Þjóðviljinn - 27.08.1946, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 27.08.1946, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 27. ágúst 1946. ÞJÖÐ\TLJINN 7 Ræða Aka Jakobssonar Framhald af 5. síðu. um verið búnir að stórauka verksmiðjur okkar fyrir löngu síðan; þa3 var þörf fyr- ir þær stækkanir, sem fram- kvæmdar voru á sl. vetri, þeg ar fyrir stríð; þá hefði bæði sjávarútvegur okkar og þjóð- in í heild verið betur undir það búin að mæta tveimur síldarleysisárum en nú er. En við verðum að læra af reynsl unni. Á þessari vertíð vorum við betur við því búin en nokkru sinni áður að taka á móti miklu magni af síld. En samt er nauðsynlegt að auka enn verksmiðjukost landsins, og er þá einkum þörf á nýj- um verksmiðjum á austur- hluta veiðisvæðisins. Hið háskalega útlit á enska markaðinum Aðrir örðugieikar, sem steðja að íslenzkum sjávarút- vegi nú, er hið háskalega út- lit á ísfiskmarkaðinum í Eng- landi. Eins og menn muna, lækkaði hámarksverðið þar síðastliðið vor, nú hefur verð á hausuðum fiski verið lækk- að, sem virðist nær eingöngu beint að íslendingum, og loks hefur það verið boðað, að 1. sept. n- k. gangi í gildi 10% tollur á söluverð innflutts fisks í Bretlandi. Ofan á þetta hefur verðið á markaðinum á Englandi hvað eftir annað farið niður úr öllu valdi og stundum hefur ágætis fiskur verið óseljanlegur, að því er helzt verður séð, fyrir skipu- lagsleysi á samgöngukerfinu í Englandi. Lækkunin, sem varð í vor, gerði það að verkum, að ís- lenzku fiskflutningaskipin sáu sér ekki fært að sigla Ríkisstjórnin tók þá skipin á leigu til þess að vertíðin hætti ekki í miðjum klíðum. Síðan sú lækkun gekk í gildi, hefur ein lækkun enn komið til framkvæmda og 10% inn- flutníngstollur boðaður um mánaðamótin. Þessar aðgerð- ir enskra stjórnarvalda gera það að verkum, að erfitt verð ur fyrir togara okkar að sigla til Englands nema yfir blá- vertíðina, um fiskflutninga- skipin virðist mér alveg af og frá, að þau geti siglt, en þar með er útilokað, að nokk uð af afla bátaútvegsins verði flutt til Englands á komandi vetrarvertíð. Ráðstafanir, sem hljóta að koma íslendingum á óvart Á undanförnum árum hef- ur ísfiskur verið aðalútflutn- ingsvara okkar og er það enn, og síðan stríðið byrjaði hef- ur okkar eini markaður fyrir þessa vöru verið í Englandi. Þessar ráðstafanir enskra yfir valda hljóta að koma okk- ur íslendingum mjög á óvart. Öll stríðsárin höfum við afl- að allmikils hluta fiskmetis þess, sem neytt hefur verið í Englandi, við höfum fært þeim heim fiskinn, þrátt fyrir stríðshættur og misst við það í hafið svo mikið af beztu og hraustustu sonum okkar, að sambærilegt er við manntjón Englendinga sjálfra og loks selt þennan fisk í Englandi við verði, sem þeir ákváðu sjálfir einhliða, en ensk stjórnarvöld virðast ekki sjá ástæðu til þess að muna þetta við okkur, að neinu. Þegar samningar voru gerð ir sl- vor um sölu á síldar- olíu og síldarmjöli, seldum við verulegan hiuta þessara vara, t. d. tæpa % hluta hinn- ar mjög eftirsóttu síldarolíu okkar, Englendingum, að vísu ekki með því skilyrði, að við fengjum að halda