Þjóðviljinn - 29.04.1947, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 29.04.1947, Qupperneq 4
4 Þriðjudagur 29. apríl 1947 ÞJÓÐVILJINN ■— —-- ~ - I þJÓÐVILJINN Útgefandí: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Ritstjórar: Hagnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb. Préttaritstjóri: Jón Bjarnason. Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðust. 19. Símar 2270 og 7500 (eftir kl. 19.00 einnig 2184). Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184. Augiýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399. Prentsmiðjusími 2184. Áskriftarverð: kr. 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviijans h.f. BÆJARPOSTIRINN .— —■mmjmmmsm Vísitala eymdarimiar Vísitala framfærslukostnaðar er rniðuð við búreikninga nokkurra verkamanna- og sjómannafjölskyldna frá árinu 1939. Hún sýnir hverjar vörutegundir og hvert magn fjöl- skyldur þessar höfðu efni á að kaupa sér þá, þegar öll al- þýða hafði rétt fyrir mat sínum og varla það. Hún má því með fullum rétti kallast vísitala eymdarinnar. Ef engar breytingar hefðu orðið á •síðustu árum aðrar en þær að launin hefðu hækkað í samræmi við vísitölu eymdarinnar, byggi öll alþýða enn við sömu hörmungakjör og 1939. Hún gæti oftast keypt sér fábreyttustu matvæli, en yrði að neita sér um flest það sem skapar mannsæmandi lífskjör. En alþýðusamtökin sættu sig ekki við þann grund- völl sem markaður var með vísitölu eymdarinnar. Með markvissri og skeleggri baráttu hefur þeim tek'izt að hækka grunnkaup mjög verulega, svo að nú er neyzla almennings önnur og meiri en reiknað er með í vísitölunni. Vísitalan er því fullkomlega úrelt, gefur enga hugmynd um hina raunverulegu neyzlu nú .og er auk þess stórlega fölsuð. 1 grein sem Jón Blöndal hagfræðingur skrifaði 26. okt. 1945 komst hann að þeirri niðurstöðu að vísitalan væri a. m. k. 37 stigum of lág, og samsvaraði það 2220 kr. tekju-! tapi á ári fyrir launþega meö 500 kr. grunniaun á. mánuði. En vísitala eymdarinnar, úrelt og stórfölsuð, er engu að síður helzta röksemd þess flokks sem kennir sig við nafn íslenzkrar alþýðu. Dag eftir dag heldur Alþýðublaðið því fram að vísitalan sé að öllu leyti réttmæt og heiðarleg. Hún gefi launþegum „fulla uppbót á nauðsynlegum neyzlu- vörum“, þ. e. a. s. þeim vörum sem fátækustu fjölskyldur höfðu efni á að kaupa í eymd sinni 1939. Þessi röksemda- færsla merkir það að Alþýðuflokkurinn er svo djúpt sokk- inn að telja að kjör launastéttanna eigi að vera á sama stigi og 1939, velmegun siðustu ár eigi að hverfa. Enda eru aðgerðir „fyrstu stjórnarinnar sem Alþýðuflokkurinn hefur myndað“ í fullu samræmi við þessar skoðanir. Stjórn- in leggur háa toila á flestar aðfluttar nauðsynjavörur. Þessar nauðsynjavörur hafa mjög óveruleg áhrif á vísi- töluna, sökum þess að verkamenn og sjómenn höfðu ekki efni á að kaupa þær 1939 og þær fyrirfundust varla á bú- reikningum þeirra þá. Þannig er ráð fyrir því gert að hækk- un vísitölunnar samsvari 6-—7 millj. króna á ári, enda þótt álögumar á almenning nemi 45 milljónum. Afleiðingin af þessu verður sú, ef engar gagnráðstafanir yrðu gerðar, að alþýða landsins verður að spara stórlega við sig, neita sér um fatnað, húsgögn, búsáhöld o. s. frv. Ef þetta heppn- ast mun stjórn heildsalanna síðan ganga á lagið, þar til vísitala eymdarinnar er aftur orðin rétt og gefur sanna hugmynd um neyzlu islenzkrar alþýðu. Árið 1941 lýsti Stefán Jóhann Stefánsson, sém þá var forseti Alþýðusambands íslands, yfir því að „engin hætta væri á því“ að alþýðusamtökin færu fram á grunnkaups- hækkanir. Honum var þá mikið í mun að grundvöllur sá, sem vísitala eymdarinnar er byggð á, raskaðist í engu. Stefáni Jóhanni Stefánssyni tókst þó ekki að f jötra íslenzka launþega í það sinn. Nú reynir hann að þoka þróiminni aft- urábak og skapa enn á ný sömu lífskjör og 1939. Sú árás jnun einnig mistakast, en það má mikið vera ef Stefáni Jóhanni Stefánssyni hefur ekki loksins tekizt að sannfæra jafnvel sauðþráustu Alþýðublaðsmenn um hið rétta inn- jæti sitt. MCSIK A DANSSTÖÐUM. Trúlegt þykir mér að margir séu ósammála eftirfarnandi bréfi. Þó þarf það ekki að vera. Við sjáum til: „Kæri Bæjarpóstur. Viltu birta nokkur orð fyrir mig um dansskemmtanir