Þjóðviljinn - 21.08.1946, Síða 3
Miðvikudagur 21. ágúst 1946.
ÞJOÐVILJINN
S
Skynsemin og Heimdellingar
Nú er svo kornið, að skyn-
semin hefur að fullu sagt
upp vistinni hjá Heimdalli,
eftir mjög slæma sambúð við
þá, sem hafa skrifað í Heim-
dallarsíðu Morgunblaðsins
undanfarna mánuði. Þeir
fáu, sem endast til þess að
lesa greinarnar á Heimdallar
síðunni, hafa nú sannfærzt
um, að bezt færi á því að
leggja síouna alveg niður.
Kemur þar margt til. Stund-
um fæst bókstaflega enginn
til að skrifa síðuna, og eru
þá endurprentaðir lélegir
kaflar úr ræðum ofstækis-
rnanna í pólitík eða langar
tilvitnanir upp úr Þjóðviljan-
um og Verkalýðsblaðinu. Þeg
ar einhver fæst til að skrifa
frumsamda grein í síðuna, er
hún svo slagorðakennd og
full af rangfærzlum og
heimsku, að lesendurnir fá til
lengdar óbeit á slíkum
skrifum.
I margar vikur eftir kosn-
ingarnar sáu Heimdellingar
sér ekki fært að halda síð-
unni úti, en nú fyrir skömmu
.hefur einn þeirra — einhver
I. I. — tekið sig saman, meira
af vilja en mætti, og skrifað
bara tvær síður. Hann hefur
ráðizt með offorsi miklu á
kommúnismann, svo að auð-
séð er. að hann ætlast til þess
að það myndist þjóðsaga um
síðustu þremenningana: í. L,
Valtýr og Göbbels- Verður
hér lítið eitt vikið að skrif-
um hans.
í. í. er það fullljóst,, að
það er ekki heppilegt að
heita nazisti núna fyrstu ár-
in eftir hina nýafstöðnu styrj
öld. Þess vegna leggur hann
mikla áherzlu á, að kalla
kommúnista og verkalýðs-
sinna nazista, þótt hann viti
mæta vel, að sterkustu and-
stæðurnar í stjórnmálum
he-msins síðasta áratuginn
eru nazismi og kommúnismi.
Það hefur verið siður skrif-
finnanna við Morgunblaðið
að benda á ekki-árásarsátt-
mála Þýzkalands og Húss-
lands 1939 sem sönnunargagn
fynr því. að nazismi og kom-
múnismi sé sama tóbakið. Og
í. í- vill ekki fara út'af „lín-
unn:“, þótt hann sjái rök-
villuna í þessum óþverralega
áróðri. í seinni síðunni sinni
birtir í. í. tveggja dálka
mynd af von Ribbentrop,
Stalin og Molotoff við undir-
ritun ekkl-árásarsamningsins
undir yf'rskriftinni; Þá voru
þeir vinir- Þessi mynd var
margsinnis birt í Morgun-
blaðinu fyrir síðustu bæjar-
stjórnarkosningar, svo að hér
er ekki um frumlegt tiltæki
í. í. að ræða. En það má
I. í vita. að fle.'ra hefur birzt
1 .Morgunblaðinu í sambandi
við nefndan samning en þessi
uppáhaldsmynd hans. Rúm-
um tveim mánuðum eftir und
irskrift samningsins birti
Morgunblaðið (7. nóv. 1939).
þessa rosafrétt eftir blaðinu
Italia í Mílano:
„Vinátta Rússa og Þjóð-
verja er byggð á svo veikum
grundvelli, að hún hlýtur að
fara út um þiífur fyrr eða
seinna. Báðir aðilar bíða eftir
tœkifœri til að kasta grím-
unni.“
Þessi fréttaklausa hefur
ekkert fréttagildi í augum
kommúnista og verkalýðs-
sinna, því að þeir vita hvað
kommúnismi og nazismi er,
en ekki er úr vegi fyrir I. I-
að lesa þessa frétt vandlega,
reyna að tileinka sér sann-
leiksgildi hennar og bera sam-
an við staðreyndir síðustu
ára!
