Þjóðviljinn - 03.08.1945, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.08.1945, Blaðsíða 7
Föstudagur 3. ágúst 1945 ÞJÓÐVILJINN 7 Potsdamráðstefnan Framhald af 1. síðu hún lofað að láta frjálsar og lýðræðislegar kosningar fara fram í landinu á næst- unni. Fréttamönnum Banda- manna verða gefnar frjálsar hendur um að skýra frá á- standinu í Póllandi. Friðarsamningar verða gerðir við fyrri bandamenn Þýzka- lands Á næstunni verða gerðir friðarsamningar við hina fyrri bandamenn Þýzkalands, ít- alíu, Finnland, Rúmeníu og Ungverjaland. Fyrst verður gerður friðarsamningur við Ítalíu, þar sem hún var fyrsti bandamaður Þýzkalands, sem samdi vopnahlé og lagði fram mikilvæga aðstoð í baráttunni gegn Þýzkalandi. Þegar frið- arsamningur hefur verið gerð ur við þessi ríki, mun athugað, hvort þau uppfylli þau skil- yrði, sem sett eru fyrir þátt- töku í Bandalagi sameinuðu þjóðanna. Franco-Spáni ekki leyfð þáttaka í Banda- lagi smeinuðu þjóð- anna Potsdamráðstefnan leggur áherzlu á þau skilyrði, sem á- kveðin voru á Krímráðstefn- unni, fyrir þátttöku í Banda- lagi sameinuðu þjóðanna, þ. e. að öll þau ríki geti tekið þátt í Bandalaginu, sem und- irriti sáttmála sameinuðu þjóðanna og geti staðið við þær skyldur, sem hann leggur á herðar þeim. Ríki, sem hafa verið hlutlaus í styrjöldinni, geti því orðið aðilar í Banda- laginu, ef þau uppfylli þessi skilyrði. Hins vegar lýsir Pots dam-ráðstefnan því yfir, að núverandi stjórn Spánar njóti ekki hylli stórveldanna þriggja, Bretlands, Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna, enda hafi hún orðið til fyrir til- verknað öxulveldanna. Hún hafi ekki þá eiginleika til að bera, sem geri henni mögu- legt að taka þátt í samstarfi hinna sameinuðu þjóða, bæði vegna uppruna hennar, eðlis og ferils. Fyrsti listinn yfir stríðs glæpamenn verður tilbúinn í lok þessa mánaðar Potsdamráðstefnan lofar því, að innan skamms verði fullt samkomulag komið á milli Bandamanna um refs- ingu stríðsglæpamanna. Verð- ur allt gert til að hraða því máli, svo að réttarþöldin geti hafizt sem fyrst. Búizt er við því, að í lok þessa mánaðar verði fyrsti listinn yfir stríðs- glæpamenn tilbúinn. Af staðan til Austur- rísku stjórnarinnar Fulltrúar Sovétríkjanna á ráðstefnunni fóru þess á leit, að Bretland og Bandaríkin endurskoðuðu afstöðu sína gagnvart stjórn dr. Renners í Austurríki, en eins og kunn- ugt er nýtur hún viðurkenn- ingar Sovétríkjanna einna. Samkomulag varð um, að fresta ákvörðunum í þessu máli, þangað til hersveitir Vesturveldanna hafa haldið inn í Vínarborg. Eftirlitsnefndir Banda- manna í Balkanríkj- unum Fulltrúar Sovétríkjanna fóru fram á, að afstaða stór- veldanna til Balkanríkjanna þriggja: Rúmeníu, Búlgaríu og Ungverjalands, verði end- urskoðuð, og lögðu til að Bandamenn létu eftirlits- nefndir þær, sem þeir hafa haft í þessum löndum, hætta störfum. Samkomulag varð um, að láta þetta mál bíða, þangað til nefndir þessar hefðu gefið skýrslu. Fjórtán daga yfirlit Frh. af 3. síðu. Halldór Sigurgeirsson náði lengbeztum köstum í spjóts- keppninni, þó voru köstin mjög misjöfn hjá honum. Virð ast flestir drengjanna ekki enn hafa lært „tilhlaupið með spjótið, en slíkt er nauðsyn ef góður árangur á að nást. Köst uðu sumir þó laglega og náðu sæmilegum árangri t. d. Hall dór Lárusson. Margir biðu úrslitanna í KRON Franihald af 5. síðu. til hreinsunar og aftur eftir hreinsun, og það er ólík vara, sængurnar verða sem nýjar. Meiningin mun vara, sam- tímis því sem sængurnar eru hreinsaðar, að geta séð við- skiptavinunum fyrir nýjum verum á sængurnar, en í augnablikinu eru erfiðleikar á útvegun fiðurhelds lérefts. Öllum mun ljóst hvílík þæg- indi það eru að geta látið sækja sængurnar og fengið þær svo heim aftur með nýj- 400 m. hlaupinu með eftir- um verum og svo gott sem Brottflutningur fólks af þýzku þjóðerni frá Tékkóslóvakíu, Póllandi og Ung- verjalandi Potfedamráðstefnan fer þess á leit við stjórnir Tékkóslóva- kíu, Póllands og Ungverja- lands, að allir flutningar fólks af þýzku þjóðerni frá þessum löndum verði látnir bíða, þang að til mál þetta hefur verið rannsakað og hernámsstjórn Bandamanna í Þýzkalandi hefur athugað, hvernig hægt verði að skipta þessu fólki nið ur á hernámssvæðin. En ráð- stefnan leggur áherzlu á, að ef þessir flutningar eigi sér stað, þá fari þeir fram á skipu legan og mannúðlegan