Þjóðviljinn - 09.06.1945, Qupperneq 8
Þ JOÐVIL JINN
Laugrdagur 9. júní 1945.
Áætlun um störfellda aukningu íi raímagni
fyrir Reykiavfkurbæ Ingð fyrir bœjarráð
Virkjnn neðri-íossa í Soglnu og bygging varaaflstöðvar við Reykjavík
Á fundi bæjarráðs í gær var lagt fram bréf frá Steingrími
Jónssyni rafmagnsstjóra varðandi aukningu rafmagns handa
Keykjavíkurbæ.
Efni bréfsins var áætlun og greinargerð um virkjun neðri
fossa í Soginu, er Almenna byggingafélagið hefur gert undir
umsjón Áma Snævars verkfræðings og í samvinnu við Rafveitu
Reykjavíkur, og undirbúning að byggingu varaaflstöðvar við
Reykjavík. — Telur rafmagnsstjóri að virkjim Sogsins gæti ver-
ið lokið 1948 og er virkjunarkostnaðurinn áætlaður 30 millj. kr.
Lína til Reykjavíkur og afspennistöð er áætlað að kosti 6 millj.
kr., en aukning bæjarkerfisins 10 millj. kr. Um byggingu vara-
aflstöðvarinnar (þ. e. gufuvélastöðvar) er það sagt í bréfinu, að
„nú virðist vera hægt að fá allt til slíkrar stöðvar keypt í Ameríku
þannig, að hún gæti tekið til starfa haustið 1941, með 1 véla-
samstæðu“. — Áætlaður kostnaður 30 þús. kw. aflstöðvar er 14
millj. kr. Áætlaður kostnaður við þessar framkvæmdir er því
alls: 60 millj. kr. Er þessi kostnaðaráætlun 9 millj. kr. lægri en
sú áætlun er gerð var vorið 1944.
Stofnkostnaður er áætlaður 42 millj. kr. og yrði að leggja
hann fram á næstu 3!4 ári.
Varðandi byggingu varaaflstöðvarinnar, er það fram tekið,
að örðugt sé að fá slíka stöð keypta í Englandi eða Svíþjóð, en
öruggast um skjóta afgreiðslu frá Ameríku.
Bæjarráð samþykkti að hefja undirbúning verksins sam-
kvæmt þessari áætlun og mun rafmagnsstjóri bráðlega fara vest-
ur um haf til að vinna þar að framgangi þessa máls.
Bréf rafmagnsstjóra til bæjarráðs er svohljóðandi:
„Hér með sendi ég áætlun og
greinargerð um virkjun' neðri
fossa í Sogi, sem Almenna bygg-
ingarfélaginu var farið að gera
vorið 1944, undir umsjón Árna
Snævars, verkfræðings, og í sam-
vinnu við rafmagnsveituna. Fylgja
áætluninni 10 uppdrættir. Með
þessari greinargerð er orðið ljóst,
hvernig haga beri virkjun neðri
fossanna, og má á grundvelli henn-
ar og uppdráttanna þegar gera
útboðslýsingar að byggingarvinnu
og vélakaupum fyrir fyrsta virkj-
unarstigið. með tveim vélasam-
.'tæðum upp á helmhig fullrar
virkjunar, jafnframt því sem unn-
ið væri að lokarannsóknum á jarð-
vegi og steypuefni. Yrði þá allt til-
búið undir útboð á næsta hausti.
Jafnframt sendi ég greinargerð
um fjárhagsafkomu Sogsvirkjun-
arinnar og rafmagnsveitunnar eft-
ir virkjun neðri fossa og í saman-
burði við rekstur gufutórbínu-
stöðvar. Er það framhaldsskýrsla
frá þeirri, sem send var vorið 1944,
um ýmsar aukningaleiðir á raf-
magni handa Reykjavík og byggð
í\ þeirri skýrslu og upplýsingum,
sem fengizt hafa síðan frá ýmsum
vélafirmum um verð og smíða-
tima á vélum og öðrum útbúnaði
lil gufutúhbínustöðvar eða diesel-
vélastöðvar. Samkvæmt þessum
reikningum verður eigi eins mikill
munur á fjárhagsafkomunni við,
N Írkjun strax eins og fyrri skýrsla
virtist benda til.
Má því segja að málið liggi nú
þannig fyrir:
1. Ekki er að fullu leyst úr aukn-
ingaþörf rafmagns fyrr en með
aukinni vrrkjun í Sogi.
2. Ekki er að fullu leyst úr
■ ekstraröryggi Sogsvirkjunar og
rafmagnsveitunnar nema með
varastöð við Reykjavík.
