Þjóðviljinn - 16.11.1946, Síða 4
4
ÞJÓÐVILJINN
Laugardaáur 16. nóv. 1946-
þJÓÐVILJlNM
Otg-efandi: Sameiningarflokkur alþýðu — SósíalistaflokKurinn
Ritstjórar: Kristinn E. Ansirésson, Siguröur Guömundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjamason.
Ritstjórnarskrifst'ofur; Skólav örðust. 19. Símar 2270 og 7500
(eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavöröustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, simi 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskriftarverð; kr. 8.00 á mánuði. — Lausasölu 50 aurar
eint.
Prentsmiðja Þjóöviljans h. *.
> ______________________________________________J
MÍMiiiiag Jóiisfisar liallgriifis-
sonar
I dag fer fram á Þingvöllum athöfn einstæð í sögu þess
staðar og þessa lands. Uppgröftur úr dönskum kirkjugarði,
fúnar fjalir og ísaldarleir, sem þjóðminjavörður og þeir
þrjátíu og tveir virðast hafa samþykkt að séu jarðneskar
leifar Jónasar Hallgrímssonar, verða urðaðar þar í grafreit
Hriflu-Jónasar að viðstöddum nokkrum virðingarmönnum
og þeirra nótum, sem eru nógu brjóstheilir og óskammfeiln-
ir að geta tekið þátt í þessari óhugnanlegu greftrun. Aldrei
í sögu nokkurs lands mun minning slíks manns hafa verið
svo grátt leikin.
Greftrun, jarðsetning í annað sinn! Það er fáránlegt að
láta sér koma slík orð til hugar í sambandi við Jónas Hall-
grímsson, hvað þá heldur að fremja slíkan verknað í haus
heilaga nafni. Af öllum látnum stórmennum sem lifa með
þjóðinni á Jónas Hallgrímsson bjartastan ævidag, heiðan
vormorgun án kvölds í meir en hundrað ár, og svo mun
enn um ófyrirsjáanlegan tíma. Ungur og fagur og góður
lifir hann í hjörtum okkar allra sem unnum landi og þjóð
á eitthvað svipaðan hátt og hann. Nafn hans, líf hans og
verk er orðið það samofið öllu sem bezl er og sannast í fari
hvers íslenzks manns, að það verður ekki máð þaðan burt,
ekki urðað á meðan íslenzkt mál er talað í þessu landi. Ef
föðurlandslausum ógæfumönnum skyldi einhvern tíma tak-
ast að ganga frá okkur fyrir fullt og allt geta þeir borið
Jónas til grafar um leið, en fyrr ekki.
Minningu Jónasar Hallgrímssonar verður aldrei of mikill
sómi sýndur, og ef við vildum einnig heiðra grafreit skálds-
ins, sem lifir með okkur í sorg og gleði, var til þess beinn
vegur að gera það á einfaldan og virðulegan hátt. Það var
með því, að reisa á þeim stað þar sem hann var grafinn
endur fyrir löngu minnisvarða, sem stæði þar jafnt fyrir
því þótt garðinum væri breytt í almennan skemmtigarð.
Island er víðar en á íslandi, og engan stað myndum við hafa
átt í öllu ríkari mæli en þennan græna reit, sem er döggv-
aður svo viðkvæmri minningu. Hann hefði orðið helgistað-
ur okkar í hinni fornu höfuðborg landsins, og það er holt
að eiga sér helgan stað víðar en í sínu eigin landi.
En það tjáir lítið að tala um það sem hefði getað verið
og átt hefði að gera. Ógæfa Islands, sem vann á Jónasi
fyrir aldur fram, vildi þetta öðruvísi. Nokkrir landsölumenn
og kuklarar tóku höndum saman, röskuðu grafarró skálds-
ins og fluttu hingað heim eitthvað sém ekki er með öllu
hægt að synja fyrir að lcunni að geyma leifar af jarðnesk-
um leifum hans. Og síðan upphófst skrípaleikurinn mikli
með þeim endemum sem öllum eru í fersku minni og ekki
verður hægt að komast hjá að skýra frá í hverjum barna-
skóla landsins upp frá þessu. í dag verður lokaþátturinn
leikinn á Þingvöllum.
