Þjóðviljinn - 14.03.1947, Side 6

Þjóðviljinn - 14.03.1947, Side 6
6 ÞJ OÐVILJINN Föstudagur 14. marz 1947, •M-H-H-H-H-H-H-H-I-H-I-I ■I-I"l"t'I"I I M I 'I "I 1 iM-M-H- Louis G. S. Mansfield: §vin notað soin sonn> I Þannig var það með Hitler XV. Af eigin reynslu vissi ég, að ekkert af þessu ;; gat hafa átt sér stað, þar eð þeir, sem brenndu Hkin, höfðu aðeins 180 lítra af benzíni til að fram- kvæma verkið. Þetta benzinmagn hefði heldur ekki nægt til að brenna holdið alveg burt, og því til sönnunar mætti beiida á þá staðreynd, að þar sem stór- brani hefur geysað og lík hafa legið í eldi tím- ;; uaum saman, er hold þeirra venjulega aðeins í brunnið að tiltölulega litlu leyti. Eina ráðið til að færa sönnur á réttmæti skoð- ana minna í eitt skipti fyrir öll, var að útvega 180 lítra af benzíni og tvö lík og útbúa síðan sérstaka líkbrcnnslu. Það var auðvelt að útvega benzínið en öðru máli var að gegna um líkin. Eg hóf nú víðtæka leit að einhverjum greftrana 4; umsjónarmanni, sem ekki væri alltof fastheldinn ;; við reglurnar, eða einhverjum öðrum manni, sem ;; kynni að geta útvegað mér lík og hefði fullan " i étt til að aflienda mér það.. Eg vissi, að gríðar- '.'. margir hópar flóttafólks voru á ráfi um Þýska- land, og ég taldi miklar líkur til að slíkt fólk •• mundi vera reiðubúið til að „finna“ lík fyrir mig, + ef fyrir það væri boðið nægilegt verð. Eítir langa og árangurslausa leit ákvað ég samt £ að miðla málum við sjálfan mig og sætta mig við 11 að nota svín, sem hafði nokkurn veginn sömu ý þyngd og Hitler — ca, 145 pund. Eg varð að leita fyrir mér á um 30 bóndabæj- £ um áður en mér tókst að finna mann, sem var 1 * fús til að selja mér slíkt svín. Þetta var gamall •• bóndi. Hann sagði: „Eg skal gera það, ef verðið ;• er nógu hátt“. Og hvílíkt verð! Um peninga var ;; varla að ræða. Hér skyldi greitt með vörum. Eftir " alllangt þjark milli seljenda og kaupanda, var + verðið ákveðið: Fjórar flöskur af viskí, þrjár flösk-!I ur af gin, 1000 sígarettur, átta súkkuiaðistykki, 4- fjögur sápustykki, og 400 mörk í reiðu fé. Þetta voru heil auðæfi í landi, þar sem hver viskíflaska ;; er seld á 1000 mörk. Eg bjó um svínið — vafði utan um það striga, sem átti að koma í stað hermannateppisins, sem Hitier kvað hafa verið vafinn í — og helti yfir það benzíninu. Síðan gerði ég benzíni vætta rák eftir jörðinni og kveikti í. Það virtist líða óratími, þangað til eldurinn liafói náð frá öðrum endanum til hins. En þegar hann loks var kominn að svíninu, heyrðíst $ „hussjj“ og eldblossar og reykjamökkur þeyttust •• J upp í loftið. Þótt undarlegt megi virðast, varð þarna engin If sprenging, eins og ég hafði þó búizt við. Bálið '■ • var heldur ekki eins mikið og ég hafði búizt við. Meðan ég stóð þarna og horfði í bálið, fékk ég fulla vissu fyrir því, að tilgáta mín hafði frá upp- í hafi verið rétt. Svínið eyddist ekki í eldinum, enda ; ] þótt miklu meiri feiti væri í því en mannlegum I! líkama og það hlyti því að brenna miklu fyrr en - • mannlegur iíkami. Með þessari tilraun var fengin •*• J sönnunin fyrir því, að frásögn sjónarvotta um að ;; lík Hitlers og Evu Braun hefðu eyðzt með öllu í " 1 eldin-om, var helber uppspuni. Það gat ekki hafa verið um að ræða meiri bruna en þann, er nægt hefði til að skemma líkin svo S mikið, að þau hefðu verið óþekkjanleg við fyrstu •• sýn. Eg var alveg viss um, að ef þarna Var yfirleitt £ um nokkur Hk að ræða, þá hlutu þau að hafa ver- 4- ið að mestu leyti óskemmd eftir bálið. rf-H-t-H-H-H-5-H-I-I-H-í-!