Til þess að halda áfram að
vera ófrumlegur birtir í. I. í
tuttugásta skiptið þessa klass
isku setningu: „Ef út af
bregður — grípur heimsflokk
urinn í taumana“ í. í. er svo
ungur, að hann man ekki tím
ana, þegar þessi orð voru
skrifuð. Hann þekkir ekki
meira til verkaýðshreyfingar
innar en svo, að hann
geti gert sér nokkra grein
fyrir mikilvægi þessara orða.
Eg ætla að gera tilraun til
þess að tala í alvöru við í. í.
um þessa klassisku setningu,
þótt ég búist frekar við því,
að það sé ekki hægt-
Þegar þessi orð voru skrif-
uð ríkti ógurleg kreppa í auð
valdsheiminum, kreppa, sem
fæddi af sér nazismann. Hinir
marx’stisku verkalýðsleiðtog-
ar bæði hér á landi sem ann-
ars staðar í heiminum, sáu
hvaða hættu nazisminn fól
í sér fyrir mannkynið. Þeir
bentu á þessa hættu og unnu
að því að bægja henni frá
dyrum. Hefði þeim tek:zt
það, hefði heimurinn sloppið
við hina ægilegu styrjöld,
sem háð var gegn Hitlers-
Þýzkalandi. Þessir verkalýðs-
le'ðtogar voru sameinaðir í
heimsflokki eða alþjóðasam-
bandi, sem vann gegn naz-
ismanum.Hefði þetta alþjóða-
samband verlð nógu sterkt,
hefði nazisminn ekki náð að
festa rætur. Það er ekkert
glæpsamlegt við alþjóðasam-
bönd. Fáir munu verða til þess
að kalla stofnþing hins nýja
alheimssambands verkalýðs-
félaganna glæpasamkomu.
Jæja, hvað um það. 1932 voru
þessi klassisku orð skrifuð.
1933 tókst nazismanum að
ryðja sér t;l rúms í Þýzka-
landi. 1934 hóf Hitler árásir
sínar á mannkvn'.ð og sið-
menningu þess- Heimurinn,
sem hafði lagt skollaeyrum
við aðvörunum hinna marx-
istísku verkalýðsleiðtoga og
rithöfunda frá 1932—3 sá
sinn kost vænstan að rísa
gegn Hitler. Gamli heims-
flokkurinn — Komintern —
var leystur upp í styrjöld-
inni, því að nýr heimsflokkur
—• Sameinuðu þjóð;rnar —
sterkari en hinn fyrri var
risinn upp gegn Hitler og
nazismanum og ’nefur hernað
arlega a. m. k. lagt hann að
velli, og er það gæfa mann-
kynsins.
Þetta verður að nægja í
bili. Seinna verður vikið að
í. í. og skrifum hans, ef til-
efni gefst
H.
V 0 i z t u
að ef lygin væri sannleikur,
ef ranglæti væri réttlæti
og ef heimska væri mann-
vit — þá væri Morgun-
blaðið gott.
að Morgunblaðið kallaði í
december 1939 Kuusinen
hinn finnska „áróðurs-
stjóra Norðurlanda" og
fullyrti, að hann hefði ver-
ið „kennari og leiðbein-
andi“ hinna íslenzku kom-
múnista?
að gleggsta dæmið um sið-
lausa blaðamenrr>ku Al-
þýðublaðsins er eftirfar-
andi ldausa: „Árið 1930
stofnuðu Rússar til stjórn-
málaflokks hér á landi í
því skyni að annast hér
þau fimmtuherdeildarstörf,
sem rússneskir kommúnist
ar þurfa að láta vinna í
öllum löndum. Flokkur
þessi fékk tvíþætt hlut-
verk. Annars vegar skyldi
hann kljúfa alþýðuhreyf-
inguna íslenzku en hins
vegar skyldi hann reka
hverjar þær NJÓSNIR
fyrir hið erlenda stórveldi,
sem óskað væri á hverj-
um tíma.“
Hsfur Heimdallur
afneitað líöstler?
