Þjóðviljinn - 30.05.1945, Síða 4
ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 30. maií 1945.
Útgefandi: SamemingarflokkuT alþýBu — Sósíalistaflokkurinn.
Eitstjóri og ábyrgðarmaður: Sigwður Guðmundsson.
Stjómmálaritstjórar: Einar Olgársson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjómarskrifstofa: Austurstrœti 12, simi 2270.
Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 $ mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja: Víkingsprent k.f., Garðastrœti 17.
Byggmgavandamálm
Sárar og sárar fær nú alþýða Reykjavíkur og annara vaxandi bæja
í landinu að kenna á afleiðingum þess ófremdarástands, sem ríkti með-
an Framsókn réð innflutningnum til landsins fyrir stríð og gerði allt, sem
í hennar valdi stóð til þess að draga úr 'húsabyggingum í kaupstöðum
og vildi helzt stöðva þær með öllu í Reykjavík. Þúsundir manna búa
nú við húsnæðisskort vegna þess að alltof lítið var byggt þá. Og það,
sem verst er; Framsókn tekst enn að hafa áhrif á þessi mál. Og það er
síður en svo að hún fari í feliur með vilja sinn í þessu efni; „Tíminn“
hamast á móti húsabyggingum í Reykjavík og hefur auðsjáanlega með
aðstoð S.Í.S. einhverja von um að gera Reykvíkingum erfitt fp-ir að
byggja, með því að l'áta vanta timlbur. Þessvegna heimtar Tíminn nú
hyggingarafnið flutt upp í sveitir, þegar timburleysið stöðvar bygginga
vinnu í Reykjavík! Reykvíkingar muna það ástand, þegar þeir
urðu að kaupa timbur austan úr sýslum og keyra til Reykjavíkur.
Það verður að tryggja það að timburinnflutningurinn í ár verði.
þannig að þeir fái timbrið, sem mest þurfa þess með. Það dugar ekki
að þúsundir manna séu gersamlega húsnæðislausar í Rej'kjavík og
sumum kauptúnum og ekki sé fyrst og fremst hugsað um þeirra þörf
í ár.
Enginn neitar því að byggja þurfi upp sveitirnar og það betur og
skynsamlegar en Framsókn hefur hugsað ser. En sveitafólkið er þó til
allrar hamingju ekki dæmt til að búa í ,,bröggum“ þeiin, sem mörg
hundruð Reykvíkinga og nokkurra annara kaupstaðabúa verða að
sætta sig við. Og við verðum af heilsufarslegum ástæðum að láta það
ganga fyrir flestum öðrum byggingum að losa fólkið úr þessum óhæiu
híbýlum. Það er nóg að Framsóknarstjórnir áratugsins 1929-39 brutu
Jögin um kjallarafbúðir allan þann áratug og létu alltaf fjölga íbúum
þeirra bönnuðu íbúða, þó það bætist ekki ofan á nú að Framsóknar-
valdinu takist að dæma reykvíska alþýðu til að una „bragga -1/buð-
nnum lengur en Mfsnauðsyn krefur.
En hitt er auðvitað skiljanlegt að Framsókn vill heldur láta byggja
„luxushótel“ fyrir sig á Akureyri en fbúðarhús ýfir fjölskyldurnar í
„bröggunum“ i Reykjavík.
•
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að tryggja timlburinnflutn-
inginn frá Svíþjóð og réttláta notkun timbursins eru orðnar óhjákvæmi-
legar.
Fríimkvæmdir á Skíigíiströnd
Ríkisstjórnin hefur nú hafist handa um storfeldar framkvæmdir á
Skagaströnd. Byrjað er að vinna við hafnargerðina, sem mun verða
mikið mannvirki. Og nú hefur ríkisstjórnin samið við Almenna bygg-
ngafélagið h.f. um byggingu síldarbræðsluverksmiðjanna bæði á Siglu-
-irði og Skagaströnd, þannig að þær verði komnar upp fyrir sildarver-
úð 1946. Vinnur ríkisstjórnin hér aif stórhug þeim og framtakssemi,
;em þjóðin héfur af henni vænst. Og þótt stórvirki séu með þessu
mnin á síldarfbræðslusviðinu, þá mun ekki aif veita að koma verk-
uniðjum þessum upp fyrir sildarvertóð 1946, til þess að fullnægja þeim
lota, sem íslendingar þá hafa eignazt.
