Þjóðviljinn - 19.11.1946, Qupperneq 3
Þriðjudagur 19- nóv. 1946
ÞJÖÐVILJINN
3
Á laugardags
kvöldið var
leikið leikrit 1
eftir prófaistinn
í Suðurmúla-
prófastsdæmi,
Nýja túrbínan.
Það fjallaði um
mann sem neitaði að láta setja
upp hjá sér rafmagnsmæli, vegna
þess að hann vildi fá að stela
rafmagni og nola stálvír í stað-
inn fyrir lögboðin öryggi. Maðnr
þessi var að sjálfsögðu kommún-
isti og fór illa orðum um Jónas
frá Hriflu. Auk þess var hann
geðvondur og illorður í bezta
lagi, enda þótt eiginkona hans
væri enn<þá geðverri og illorðari
Leikritið var samt-vinnað af fúk
yrðum, bölvi og ragni, og ég
hygg að prófasturinn í Suður-
múlaprófastsdæmi hafi sett
heimsmet í notkun slíkra kjarn-
yrða með þessu leikriti. Að lok
um féll allt í ljúfa löð þegar
einhver hefðarkvinna kom og gaf
hjónunum tuttugu og fimm krón
ur í gallhörðum peningum. —
Það er fjarri mér að halda því
fram að þetta hafi verið versta
leikrit sem útvarpið hefur flutt,
enda væri þá langt gengið í hörð
um dómi, en víst er um það að
útvarpsráð ætti ekki að leggjast
svo lágt í leikritasnöpum sínum
að það láti flytja hvern þann
óskapnað sem því berst.
Að öðru leyti var dagskrá vik,
unnar mjög svo heiðarleg og
sómasamleg. Kristján Eidjárn
flutti fróðlegt erindi um silfur-
fundinn í Gaulverjabæ. Vilhjálm
ur Þ. Gíslason sagði skemmti-
lega frá viðtali við Ásgrím Jóns
son. Inga Lárusdóttir flutti vel
samið erindi um lífsviðhorf
Selmu Lagerlöf, og Haraldur
Björnsson sagði frá ferðalagi
sínu til Norðurlanda, en var svo
fljótmæltur að hlustendur urðu
að hafa sig alla við til að skilja
hann.
Að lokum má geta þess að
einn hinna þrjátíu og tveggja,
Sigurður Bjarnason, talaði af
miklum fjálgleik um sjálfstæði
landsins í þættinum „U;m dag-
inn og veginn“, líkt og hann
hefði ekkert aðhafzt síðan hann
flutti hina ágætu ræðu s-ína 1
des. 1945. Og á laugardag var
útvarpað frá Þingvöllumj þar
sem „tröllskuggar smámenna"
voru á reiki kringum „jarðnesk
ar leifar" Jónasar Hallgrímsson-
ar. Lengi vel heyrðist ekkert frá!
Þingvöllum nema ferleg qhljóð
og það má mikið vera eí par
hefur ekki verið einhver andi að
verki sem hefur viljað forða rík-
isútvarpinu frá smán, svo mjög
sem íbúar annars heims eru
sagðir hafa verið við þetta öm-
urlega hneykslismál riðnir.
M. K.
ÍÞRÓTTIR
Ritstjóri: FXÍMANN HELGASON
Tveir Sigurðar Jónssynir
Þeir, sem fylgjast með
sundkeppnum sem fara fram
hér í Reykjavík munu hafa
veitt því athygli að tveir
alnafnar koma þar oft við
sögu, ýmist sem sigurvegar
ar eða methafar. Þessir al-
nafnar eru Sigurður Jónsson
úr K. R. og Sigurður Jóns-
sem haldin eru hér í Reykja-
vík, má alltaf sjá einn Þing-
eying, hann heitir Sigurður
Jónsson. Hann dvelur hér
langdvölum við vinnu, sem
engu breytir um það, að hann
i vill kenna sig og sfn sund-
afrek við heimabyggð sína.
Það er meira en sagt verður
son, Þingeyingur, eins og(um þá menn sem til bæjar-
hann er oft nefndur til að-
greiningar. Það, að vera góð
ur sundmaður, sigursæll og
metihafi er skemmtilegt, og
það verðskuldar sannarlega
að því sé á lofti haldið til
bvatningar öðrum og heiðurs
þeim er afrek vinna.
