Þjóðviljinn - 10.10.1946, Page 6
6
Þ J OÐVTL JHSTN
Fimmtudagur 10. okt. 1946
Jarðarför systur okkar og mágkonu
BJARNÖEIÐAR V. SÆMUNDSDÓTTUR
fer fram frá heimili okkar, Öldugötu 52, föstudaginn
11. október kl. 1 e. h.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Þeir, sem hafa liugsað sér að senda blóm eða
blómsveiga eru vinsamlega beðnir að iáta andvirði
{teirra renna til S.I.B.S.
Páll Sæmuudsson. IJna Sæmundsdóttir.
Guðrún Sæmundsdóttir. Sólberg Eiríksson.
Öllum þeim, er auðsýndu samúð og hluttekningu
við jarðarför konunnar minnar,
JAKOBlNU BJÖRNSDÓTTUR, Sauðárkróki
votta ég innilegar þakkir.
Hreggviður Ágústsson.
Sendisveinn
óskast írá klukkan 10 í. h. til klukkan
7 e. h. Hátt kaup.
Þjóðviljinn.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Rekord-Búðingar
11 teg.
Romm
Vanille
Súkkulaði
Sítrón
Appelsínu
Ananas
Hindberja
Jarðarberja
Möndlu
Hindberja lúxusteg.
Appelsínu lúxusteg.
REKORD
í
L
Hjartans þakkir til allra, sem gerðu mér áttræð-
isafmælið ógleymanlegt, með heimsóknum, gjöfum
blómum, skeytum og hlýjum kveðjum.
Guð blessi ykkur og launi.
Vilhelmína Árnadóttir.
T&rolf Elster;
SAGAN UM GOTTUtlB
Hún tók eftir því, að ég horfði
á hana, og snéri sér agnarlítið
í stólnum. Hann veitti þessu
einnig athygli og leit á mig á-
hugalaus. Hann var alltaf jafn-
órólegur útlits, og ég gat ekki
heldur komizt hjá því að sjá hið
undrandi og rannsakandi
augnaráð, sem hún sendi hon-
um við og við/
Hún minnti mig á skelfda
veiðigyðjuna Díönu, ef hægt er
þá að hugsa sér eitthvað þvílíkt.
Hún var ekki lengur sú, sem
veiðir, heldur veiðidýrið sjálft
á flótta.
Þetta virtist alveg gagnstætt
því er náttúran hafði ætlazt til.
Eg ákvað að gefa henni nánar
gætur. Við höfðum hálfan mán-
uð fram undan.
Síðan kom dálítið fyrir.
Það varð nokkur þys. Henni,
Díönu minni, varð snögglega
bylt við, er ný persóna birtist í
borðstofunni. Órói hennar óx,
og hún neri óafvitandi saman
höndunum, svo að hnúarnir
hvítnuðu. En ég fékk ekki betur
séð en samtímis færðist nokkurt
líf yfir hana og ofurlítill roði
hlypi í kinnarnar. Hinn nýkomni
var lávarðurinn úr járnbrautar-
lestinni; sem braut sér kæru-
leysislega leið fram milli borð-
anna. Þetta var á ýmsan hátt
fínn maður, því var ekki hægt
að neita, maður, sem alltaf yrði
tekið eftir. Hann var ekki að-
eins hár, heldur mjög hár, en
hafði sýnilegá fullkomna stjórn
á hinum langa líkama sínum.
Klæðnaðurinn var sá sami og
þegar ég sá hann í fyrsta skipti,
fremur hirðuleysislegur, óreglu-
legur mundi forstjórinn fyrir
framan mig eflaust kalla það.
Andlitið var vel þess vert, að
því yrði veitt athygli, bæði fín-
gert og kraftalegt; hann hlaut
að hafa verið glæsilegur mað-
ur, þegar hann var upp á sitt
bezta. Nú var hann alltof föl-
ur og veiklulegur og auk þess
dálítið slæptur. Augun horfðu
slöpp og þreytuleg frá einu
borðinu til annars, numu stað-
ar brot úr sekúndu. Síðan sett-
ist hann rólega niður.
