Þjóðviljinn - 19.07.1946, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.07.1946, Blaðsíða 8
Fulltrúar 6 bæjarstjórna vilja loka áfengisút- sölum úti rnn land og íramkvæmd á lögum um héraðabönn Ennfremur að sett verði lög um drykkjumannahæli og meðferð ofdrykkjumanna Allmiklar umrœður urðu á bœjarstjórnar- fundi í gœr um nauðsyn þess að draga úr neyzlu áféngis. Lýsti bœjarstjórn sig samþykka tillögu fuU- trúanefndar nokkurra bœjarstjórna um að stefnt vœri að því að fá áfengissölunum á Siglufirði og Akureyri lokað um síldveiðitímann og áfengis- útsölunni í Vestmannaeyjum á vetrarvertíðinni og áferigisútsölunni á ísafirði frá 15. sept. til 15. ar og umönnunar lækna, eins og aðrir sjúklingar. Reykjavík, 15. júlí 1946. Pétur Björnsson (sign). Brynleifur Tobíasson. (sign). Eiríkur Pálsson. (sign). Einar Sigurðsson (sign). Grímur Kristgeirsson (sign). Þorsteinn M. Jónsson (sign). Bjarni Benediktsson (sign). (fyrirvari um 3. lið). Sigfús Sigurhjartarson (sign). nóv. n. k. ■Bæjarráð fól þeim Sigfúsi Sígurhjartarsyni og Bjarna Benediktssyni að ræða við fulltrúa frá öðrum bæjar- stjórnum um aðgerðir til að draga úr óhóflegri neyzlu áfengis, og skýrði Sigfús Sig- Helgi Þorláksson skipaður skólastjóri í síðasta tölublaði Lögbirt- ingarblaðsins er skýrt frá því, að menntamálaráðuneytið hafi þann 12. þ. m. skipað Helga Þorláksson skólastjóra Gagnfræðaskólans á Akranesi frá 1. sept. næstkomandi að telja. Námsstyrkjum úthlutað Menntamálaráð íslands hef ur nýlega úthlutað eftirtöld- um stúdentum námsstyrk til fjögurra ára: Öddu Báru Sigfúsdóttur til náms í veðurfræði í Osló. Að- alsteini Jónssyni, efnaverk- fræði í Danmörku. Ásgeiri Valdimarssyni, byggingar- verkfræði í Gautaborg. — Baldri Ingólfssyni, þýzku við Universitát Zúrich. Eysteini Tryggvasyni, Veðurfræði í Osló. Guðjóni Peter Hansen, tryggingafræði í Kaupmanna höfn. Guðna Kristni Gunnars syni, matvælaiðnfræði í Cana da- Heimi Áskelssyni, ensku og enskum bókmennt. í Eng- landi. Knúti Kristjáni Otter- stedt, verkfr. og rafmagns- verkfr. í Svíþjóð. Pétri Pá'ls- syni, matvælaiðnfræði í Canada. Steingrími Pálssyni, byggingaverkfræði í Kaup- mannahöfn. Svanhildi Jóns- dóttur, náttúrufræði í Kaup- mannahöfn. Sverri Norland, útvarps- og rafeindafræði í Massachusetts Institute of Tecnology. (Fréttatilkynning frá Menntamálaráði). urhjartarson bæjarstjórnar- fundinum frá umræðum þeirra og samþykktum. Stórstúka íslands skrifaði fyrir nokkru öllum bæjar- stjórnum og lagði til að þær t lnefndu menn til að ræða við ríkisstj. um ráðstafan- ir til að draga úr neyzlu á- fengis. Bæjarstjórnir Akureyrar Siglufjarðar, Vestmannaeyja, ísafjarðar, Hafnarfjarðar og Reykjavíkur sendu allar full trúa til umræðna um þetta mál, og höfðu fulltrúar nokkurra bæjarstj. meðferð is ákveðnar stefnuyfirlýsing- ar bæjarstjórna sinna í þessu máli. Urðu þeir ásáttir um að leggja eftirfarandi til við ríkisstjórnina: ,,Vér undirritaðir fulltrúar tilnefndir af bæjarstjórnum, bæjarráðum eða bæjarstjór- um, samankomnir í Reykja- vík 15. júlí 1946, leyfum oss hérmeð að leggja eftirfar- andi fyrir hæstvirta ríkis- st jórn: 1. Að áfengisútsölunum á Siglufirði og Akureyri verði lokað nú- þegar og til 1. okt., eða þar til síldveiði er að fullu lokið og aðkomu fólk farið frá Siglufirði. Lokunin verði framkvæmd samkv. beinni fyrirskipun ríkisstjórnarinnar. 