Með hafnargerð og sildarverksmiöju á Skagaströnd er grundvöll-
ír lagður að bæ þar. Og það þyrfti að sjá til þess að nú þegar, er fólk
lyzt þangað til að vinna að mannvirkjum þessum og í þeim síðar, þá
ærði ekki hró'fað upp eins og vant er „bráðabirgða“-skúrum, sem
nenn svo ílengjast í, heldur verði samtímis byggðar varanlegar góð-
iT fbúðir, samkvæmt góðri skipulagsáætlun, svo hinn nýi bær verði
rá upþháfi mótaður fegurri og betri en gömlu fiskijKjrpin okkar voru.
Hátíðahöldin á sjömannadaginn
Útisamkoma á Arnarhólstúni — Hópganga
sjómanna—róðrarkeppni og reiptog
Sjómaiuiadagurínn verður í þetta sinn n.k. sunnudag 3.
júní. Munu sjómenn minnast þessa dags með hátíðahöldum
úti og inni eins og að venju. Hefjast hátíðahöldin með kapp-
róðrum sjómanna á Rauðarárvíkinni laugard. 2. júni og hafa
margar skipshafnir gefið sig fram í þá keppni, og verður veð-
banki starfræktur í þvi sambandi, aðalbækistöðvamar verða
við Fiskifélagshúsið.
Ágóðanum af veðbankastarfseminni verður varið til að koma
upp sjóminjasafnL Annars verður ágóðanum að öðm leyti var-
ið til að koma á fót dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn.
Á sjómannadaginn munu sjómenn safnast saman til hóp-
göngu við Tjömina og ganga síðan með Lúðrasveit Reykjavíkur
í fararbroddi um Miðbæinn og meðfram höfninnL
Átti sjómannadagsráðið tal við fréttamenn um undirbún-
ing hátíðahaldanna.
Útiskemmtunin verður í þetta
skipti á Arnarhóli við standmynd
Ingólfs Ai-narsonar. Ilefst hún
með minningarathöfn, sem bisk-
upinn stjórnar. Verður minnzt
þeirra sjómanna, er drukknað
hafa á s.l. ári. Þar á eftir fara fram
ræðuhöld og síðan reipdráttur
milli 4 skipshafna þar af eru þrjár
þær sömu og í fyrra, og keppni
sjómannadagsins í stakka- og
björgunarsundi. Fer reipdráttur-
inn fram á svæðinu framan við
Varðarhúsið, en sundið við höfn
ina á venjulegum stað.
Um kveldið fer fram sjómanna-
hóf að Hótel Borg, og einnig verða
dansskemmtanir og inniskemmt-
anir í öðrum samkomuhúsum bæj
arins. Hinn góðkunni söngvari
Guðmundur Jónsson mun syngja
við þetta tækifæri, bæði við minn
ingarathöfnina og í sjómannahóf-
inu um kvöldið.