í langloku einni á síðustu
síðu Heimdellinga í Morgun-
blaðinu 16- þessa mánaðar er
verið að gera lítið úr afrek-
um Ráðstjórnarþjóðanna í síð
ustu styrjöld. Höfundur lang
lokunnar gerir kjör alþýðunn
' ar í Ráðstjórnarríkjunum að
umtalsefni og segir orðrétt:
„Þeir, sem kunnugastir eru
Rússlandi, telja að 3% til4%
þjóðarinnar teljist til komm-
únistaflokksins. Hitt er svo
hinn réttlitli almúgi, er allt
frá dögum keisaranna hafa
orðið að þræla, að vísu er
--------------------------------------------------
SKÓLI
verður settur á stofn, sem veitir stúlkum nauðsyn-
lega undirbúningsmenntun til þess að taka að sér
forstöðu- og fóstrustörf við leikskóla, barnaheimili
og barnaleikvelli, og tekur hann til starfa í Tjarnar-
borg 1. október n. k.
Námtími er 2 ár, 9 mánuðir á ári. Námstímanum
verður skipt til helminga milli bóklegs og verklegs
náms, bæði árin.
Þessar námsgreinar verða kenndar:
Uppeldis- og sálarfræði.
Lífeðlisfræði og heilsuvernd.
Félagsfræði.
N æringaref naf ræði.
Meðferð ungbarna.
Hjálp í viðlögum.
Leikir, kvæði og sögur.
Handíðir (teikning, leirmótun, föndur).
Söngur.
Áttliagafræði.
Islenzka og íslenzkar bókmenntir (barnabók-
menntir).
Bókfærsla.
Rekstur leikskóla, barnalieimila og barna-
leikvalla.
Verklega efnið fer fram í leikskólum og barna-
heimilum Barnavinafélagsins Sumargjafar.
Inntökuskilyrði skólans eru:
1. Nemandi sé eigi yngri en fullra 18 ára.
2. Nemandi hafi stundað að minnsta kosti
tveggja ára nám og lokið prófi úr héraðsskóla, gagn
fræða- eða kvennaskóla, eða hlotið hliðstæða mennt-
un.
Eiginhandarumsóknir ásamt prófskírteinum og
heilbrigðisvottorði sendist fyrir 15. september n. k.
til Valborgar Sigurðardóttur, Ásvallagötu 28, (sími
5890), er gefur allar nánari upplýsingar.
linrnmiinnfólnnift Sinvnnvninf
Röskur sendisveinn óskast
Upplýsingar kL 10—12 og 1—3.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Rcifmagnseftirlit ríkisins.
Laugaveg 118, efstu hæð.
------------------------------------------------U
sennilegt, að kjör þessa fólks
hafi eitthvað batnað . . . ■“
Þessi ungi blekriddari þorir
ekki að segja, að kjör 1 Rúss
landi nú séu verri en fyrir
byltinguna 1917 og telur
„sennilegt“, að þau hafi eitt-
hvað batnað (!) Fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar gaf Val
týr ritstjóri út níðrit um Sov
étríkin, svo kallaða „berorða
og sannorða lýsingu af á-
standinu í Rússlandi“ eftir
Arthur Köstler. í þessu riti
segir afdráttarlaust, — bls.
669 í 3. dálki — að meðal-
lífskjör í Sovétríkjunum 1937
séu þriðjungi verri en 1917.
Samkvæmt þessum unga
Heimdellingi hafa Heimdell-
ingar afneitað lygi Köstlers
um Rússland og fer vel á því.
Hreinar
þvegnar
:í
léreftstuskur
kaupir
Prentsmiðja
Þjóðviljans h.f.
Daglega
NÝ EGG, soðin og hrá.
Kaffisalan
HAFNARSTKÆTI 16.
------------------