Eg leit aftur til hennar. Hún
beit sig í vörina. Þarna hef ég
vissulega eljara, hugsaði ég.
En skrýtið var að sjá for-
stjórann okkar, engu var lík-
ara en hann missti stjórn á sér
við það að sjá lávarðinn. Það
fyrsta, sem hann gerði, var að
velta glasinu sínu, svo að rauð
vínið streymdi yfir á yfirráða-
svæði mitt af borðinu. Því næst
stóð hann til hálfs upp í stóln-
um, ákveðinn á svipinn, en sett
ist aftur niður. Allt í einu varð
hann rauður eins og karfi, og
undarlegt blísturshljóð heyrð-
ist af vörum hans. Síðan varð
hann jafn-snögglega rólegur
aftur, fyllti öruggur glasið sitt
og skálaði.
-— Það er ekkert hálfverk á
því hvað þú ert þögul í dag,
góða mín. Drekk og ver glöð.
En ég fékk ekki ráðiðjiæitt
af útliti hans, hvort heldur
hann var hræddur eða reiður.
Þetta lofaði að minnsta
kosti góðu um framhaldið.
Sá iangi hafði fengið sér
sæti langt í burtu, svo að ég sá
hann ekki almennilega. Eg
varð að játa, að forstjórinn
hafði rétt fyrir sér, súpan var
ágæt. Eg pantaði annað vín en
hann. Það var heldur ekkert
gott, illa búið til. Eg ákvað að
halda mig að brennivíninu.
Skötuhjúin á móti mér hvísluð-
ust á. Hann var greinilega æst
ur og gramur. Augnaráðið, sem
hann sendi fólkinu í kring, var
skuggalegt. Hugsardr hennar
gat ég ekki ráðið.
í reyksalnum gerði ég mér
far um að komast í návist
löngu vofunnar, lávarðinn á ég
við. Hann pantaði koníak,
kveikti í sígarettu og virtist
ekkert vita um eftirtektina,
sem liann liafði vakið hjá,
nokkrum gestanna. Ilann
teygði frá sér fæturna, dró
fram Verzlunartíðindin og
geispaði lengi og innilega. Eg
sá hvergi forstjórahjúin. Síð-
an sökkti ég mér ofan í Agatha
Christie, og skipið hélt sína
leið.
Gegnum gluggana heyrðist
hið stöðuga gjálfur hafsins;
myrkur var sígið á, og einstak
ar stjörnur blikuðu gegnum
skýin. Við og við brá fyrir
Ijósum frá öðrum skipum ein-
hvers staðar úti í geimnum, og
•skömmu síðar sást ljóskeila
Jótlandsskagavitans líða yfir
himininn. Þung ró hafði sigið
yfir gestina, einhvers staðar
heyrðist leikið á grammófón,
drykkjuboltarnir þjóruðu ró-
legir.
Eg drakk og naut annars
landflóttakvöldsins míns. Mað-
ur settist við borðið mitt og
sagði eitthvað á þýzku; ég
svaraði því, að hann væri líkur
Goethe, og hann kvaðst hafa
heyrt það fyrr. Þetta var Búlg-
ari, fremur málgefinn, sýndi
nokkra falska djúphyggni, var
dálítið broslegur, fullur af til-
vitnunum, en þó í raun og veru
orðheppinn og alls ekki heimsk
ur. Hann gat sagt frá.
Hann drakk líkjör, hellti í
sig hverju glasinu á fætur
öðru, sagði frá, drakk og sagði
frá; Manni varð næstum því
óglatt við að hugsa um öll þessi
sætindi, Hann hét Eggert, bók-
menntafræðingur, lögfræðing-
ur, kvikmyndamaður, sjálfsagt
einnig stjórnmálamaður — ég
gleymdi einhverju af því, sem
hann taldi upp. Hann hafði
ferðast heilmikið á árunum eft-
ir stríðið, setið í fangelsi í ein-
hverju ómerkilegu landi á Bal-
kan, gert kvikmynd ásamt
René Clair, skrifað bók um her
gagnaiðnaðinn og — ja, ég veit
ekki hvað. Skrýtlurnar flugu
af vörum hans á íburðarmiklu
skrautmáli, og hann var barns
lega glaður yfir því að segja
frá og vera miðdepill í samræð
um; þeir sem sátu við borðin
í kring, sneru sér við til þess að
hlusta á hann. Langi lávarður-
inn minn sat ótruflaður og
hlustaði á með kennd af brosi
á. vörunum, og Búlgarinn gaut
hornauga í áttina til hans við
og við, eins og hann viídi helzt
draga hann með inn í hlust-
endahópinn.