RÓÐRARKEPPNINNI VERÐ-
UR ÚTVARPAÐ
Þá hefur og sjómannadagsráðið
hugsað fyrir fjölskrúðugu útvarps
efni í sambandi við þessi hátíða-
höld. Hefst það útvarp strax á
laugardaginn en þá hefur ríkisút
varpið góðfúslega boðist til að út-
varpa róðrarkeppninni, eða því af
henni sem heppilegast kann að
verða talið. Hefur róðrarkeppni
sjómannadagsins aldrei verið út-
varpað fyrr. Útvarpsnotendum
mun gefinn kostur á að fylgjast
ineð öllu sem fram fer á sjómanna
daginn bæði á útisamkomunni og
eins um kvöldið, en þá verður
byrjað á sérstökum barnatíma
sem Jón Oddgeir Jónsson stjórn-
ar, þá verður og fluttur fyrirlest-
ur um hið fyrirhugaða Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna. Einnig
verður útvarpað frá Hótel Borg,
en úr útvarpssal verður útvarpað
leikriti sem Dagfinnur bóndi hef-
ur samið í þessu tilefni og fjallar
það um söguleg atriði úr lífi Jóns
Indíafara hins alkunna íslenzka sæ
fara, en Vi'Ihjálmur Þ. G'íslason
mun tengja saman efnið með út-
skýringum.
Hátíðahöldin verða kvikmynd-
uð.
DVALARHEIMILI ALDR-
AÐRA SJÓMANNA EIGNAST
ÚTGÁFURÉTT AÐ VERKUM
ARNAR ARNARSONAR
Allur ágóði af þessum hátíða-
höldum og merkjasölu í sambandi
við daginn, mun eins og að undan
förnu renna til hins fyrirhugaða
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.
Hinu fyrirhugaða Dvalarheimili
barst nú fyrir skömmu mjög veg
leg og kærkomin gjöf, er erfingjar
og nokkrir góðkiunningjar Magnús
ar heitins Stefánssonar skálds
(Arnar Arnarsonar) ákváðu að
stofna sérstakan sjóð til minn-
ingar um hinn látna og afhenda
hann Dvalarheimili sjómanna á-
■samt öllum éftirlátnum eignum
skáldsins, þar með talinn höfund-
arréttur að öllum verkum hans
prentuðum og óprentuðum.
Þessi ákvörðun var fyrst tekin
12. des. 1944 á skrifstofu bæjar-
fógetans í Hafnarfirði, er þeir
Kjartan OÍafsson bæjarfulltrúi,
Kristinn Ólafsson lögfræðingur,
Þorsteinn Kristjánsson kaupmað-
ur og Sigurður Kristjánsson veit-
ingamaður. komu sér saman um
þessa ákvörðun, en þann dag hefði
skáldið orðið 60 ára ef það hefði
lifað. Var þessi ákvörðun tekin í
framhaldi af samþykkt skiftafund
ar í dánarbúi skáldsins 7. des.
1943, en þá var ákveðið að eftir-
látnum eigum skáldsins skyldi
varið til Hagsbóta fyrir sjómenn.
En á iframhaldsskiptafundi er
haldinn var fyrir nokkrum dög-
um, var samiþykkt skipulagsskrá
fvrir sjóðinn, og ákveðið að verja
fénu til bókakaupa fyrir Dvalar-
heimili sjómanna og til viðhalds
á bókasafni heimilisins. A þessum
fundi var mættur formaður sjó-
mannadagsráðsins og var honum
þar afhent sparisjóðsibók með 700
krónufn, sem voru byrjunargjafir
einstaklinga í sjóðinn, og er ekki
að efa að þessum sjóði eiga eftir
að berast margar gjafir frá aðdá-
endum skáldsins og öllum þeim
er vilja styðja að bókakaupaim
handa hinum öldruðu sjómönnum.
Sjómannadagsráðið vottar þeim
sem hér eiga hlut að máli, alúðar-
fyllstu þakkir.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
í STÆRRA UPPLAGI
EN ÁÐUR
Sjómannadagsblaðið er nú kpmið
út í meira upplagi en nokkru sinni
áður. því venjan hefur verið sú að
undanförnu, að ekki hefur verið
urmull eftir óseldur af því þegar
dagur hefur verið kominn að
kvöldi. Blaðið er í þetta skipti
eins og að undanförnu mjög efnis
mikið og prýtt inörgum sérlega
ialleguin og fágætum myndum.
Margir forustumenn sjómannasam
takanna skrifa í blaðið. Þá eru í
I
blaðinu merkilegar sögur úr lífi
sjómanna.