-J-H-!-H-f”b-H-I~t-H-t-H-4-!.-i-H - |llllll<!>l!l!!!l!!llllllllli!!IIIIIIIII!!!!!!ll!lllllll]lllllllllllllll!!l!!!llllllllll!lllllllllll!l!lllllll!lll!lllll!ll!lllll!ll|| 1 15. dagur | Slll!lllllllllll!llllil!!llllllllll)lll!!ll!!llllllllllllllll!lll!!lllllllll!llllllllll!!!llllllllll!llli!!lll!llll!í!!!l!l!IHIIIlÍS DULHEIHAR 0 , Eltir Pliyllis Bottewtte Jane sótti viskíið og hellti í glas hjá Alec, en hún tók ekkert sjálf. Hún vildi ekki, að nýi yfirlæknirinn dæi, og hún var einkennilega óánægð yfir að hafa látið Sally taka ákvörðun fyrir þau bæði. Hún sá, hvað mikið vit var í þessu hjá Sally. Hún fann að það var stolt hennar sjálfrar, sem legið hafði á bak við. Alec mundi sætta sig betur við að sitja kyrr undir stjórn nýja yfirlæknisins, eftir að hann hafði gert þennan beau geste — en hún sjálf — var hún ánægð með að þiggja — í staðinn fyrir að gefa? Var hún á hnotskóg eftir beau geste, eins og iífið væri áhættuspil, þar sem hægt væri að vinna sið- ferðilega fullnægingu eins og gróðavinning. Og hvað mundi dr. Drummond halda um hana. Mundi hann sjá, að hún hefði gert þetta til að aftra Alec frá að segja upp, eða mundi hann halda, að hún hefði fórnað rétti göfuglynös vinar til að láta sér sjálfri farnast sem bezt. VI. kafli Jane slökkti ljósið og lagði höfuðið á koddann. En hún bjóst ekki við, að þessi heilbrigðisráðstöfun mundi verða sér til mikils gagns. Hún var glaðvakandi. Fyrst kom sjúkrahúsið.og skyldur þess upp í huga hennar. Hún gat tekið létt áhyggjunum af því — þau vandamál, sem hún hafði leyst í dag, gat hún einnig leyst á morgun; eða hægt var að láta þau ráðast eins og andinn inngaf manni. Hina sívaxandi hnýsni starfsliðsins var ekki eins auðvelt að losna við. Hún sótti aftur og aftur á hinn þreytta lieila hennar. Yfirlög'ð ókurteisi yfirhjúkr- unarkonunnar; kjánaleg og óhlýðpisleg framkoma tveggja .aðstoðarlækna, sem þóttust vera ánægðir með yfirlæknisskiptin, en voru það ekki, allt þvaðrið í þjónustustúlkunum um útlit nýja yfirlæknisins; þær höfðu að vísu varazt að segjá nokkuð við Jane, en hún hafði séð þao í hiiiu öra augnaráði þeirra. Hjarta hennar barðist hart og þunglamalega. Hún sá Alec og Sally fyrir sér, brá upp myndum af lífi þeirra, og sínu eigin. Hún rif jaði upp atvikið, þegar Sally kom með blómin — og var byrjuð á heilabrot- um. Mikið varð Jane að vera varkár, ef Sally ætl- aði að fara að verða tortryggin; og hve Alec mundi alltaf hafa lokuð augun fyrir því, þó að Sally yrði með einhver heilabrot. Fyrsta flokks sálsýkislæknir í starfi sínu en glámskyggn á það, sem snerti hans eigið hjarta. Svo rann allt saman í huga hennar, án þess að Jane yrði hóti syf jaðri. Áður en hún vissi af starði hún inn í myrkviði lífsins. Liðnu árin hurfu inn í myrkur gleymskunnar, eins og snjóflygsur falla án stefnu eða tilgangs. Bernskan ein hélt áfram að lifa í huganum ljós eins og dagur, líkt og landshluti, sem stormurinn hefur ekki herjað. Hún minntist föður síns, sem hafði hæfileika og venjur stéttar sinnar, og hið algerlega dulda, nærri niðurbælda sálarlíf hennar. — Líkamsþrek hans var óbugandi og erfðu öll börn hans það í ríkum mæli Það liefði verið þeirn óskiljanlegt að óttast einhvern hlut. Hann hafði veriö snillingur í því að skjóta kan- ínur og Jane mundi, að hann hafði kennt