En þessir tveir- menn hafa
sýnt að þeir hafa fleira til
síns ágætis en það, og einmitt
ekki síður á því sviði gefa
fagurt fordæmi. Sigurður
Jónsson, K- R. kemur hér
fyrst við okkar sundsögu, —
hann er strax kominn i
fremstu röð bringusunds-
manna okkar, og líður ekki á
löngu þar til að því kemur
að hann fer að slá gömlu met
in, og gerist ósigrandi í
keppni. Timinn láður; Sigurð
ur stundar íþróttina af kost
gæfni og áhuga. Einn góðan
veðurdag kom hingað til bæj
arins ungur, þreklegur og
gæðalegur piltur norðan af
landi og fór að taka þátt í
keppni hér. Hann hét líka
Sigurður Jónsson. Það kom
brátt í ljós að þarna var
skæður keppinautur fvrir
Sigurð úr K. R. og þar kem-
ur að hann verður við og við
að lúta í lægra haldi og síð
an fer þessi nýi Sigurður að
slá met nafna síns.
Eins og hugsun flestra ,er
nú til íþróttaiðkana, hefðu,
er mér næst að halda, allir
hætt þegar þeir hefðu séð
hvert stefndi með sigrana
og metin- En Sigurður var
trúr íþrótt sinni, hélt áfram
að æfa og keppa sér til gagns
og gamans, og það er hann
sem er stöðugt að bæta sinn
persónulega árangur.,— Fyrir
þetta á Sigurður þakkir og
heiður. Hann hefur með
þessu gefið fordæmi og undir
strikað það að íþróttamenn
eiga ekki að miða þátttöku
sína við sigra og met, og tak
því, þá að leggja árar í bát
á bezta aldri. Þá eru íþrótt-
irnar ekki iðkaðar af innrif-
þörf, en það er líf þeirra.
Á sundskrá þeirra móta,
ins koma og eru vel íþróttum
búnir. Þeir liggja flatir fyrir
bónorðum félaganna hér, að
keppa fyrir þau- Haldnir
meira og minna þeim hégóma
skap, að það sé fínna og
meira í munni að keppa fyrir
þau, en það hérað sem þeir
eru frá og uppaldir í. Með
þessari tryggð við hérað sitt,
hefur Sigurður Þingeyingur' þakkir skyldar.
gefið það fordæmi sem allir
utanbæjarmenn sem hingað
koma, ættu að veita athygli.
Áhrif þess mundu, heima í
félaginu, sem þeir koma frá
og í héraðinu, verða marg-
föld móti því ef þeir hverfa
í fjölda félaganna hér. — Þau
eiga líka að gera eins og Ár-
mann mun hafa gert við Sig
urð, að lána þeim kennara
sína ef þeir óska (Sig. hefur
notið Þorst. Hjálmarssonar)
án þess að krefjast neins
nema æfingargjalds.
Sigurður þorði að standa
einn. Til þess þarf hetjulund
þó baráttan sé ekki um líf
eða dauða- Þess vegna er ekk
ert að óttast, en það eflir fest
una í honum sjálfum og
trúna á starfið heima í sveit-
inni. — Fyrir þetta á hann
Frá TÍsssiiÞskri knattspyrnu
Það þótti tíðindum sæta í
„cup“ keppninni rússnesku,
þegar bæði félögin, Dynamo-
Moskva og Z. D. K. A., töp-
uðu í ,,kvart“-,úrslitum. —
Z. D. K. A. hafði þó orðið
sigurvegari í ár í ,,Liega“-
keppninni, en tapaði þessum
leik fyrir Torpedo með 4:0
Dynamo tapaði einnig 2:1 fyr
ir Dynamo-Tbilisi. í úrslitum
mættust svo sigurvegararnir
úr þessum tveim leikjum og
sigraði Torpedo. Fór sá leik
ur fram á Dynamoleikvellin
um í Moskva.
Dynamo fékk ekki að
keppa í Noregi
Eins og sagt hefur verið
hér á Íþróttasíðunni, stóð til
að Dynamo færi í lok okt.
til Noregs og keppti þar
nokkra leiki. Var mikil eftir
vænting í Noregi að sjá jafn
áeæta leikmenn og hér er um
að ræða. En hvað skeður? —
Norðmenn neyðast til að aft
kennileg, ekki sízt vegna
þess að undanfarin nær 20 ár
hafði enska abvinnumanna-
sambandið ekki verið í
F.I.F.A., en öll lönd heims
fengið óátalið að keppa við
flokka frá því sambandi- Af
einhverjum ástæðum hefur
enska atvinnumannasam-
bandið gengið aftur í F.I.F.A.
nú nýlega. Ríkir víða nokkur
spenningur um það, hvort
þetta bann F.I.F-A. verði yfir
leitt tekið alvarlega, og
hvort ekki verði litið á það
sem þvingunarráðstöfun gegn
Rússum sem verði til þess að
seinka því enn meir að þeir
gangi í F.I.F.A. Því þeir telia
sis geta framvegis eins og
hingað til þroskað íþróttalíf
sitt án samgangs við aðrar
íþróttaþjóðir.