Blaðið hefur þegar verið sent út
um alít land til sölu á sjómanna
daginn.
SJÓMANNADAGSHÁTÍÐA-
HÖLDIN 2. OG 3. JÚNÍ
Tilhögun sjómannadagshátiða-
haldanna verður þannig:
LAUGARDAGURINN 2. JÚNÍ
KI. 15.00 Kappi-óðrar sjómanna
dagsins á Rauðarárvíkinni.
Veðbanki starfræktur. Hljóm-
ieikar.
SJÓMANNADAGURINN 3.
JÚNÍ
Kl. 8.00 Fánar dregnir að hún
á skipum. Hafin sala á merkjum
og Sjómannablaðinu. — 14.00
Stakkasunds og björgunarsunds-
keppni sjómanna. — 13.00 Safn-
ast saman til liópgöngu sjómanna
við Tjörnina hjá Miðbæjarskól-
anum. — 13.30 Hópgangan legg-
ur af stað með Lúðrasveit Reykja
víkur í farahbroddi. Gengið um
Lækjargötu, Austurstræti, Aðal-
stræti, Grófina, Tryggvagötu með
fram höfninni að Ingólfsstræti og
upp á Arnarhól. Staðnæmst og
skotið upp fánum við styttu Ing-
ólfs Arnarsonar. — Minnigarat-
höfn og útisamkoma á Arnarhóli.
— 14.00 Lúðrasveit Reykjavíkur
undir stjórn Alberts Klahn leikur:
, Rís þú unga Íslands merki“.
Minningarathöfnin liefst með
því að Guðmunduí Jónsson syng
ur einsong.
Biskupinn, Sigurgeir Sigurðsson,
minnist látinna sjómanna. (Lagð-
ur blómsveigur á gröf óþekkta
sjómannsins.)
Þögn i eina mínútu. Að henni
lokinni syngur Guðmundur Jóns-
son: „Alfaðir ræður“, með undir-
lcik Lúðrasveitarinnar. — 14.20
Ávarp siglingamálaráðherra, Em-
ils Jónssonar. Leikið: „Island ögr
um skorið“. — 14.40 Ávarp full-
trúa útgerðarmanna. Leikið:
„Gnoð úr hafi skrautleg skreið“.
- 14.50 Ávarp fu'lltrúa sjómanna:
Hallgrímur Jónsson, vélstjóri. Leik
ið: „íslands Hrafnistumenn“. —
15.00 Reiptog milli íslenzkra skips
hafna. — Að lokum verður þjóð-
söngurinn leikinn.
ÚTVARPS- OG INNIDAG
SKRÁ SJÓMANNADAGSINS
1 ÚTVARPSSAL:
Kl. 18.30 Barnatími, stjórnað
af Jóni O. Jónssyni. — 19.10 Er-
indi um dvalarfieimili sjómanna:
Sigurjón Á. Ólafsson — 19.30 Lög
leikin.
SJÓMANNAIIÓF AÐ HÓTEL
BORG:
Kl. 19.30 Húsinu lokað. — 20.00
Hófið sett, veizlustjóri. — 20.05
Hljóm'leikar: Hljómsveitin að
Hótel Borg. — 20.20 Ræða: Lúð-
vík Kristjánsson, ritstjóri — 20.30
Einsöngur: Guðmundur Jónsson,
söngvari. — 20.50 Ávarp: Borgar-
stjóri. — 20.55 Leikið: Reykjavík
eftir Sigv. Kaldalóns. — 21.00 Af
hending verðlauna sjómannadags
ins. — 21.15 Fjöldasöngur: Táp
og fjör og frískir menn o.fl. með
undirleik hljómsveitarinnar. —
21.30 (úr útvarpssal): Úr lífi Jóns
Indíafara (leikþáttur eftir Dag-
finn bónda). — 22.30 Fjöldasöng
ur: Sjómannalög. — 22.40 Hófinu
slitið. Borð rudd. — 22.45 Kvik-
inynd frá síðasta sjómannadegi.