3. Virkjun Sogsjns tekur það
langan tíma, að hún getur ekki
leyst úr aðkallandi rafmagnsþörf
veturna 1946—47 og 1947—48. Uni
tírna leit svo út sem aðeins myndi
vera hægt að leysa úr þeirri þörf
með dieselvélastöð með tiltölulega
smáum yélasamstæðum, þar eð
gufuvélastöð myndi taka of lang-
an tírna, en nú virðist vera hægt
að fá allt til slíkrar stöðvar keypt
í Ameríku, þannig að hún gæti
tekið til starfa haustið 1947, með
einni vélasamstæðu, er fyrst yrði
til að leysa úr aðkallandi aukn-
ingum, en síðar þegar virkjun
væri framkvæmd yrði hún notuð
sem varastöð eingöngu, en eigi
yrði hugsað um að nota hana sem
toppstöð við vatnsaflsstöðvarnar,
svo sem reiknað var með sem
möguleika í skýrslunum.
Með þessu móti yrði kóstnaður-
inn við varastöðina mun minni
eða um 4—6 millj. kr. eftir stærð
vélasamstæðanna (7500—10000
kvv.).
Ég vil samkvæmt þessu leyfa
mér að leggja til við háttvirt bæj-
arráð:
1. Að únnið verði áfram að und-
it’búningi á virkjun neðri fossa í
Sogi með því að:
v a) Ljúka við virkjunarrannsókn-
ir og útboðslýsingu.
b) Sækja til ríkisstjórnarinnar
um virkjunarleyfi á grundvelli
virkjunaráætlunarinnar, sem fvrir
liggur, og laga um virkjun Sogsins
nr. 82. 19. júní 1933.
c) Undirbúa fjáröflun til virkj-
unarinnar í sambandi við ríkis-
stjóhn og barka með það fyrir
augum að virkjun vrði lokið fyrir
haust 1948 (byrjað á sumri 1946).
d) Hefja samvinnu við ríkis-
stjórnina um fyrirhugaða vega-
lagningu og brúargerð í sambandi
við virkjunina.
2. Að unnið verði áfram jafn-
framt að uúdirbúningi varaafl-
stöðvar við Reykjavík með því að:
1. Festa kaup á einni vélasam-
stæðu ineð tilheyrandi búnaði, sem
komið yrði upp fyrir haustið 1946.
í þeim búnaði vrði einnig gert
ráð fyrir hiturum til aðstoðar við
Hitavei’tuna.
2) Að senda menn héðan til við- ‘
ræðna við væntanlega bjóðendur
og með aðstoð fulltrúa rafmagns-
veitunnar j'tra og í samvinnu við
rafmagnsveituna láta gera þar
fullnaðaruppdrætti að stöðinni og
undirbúa endanleg kaup.
Þess skal getið til skýringa á
framangreindum tillögum varð-
andi varaaflstöðina, að undirtekt-
ir um kaup ■ á slíkri stöð í Eng-
landi hafa verið þannig, að engin
von er til að fá hana þar fyrir
haustið 1946. í Svíþjóð er heldur
eigi mikil von, þar sem smíðatími
trúbínanna er þar 14 mánuðir og
því líklégt að stöðin gæti eigi tek-
ið til starfíl fyrr en fram á vorið
1947 kæmi. Líklegast er sem stend-
ur að öruggast væri um skjóta af-
greiðslu frá Amerrku, en eigi þyrfti
að festa kaup þar, fyrr en gengið
væri úr skugga um það atriði,
Einnig þarf, eftir því sem hægt er
nú, að ganga úr skugga um flutn-
ingamöguleika véla og tækja á
næsta vori.
í framannefndri greinargerð um
fiárhagsafkomuna er reiknað með
þessum kostnaði:
Virkjun neðri fossa kr. 30.000.000
Lína til Reykjavík-
ur og afspennistöð — 6.000.000
Gufuaflstöð 30.0000
kw............. — 14.000.000
Aukning bæjarkerfis — 10.000:000
Samtals kr. 60.000.000
Er þetta 9 inillj. kr. lægra en
áœtlað var vorið 1944, er liggur í
því að áætlunin um virkjun neðri
fossa í Sogi og um línuna hefur
lækkað.
Nú ma gera ráð fyrir, samkvæmt
síðustn upplýsingum, sem einnig
felast í framangreindum tillögum
að:
Byrjun virkjunar
neðri fossa geti orðið kr. 28.000.000
Lína til Reykjavík-
ur og afspennistöð — 4.000.000
Gufuaflstöð 10 000
kw................. — 6.000.000
Fyrsta aukningastig
bæjarkerfis ....... — 4.000.000
Samtals kr. 42.000.000
er leggja þyrfti fratn í stofn-
kostnaði á næstu 3.5 árum eða
um 12. millj. kr. á ári til jafnað-
ar. Er aðalimmurinn að gufuafl-
stöðin er minnkuð til mikilla muna
svo og aúkningu bæjarkerfisins
frestað.