21 met sett í meistara-
keppni Rússa
Fyrir nokkru er lokið
meistarakeppni í frjálsum í-
urkalla boðið vegna þess að þróttum í Sovétríkjunum, og
F-I.F.A. hafi lagt bann við
að knattspyrnumenn innan
vébanda alþjóðasambandsins
kepptu við flokka, sem væru
frá löndum sem ekki eru í
F.I.F.A. Rússar eru, sem
kunnugt er ekki enn komnir
í nein alþjóðasambönd um
•íþróttir, og eru fyrst nú eft-
;ir stríðið farnir að koma fram
ist ekki að ná þvi eða halda [erlendis með íþróttamenn
ísína, frá því á keisai'atímun-
um-
Þessi ákvörðun F.I.F-A.
hefur vakið mikla athygli og
blaðaskrif. Virðist hún ein-
varð árangur þar mjög góð-
ur. Voru t. d. sett 21 met. —
SJleggju kastaði Alexander
Sjeohtel 54.64 m., sem er 17
om. lengra en hans éldra
met.
Sesjenova vann 200 m. á
24.9 sek, nýtt met.
Tutjana vann hástökk
■kvenna, stökk 1-63 m. og vann
einnig fimmtariþrautina með
4.476 stigum.
Karakulov, EM-meistarinn
á 200 m., vann 100 m. hlaup
á 10.6 sek., Hino Lipp vann
kúlmmrpið á 15.68 m-
i
Ör>borgTnnl
Næturlæknir er í læknavarð
stofunni, Austurbæjarskólanum
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
Næturvörður er í lyf jabúðinni
Iðunn, sími 7911.
Útvarpið í dag:
18.25 Veðurfregnir.
20,30 Erindi: Um skattamál hjóna
(frú Signíður Jónsdóttir Magn-
ússon).
20,55 Tónleikar: Fiðlusónata í r-
moll eftir Grieg (plötur).
21.20 íslenzkir nútimahöfundar:
Guðm. G. Hagalín les úr skáld-
ritum sínum.
21.45 Tónleikar: Kirkjutónlist
I (plötur).
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur
frumsýningu á gamanleiknum
„Húrra krakki" í dag kl.
8 síðd. Hefur blaðið verið beðið
að vekja abhygli á, að félagið
hefur enga fasta áskrifendur að
aðgöngumiðum á frumsýningar
né aðrar. Aðgöngumiðar á frum
sýninguna eru því seldir hverj-
um sem er meðan þeir endast.
Farþegar
með e.s. „Brúarfoss“ frá Kaup-
mannahöfn til Reykjavíkur 17
11. ’46.
Frú E. Jósefsson frk. Jósefsson,
frú R. Christensen, frk. Dorins
Lansen, hr. Leo Lyiberg, frk. Aase
Holmer, hr. Baldur Möller, hr.
Th. Seh. Thorsteinsson, hr. Ásgr.
Stefánsson, hr. Björn Jóhannes-
son, hr. Guðm. Larsen, hr. Jón
Ragnar Jónsson, frú Guðrún
Haralz, frk. Guðlaug Björnsson
frú Anna V. Kristensen, frá
Jenny Forberg, hr. Ole B. Thom
sen, frú Gróa Kristjánsson, hr.
Gfeli Kristjánsson, hr. Lárus
Bjarnason, hr. Axel F. Matthí-
asson, hr. Edwin Ámason, hr.
Höskuldur Steinsson, hr. AJfred
Hansen, hr. Anders Jensen, hr.
Knud E. Petersen, frk, E. Ras-
mussen, frú Ebba Svarter með
son 4 ára og dóttur 2 ára.
Skipafréttir.
Brúarfoss kom til Reykjavíkur
17. 11. frá Kaupmannahöfn. Lag
arfoss fór frá Gautaborg á mið-
nætti 14. 11. til Reykjavákur.
Selfoss fór frá Leith 15. 11. til
Reykjavíkur. Fjallfoss kom til
Reykjavíkur 14. 11. frá Hull, fer
20. 11. vestur og norður. Reykja-
foss fór frá Reykjavik í gærkvöld
18. 11. til Hamborgar. Salmon
Knot kom til New York 11. 11.
frá Reykjavik. True Knot vænt-
anlegur til Reykjavikur í kvöld
19. 11. frá Halifax. Becket Hitch
hleður í New York síðari hluta
nóvember. Anne fór frá Leith
15. 11. til Fredriksverk. Lech fór
frá Reykjavík 16. 11. til Leith
Lublin hleður í Antwerpen um
20. nóvemiber. Horsa kom til
Leith 16. 11.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
hefur bazar að Röðli í dag kI
2. Eru þar margir góðir og gagn-
legir munir á boðstólum.