— 23.00 Dansleikur hefst, til kl.
3.
T JARNARC AFÉ:
Daairfeikur. Skemmtiatriði:
Kvikmynd frá síðasta Sjómanna-
degi o.fl.
RÖÐULL:
Dansleikur. Skemmtiatriði:
Kvikmynd frá síðasta Sjómanna-
degi oíl.
INGÓLFS CAFÉ:
Gömlu dansarnir.
IÐNÓ:
Almennur dansleikur.
Sendiherríir Díina
og Norðmanna
[íakka íslenzku
þjóðinni
Sendiherrar Dana og Norð-
manna hér á landi hafa tjáð for-
seta íslands og forsætisráðherra
þakkir sínar til íslenzku þjóðarinn-
ar, fyrir þá vinsemd og alúð, er
hún hefur sýnt þjóðum þeirra á
undanförnum árum og þann inni
lega samfögnuð, sem íslendingar
Iétu í ljós, þegar lönd þeirra voru
leyst úr hernámi.
(Tilkynning frá rikisstjórninni)
íþróttannenn í
Reykpvík minnast
Jónasar Hallgríms-
sonar
Á laugardag söfnuðust for-
ráðamenn íþróttafélaga bæjar-
ins saman í Hljómskálagarðin-
um til að vera viðstaddir er
forseti Í.S.Í. lagði blómsveig á
fótstall líkneskis Jónasar Hall-
grímssonar. Hafði stjórn íþrótta
sambandsins ákveðið að gera
þetta, „sem lítinn þakklætisvott
íþróttamanna í landinu fyrir
hans merkilega brautryðjanda-
starf í þágu sundlistarinnar,“
eins og forseti Í.S.f. komst að
orði í ræðu sinni. Var athöfn
þessi úin hátíðlegasta.
Um kvöldið eða kl. 5,30 hófst
svo sundmót í Sundhöll Reykja
víkur. Setti forseti í S.Í., Ben.
G. Waage, það með stuttri
ræðu. Kepptu þar nokkrir úr-
valssundmenn.
Á eftir sundinu fór fram sér-
kennileg sundsýning undir
stjórn Jóns Pálssonar og jafn-
framt flutti hann erindi um
þróun sundsins; hvaðan menn
hafi fengið hugmyndir að sund
aðferðum mannsins, og svo
h'vemig hvert sund hefur
breyzt á s.l. 100 árum eða frá
því að sundbók Jónasar kom
út 1836. Kom þarna fram fjöldi
kunnra sundmanna sem syntu
aðferðirnar allt frá sundtökum
froska og hunda, sem ef til vill
eru upphaflegar fyrirmyndir og
til flugsunds og nýjustu skrið-
sundtaka.
Vöktu sum sundin bros á-
horfenda, en yfirleitt var er-
indið og sýningin hin fróðleg-
asta. Að vísu var hún langt of
langdregin og hefði haft sterk-
ari áhrif hefði hún verið mun
styttri.
Að þessu sinni var komið fyr-
ir hátölurum í Höllinni, en
vegna bergmáls hefur það þótt
næstum ógerlegt. Með sérstök-
um útbúnaði hátalara og fleiri
ráðstöfunum tókst þetta svo að
vel heyrðist.
Frú Gerd Grieg sæmd
stórriddarakrossi fálka-
orðunnar
Forseti íslands sæmdi frú Gerd
Grieg hinn 21. ma'í stórriddara-
krossi h'innar íslenzku fálkaorðu.
Frú Grieg hefur lagt verulegan
skerf til íslenzkrar leiklistar.