ísfiskmark- aðinum þar, en þó á þeim forsendum og hlýtur ensku stjórninni að hafa verið það kunnugt, enda engin rök til fyrir því að selja þeim svo mikið af síldarlýsinu, ef ís- fiskmarkaðnum yrði lokað eða ráðstafanir gerðar, sem jafn- giltu lökun. Við höfum miðað sjávar- útveg okkar við þörf enska markaðsins Á stríðsárunurn seldum við alla fiskframleiðslu okkar til Englands. í trú ó enska mark aðinn var byggður fjöldi hrað frystihúsa og hlaut Englend- ingum að vera það kunnugt, að hin mikla aukning hrað- frystihúsanna átti rót sína að rekja til þess trausts, sem íslendingar báru t;l enska fiskmarkaðarins. I fyrra vet- ur tilkynntu Englendingar, fyrirvaralaust, að þeir myndu engan hraðfrystan fisk kaupa. íslendinga rak í rogastanz, en nú virðist vera komin röð- in að ísfiskinum, eftir þær ráðstafanir, sem nú er búið að gera og eru í undirbún- ingi. England heíur verið að- almarkaðsland okkar um langan aldur. Eftir það, sem nú er skeð, virðast ekki vera skilyrði til þess að svo geti orðið framvegis. þó það hljóti að hryggja okkur íslendinga. Það, sem gerir þessa stað- reynd dapurlegri fyrir okk- ur, er það, að ein ástæðan fyrir þessari laðabreytni er sú, að Englendingar eru farn ir að sækja fiskinn sjálfir á fiskimið íslands, sem þeir þó vita, að er e'na lifibrauð Is- lendinga. íslendingar hara orðið fyrir 'miklum áföllum, tvær síld- ^ vertíðir hafa brugðist og von ir þær, sem við ólum í brjósti 'um, að markaðir þeir, sem við | höfðum á stríðsárunum, myndu vara áfram, hafa líka brugðizt- Þrátt fyrir þessa erfiðleika er engin ástæða til þess að gefast upp. Islenzka þjóðin hefur áður horft fram á erfiðleika og verið ver und- ir þá bú;n en nú. En þessir erfiðleikar sjávar útvegsins gera það nauðsyn- legt, að gerðar séu ýmsar ráð- stafanir. Þær ráðstafanir ættu fyrst og fremst að miða að því að stöðva h:na óhóflegu gjaldeyriseyðslu, sem nú á sér stað og gera ráðstafanir, sem duga, til þess að hafa hemil á verzlunargróðanum. Þá þarf þjóðin að undirbúa sig sem bezt undir næstu síld arvertíð til þess að geta hag- nýtt sér það til fulls, ef svo skyldi takast, að mikil síld yrði. Út af hinni fyrirsjáanlegu markaðsvöntun fyrir afla bátafisksins verður að gera viðeigandi ráðstafanir. Leita verður nýrra markaða Nýrra markaða þarf að leita og má ekkert til þess spara. Þeirra markaða mun helzt að leita í Austur- og Mið-Evrópu. Þjóðinni er það í fersku minni, að. enska stjórnin tilkynnti fyrir- varalaust, að hún myndi eng an hraðfrystan fisk kaupa, þá lánaðist að fá marikað fyrir hraðfrystan fisk í Sovétríkj- unum fyrir gott verð. Athuga þarf möguleika á sölu ísaðs fisks í Sovétríkjunum og í Mið-Evrópu, þó hins vegar sé vitað, að það er miklum erfiðleikum bundið að flytja þangað ísaðan fisk sökum vegalengdar. Gera þarf ráðstafanir fyrir næstu vertíð til þess að hægt verði að salta og herða það af fiskaflanum sem hraðfrvsti húsin geta ekki tekið við, og ekki reynist unnt að flytja út ísað við þolanlegu verði. Koma verður upp fiskvinnslustöðvum Þá þarf loks að gera stór- felldar ráðstafanir t:l þess að koma upp nægilega af- kastamiklum fiskvinnslu- stöðvum