2. Að áfengisútsölunni í Vestmannaeyjum verði lokað á komandi vetrarver tíð, og áfengisútsölunni á ísafirði frá 15. sept. til 15. nóv. n. k. 3. Að ríkisstjórnin gefi sem allra fyrst út tilkynn- ingu um það, að lögin um héraðabönn öðlist gildi. 4. Að ríkisstjórnin stuðli að því, að frumvarp til laga um ofdrykkjumenn o. fl. verði sem fyrst lagt fyrir Alþingi. 5. Að ríkisstjórnin geri ráð- stafanir til að komið verði á fót sérstökum stofnun- um til að veita viðtöku of- drykkjumönnum, og að slíkir ménn njóti hjúkrun- Ræddu fulltrúar þessir til- lögurnar við forsætisráð- herra og tók hann þeim vin- samlega. Kusu þeir síðan þriggja manna nefnd til að fylgja málinu frekar eftir við ríkisstjórnina og voru kosnir þeir Sigfús Sigurhjartarson, Bjarni Benediktsson og Eirík- ur Pálsson- Fluttu þeir Sigfús Sigur- hjartarson og Bjarni Bene- diktsson eftirfarandi tillögu: „B^ejarstjórn féllst á þær t:llögur, sem þeir Bjarni Benediktsson borgarstjóri og Sigfús Sigurhjartarson ásamt fulltrúum frá Akureyri, Siglu firði, ísafirði, Hafnarfirði og Vestmannaeyjum hafa lagt fvr:r ríkisstjórnina 15. þ.m. varðandi áfengismál“. Jón Axel Pétursson kvaddi sér næst hljóðs, var nokkur gustur í honum og sagði hann að í þessari samþykkt ’ „örli tæpast á því að draga úr á- fengisflóðinu“, en í þriðja sinn er hann kvaddi sér hljóðs, virtist mesti vindur- inn úr honum dottinn. Þau Jón Axel og Jóhanna Egilsdóttir fluttu svohljóð- andi viðbótartillögu: „Ennfremur samþykkir bæjarstjórnin að skora á rík- :sstjórnina að draga nú þegar stórkostlega úr sölu áfengis frá útsölum Áfengisverzlunar Ríkisins í Reykjavík“. Urðu allmargar umræður um áfengismál og tóku til máls Sigfús Sigurhjartarosn, Bjarni Benediktsson, Jón Axel Pétursson, Jóhanna Egilsdóttir og Hallgrímur Benediktsson. Að lokum var |SVo tillaga þeirra Sigfúsar og Bjarna og viðbótartill. Jóns Axels og Jóhönnu Egilsd. samþykktar samhljóða. Bjarni Benediktsson skrif- aði undir með þeim fyrirvara varðandi héraðabönnin að hann væri samþykkur ef þau brytu ekki í bág við milli- ríkjasamninga. Hinsvegar teldi hann þau gagnslítil. Hálf fimmta millj. í þýzkum verkalýðs- félögum Nefnd frá Alþjóðasam- bandi verkalýðsins hefur ný- Iokið við að rannsaka verka- lýðsmál í Þýzkalanili. Sir Walter Citrine formað- ur nefndarinnar skýrði í gær frá ýmsum atriðum í skýrslu hennar. Félagar í þýzkum verkalýðsfélögum eru nú um 4.500.00 og vantar mikið á að allir verkamenn séu enn félagsbundnir. Her Sjankaiséks ræðst á kommún- ista