Nei, sagði hann, um leið og
hann lauk við langa runu af
athugasemdum — maður á
aldrei að treysta neinum að ó-
rannsökuðu máli; mörg af hin-
um undarlegu fyrirbrigðum,
sem ske í heiminum, verða
skýrð með eiginleikum manns-
sálarinnar. Eg man — það var
í Englandi — ég hef einnig ver
ið í Englandi; í hálfan mánuð
bjó ég í sveitaþorpi, sem fullt
er af rósum og vafningsviðum,
það heitir Aylesbury, norðvest-
ur af Lundúnum. Eg man sér-
staklega eftir rakaranum
þarna, ungum og alvörugefnum
manni, sem þegar á tuttugasta
og sjötta aldursári var kominn
með langt, svart, assýrískt
Athugasemd
Vegna greinarinnar „Oræfa-
slóðir Ferðafélags Akureyrar og
vegagerð um Vatnahjalla“, sém
birtist í Þjóðviljanum 14. fyrra
mánaðar, vil ég biðja blaðið fyr-
ir eftirfarandi athugasemd:
Það er ekki rétt, sem greinar-
höfundur virðist álíta, að Ferða-
félag Akureyrar hafi fyrst allra
lagt bílaslóðir umhverfis Dyngju
fjöll og Herðuibreið, og ennfrem
ur af Sprengisandi í Bárðardal.
Aðrir aðilar, og þó aðallega und-
irritaður, höfðu orðið fyrri til að
kanna þaer í bifreiðum, eins og
nú( skal sýnt fram á. .
Fyrstu bílferðina í Herðubreið
arlindar, frá Reykjahlíð um
Grafarlönd, fór Ólafur Jonsson
á Akureyri, sumarið 1937. — Þeg
ar Ferðafélag Akureyrar, suróar
ið 1944, fór frá Svartárkoti i
Dyngjufjálladal, var ég kominn
á bíl mínum í Suðurárbotna á
undan ferðafélagshópnum, en
samdægurs, og leiðbeindi honum
síðan yfir Ódáðahraun að Dyngju
fjöllum, án þess að vera beinn
þátttakandi í leiðangri F. F. /V.,
eða undir ferðastjórn Þorsteins
Þorsteinssonar gefinn. Skyldu
þar leiðir. Keyrði ég daginn eftir
suður fyrir Dyngjufjöll og til
baka aftur.
Sumarið 1945 fór ég svo frá
Grænavatni um Suðurárbotna, Ö
dáðahraun, suður Dyngjufjajla-
dal að Dyngjuvatni og þaðan^ í
Herðubreiðarlindar og jdjr
Lindá. í sumar fór ferðafélagið
þessa leið og naut leiðsagpar
minnar frá Dyngjuvatni í Lipd-
arnar. 30
Fyrsta ferðin á bíl, frá Suðhr-
landi til Norðurlands um Sprengi
sand, var farin af Sigurði hefiii-
um frá Laug og félögum hans,
fyrir um 10 árum siðan. Sumarið
1945 fór ég svo á bil, upp ,.úr
Bárðardal, um Sprengisand jOg
suður fyrir Fjórðungskvísl. , í
sömu viku fór Ferðafélag Akur
eyrar í Sprengisandsför upp j úr
Eyjafirði og komst að Fjórðupgs
kviísh 'Hittu þeir á mína slóð ,við
Fjórðiíngsöldu, fylgdu henni i áð
Fjórðlffigskvísl og til baká aftur
að Fjórðungsöldu, og siðan sömu
leið og ég hafði farið niður í
Bárðardal.
16. sept. 1946.
Páll Arason.