Þjóðviljinn - 23.05.1947, Síða 4

Þjóðviljinn - 23.05.1947, Síða 4
4 Þ J ÓÐVILJINN Föstudagur 23. maí 1947 þJÓÐVHJINN l Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðust. 19. Símar 2270 og 7500 (eftir kl. 19.00 einnig 2184). Afgreiðsla: Skólavörðustig 19, sími 2184. Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399. Prentsmiðjusími 2184. Aakriftarverð: kr. 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. nJ Braskaralýðurlnn hafði sitt fram Við meðferð eignakönnunarfrumvarpsins á. þingi stóðu sósíalistar fyrst einir með gagnrýni sína. Við síðari umr. málsins hafa fleiri og fleiri þingmenn úr stjórnarflokkun- um tekið undir þá gagnrýni. Hafa þeir undantekningar- laust leitt rök að því sem verið hefur meginatriðið í gagn- rýni sósíalista, að með eignakönnun þeirri sem ríkisstjórn- in ætlar að framkvæma sé stórsvindlurunum gefið tækifæri til að sleppa, en hins vegar þjarmað að alþýðu manna og millistéttum, t. d. fólki sem láðst hefur að telja fram óveru- legar sparif járinnstæður. Andstaðan gegn frumvarpinu virðist svo mögnuð innan þingsins, að aðeins lítill hluti stjórnarflokkanna ætli að hamra málið í gegn. Við afgreiðslu málsins í neðfi deild í fyrrinótt greiddu 16 þingmenn af 35, sem sæti eiga í deild- inni, frumvarpinu atkvæði. Allur þorri þingmanna Sjálf- stæðisflokksins beitti fjarvistaraðferðinni, þar á meðal formaður flokksins, Ólafur Thors. Annar áhrifamaður Sjálf- stæðisflokksins, Jón Pálmason forseti sameinaðs þings, tal- aði eindregið gegn frumvarpinu, taldi að það truflaði fjár- hags- og atvinnuframkvæmdir í landinu til langs tíma, og greiddi atkvæði gegn því ásamt sósíalistum. Tveir aðalforingjar Framsóknarflokksins, Hei’mann Jón- asson formaður flokksins og Skúli Guðmundsson, börðust gegn frumvarpinu í orði að minnsta kosti. Skúli lagði til í neðri deild að frumvarpinu yrði gerbreytt, felld niður á- kvæðin um 17. skuldabréfin (,,aflátsbréfin“) og öllum yrði gei-t að greiða skilyrðislaust vangoldinn skatt vegna fram- talssvika. Gegn þessu leggst Framsóknarflokkurinn eða meirihluti hans, og Eysteinn Jónsson er látinn deila harð- lega á flokksbróður sinn Skúla, og berjast fyrir frumvarp- inu óbreyttu! Hins vegar segist formaður flokksins, Her- mann Jónasson, „harma afgreiðslu frumvarpsins", lögin hljóti að „valda mikilli röskun og glundroða í fjámmlalífi þjóðarinnar, árangurinn um könnun eigna verði lítill eða enginn", hann léti „aðra um að afgreiða slíkt mál, og mundu þeir hljóta litla ánægju af.“ Foringjar Alþýðuflokksins virðast þeir einu sem þora að vera af alhug með þessu frumvarpi, er einn þingmanna (Páll Zóph.) taldi að ætti að heita Frumvarp til laga um löggildingu skattsvika og lögvernd skattsvikara, sbr. dýra- verndunarlögin! Finnur Jónsson lýsti yfir því á nætui’fund- inum í fyrrinótt að frumvarpið sé „í fullu samræmi við stefnu og yfirlýsingar Alþýðuflokksins fyrr og síðar“, og að með frumvarpinu „næðist meira réttlæti um skattgreiðsl- ur en hægt hefði verið að ná á annan hátt.“ Fyrr í um- ræðunni hafði annar Alþýðuflokksþingmaður bent á, að Al- þýðuflokkurinn hefði einu sinni flutt tillögu um stóreigna- skatt (það var rétt fyrir kosningar) og hefði eignaköimun átt að vera undirstaða hans, en ekkert slíkt væri meint með þessu frumvarpi! Þessar deilur, innan allra stjórnarflokkanna, um eigna- könnunarfrumvarpið, sýna að bak við tjöldin hefur þeim ósvífna heildsala- og braskaralýð, sem stendur að núver- andi ríkisstjórn, gegn allharðri mótspyrnu tekizt að koma svo ár sinni fyrir borð, að úr hugmyndinni um eig'nakönn- un yrði þessi óhugnanlega skrípamynd, og stjórnarflokk- arnir bundnir við að bei’ja það í