Ákvörðun utn hversu langt
verði gengið í hverju atriði, má
taka smám saman, begar bindandi
verðtilboð liggja fyrir um hvert
þeirra“.
Fáni þjóðfrelsis og friðar yfir Evrópu
Friðardaginn, 9. maí, flutti Josif Stalín, forsætis- og
landvamaþjóðfulltníi Sovétríkjanna, eftirfarandi útvarps-
ávarp. Af ávarpi þessu hafa aðeins birzt einstakar setn-
ingar 1 íslenzkum blöðum, og þykir því rétt að birta á-
varpið í heild.
Félagar, ættjarðarvinir, karlar og konur.
Hinn mikli dagur sigurs yfir Þýzkalandi ér kominn.
Fasista-Þýzkaland, knúið á kné af rauða hemum og herj-
um bandamanna vorra, hefur játað sig sigrað ag lýst yfir
skilyrðislausri uppgjöf.
Hinn 7. maí var bráðabirgðasamkomulag um upp-
gjöfina undirritað í borginni Rheims. Hinn 8. maí undir-
rituðu fulltrúar þýzku herstjómarinnar, í viðurvist fúll-
trúa æðstu herstjómar Bandamanna og æðstu herstjórn-
ar sovétherjanna, úrslitauppgjöf, og gekk hún í gildi kl.
24 hinn 8. maí.
Oss er kunnugt um svikavenjur þýzku glæpamanna-
foringjanna, sem líta á sáttmála og samninga sem einskis-
verða pappírssnepla, og hofum því enga ástæðu til að
treysta loforðum þeirra. En í morgun hóf þýzki herinn að
leggja niður vopn og gefast upp fyrir her vorum í stórum
stíl, samkvæmt uppgjafarsamningunum. Það jafngildir
ekki einskisverðum pappírssnepli. Þetta er raunveruleg
uppgjöf herja Þýzkalands.
Að vísu hefur þýzkt herlið í Tékkoslovakíu neitað upp-
gjöf. En ég treysti því að rauði herinn geti komið vitinu
fyrir það.
Nú getum vér lýst yfir þvl, með fullum rétti, að hinn
sögulegi dagur hins endanlega ósigurs Þýzkalands, dagur
hins mikla sigurs þjóðar vorrar yfir hinni þýzku heims-
valdadrottnun, er kominn.
Hinar þungu fómir sem vér færðum fyrir frelsi, sjálf-
stæði ættjarðar vorrar, hinar ósegjanlegu hörmungar og
þjáningar, sem þjóð vor lifði styrjaldarárin, hin einbeitta
vinna að baki vígstöðvanna og á vígstöðvunum, lögð á alt-
ari ættjarðarinnar, hafa ekki verið árangurslausar, heldur
leiddu til algjörs sigurs yfir óvinunum.
Aldalangri baráttu slavnesku þjóðanna fyrir tilveru
sinni og sjálfstæði er lokið með sigri yfir þýzku innrásar-
herjunum og þýzku kúguninni.
/
Héðan af mun hinn glæsti fáni þjóðfrelsisins og þjóða-
friðar blakta yfir Evrópu.
Fyrir þremur árum lýsti Hitler yfir því, að meðal
markmiða hans væri sundurhlutun Sovétríkjanna, hann
ætlaði sér að hrifsa frá þeim Kákasus, Úkraínu, Hvíta-
Rússland, Eystrasaltslöndin og fleiri landssvæði. Hann
sagði hiklaust: „Vér munujn tortíma Rússlandi, svo það
rétti aldrei við aftur“.
Það var fyrir þremur árum. En hinar brjáluðu hug-
myndir Hitlers áttu ekki að verða veruleiki, gangur stríðs-
ins dreifði þeim út í buskann. Það sem gerzt hefur, er al-
gjör andstæða þess sem Hitler þvældi um. Þýzkaland er
gersigrað. Þýzku herirnir eru að gefast upp. Sovétríkin
fagna sigri, án þess þó að ætla sér að sundurhluta Þýzka-
land eða tortíma því.
Félagar! Hinu mikla ættjarðarstiiði er lokið með al-
gjörum sigri vorum. Styrjaldartímabili í Evrópu er lokið.
Tímabil friðsamlegrar þróunar er hafið.
Eg óska ykkur til hamingju með sigurinn, kæru ætt-
jarðarvinir, karlar og konur.
Heiður sé hetjuhemum, rauða hernum, sem varðveitti
sjálfstæði ættjarðar vorrar og vann sigur yfir óvinunum!
Heiður sé hinni miklu þjóð vorri, sigurþjóðinni.
Ævarandi heiður hetjunum, sem féllu í baráttunni
við óvinina og létu líf sitt fyrir frelsi og hamingju þjóðar
vorrar.