Þjóðviljinn - 07.04.1946, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 07.04.1946, Qupperneq 6
6 ÞJ OÐVILJINN Sunnudagur 7. apríl 1946. TILKYNNING frá handíða- og myndlistaskólanum um kennaranámskeið Tvö námskeið fyrir kennara í barnaskólum, héraðsskólum og gagnfræðaskólum verða haldin í handíða- og myndlistaskólanum, Grundarstíg 2 í Reykjavík, dagana 3.—23. júní næstkomandi. — Annað námskeiðið er fyrir smíðakennara, 'en hitt fyrir teikni- kennara. Á smíðanámskeiðinu verður lögð aðal- áherzla á smíði hagnýtra kennslutækja, svo sem einföldlustu eðlisfræðid,halda — (fysikslöjd). Kennarar verða þeir H. G. Gustafsson, smíðakennari við kennaraskól- ann í Gautaborg og Gunnar Klængsson handíðakennari í Reykjavík. Kennslugjald er kr. 100.00 og efniskostnaður áætlaður kr. 80.00. — Á teiknikennaranámskeiðinu kennir Kurt Zier listmálari fríhendisteikn- ingu, málun með vatnslitum og töfluteikn- ingu, ennfremur flytur hann erindi um barnateiknun. Kennslugjald kr. 100,00. — Þátttakendur námskeiðanna eiga kost §. að fá kennslu í bókbandi. Kennslugjald kr. 65.00. — Umsóknir skulu sendar skrifstofu fræðslumálastjóra sem fyrst og eigi síðar : en 1. maí næstk. j SKÓLASTJÓRINN. Tilboð óskast í miðstöðvarlagningu í verkamannabú- staði í Hafnarfirði, 32 íbúðir. — Teikn- ingar og útboðslýsinga sé vitjað í skrif- stofu byggingarfélagsins ÞÓR h. f., Hafnarfirði, gegn 20 kr. skilatrygg- ingu. BYGGINGAFÉLAG ALÞÝÐU, Hafnarfirði. lr-—' Þegar ég nú læt af störfum hjá M. R., eftir 28 ára þjónustu, þar af 2714 ár sem framkvæmdastjóri þess, vil ég nota tæki- færið til að þakka öllum félagsmönnum og öðrum viðskiptamönnum fyrir ánægjuleg viðskipti og persónulegan vinskap á liðnum árum. Stjórn, fulltrúaráði og endurskoðend- um, sem ég hef haft nánast samstarf við, vil ég votta sérstakt þakklæti fyrir hið ágæta samstarf, jafnframt fyrir hið ógleym- anlega kveðjusamsæti og góðar gjafir. Starfsmönnum félagsins þakka ég störf og trúmennsku fyrr og síðar. Að endingu óska ég Mjólkurfélagi Reykjavíkur gæfu og gengis á ókomnum árum og hinum nýja framkvæmdastjóra, mínum góða samstarfsmanni, hr. Oddi Jóns- syni, til hamingju með starfið. Virðingarfyllst. Eyjólfur Jóhannsson spyrja þig að því, pabbi? Þú mátt ekki æsa þig upp út af neinu. Vertu bara rólegur." ,,Eg kom úr hegningar- vinnu, barnið mitt. Já, guð veit, að ég kom úr hegningar- vinnu og það var ekki í fyrsta skipti.“ ,,Heldurðu að ég viti það ekki, pabbi? Þú hefur svo oft sagt það. Þú hefur alltaf talað um það síðnn ég man eftir mér. Viltu ekki reyna að líta upp ? Það er kominn maður að tala við þig.“ Davíð lá hreyfiiigarlaus um .stund. Svo leit hann upp. ,,Hvað! Kominn ,gestur?“ ,,Já, pabbi, það er kominn maður,sem ætlar að biðja fyr- ir þér, pabbi,“ sagði Helena. — það var sama illviðrið þegar Þorsteinn fór heim aft- ur, en þokunni var létt. Hann sá vatnið og fjölda Ijósa' sem spegluðust í því. En hann var annars hugar. Það hafði gerzt undarlegur atburður, síðan hann gekk þessa leið í kvöld. Það gerðist í kofanum, og hon um var órótt, þegar hann hugsaði um það. — Þessu mátti ekki halda áfram. Hann vildi ekki eiga slíkt á liættu í annað sinn. Hann hafði hlustað undr- andi á stúlkuna, þegar hún laut niður að sjúklingnum og huggað hann með því, að kom inn væri gestur, sem ætlaði að biðja fyrir honum. Átti hún við liann? Eða hvað? Hún hlaut að taka misgrip á honum og einhverjum öðrum, og hann ætlaði að leiðrétta það undir eins: ,,Heyrið þið •— —sagði hann, en þá sneri stúlkan sér að honum, prúð og hæglát en með tárin í augunum, án þess að hún þurrkaði þau af sér. Kaðir hennar mátti ekki verða r.eins var. „Þakka yður fyrir, að þér komuð, Ödegárd kennari," hvíslaði hún. „Nú skal ég fara. svo að þið getið talað saman tveir einir. Guð almátt- ugur 'iti til okkar í náð sinni og bænheyrði okkur.