Miðvikudagur 30. maií 1945. — ÞJÓÐVILJINN
ufjlríWfi
7
Úrslitaleikur
Túlmíusarmótsins
Fram sigraði K.R.
eftir tvíframlengd-
an
leik
Þeir sem horfðu á fyrstu Ivo
þriðju hluta þessa leiks hafa
sennilega ekki búizt við þeim
úrslitum sem urðu. Þá stóð
leikurinn sem sé 2:0 K.R. í hag,
og þann tíma virtist manni sig-
urin liggja nær K.R., þó áttu
Framarar tækifæri sem misnot
uðust. En á síðasta stundarfjórð
ungnum jafnar Fram sakimai .
Verður nú að framlengja og
nú kemur gamla þrautseigjan
fram hjá Frömurum. Áður en
langt um líður, tekst Sæmundi
að gera mjög fallegt óverjandi
mark. Nokkru síðar jafnai
hægri útherji K.R., Ólafur, 3:3.
Þannig endar þessiframlenging.
Ekki dugar þetta, framlengja
verður enn og nú setur Fram
tvö mörk, en K.R. ekkert, og
voru Framarar nú yfirleitt fjör-
meiri og ákveðnari en mótherj
arnir. Þetta er fimmti leikur
Fram í þessu móti, svo það má
segja, að þeir hafi barizt fyrir
sigrinum og verið vel að hon-
um komnir.
Höfuðstyrkur Fram er vonin
með ágæta hliðarframverði, bá
Sæmund og Kristján, og enn-
fremur góða innherja. Karl
Torfa, laginn og leikinn og
Böðvar, sívinnandi og gefur eng
um frið sem nálægt er; en það
er bað sem á ríður á stund al-
vörunnar, en margir gleyma eða
hafa ekki úthald til.
Framlína K.R. er aftur á móti
höfuðstyrkur K.R., vörnin er
oft nokkuð opin og óskipuleg
þó góðir menn séu þar, t. d.
Óli B. og Birgir.
Við og við brá fyrir samleik
á báða bóga, en of mikið ber á
tilgangslausum spörkum út í
loftið, og nákvæmar spymur
ýmist fyrir aftan maiminn eða
ekki réttu megin við hann.
Á'horfend'ur voru mjög marg-
ir og skemmtu sér hið bezta.
Dómari var Guðmundur Sig-
urðsson.
Tíminn birti nýlega nokkrar
setningar, rifnar úr samhengi, úr
Þjóðviljanum í janúar 19ý0, þar
sem minnzt er á verzlun íslend-
inga við Þjóðverja, og ætlar með
þvi að telja lcsendum trú um, að
Þjóðviljinn hafi ekki fyrr en ný-
lega tekið afstöðu gegn nazistum.
Sannleikurinn er sá, að um
þetta leyti um veturinn 1939-40,
mátti heita að stríðið í Vestur-
Evtóyu lœgi niðri. Afturhalds-
stjórnir Múnchenmanna voru við
oöld í Englandi og Frakklandi ,og
sýndu lítinn áhuga fyrir barátt-
unni gegn fasismanum, frönsku aft
urhaldssinnamir gáfu sér tíma til
að bœla niður á fasistavísu djarfasta
og heilbrigðasta hluta alþýðunn-
ar heima fyrir og enskir og franslc-
ir burgeisar létu sig dreyma um
samfylkingu allra auðvaldsríkja
gegn Sovétríkjunum, — skómmu
eftir áramót 1940 voru Chamber-
lain og franslca stjórnin komin á
fremsta hlunn að senda her til
Finnlands í stríð við Sovétríkin.
Á þessum kafla stríðsins höfðu
viðskiptasambönd álfunnar ekki
rofnað neitt svipað því sem síðar
varð, þá áttu t.d. öU Norðurlönd
viðskipti við Þýzkaland, og mun
ekki einu sinni Tímaklíkan þora
að bera brígður á baráttu þeirra
gegn nazismanum af þeim sök-
um.
