Þjóðviljinn - 16.11.1946, Side 8
Borgey hafði tilskilínn styrkleika - en sennilegt
að skipið Eiafi farizt vegna „ofhleðslu, vanhieðslu og
osjoliæmi
Skipaskoðunarstjóri segir frá athugun
Borgey ja rsly sinu
á
Skýrsla Ólafs Sveinssonar skipaskoðunarstjóra um at-
hugun á Borgeyjarslysinu liggur nú fyrir. Telur hann að
ekkert verði fullyrt um orsök slyssins, „en margt virðist
benda til þess að slysið stafi bæði af ofhleðslu, vanhleðslu
og ósjóhæfni til samans.“ Skipið brotnaði við framenda
lestarops, næstum því um þvert. Kjölurinn fór sundur um
samskeyti en súðin og meginþiljur þverbrotnuðu yií5 band.
Við skoðun á flakinu kom í Ijós, að skipið hafði haft til-
skilinn styrkleika og er því álit skoðunarmanna að það hafi
ekki farizt vegna þess að það væri of veikbyggt.
fer hér á eftir skýrsla Ólafs Sveinssonar skipaskoð-
unarstjóra um athuguu á slysinu:
„Ollum er í fersku minni þá
er fregn barst um að mótorskip
ið „Borgey“ S.F.-57 hafi farist
hinn 5. nóvember um morgun-
inn, skammt frá Hornafjarðar-
ós.
Hinn 7. nóvember um kvöldið
hringir hr. sýslumaður, Gísli
Sveinsson til mín og segir mér
þá fregn frá Hornafirði að rek-
inn sé framhluti úr skipinu
„Borgey" á svo kallaðri ,,Aust-
urfjöru“.
Skömmu síðar talaði ég við
hæstv. siglingamálaráðherra og
var strax ákveðið að ég skyldi
fara fljúgandi til Hornafjarðar
til rannsóknar á flakinu og öðr-
um atriðum slysinu viðvíkjandi
ef verða mætti til upplýsingar
á því, en vegna slæmra flugskil
yrða gat ekkert orðið úr förinni
Leikfélag
Halnarfjará-
ar sýnir
gamanleikinn „Hima
krakki"
Næstkomandi þriðjudag
hefur Leikfélag Hafnarfjarð-
ar frumsýningu á sjónleikn-
um .,Húrra krakki“, gaman-
leik í 3 þáttum eftir Arnold
oq Bach i þýðingu Emils
Thoroddsen.
Að þessu sinni hefur Leik-
félag Hafnarfjarðar fengið
sem gesti nokkra þjóðkunna
leikara frá Reykjavík og eru
það þau Áróra Halldórsdóttir,
Haraldur Á. Sigurðsson,
Regína Þórðardóttir og Wil-
helm Norðfjörð Aðrir leik-
endur verða frá Leikfélagi
Hafnarfjarðar: Ársæll Fáls-
son, Eiríkur Jóhannesson.
Guðrún Johannsdóttir. Herdís
Þorvaldsdóttir og Sveinn V.
Stef? rsson.
,,Hu.rra krakki“ er eirjihver
vinsælasti gamanleikur, sem
hér Lefur verið sýndur og er
trúlegt, að aðsókn að honum
verði mikil nú, þegar hann
er færður upp af Leikfélagi
Hafnarfjarðar.
fyrr en 11. nóvember.
Mér til aðstoðar í þessari ferð
smíðameistari og ennfremur var
hr. Jón Bergsveinsson, erindreki
Slysavarnafélagsins með í för-
inni.
í>að fyrsta, sem lá fyrir að at-
huga þegar austur kom, var
framhluti skipsins, sem rekið
hafði á svo kallaðar „Austur-
fjörur“.
Við höguðum
ar þannig:
Fyrst var flakið
athugun okk-
athugað og
Framh. á 7. síðu.
Sprengiefni
tapast
Kassi með sprengiefni tap-
aðist í gær á Skúlagötu, og
er ófundinn■
Kl. 2 í gær var verið að
flytja sprengiefni á bifreið
hr. Pétur Ottason, skipa- neðan írÁ höfn °g 1 ge^slu
við Skúlagötu. Féll þá ea. 25
■kg. kassi af bílnurn og var
hann strax hirtur.
Líklegt er að finnandinn
hafi ekki vitað hvað í kass-
anum var, og er því rétt að
biðja hann að fara varlega
með þennan feng sinn, og af-
henda hann lögreglunni sem
fyrst.
Stjóm Sjómaimaíélags Reykjavík-
ur óttast um „setulið" sitt
Alþýáuflokksforingjamir
móti öllitiBi breytingum
sem iiftiöa aó eflinn
Alþýöusanibandsins
I fyrradag voru fulltrúar 19. þings Alþýðusambandsins
gestir forseta íslands að Bessastöðum, og í fyrrakvöld sátu
þeir boð atvinnumáíaráðherra að Hótel Borg.
Á þingi Alþýðusambandsins í gær stóðu umræður um
j skipulagsmái og Iagabreytingar allan daginn frá kl. 2 og
langt fram á kvöld.
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur stóð fyrir málþófi
j þessu af ótta við að tapa „setuliði“ sínu í Sjómannafélaginu
i annars var meginregla minnihlutans að vera á móti öllum
j breytingum til bóta.