“ Hún gekk hægt út úr her- berginu og Þorsteinn varð einn eftir hjá sjúklingnum. Davíð hætti að stynja, lá hreyfingarlaus og mændi von- araugum á gestinn, sem sat á stólnum við rúmstokkinn. Hann hrevfði hendurnar með veikum burðum og lagði sam- an lófana ofan á sænginni. Nú var hann reiðubúinn. „Eg verð að standa upp og fara,“ hugsaði Þorste'nn. „Þetta er óskaplegt." En hann gat ekki' fengið sig til að fara. Sjúklingurinn . lá þama á banasænginni og beið þess með eftirvæntingu, að hann segði eitthvað. Þorsteinn lét sftur augun og laut höfði. Þanuig sathann um stund. Þegar hann leit upp aftur, var komin kyrrð yfir andlit gamla mannsins og hann dró andann rólega. Hann svaf. Þá heyrði hann létt fótatak að baki sér. Unga stúlkan kraup á kné við rúmstokkinn og grét af þakklát.semi niður í sængina. I Helena fylgdi honum til ,dyra, þegar hann fór, og alla leið út á veginn. Hún tók þétt um báðar hendur hans um leið og hún kvadd' hann. „Guði sé lof fyrir, að hann hefur bænheyrt okl.ur. Nú get ur pabbi loksins sofið,“ sagði hún. Hvers vegna hafði hann þá ekki sagt henni eins og var? Hvers vegna sagði hann ekki eins og satt var. að hann hefði ekki gert amiað en sitja þegjandi og bíða eftir að hún kæmi aftur? „Eg segi henni það næst,“ hugsaði hann.“ Eii hún gerir1 mér víst ekki boð oftar. Gamli maðurinn deyr í nótt — — en í kvöld verð ég að fá mér ærlega í staupinu, hvað sem öðru líður.“ „Magða var háttuð., þegar hann kom heim. En hún var ekki sofnuð og leit undrandi í hann, þegar hann kom inn lil hennar og fór að afklæða sig framan við rúmið. Hvor- ugt þeirra sagði orð. '^>au lágu lengi vakandi hlið við hlið og hugsuðu hvort á sinn hátt. * i „Eg er feginn í kvöld að vera nálægt heilbr gðri og lif- andi manneskju" hugsaði Þor- steinn. 1 „Hvar ætli hann hafi verið í kvöld?,“ hugsaði Magða. ,,Eg finn að hann hefur drukk ið.“ MARRY MACFIE: Gull Indiánanna (Sönn saga). skoðuðum hvern mola út af fyrir sig. Indíáninn horfði þegjandi á. Við vildum ekki spyrja hann þetta kvöld, hvar hann hefði fundið gullið. Það var orðið framorðið og við áttum margt eftir áður en við gætum lagst til hvíldar og vafið okkur í hlýjum ábreiðunum. Sagwa var dauðþreyttur af öllum hrakningun- um og við bjuggum um hann á heysæng. Hund- arnir voru nú orðnir þurrir. Við gáfum þeim að éta og hleyptum þeim síðan út. Þeim var óhætt. Við vissum, að þeir mundu grafa sig í fönn og líðan þeirra verða ágæt, ef þeir yrðu ekki svo óheppnir að grafa sig beint niður á hundana okkar, sem lágu í fönn undir veggnum. En við heyrðum enga háreysti, og þá vissum við, að hundarnir höfðu ekki hitzt. Óveðrið hvein með sömu hamförum úti. Við bættum viði á eldinn. Enn kom hríðargusa nið- ur um reykháfinn, svo að snarkaði í bálinu. Sagwa var sofnaður. En við Samúel sátum við eldinn og töluðum um rauðu gullmolana, sem hann hafði með sér að norðan. Indíáninn var orðinn hress daginn eftir, þó að hann væri sárfættur, sem eðlilegt var. Við borð- uðum og settumst síðan framan við eldinn., Þá

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.