Siendurtekin álygun aftur-
haldsblaðanna um „stuðning“
Þjóðviljans við nazismann tekur
enginn mark á. Frá því að fas-
isminn slcaut fyrst upp lcoUinum
hafa kommúnistar og aðrír rót-
tœkir sósialistar hér á landi og er-
lendis lagt áherzlu á að skýra hann
sem þjóðfélagsfyrírbœri og 'berj-
ast móti honum. Málgögn þeirra,
Réttur, Verkamaðurinn, Verka-
lýðsblaðið, Þjóðviljinn, hafa gert
meira að því að vekja íslendinga
til skilnings á nazismanum og
mótspymu gegn honum, en öU
önnur íslenzk blöð til samans. Og
á þessarí afstöðu varð engin breyt
ing mcðan ekki — árásarsamningur
Þýzkalands og Sovétríkjanna stóð.
Það getur hver og einn sannfœrzt
uvi -ineð því að athuga Þjóðviij-
ann frá þessum árum.
Baráttu sósíalista gegn fas-
ismanum hér innanlands þarf sjálf-
sagt ekki að rífja upp fyrir Fram-
sóknarmönnum, hún hefur stund-
um Jcomið óþyrmilega við þá.
Hver tveii nema Jónasi og lœrí-
sveinunum, sem nú ríta Tímann
í anda hans, hefði tekizt að fram-
kvœma hér á landi í „smáum stíl“
það se-m Hitler gerði í stórum stil
— ef ekki hefði notið við Sósíal-
istaflokksins og málgagna hans.
En íslenzk alþýða hefur skák-
að Framsóknarfasistunum til hlið
ar, og þeir verða áhrijaminni um
íslenzk stjórnmál með hverjum
degi sem líður. Þessvegna er á-
róður þeirra með þeim móður-
sýkisbke, sem einkennt hefur Tím
ann undanfamar vilcur. Þeir finna
að augu fóUcsins eru að opnast,
finna fyrirlitninguna, vita upp á
sig skömmúna. Þess vegna öskra
þeir.
Firmakeppni Goif-
klúbbsins
Fyrstu umferð í Firmakeppm
Golfklúbbsins er nú lokið, og
eru nú þessi finnu eftir ósigr-
uð:
Garðar Gíslason, heildverzl-
un; Tjamarcafé; Egi'll Vil-
hjálmsson h.f.; Ragnar Blöndal
h.f.; Hellas; Ingólfs apótek; Goi
fred Bemhöft & Co.; H. Ólafs-
son & Bemhöft h.f.; ísafoldar-
prentsmiðja h.f.; Hamar eða
Héðinn; Ljómi h.f.; Dagblaðið
Vísir; Herrabúðin; Skermabúð-
in Iðja; L. Storr; H.f. Shell,
Kveldúlfur h.f.; Gamla Bíó; Ól.
Gíslason & Co. h.f.; Helgi Magn
ússon & Co.; Raftækjasalan h.f.:
Sverrir Bemhöft h.f.; Eimskipa
félag íslands; Leðuriðjan h.f;
Hljóðfæraverzlun Sigr. Helga-
dóttur; Eggert Kristjánsson &
Co.; Harpa h.f.; Heildv. Ásgeirs
Ólafssonar; Jón Hjartarson &
Co.; Alm. byggingafélagið h.f.;
O. Ellingsen & Co. h.f.; Mar-
teinn Einarsson & Co.; Almenn-
ar tryggingar h.f.; Ninon; Veið-
arfæragerð íslands h.f.; Akur
h.f.; Heildverzl. Berg; Björns-
bakarí; Kol & Sált h.f.; Leðurv.
Jóns Brynjólfssonar; Bókav. Sig
fús Eymundsson.
Önnur umferð fer frara
þriðjudag og miðvikudag, og að
henni lokinni verða því aðeins
eftir 21 firma. Áætlað er að
keppninni ljúki seinniparr,
næstu viku.
SnndnAmskelð
Sundnámskeið til styrktar Landssöfnuninni hefst föstu-
daginn 1. júní í sundlaug AusturbæjarSkólans. Kennslu-
gjald kr. 50,00. Upplýsingar í síma 2240.