hátt. væntingu. Þar áttust við fyrst og fremst Magnús Þórarins- son Á, og Hallur Símonarson ÍR. í hlaupinu hélt Magnús forustu alla leiðina og setti nýtt drengjamet. Bætti met Finnbj. Þorvaldssonar 54,6 í 54,0 sek. og er það vel gert. Hallur hljóp á 54,7 og var það prýðilegur tími. Hallur er gott hlauparaefni, hefur mikla mýkt og fjaðurmagn. Sleggjakast er sú íþrótt sem mér virðist að tæplega eigi rétt á sér á drengjamóti, óg það þó aldurstakmarkið sé orð ið eins hátt og raun er á. Manni virðist hún of hrjúf og tröllaukin til þess að samræm ast æskunni. — Þegar nýbyrj að var að kasta. sleggjunni vildi það til, að þegar einn keppendinn er að byrja að snúa henni í kring um sig, að strengurinn hrökk sundur og valt kúlan sem ekki var kom- in á loft, eftir vellinu. Þarna hefði getað orðið stórslys ef strengurinn hefði hrokkið þeg ar kúlan var komin á loft og menn stóðu í fárraTmetra fjar- lægð. Hver á að yfirlíta að sleggjan sé örugg hvað þetta snertir? Eru það dómararnir, eru það þeir sem sjá um mót- ið eða er það sá, sem leggur áhöldin til? Á strengurinn að vera stáleinþáttungur eða margþættur. Þannig yrði hann þó að minsta kosti seig- ari og öruggari, og hægara að sjá slit. Mig minnir að atvik svipað þessu hafi komið fyrir áður, en þetta má ekki koma fyrir. nyjum dún. Viðskipti KRON hafa aukizt — Hafa viðskipti aukizt í hlutfalli við meðlimaaukning- una í vetur? — Um það er ekki hægt að segja annað en það að félagið seldi fyrir 238 þús. kr. meira á tímabilinu janúar— apríl í ár, en á sama tíma í fyrra, og mér er það þegar ljóst, að margir af hinum nýju meðlimum hafa fært við skipti sín yfir til félagsins og munu koma til með að reyn- ast ágætir félagsmenn. — Hvað er um almennt fé- lagsstarf að segja? — Hið félagslega starf hef- ur legið niðri að miklu leyti í sumar vegna sumarleyfa og örðugleika á því að ná mönn- um saman, en ég held mér sé óhætt að segja að fjölmargir einstaklingar í félaginu hugsi til að leggja fram krafta sína við félagslegu málin strax og haustar að — en um það get- um við spjallað síðar. J. B. Útvarpið í dag: 21,15 Erindi: í Grini-fangelsi (Baldur Bjarnason magister). 21.35 Hlj ómplötur: Frægir söng- menn. 22.05 Symfóníutónleikar (plötur); a) Pianó-konsert í c-moll, K 491 eftir Mozart. b) Ófullgerða symfónían eftir Schubert. 1 Nokkrar saumastúlkur vantar okkur í Kápusaumastofuna Klæðaverzl. Andrésar Andréssonar Slysavarnafélagið Frh. af 4. síðu. verður að teljast mjög við- sjárverð vegna þess hvað veg- urinn er þverbyggður og mjór að henni, en ginnandi gljúfrið tekur við éf eitthvað ber út af. Handriðið sem að gljúfr- inu snýr; er brotið, en það er haft eftir bílstjórum, að til- gangslítið sé að setja upp handriðið, nema aðkoman að brúnni verði bætt. Munaði minnstu að stórslys yrði við brú þessa fyrir nokkru síðan, er við lá að bifreið með 30. manns - innanborðs lenti þarna fram af. Það eru eindregin tilmæli Slysavarnafélags íslands, að vegamálastjórnin láti fara fram athugun á þessum stöð- um, en síðan verði hafizt handa um umbætur. Hraðferð vestur og norð- ur til Akureyrar um eða eftir næstu helgi. Flutn- ingi til venjulegra við- komuhafna veitt mót- taka í dag, og pantaðir farseðlar sóttir fyrir há- degi á laugardag. Farfuglar! Þeir, sem hafa Kerlingafjöll er sækja farmiða í Nýkomið Ferðaskór, Hskór Sundskýlur Sólgleraugu Sólarolía Borðtennis Garðtennis Hringjaköst Gaflok Æfingagormar Boxhanzkar Tennisspaðar Badmintonspaðar Golfkúlur Bakpokar Svefnpokar Allt til íþróttaiðkana og ferðalaga Hellas Hafnarstræti 22. Sími 5196 Samúðarkort Slysavamafélags fslands kaupa flestir Fást hjá slysavarnadeild- um um allt land, í Reykja vík afgreidd í síma 4897. pantað far í i beðnir að Bókaverzlun Þeir, sem ætla að iiota verzlunarfrídag- ían og aðra frídaga sína á hestum þurfa að hafa gúmmíföt. Spyrjið um ^þau í Vopna Aðalstræti 16 Bútar af góðurn kápuefnum seljast í dag H. Toft Skólavörðustíg 5. Sími 1035. Braga Brynjólfssonar fyrir há- degi í dag. Farmiðar, sem l)á eru ósóttir, verða seldir kl. 12—3. Ferðafélag íslands fer 4 daga skemmtiferð austur á Síðu og Fljótshverfi næstkomandi mið- vikudag þ. 8. þ. m. Lagt af stað frá Austurvelli. Pantaðir íarmið- ar séu teknir fyrir hádegi á laug- ardag á skrifstofu Kr. Ó. Skag- fjörðs, Túngötu 5. liggur léiðin

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.