í helztu verstöðvum til þess að geta í nánustu framtíð tekið við aflanum til hraðfrystingar og niðursuðu- Þessar fiskvinnslustöðvar þurfa að vera reknar á svip- . uðum grundvelli og síldar- verksmiðjur ríkisins, þannig, að fiskimenn fái það verð fyrir afla sinn sem svarar til markaðsverðs, 'p. e. a. s. að frádrengum nauðsynlegum vinnslukostnaði. Eðlilegast er, að þessi fiskiver verðir rjk isstofnaðnir með svipuðu sniði og Jón Kaldal #■ Framh. af 3. síðu. samkvæmt öllum venjunt hefði hann þá att sín oeztu ár eftir. Þó standa met hans á 3 og 5 km. óhögguðt eru þd liðin 24 ár síðan þau voru sett. Eftir að Kaldal kom aftur heim til íslands, gerðist- haim. virkur um íþróttamál bæði í félagi sínu í. R. og um r.okk- urt skeið varaforseti í. S. í_ Hefur hann verið áhuga- samur um öll íþróttamál, og- hefur mörg sl- ár látið skíða- málin sérstaklega til sín taka og það með góðum árangrL íþróttamenn þakka Kaldal þau fordæmi sem hann hefur gefið, er eggja til dáða, og óska honum til hamingju með» þessi merkilegu tímamót. Hugleiðingar örvarodds Framh. af 5. sáðu. dult með, oð þeir telja likur ár flð ófrifinr mimi brjótast út mefí ■ haustinu, en aðrir eru vonbetri ■ og telja ekki ósennilegt aó sllkt ' kunni að dragast í þrjú ár.“ En er ckki haldlitið fgrir Is- ' lcndinga scm crlendis dvclja oð flytja sig hingað heim? Afi minnsta kosti lelja ritstjórar Vís- is sig aldrei vel hulta hér cf • /)«ð er rcll sem flogið hefur fijr- ir i bænum, aS þeir hafi þegar pantað sér flugfar til Amcriku. ' .... vinnufélaga útgerðarmanna og sjómanna eða viðkömandr bæjarfélaga. Eg vænti þess, að sjávarút- vegssýningin auki áhuga fyr- ir þessum málum og örfi tíl stórfelldra framkvæmda ú sviði fiskiðnaðar. Eg vil loks leyfa mér að- ■ bera fram þakkir til þeirra, sem starfað hafa að undir- búningi þessarar sýningar, sem allir hafa leyst störí sín vel af hendi, og lýsi því yfir, síldarverksmiðjur I að Sjávarútvegssyningin 194f> ríkisins, eða þá eign sam-' er opnuð. Valur víðförli Myndasaga eftir Dick FIoyA SC-.t OiOS'T SuSPEC" ■‘D BUT MOW twat T9 DOME. I AM©WT AS wEu, CcV=Ai _ WÁO OiD L . ________-- 1 4EEP70UU EYE OS T-E ©LJ>' WITA Þ-IE MUSTAChE mEaT TO JCE GARTMEQ. VOU WERE GOiMS TO TFLL THcAN. C? A \EAT SWwOlE. TOU <N£W C?CO<=D 5TUí=f= vvaS TAKiNS PLACE UER5, 3JT rOU NEVER THOU® 17 1T WOULD £nD UP im MUŒDEG-- ESPECIAlLY OF VOU--OF Ufff -t --TSLUTUEM-WHAT X WAS SOINS TO SAY- -------^WWEN- jg WHEN yCU WERE E'O RUOELV INTERRUPTED? I''.-® SURE.f - /Y.fM 'WWODUM Psycho: Segðu þeim.. . hvað ég ætlaði að segja þegar. .. Voxo: Þegar þú varst stöðvaður svona hastarlega. Það skal ég gera. Þú ætlaðir að fara að segja þeim frá svindli. Þú vissir að eitthvað gruggugt var á seiði, en þér datt aldrei í hug, að það mundi enda með morði, og það á þér, eða öllu heldur okkur. Valur (við logreglustjóra): Hafðu gætur á náunganum með yfirvararskeggið, sem situr við hliðina á Jóa frænda. Psysho: Nei ég bjóst ekki við að verða myrtur. En nú þeg- ar það er skeð, þá er eins gott að ég segi frá hver gerði það. Voxo: Það er einmitt lóðið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.