Aðeins þetta eina námskeið.
Notið tækifærið’ Lærið að synda!
VIGNIR ANDRÉSSON.
KODAK -filmur
nýkomnar í eftirfarandi stærðnm:
—í"' CD X cm. (127) Verichrome ... . 2.40 stk.
6x9 - (120) - • .. 2,85 —
6x9 (620) — .. 2.85 —
6x9 — (120) Super-XX .. 3,35 —
6x9 (620) — .. 3.35 —
Verslun Hans Petersen
wtt-iimrrii^~»ir-r-i-|- n*“>**“'f*1
Listsýningin í Sýningar-
skálanum
Listsýning var opnuð í Sýninga
slcála myndlistarmanna á laugar-
daginn. Er sýning þessi haldin á
vegum Listamannaþingsins.
Félag íslenzkra myndlistamaniui
sýnir þama. málverk en Húsa-
■meistarafélag ístands húsateikn-
ingar og lik.ön.
Á sýningunni eru 39 myndir
eftir 13 málara, en þeir eru þess-
ir: Ásgrímur Jónsson. Gunnlaug-
ur Ó. S'lieving, Jóliann Briem,
Gunnlaugur Blöndal, Jóhannes
Kjarval, Jón Engilberts (7 myndir
úr viðhafnarútgáfu af ljóðum Jón
asar Hallgrímssonar), Jón Stefáns
son, Jón Þorleffsson, Karen Agn-
ete Þörarinsson, Sveinn Þórarins-
son, Kristín Jónsdóttir. Snorri
Arin'bjarnar og Þorvaldur Skúla-
son.
Byggingameistarnir Ágúst Páls
son, Sigurður Giuðmiindsson, Gunn
laugur Halldórsson og Eiríkur Ein
arsson sýna þarna húsateikningar
s.v.u.
F AR6 J ALD A- BREYTIN6
Frá og með 31. maí þ. á. verða fargjöld með
;trætisvögnum Reykjavíkur sem hér segir: 50 aurar
á öllum leiðum fyrir fullorðna, 25 aurar á öll-
um leiðum fyrir börn og unglinga yngri en 14 ára.
' Á skrifstofunni, kl. 10—12 f. h. alla virka
daga, fást keyptar farmiðablokkir með 15% af-
slætti. Þær gilda í 3 mánuði frá útgáfudegi (31/5
—31/8 1945).
Við framvísun farmiða í blokkum ber vagn-
stjóra að rífa farmiðann úr blokkinni. Lausir far-
miðar gilda ekki.
Afsláttur er ekki veittur frá verði farmiða,
sem seldir eru í strætisvögnunum.
Á leiðinni. Lækjartorg—Lækjarbotnar gilda
sérstakir faxtar án nokkurs afsláttar.
Reykjavík, 30. maí 1945.
S.V.R.
...
Dagl
ega
NÝ EGG, soðin og hrá.
Kaífisalan
HAFNARSTRÆTI 16.
Stefán Jóhann ráðinn
forstjóri Brunabótafél.
Stefán Jóhann Stefánsson hæsta
réttaniíálaflutningsmaður hefur
verið ráðinn forstjóri Brunabóta-
íélags íslands, í stað Halldórs
Stefánssonar er lætur af störfum
fyrir aldur&sakir.
Hamborgarhöfn er nú kom-
in í samt lag aftur og er nú
flutt þar á land eða úr landi
10 þús. smálestir á dag.
í
Samúdarhort
Slysavamafélags íslands
kaupa flestir.
5 Fást hjá slysavarnadeildum!
!um allt land, í Reykjavík af-!
'greidd í síma 4897.
T I L
iggur leiðin
P! ?1M
SUHARDRA6TIR
Höfum fengið nokkur
stykki af drögtum. — Hent-
ugar í ferðalög.
Verð kr. 285.00.
Verzlunin.
Bnrmifoss
Skólavörðustíg 17.