íslenzka þjóðin drúpir lostin blygðun og kvöl. Það er lík-
ara martröð en veruleika að fáir menn skuli geta unnið
þannig á sóma heillar þjóðar og bakað henni út á við þann
álitshnekki, sém við eigum enn eftir að súpa af seiðið. Hún
hugsar þessum mönnum þegjandi þörfina, og eigi þeir ekki
eftir að fá sinn dóm er ekki allt með felldu. En ef Jónas er
þess sjálfur umkominn að fylgjast með því sem hefur gerzt,
mun hann að vísu roðna með okkur af harmi og gremju
yfir því hve báglega tókst enn með forustuna, en hinn mikli
húmoristi mun ekki geta varizt brosi er honum verður
hugsað um hrakför varmennanna, sem ætluðu að nota
KLÆÐIR SIG SAM-
KVÆMT VEÐUR-
FREGNUM
1
Maður nokkur, sem til
skamms tíma kveðst hafa klætt
sig á morgnana í samræmi við
það, hvernig tónninn hefur ver-
ið í veðurfregnunum, biður mig
að koma áleiðis fyrir sig um-
kvörtun um það, að nú skuli
veðurfregnum ekki lengur vera
útvarpað kl. 8,30, heldur sé það
dregið fram undir kl. 9.
En ástæðan til umkvartanar
hans er sú, að hann býr úti
á Seltjarnarnesi, vinnur niðri í
bæ og kemur ekki heim til sín
fyrr en á kvöldin. Þess vegna
segist hann þurfa að fá vit-
neskju um það strax á morgn-
ana, livort heldur hann á að
taka með sér vetrarfrakka eða
léttan rykfrakka, og þessa vit-
neskju hafði hann vanalega
fengið frá veðurfregnunum,
meðan þeim var útvarpað kl.
8,30. Eln þar eð hann er ávallt
lagður af stað til vinnur.nar
fyrir klukkan 9, þá hefur hann,
síðan útvarp á veðurfregnum
var fært aftur, lítil tök á að
búa sig á morgnana þeim
fra.kka, sem bezt hæfir væntan-
legu veðri dagsins. Það sé nefni
lega ómögulegt að reikna það
út upp á eigin spýtur, hvernig
veðrið verði þennan og þennan
daginn, svo breytilegt sem tío-
arfarið er hér um slóðir.
Enda þótt þessi maður tali
um máiið af nokkurri gaman-
semi, þá held ég samt að for-
ráðamenn útvarpsins ættu að
taka umkvörtun hans til at-
hugunar, því það kemur sér
vafalaust miklu betur fyrir
flesta, að veðurfregnum sé út-
varpað kl. 8,30 en ekki kl. 9
eins og nú mun vera.
SAMGÖNGUÖRÐUG-
LEIKAR Á
DIGR AN ESHÁLSI
Eg vonast fastlega til, að
að hlutaðeigandi forráðamenn
bæjarins taki eftirfarandi bréf
til vinsamlegrar athugar og'
geri hið bráðasta nauðsynlegar
ráðstafanir til að bæta úr því
ófremdarástandi, sem bréfrit-
arinn lýsir. Eftir því sem ég
bezt veit, er það Einar Pálsson,
verkfræðingur, sem helzt mundi
hafa aðstöðu til að verða við
óskum bréfritarans. Og hér er
svo bréfið:
„Við, sem búum suður á
Digraneshálsi, erum alveg í
vandræðum með að komast til
vinnu okkar í bænum, vegna
þcirra slæmu, allt að því frum-
stæðu, samgönguskilyrða, sem
okkur eru ætluð.
EKKI LENGUR „JÖRÐ
TIL AÐ GANGA Á“
„Frá Hafnarfjarðarveginum
að austanverðu í Fossvogi ligg-
ur Nýbýlavegur í austur og
Kársnesbraut í vestur, en hún
mun vera beint framhald af
Nýbýlaveginum og liggur alla
leið vestur að sjó. Þetta mun
vera sá vegur, sem mest er
notaður á hálsinum fyrir vest-
an Hafnarfjarðarveg. Við, er
búum við Borgarholtsveg —
sem enginn veit hvenær kemur
í notkun.— verðum að ganga
yfir annarra manna lönd og
klöngrast yfir girðingar til að
komast leiðar okkar. Og þegar
eigendur lóðanna banna manni
að fara þessar leiðir —- en til
þess hafa þeir fulla heimild —
þá veit ég bara ekki, hvernig
maður á að komast heim til
sín, úr því maður hefur ekki
lengur „jörð til að ganga á.“
TRASSASKAPUR
„Annars er það nú Kársnes-
brautip, sem ég ætla helzt að
gera að umtalsefni. Sá vegur
er nú orðinn svo illfær, að hann
er varla fyrir gangandi fólk,
hvað þá heldur fyrir vélknúin
farartæki. Eftir þá miklu rign-
ingatíð, sem búin er að vera
undanfarið, er vegurinn alveg
að eyðileggjast.
