynd-
ingarnar, sem Þjóðverjar beittu
föðurlandsvini og hefði því gengið
í lið með ELAS.
Forsendan fyrir dómi hans var
sú, að hann hefði gerzt liðhlaupi
á friðartima.
Kosningar í grísku verklýðsfé-
iögunum hafa staðið yfir að und-
anförnu.
<v Það hefur komið greinilega í Ijós
að kommúnistarnir eru öflugastir
og hafa þeir flest stóru verklýðs-
félögin á sínu bandi.
Sjálfsmorð nazista
Þrátt fyrir allar ráðstafanir,
sem Bandamenn hafa gert til
að koma í veg fyrir að þeir
nazistaforingjar, sem þeir hafa
náð á sitt vald, fremdu sjálfs-
Landráð Kvislings afhjúpuð þegar
á fyrsta degi
Norsk Telegrambyrá, máundag.
Norsku blöðin birta í dag myndir og nákvæmar frásagnir
af réttarhöldunum gegn Kvisling á laugardag.
Það kemur í ljós af frásögn-
um blaðanna að menn höfðu
búizt við ýmislegu af fyrstu
yffrheyrslunum yfir Kvisling,
„en að vanstjóm Kvislings og
getuleysi, hin skilyrðislausa
þjónkun hans við Þjóðverja
skyldi verða afhjúpuð þegar í
byrjun, kom öllum áheyrend
unum algerlega á óvart,“ segir
Aftenposten. Friheten segir:
„Laugardagsins 26. maí mun
minnzt í sögunni ásamt hinum
mörgu sögumerku dögum, sem
við höfum lifað undanfarið.
Þann dag var fyrsti og mesti
föðurlandssvikarinn leiddur aug
liti til auglitis fyrir norskan
dómstól til þess að svara til
saka fyrir afbrot sín. Það var
næstum því eitthvað ósæmilegt
sem gerðist á laugardaginn, þeg
ar þessi maður. sem í fimm ár
hefur gert allt til að traðka rétt
og réttlæti undir fótum sínum
var leiddur fyrir venjulegan
traustan norskan rétt sem kvað
upp varðhaldsdóm sinn með
ströngum lagalegum og hátíð-
legum orðum. Framkoma þessa
sama Kvislings í réttinum var
freklega sjálfsréttlætanleg.
Hann áleit það augsýnilega
sjálfságt, að hann fengi að njóta
góðs af nórskum réttarreglum.“
Blaðið leggur og áherziu á það,
hvílík ánægja og öryggi fólsi
samt í því að sjá norsku réttar-
fari beitt' að nýju.
„Jafnvel Kvisling sjálfur og
allir samsvikarar hans njóta
góðs af þeirri vemd, sem norsk
lög veita. Þeir komast undan
því að ýerða fórnailömb þess
takmarkalausa handahófs í
réttarhöldum, sem þeir sjálfir
hafa verið svo ákafir málsvarai
fyrir s.l. fimm ár. Við erum
hreyknir af því, að þeir fá það.
Við höfum ráð á því og sjálfs-
agi okkar er nægur til þess.
Við erum menninga'.þjóð.“
74 þús. sovétborg-
arar í Noregi
7J. þús. sovétborgarar eru nú í
Noregi. Eru það stríðsfangar og
venjulegir borgarar, sem Þjóð-
verjar fluttú þangað.
Finim manna nefnd er komin til
Osló frá Sovétríkjunum til að
annast um heimflutning fólksins.
Nefndin hefur lýst yfir þakklæti
sínu til Norðmanna, sem bjarg-
að ha'fi þúsundum fanganna frá
b’ráðum bana.
(Frá norska blaðafulltrúanum)
LANDSSÖFNUNIN
Söfnunin nálgast 3. milljónina
82.700 úr Hafnarfirði, Gullbringu- og
Kjósarsýslu
I gœrkvöldi nam■ landssöfnunin samtals um 2 milljónum og 850 þús-
und krónum, auk fatnaðargjafa.
I gœr bárust skrifstofu landssöfnunnarinnar kr. 8Í2.G93.86 frá skrif-
stofu Gvilbringu- og Kjósarsýslu og Hafnarfjarðarlcaupstaðar, og hafði
sú uppha’ð borizt úr kaupstað og sýslu. Eru í henni ótaldar margar
stórgjafir frá sýshmni og Hafnarfirði, sem borist hafa á annan hátt.
Frá póst- og simamálastjóra ibarst tillcynning þess efnis að á póst-
afgreiðslum og bréfhirðingum úti mn land hefðu safnazt um 370.000
kr., en þar af höfðu um 100 þús. kr
Frá skrifstofu Barðastrandar-
sýslu var tilkynnt að þar hefðu
safnast um 50 þús. kr.
Auk þess bárust skrifstofunni
um 50 þúsund krónur í pening-
um, og voru margar upphæðanna
morð, þefur mörgum þejirra
tekist það. Yfirleitt höfðu þeir
falið eitur á sér.
Ritter von Greim, sá sem
skipaður var yfir þýzka flug-
herinn, er Göring var settur
af. drap sig á eitri í Salsborg
nýlega.
verið tilkynntar áður.
frá prestum, oddvitum og hrepp-
stjórum í nærsveitum, svo og frá
vinnuflokkum í bænum, sem eigi
hö'fðu fyrr getað skilað af sér.
Meðal annara gjafa voru þessar:
Safnað á skrifst. Trésmiðafé-
lags Reykjavíkur 6275 kr. (þar af
gaf félagið sjálft 2000 kr.), frá Nat
han & Olsen og starfsfólki 5000
kr., og frá Leikfélagi Revkjavík-
ur 2000 kr. Frá h.f. Faxakletti í
Hafnarfirði bárust kr. 5000, — og
liafa þá félagar í Félagi ís'l, botn-
vörpuskipaeigenda lagt söfnuninni
til samtals kr. 440.000.00.