í Reykjavík, eða réttara sagt um músikina á þeim. Það mun ó- víða erlendis tíðkast slík músik á almennum dansskemmtunum sem hér. Ekki að hljóðfæraleik- ararnir okkar séu neitt lakari en annarsstaðar, þvert á móti við eigum fyrirtaks músikanta, en jassinn sem þeir leika er ekki allskostar heppilegur fyrir fullþroska fólk, að dansa eftir oft er leikið svo vilt og hratt að það er ókurteisi að bjóða fólki upp á slíkt í þröngum danssal. Erlendis er slík músik eingöngu skrínukost eða kaupa mat á matskálum. Það sjá allir hvaða hag fólkið hefði af þessu og strætisvagnarnir eiga víst að vera fyrir fólkið, sem ekkj hef- ur efni á að eiga bíl. Um vagn- stjórana á þessari leið (ég þekki þá bezt) má segja að ekki verður á betra kosið, hvað lið- legheit, prúðmennsku og gætni sn,ertir. Hvað um týndu aura barnanna er að segja, ber það við að á biðstöðunum eru dag- lega börn sem hafa týnt aurun- um, og oft eru hin sömu börn með sælgæti í höndunum eða munninum. ★ HVAR TÝNDUST AURARNIR ? „Það er ekki gott fyrir vagn- stjórana að sjá, hvort aurarn- ir hafa týnzt á götunni eða í einhverri búðinni, og ef þeir notuð til að hlusta á hana, eða gerðu mikið að því að lofa börn handa skólakrökkum. ★ HVERNÍG I ' AMERÍKU ? . „I Apieríku, sjálfu jasslandinu, ' • - eru tangóar, valsar og rólegir svigar aðal músikin á nætur- klúbbum og almennum dans- skemmtunum, hinsvegar er vilt- ur jass oft leikinn á kaffihús- j • • um þar sem fólk situr rólegt' • • við borð sín, og horfir á svert- ingja leika kúnstir sínar eftir j ? músikinni. Það er líka a,lgengt að krakkar á aldrinum 16-18 ára hafi sina sérstöku „jitter- bug“ klúbba, og Negrar dansa töluvert eftir jass, en jass til að dansa eftir er undantekning arlítið melódískur. Jassleikarar okkar verða að athuga að þótt þeir hej'ri góða jassplötu og langi til að gera eins, þá er ekki víst að sú músik eigi vel við á almennum dansleik. Jassvinur" •k ENN UM TÝNDA SMAPENINGINN. „Atliugandi“ skrifar eftirfar- andi bréf, sem hefur að geyma ýmsar athugasemdir, gerðar af j • skarpskyggni. „I sunnudagsblaðinu er smá pistill, sem nefnist „Týndur smápeningur", sem ,,Undrandi“ skrifar. Það er víst ekki nokkur vafi á að frásögnin sé réft, en hugleiðingarnar eiga ekki við um marga af strætisvagnabíl- stjórunum. Við sem ferðumst mikið með strætisvögnum verðum margs varir um rekstur vagnanna, bíl- stjórana og fólkið, sem ferðast með þeim. ■¥■ UM SOGAMÝRAR- VAGNA. „Um rekstur vagnanna er bú- Ijl ið að skrifa svo mikið að það segir víst ekki mikið þó bent sé á fleiri galla. En einu langar ' J mig til að koma á framfæri, [ j Hvort ekki væri lítill kostnaður við, að láta vagnana sem ganga | j- í Sogamýri fara af Lækjartorgi kl. 12.30. Það yrði til þess að allur sá fjöldi vinnandi fólks, sem á heima fyrir sunnan Tungu en vinnur niðri í bæ, gæti borðað hádegismat á heimilum sínum, í stað þess að hafa um sem hafa týnt aurunum að fljóta með, þá held ég freisting ! in yldst fyrir blessaða krafclc- ana að týna þeim í búðum. Ef vagnstjóramir ættu að borga frá sér yrði það töluverð upp- hæð eftir vikuna. En oft verð ég þess var að fólk lánar börn- um aura fyrir fari, ef það verð ur þess vart að börn hafa týnt aurunum á götuna og einnig í mörgum tilfellum skilja vagn- stjórarnir börnin ekki eftir ef þeir þekkja þau. Athugandi . * PÉTUR SIGURÐSSON f ALÞÝÐUBLAÐINU. Síðastliðinn sunnudag birtist í Alþýöublaðinu alllöng grein eftir Pétur Sigurðsson erind- reka, skrifuð af slíkri rætni, að maður á erfitt með að trúa að höfundur hennar sé sá, sem undir stendur. Þarna er gefið í skyn, að bréf frá „Hæng“, sem nýlega birtist hér í dálkunum hafi verið löng grein-, þar sem ritstjórn Þjóðviljans lýsti stríði á hendur bindindisstarfseminni. Síðan. er rætt um stjórn málaafstöðu okkar Þjóðvilja- manna allt í sama rætna tón. Má teljast furðulegt, að maður, er hefur þá stöðu í baráttu Framh. á 7. sír . Venjið æskuna skáSciii skrifaði: Ijóð, sögur, ritgerðir og bréf I nmssonar. Öll verk skáldsins, um 800 siður, í einu bindi aðeins 60,00, í fallegu bandi. Sent í póstkröfu um land allt. HELGAFELL Box, 263. Aðalstræti 18. Garðastræti 17, Njálsgötu 64, Laugavegi 100, Laugavegi 38.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.