Sjúenlai, fulltrúi kínverskra kommúnista við friðarum- leitanirnar I Nanking hefur á sakað stjórnarhersveitir um að hafa ráðizt á kommún- ista við Jangtse. Fréttaritarar í Kína segja, að meiri hætta sé á allsherj- arborgarastyrjöld en nokkru sinni áður. Marshall, sendi- maður Trumans forseta, hef- ur undanfarið rætt við Sjang- kaisék, að því er sagt er til að fá hann til að taka upp friðarumleitanir á ný. Nýr bátur til Vest- mannaeyja Frá fréttaritara Þjóðnilj- ans, Vestmannaeyjum• Nýr fiskibátur kom hingað í fyrrad. frá Svíþjóð■ Nefnist hann Reynir og er 55 smá- lestir að stœrð. Eigendur bátsins eru bræð- urnir Páll og Júlíus Ingi- bergssynir fíá Hjálmholti. Báturinn er h:nn glæsileg- asti, búinn öllum helztu sigl- ingatækjum og gengur á níundu mílu. Skipstjóri frá Svíþjóð var Einar Torfason, en Páll Ingibergsson verður nú skipstjóri. Reynir leggur af stað norður um land til síldveiða á morgun. Tók minna en áætlað hafði verið Brúarfoss lestaði frystan fisk á Húsavík í gcer, sem fara á til Sovétríkjanna. Á Austfjörðum tók hann minna magn en ráð hafði verið fyrir gert. Á Fáskrúðsfirði tók hann lítið og á Norðfirði ekkert vegna þess að frostið í fisk- inum náði ekki 15 stigum eins Qg ráð er fyrir gert í samningi. Hver verður skóla- stjcri Austurbæj- arskólans? Um skóíastjórastöðuna við Austurbœjarskólann hafa sótt eftirtaldir kennarar:' Arnfinnur Jónsson, Grund- arstíg 4, Ársæll Sigurðsson Blönduhlíð 7, Gísli Jónasson, settur skólastjóri og Hannes M. Þórðarson. Orlof s- og skemmti ferðir Ferðaskrif- stofunnar Skemmti- og orlofsferðir, sem Ferðaskrifstofan efnir til núna um helgina: 1. Laugardagseftirmiðdag til Kleifarvatns og Krísuvík- ur. 2. Laugardag kl.1.30 hefst ferð til Kerlingafjalla og Hveravalla- 3. Laugardag 1.30 hefst ferð til norður- og norð- austurlands. — Komið á marga markverða staði, einn- ig farið til Siglufjarðar og yf- ir Siglufjarðarskarð til Hóla í Hjaltadal. 4. Á sunnudaginn kl. 8.30 verður farið í Þjórs- árdalinn að Stöng, í Gjána og að Hjálp. Upplýsingar á skrifstofunni sími 7390, — Laugardagur 20. júlí Kaldidalur — Borgarfjörð- ur — Reykjaskóli. Sunnudagur 21. júlí Reykjaskóli — Vatnsdalur — Akureyri. Mánudagur 22. júli Akureyri — Vaglaskógur — Mývatn —• Laugaskóli. Priöjudagur 23. júlí Laugaskóli — Húsavík — Ásbyrgi — Dettifoss — Lind- arbrekka- Miðvikudagur 24. júlí Lindarbrekka — Húsavík — Aðaldalur — Vaglaskógur. Fimmtudagur 25. júlí Vaglaskógur — Munka- þverá — Grund — Akureyri. Föstudagur 26. júlí Akureyri — Hrísey — Siglufjörður. Laugardagur 27. júlí Siglufjörður — Fljót — Hólar í Hjaltadal. Simnudagur 28. júlí Hólar í Hjaltadal — Sauð- árkrókur — Reykjavík. Norræn póstráð- stefna í Reykja- vík Á morgun hefst hér í Reykjavík norræn póstráð- stefna. Sitja hana 12 manns frá Norðurlöndunum öllum, Nor- egi, Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð og íslándi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.