gegn. Því er yfirlýst að svo mikil áherzla var lögð á að afgreiða þetta' ómyndar- frumvarp nú, að hótað var stjórnarslitum, er Hermann Jónasson reyndi að fá málinu frestað og fært í réttlátara horf. Braskaralýðurinn veit að honum liggur á ef takast á að koma gegn um Alþingi slíku frumvarpi. Þess vegna eru stjórnarflokkarnir handjámaðir, eða nógu stór hluti þeirra tii að merja málið í gegn. Ilvað þá um andstöðuna í stjórnarflokkunum ? Að sjálf- BÆJARPOSTIRINN UM BÆKUR OG BÓKAVERZLUN Frá Vestmannaeyjum hefur mér borizt eftirfarandi bréf: „Einkennilegir eru verzlunar- hættir nútímans á ýmsan hátt. Fyrir alllöngu síðan hófu tvö út gáfufyrirtæki bókaútsölu. Hér í bænum eru tvær bókaverzlanir, sem höfðu bækur þessara fyrir- tækja áfboðstólum. Nú mætti ætla, að ekki hefði þurft annað en fara í þessar verzlanir og kaupa þar bækur á hinu aug- lýsta útsöluverði; en því er ekki að heilsa. Fyrst eru bækurnar sendar hing að með æmum kostnaði, síðan eru þær innkallaðar til Reykja- víkur og loks eru þær sendar hingað afti’i’ eða sá hluti þeirra er viðskiptavinirnir kunna að panta. - ¥ VEGIR MERKÚRS Ó- RANNSAKANLEGIR „Ja, ég fer nú satt að segja að halda að vegir Merkúrs séu órannsakanlegir. Og svo hláleg ir þóttu mér þessir verzlunar- hættir, að ég nennti ekki að fara að panta bækur frá Reykjavík, sem beinast lá við að mér væru seldar hér á staðnum. En það er gamla sagan, Reykvikingar skulu ganga fyrir um allu' mögulega hluti; að þeir sem úti á landi búa njóti sömu rétt- inda, kemur ekki til mála. 1 því sambandi má minna á, að komi eftirsótt bók út í Reykjavík er sala hennar mjög oft fyrst reynd þar til þrautar, en seljist hún ekki upp þar, þá er kannske einhver slatti sendur allranáðar- samlegast þeim sem úti á landi ( búa, seint og síðarmeir. Eru jafnvel dæmi þess, að félags- bækur sjást ekki fyr en mörg- um mánuðum eftir að þær koma út, eða hvernig er þáð með síð- ustu bók Menningar- og fræðslu sambands alþýðu; mig minnir að hún hafi verið auglýst i Reykjavíkurblöðunum um jólin. Eða er það rangminni ? — -— * HÆPINN VERZLUN- ARMÁTI „En það er eitt atrið enn í sambandi við bókaútsölurnar. i i Er það ekki dalitið hæpmn og jafnvel miður heilbrigður verzl I unarmáti að seija svo til nýút- komna bók fvrir minna en hálf- virði? Hafi ég kevpt bók á tæpar 300 kr. sem fæst einu til tveim missirum seinna á rúmar 100 kr, þá mun það ekki hvetja mig til að kaupa nýjar bækur forlags- ins; ég mundi að fenginni reynslu -— óþarflega dýrri —- biða átekta. Eg geri ráð fyrir að bóka- markaðurinn standi og falli með þeim fjölmenna hópi manna, sem lesa. bækur og kaupa — oft af takmörkuðum efnum. Og kannske er það þegar komið á daginn, að útgáfa lúxusbóka handa auðmönnum er ekki sér- lega trygg atvinnugrein, enda hafa bókmenntirnar íslenzku al- drei verið bornar uppi af slík- um mönnum og verða vafalaust ekki eftirleiðis. ★ ÞAÐ SEM BÓKA- MENN VILJA „Bókamenn vilja ekki 1 kaupa bækur við okurverði, bæk ur sem oft eru glæsilegar hið ytra við fyrstu sýn en hroð- virknislega unnar þegar betur er að gætt. Þeim er ekki heldur greiði gerður með því að fá annað veifið bækur með svoköll uðum ,,kostakjörum“, því sjálfir munu þeir verða látnir jafna metin fyrr eða síðar. Bókamenn vilja vandaðar bæk ur að efni og frágangi, ekki út- þanda doðranta með sundur- gerðina uppmálaða. Þeir vita vel iað bókaútgáfa er dýr og fara | ekki heldur fraxh á annað en hóflegt verð. Sem dæmi ^xess hvernig á að gefa- út bækur mætti nefna hina vönduðu en íburðarlausu útgáfu , á ritsafni Jónasar Hall- jgrímssonar, hina síðustu. Þar jer hinn athafnasami útgefandi 'á réttri leið; skal þess getið sem vel er gert, þótt að því