Eg geri ráð fyrir, að vegur
þessi hafi kostað þó nokkra
fjárupphæð, og því er mér
spurn: Hefur ríkið eða hrepp-
urinn efni á að láta veg eins og
þennan — mér er óhætt að
segja f jölfarna veg — eyðileggj
ast fyrir trassaskap?
UMBÆTUR
„Það, sem þyrfti að gera, og
það nú strax, væri að leggja
holræsi, þar sem tjarnir mynd-
ast fyrir ofan veginn, því víða
eru stórir pollar og tjarnir á
góðri leið með að grafa hann
sundur. Síðan þyrfti að keyra
á hann ofaníburð og hefla
hann loks, þegar þörf krefur.
Þetta eru aðeins vinsamleg
tilmæli til þeirra, sem þessi mál
heyra undir, frá fólkinu, sem
býr á þessum slóðum, og er oft-
ast í standandi vandræðum
með að komast til og frá vinnu-
stað sínum, sem oft er æði langt
í burtu.
Einn á Digraneshálsinum."
Fiéiiileikiir Tworeks
í Gamia Bíó síðasfiL mánudag
Það gerist nú skammt
góðra hljómleika á milli- —
Síðastl. mánudag lék hér
danski fiðlarinn Wandy
Tvorek með aðstoð Ester
Vagning píanóleikara.
Leikur Tworeks er mjög
fágaður. Tónn hans er ekki
mikil og örugg. Einna sízt
Tæknin er með afbrigðum
mikill og örugg. Einna sízt
naut sín Kreutzer-sónata
Beethovens. Skorti þar nokk-
uð á, að náð væri þeirri dýpt
og festu. sem slíkt verk gerir
kröfur til. Þó ber þess að
gæta, að þetta er ekki verk
fyrir fiðlu með píanóundir-
leik, heldur sónata fyrir fiðlu
og píanó, þar sem bæði hljóð
færin eru jafn rétthá- Píanó-
leikurinn var of daufur og
hefði flygillinn að sjálfsögðu
þurft að vera opinn. Hinsveg
ar naut kansert Tsjajkowskis
sín vel og var hið vandasama
hlutverk píanóleikarans mjög
vel af hendi leyst. — Siðasta
verkið, Introduction et Rondo
Capricciaso eftir Saint-
Saáns var sérlega vel leikið
og tókst Tworek vel að laða
fram þá töfra sem þetta verk
býr yfir.
Einleikur Vagning var
mjög athyglisverður. Hún býr
í senn yfir miklum þrótti og
mýkt, góðu stílskyni og
næmri innsýn í tónverkið. —
Einkum gazt mér vel að leik
hennar í Chaconne Handels-
Undirtektir voru ágætar og
lék Tworek að lokum auka-
lag, álfadansinn eftir Bazzini,
af slíkri leikni, sem virtúos-
um einum er auðið; var sem
gneistar hrytu af strengjum
fiðlunnar.
Iiljómleikar þessir voru
mjög ánægjulegir og lista-
mönnunum báðum til sóma.
G. M.
minningu hans sér til framdráttar, en hlutu í staðinn háð-
ung og fyrirlitningu. Og hann mun segja við sína meðbræð-
ur eins og í bréfinu um ferðina til Salthólms forðum: þetta
er undaríeg sjóferð, piltar góðir.
Jónas Hallgrímsson er okkur hjartfólgnari í dag en
nokkru sinni fyrr. Og við ódauðlegt nafn hans strengjum
við þess heit að standa órjúfandi vörð um allt, sem hann
hefur kennt okkur að unna, land okkar, tungu og sjálfstæði,
svo að atvik þessu lík geti aldrei dunið yfir okkur aftur.
Ilvers vegiaa
hefur Alhanía
missÉ virMiagu
vesÉurveld-
amia?
Fyrir tveim vikum birtu blöð
in í Albaniu bréf það, sem for-
| sætisráðherra landsins, Enver
Hodjas, ritaði Tryggve Lie varð
andi beiðni Albaníu um upp-
töku í sameinuðu þjóðirnar.
Blaðið „Basjkimi“ segir, að
bréfið túlki þjóðarviljann. Út-
varpið í Tirana leggur áherzlu
á, að andstaða ákveðinna stór-
velda gegn upptöku Albaníu í
sameinuðu þjóðirnar sé alger-
lega ástæðulaus og geti ekki
réttlætzt á neinum hlutlausum
grundvelli. Tímaritið „Lupet-
are“ minnir á ummæli enskra
og bandarískra stjórnmála-
manna á stríðsárunum um
„hina hugrökku Albani" og
spyr: „Hvers vegna hefur Al-
banía nú allt í einu misst fyrri
virðingu hjá samherjum sín-
um“?