Aðaldeiluefnið var tillaga
um það að þegar félagsmaöar
í stéttarfélagi flyzt yfir í aðra
starfsgrein til langframa skuli
Ný bifreiðastöð
Hafnarfirði
Atvinnubílstjórar í Hafnar-
firði hafa stofnað samvinnu-
félag um rekstur bifreiða-
stöðvar. Var stöðin opnuð í
gær að Vesturgötu 6 í Hafn-
arfirði og nefnist Nýja bfla-
stöðin s-f. — 15 fólksbifreið
I ir eru hjá stöðinni. Verður
| hún opin daglega frá kl. 8
f. h. til kl- 12 á miðnætti, og
j lengur ef ástæða þykir til.
hann ganga í stéttarfélag þeirrar
starfsgreinar sem hann vinnur í
Gegn þessu sjálfsagða skipu-
lagsákvæði börðust stjórnarmeð
limir Sjómannafélags Reykjavík
ur af fádæma offorsi og notuðu
um andstæðinga sína mikinn
hluta hrakyrðaforða íslenzkrtr
tungu. Ástæðan til þessarar und
arlegu afstöðu er sú að menn
þessir eiga völd sín að þakka
hinu svokaliaða „setuliði“ sínu,
þ. e. mönnum sem árum saman
hafa ekki á sjó komið og ættu
því að vera í Dagsbrún.
Annars var það meginregla
minnihlutans að vera á móti
Framhald af 3. síöu.
Pingiulitrúm• Alþ&jðu-
samhanéts Islands
mótmœla altir
Hér fer á eftir móímælaályktun sú er 19. þing
Alþýðusambands íslands samþykkti einróma gegn
frumvarpi Jóhanns Hafstein um hlutfallskosningar
í verkalýðsfélögum.
„19. þing Alþýðusambands íslands mótmælir
eindregið frumvarpi Jóhanns Hafstein um breyt-
ingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, þar
sem lagt er til, að lögfestar verði hlatfallskosningar
í stéttarfélögum og skorar á Alþingi að fella það.
Þingið lítur á frumvarp þetta sem árás á félaga-
frelsið í landinu og óskammfeilna tilraun til þess
að skerða óumdeilanlegan rétt verkalýðsfélaganna
og annarra samtaka til að ráða sínum innri máhim,
árás, sem ekki mun eiga sér neina hliðstæðu í lýð-
frjálsu landi.
Þingið lítur svo á, að slík lagasetning myndi
beinlínis lögfesta pólitíska sundrungu innan sam-
takanna, verða stöðng uppspretta ófriðar meðal
verkamanna og verða lamandi á alla starfsemi verk-
lýðsfélaganna, en gera lýðræðið að skrípamynd. Þaðt
myndi leiða til þess að trúnaðarmenn verkalýðssam-
takanna yrðu ekki kosnir eftir starfi sínu í þágu
þeirra, heldur eftir stjómmálaskoðunum, það myndi
löghelga þeim afskipti stjórnmálaflokka af innri
máiefnum verkalýðssamtaltanna, skerða þar með
sjálfstaóði þeirra og gera þau að leiksoppi stjórn-
málaflokka í stað þess að vera óskoruð hagsmuna-
vígi meðlimanna.
Þingið vill vekja sérstaka athygli allra laun-
þega á þvl að tillagan um að lögfesta stjórnmála-
erjur í verkalýðssamtökunum er um leið lævísleg
tilraun til að dreifa athygli verkafólksins frá hags-
munabaráttunni sem krefst samstilltrar einingar
alls verkalýðs.
Þingið álítur, að þau f jögur ár, sem liðin eru
síðan Alþýðusambandið varð skipulagslega sjálf-
stætt, hafi sannað, að verkalýðssamtökin eru þá
sterkust, þegar þau eru sjálfstæð.
Þingið álítur því, að í stað þess að liða verka-
lýðssamtökin í sundur með pólitískum hlutfalls-
kosningum og ónýta þannig árangurinn af hálfrar
aklar erfiði íslenzkra verkamanna og verkakvenna,
þurfi verkalýður alls landsins að rísa upp til varnar
samtökum sínum og vernda sjálfstæði þeirra sem
einn maður, þannig að meðlimirnir ráði einir sam-
tökum sínum.
Þingið álítur, að baráttan gegn pólitískum lilut-
fallskosningum og ófriði í verkalýðshreyfingunni
sé barátta um sjálfa tilveru og sjálfstæði verkalýðs-
samtakanna í landinu og skorar því á verkafólk um
land allt að fylkja sér einhuga um Alþýðusamband
fsiands, vernda sjálfstæði þess og einingu og efla
bróðurlegt samstarf verkafólks, livar í flokki sem
það stendur.“
Maður fófbrotnar
I fyrradag rákust mótor-
hjól og bifreið saman á gatna
mótum Melavegar og Hring-
brautar. Hjólreiðamaðurinn
fótbrotnaði við áreksturinn-
Þetta var Stefán Sigurðs-
son kennari, til heimilis að
Smólöndum við Grafarholt.
Var hann fluttur á Landspit-
alann.
Vaxlabrófii-
salan
Sala vaxtabréfa stofnlánadeild
arinnar fer minnkandi dag frá
degi. í gær var sala þeirra SP
þús. kr. í Reykjavík og Hafnar-
firði. — Verður ;,þjóðhollustu“
peningamannanna varla við-
brugðið, ef þessu fer fram til
lengdar.