henni þessa íþrótt. En það var samt sem áður ekki það, sem hafði verið orsök þess, að hana langaði til að verða læknir. Það var seinna sem hún fór að hugsa alvarlega út í tilveruna. Það var móðir hennar sem vildi að Jane gengi menntaveginn, eins og bræður hennar. Enginn í fjöldskyldunni hafði verið á þess- ari skoðun með henni, en af því að móðir hennar hafði svolitlar aukatekjur gat hún látið þessa jafnréttishugmynd sína rætast, og Jane hafði verið sett til mennta og fengið að búa sig undir það lífs- starf, sem hún hafði valið sér af brennandi áhuga. Henni tókst næstum að standa bræðrum sínum á sporði í hverju sem var. Hún lærði að fara með hesta, fór á dýraveiðar, í fjallgöngur, skylmaði og synti, en hún hafði ekki fengið að deyja með þeim. Yngsti bróðir hennar var þremur árum eldri en hún. Hann hafðf fallið fyrsta yeturinn í Festubert. Annar fórst í -kafbátahernaði og Bertram, sem var elztur og Janediafoi mesta ást á, hafði dauðinn einn- ig hrifsað. Fo'reldrar hennar lifðu ekki lengi eftir það. Sorgin lamáði þau, og eftir eitt eða tvö ár voru þau horfin í burtu. Heimiiið komst í hendur á fjar- lægum ættingja, sem þurrkaði upp tjörnina í garð- inum, hjó niður hin tignarlegu beykitré og opnaði grænmetissölu á hinum silfurmjúku grænu grasflöt- um. Jane hafði ekki þurft að fara þangað aftur og hún hugsaði mjög sjaldan um æskustöðvar sínar, nema þegar hún sá limagarð með blómum. En það var ekki ástæða til að láta þetta buga sig Hún var ung-og hraust og betur stödd en flestir aðrir, sem höfðu eins og hún sjálf séð örugga til- veru hrynja í hraðri viðburðarásinni. Móðursystir hennar hafði verið henni góð og fjögur hundruð pund á ári hafði hún til að fifa af. Hún hélt því óhindruð áfram námi sínu, og sagði við sjálfa sig, að Bertram mundi því aðeins halda á- fram að lifa, að hún gerði það, sem liann mundi hafa ætiazt til af henni. Ást hennar á þessum bróð- ur hafði aldrei verið alger undirgefni, en komizt hættulega nálægt því. Ef honum hafði fundizt Jane BARNASAGA Vinir W*éturs iiíla seg§a KolamolarrJr. „Dimmra var það, þar sem ég var í gamla daga”, sagði hinn. „Hvaðan ert þú upprunnin?" „Neðan úr jörðunni, bróðir sæll. Eg lá grafinn hiðri í jörðunni og svaf. Það var heitt og notalegt, og fast upp við mig sváíu ótal bræður mínir. Þá bar það við einn dag að rúmio okkar lék á reiðiskjálíi, og ég vaknaði við voðalegan hávaða. Jörð in rifnaði og ég valí eitthvað og eitthvað. Eg nam. staoar í þröngum göngum. Þau voru svo þrgng og lág að fullorðinn maður gat ekki staðið þar uppréttur. Þar var mað ur. Hann stóð þar hálfboginn og lamdi í veggina. Hann stundi af. þreytu, og svit- inn rann niður andlitið á honum. En hann hvíldi sig ekki. Hann barði og barði langa lengi. Ö, hann var svo þreyttur, aumingja maðurinn. Hendur hans titruðu, og oft stundi hann hátt og tok um hakið á sér, eins og hann fyndi mikið til. En svo byrj- aði hann undir eins aftur að berja í vegg- inn. Það var mjög heitt inni í þessum þrönga gangi. Og síðan ég hefi komist að raun um, að mennirnir þurfa að hafa loft til að lifa, þá get ég ekki skilið, hvernig maðurinn gat lifað í þessu ólofti. Eg'hélt, að þessi maður, sem þjáðist hér svo mikið og var svo sorgmæddur og ófrýnilegur á svip, væri vondur maður, sern í hegning- arskyni væri lokaður inni í þessum þrönga gangi. En ég hugsaði oít um aum-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.