sé fundið sem ámælisvert er. SAMVINNU KAUP- ENDA OG SELJENDA „Og þegar öll kurl koma til grafar, mun vænlegast til góðs árangurs að bókakaupendur- og seljendur taki upp einhvers- konar samstarf og vinsamlega samvinnu, t. d. að Bóksalafélag ið gæfi út lítið tímarit, er væri einskonar tengiliður milli útgef enda og kaupenda. Það væri vel þess vert að þessir aðilar ræddust við öðru hvoru af fullum heilindum og óskir bókamanna væru þar fram bornar. Hvernig væri að gera til- raun? „Bisness“ — bragðið af auglýsingunum um „beztu bók ársins“ er stundum full áber- andi og er sízt til þess fallið að vekja gagnkvæmt traust og virð ingu útgefenda og bókakaup- enda. H.“ Öíslenzkur utanríkisráðherra Þegar Bjarni Benediktsson tók við utanríkisráðherrastörf- um, voru þeir menn til sem héldu, að hann myndi verða samvizkusamur embættismaður hvað sem öðni liði. Þessir menn staðfestust í trú sinni, þegar Bjarni brá fljótt við eftir til- lögu Gerharts hins bandaríska um innlimun Islands og mót- mælti henni opinberlega. En síð an hefur álitið dvínað dag frá degi og hefur nú sriúizt í algert vantraust. Á þeim stutta tíma sem Bjarni Benediktsson hefur verið ráðherra, hefur hann gert sig sekan um bein afbrot við íslenzku þjóðina og stórvægi- lega vanrækslu á embættisstörf um sínum. Hins vegar hefur hann verið mjög ötull við nafn- laus blaðaskrif í Morgunblaðið og virðist líta á það sem aðal- starf —- en ráðherradóminn sem marklausan bitling. í íslandssögunni mun Bjarna Benediktssonar verða minnzt sem ráðherrans sem seldi Hval- fjörð. Eins og öllum er í fersku minni lagði bandaríska her- stjórnin mikla áherzlu á það að j herstöðvarnar í Hvalfirði væru látnar standa óhaggaðar og til- tækar fyrst um sinn. Þegar Bandaríkjamenn fengu ekki að halda þeim sjálfir lögðu þeir á-1 herzlu á að eitthvert félag, sem , þeir hefðu umráð yfir gengi í kaupin. Vikapiltur þeirra, Valdi mar Björnsson, skýrði félögum þeim, sem áhuga höfðu á stöðv unum, frá því að það væri þýð- sögðu verður hún dæmd eftir atkvæðuni sínum og aðgerð- J um en ekki eftir fögrum orðum. Þeir menn, sem'lýstu sig andvíga frumvarpinu, þeirra meðal mestu áhrifamenn flokka sinna, gátu hindrað afgreiðslu þess ef þeir hefðu þorað og viljað. Yfirlýsingar þeirra, sem sjálfsagt hafa margar verið af sæmilegri einlægni gerðar, vega létt á móti þeirri staðreynd. Það er ekki hægt að vei’a á móti slíku máli án þess að reyna að hindra framgang þess. Allir þeir | sem stuðluðu að samþykkt eignakönnunarlagaima, eða létu ; ónotaða aðstöðu til að himlra framgang þeirra, eru samá- j byrgir um þenna óburð heildsalastjórnarinnar. mgarlaust að sækja um kaup á þeim án þess að skuldbinda sig til að halda þeim „óhögguðum og til taks“. Mikið kapp var á það lagt að umboðsfél. Standard Oil klófesti stöðvarnar, hvað sem það kostaði. Þessar tilraun ir voru mjög opinskáar og auð- skilið hvað undir bjó, enda neit aði fyrrverandi stjórn algerlega að taka þátt í slíkum skrípaleik, heldur ákvað að kaupa stöðv- arnar sjálf til niðurrifs. Var þeiri’i ráðstöfun fagnað mjög, m. a. í Morgunblaðinu. En þegar Bjarni Benediktsson tók við embætti, breyttust við- horfin snögglega. Umboðsfélag Stóndard Oil sendi umsókn í annað sinn og þótti vænlega Frqmhald á 7. síðu. Eru þefta glæpir? 28. apríl 1947 hækkaði Verkamannaféiag Glæsibæj- arhrepps taxta smn úr 2,50 kr. á klst. í 2,65, éða um 6%. 29. apríl 1947 gerði Félag bifvélavirkja nýja samninga og hækkaði vikulaunin úr 158 kr. í 170, eða um 7,6%. 1. maí 1947 kom verlta- lýðsfélag Austurhúnvetninga Blönduósi á kauphækkun úr 2,30 kr. á klst. í 2,60, eða um 13,1%.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.