Þjóðviljinn - 25.09.1947, Blaðsíða 3
Fiimntudaginn 25. sept. 1947.
ÞJ OöVILJINN
3
Er nauðsynlegt að ráðast
á lífskjör almennings
Toðlarnir og dýrtíðin
I>að er athyglisvert að þeir
menn sem nú tala mest um hina
geigvœnlegu verðþenslu og dýr-
tíð bera ábyrgð á stærstu tolla-
áiögum sem dunið hafa yfir
þessa þjóð. En tollar verka að
sjálfsögðu sem bein aukning
verðþenslunnar og dýrtíðarinn-
ar. Þeir hækka vöruverðið, vísi-
töluna og kaupið; eiga sem se
ríkan þátt í að skapa það á-
stand, sem blöð borgaranna
Iýsa nú á sem átakanlegastan
hátt.
Ef núverandi ríkisstjórn og
auðstéttinni reykvísku væri
nokkur alvara að berjast gegn
dýrtíðinni, væri það að sjálf-
sögðu eitt fyrsta verkefnið að
afnema ineð öllu tolla á nauð-
synlegum neyzluvörum. Sú ráð-
stöfun myndi Iækka vísitöluna
mjög verulega og þar með vöru
verðið og kaupið. Hún myndi
lækka kostnað útflutningsat-
viunuveganna að mun og væri
jafnframt hagkvæm fyrir allan
almenning.
Það er gagnslaust að bera
tekjuþörf ríkissjóðs fram seni
röksemd gegn þessari sjálf-
sögðu ráðstöfun. Þær tekjur
sem ríkisstjóður myndi glata
við afnám tolla á nauðsýnjavör
um væri auðvelt að endurheiinta
á annan hátt, með eignarauka-
skatti stríðsgróðans, skyldu
lánum, heiðarlegri eignakönnun,
eftirliti með skattsvikum, skatti
á lúxusíbúðum, lúxusbílum o.s.
frv. Möguleikarnir eru nægir, ef
viljinn er fyrir hendi.
Hitt dettur eflaust fáum í
hug að núverandi ríkisstjórn
muni nokkurn tíma fara inn á
þá braut. En á meðan hún lætur
það ógert, lætur almenningur
einnig ógert að taka á sig
„byrðar“ og „fórnir“ í þágu
auðstéttarinnar í Reykjavík.
Einar Kristjánsson:
Hvert sem maður kemur út
á land og ræðir þar við bú-
setta vini sína um dýrtíðar-
mál og skilning landsmanna
á þjóðarbúskaparreikningun-
um, verður sagan söm: Vinn-
andi fólk á íslandi hefur ekki
tíma til að skilja þá, þó það
gæti. Hefði heldur engan á-
huga á því vegna þess, hve
illa og ruglingslega þeim er
stillt upp.
Sjá má nú í stjórnarblöð-
unum dag eftir dag greinar,
sem almenningur les ekki
nema fyrirsagnirnar að; 2ja
og 3ja síðu langhunda um
verðbólgu og dýrtíðarmál, án
þess að komið sé nærri
kjarna málsins.
Sama þvaðrið er svo tuggið
upp á fundum og í útvarpi.
En á elleftu stundu á dauða-
hönd ríkisstjórnarinnar að
leggja blessun sína yfir land
og lýð.
Það er sem sagt verið að
svíkjast að þjóðinni. Menn-
ingarstraumarnir eiga að
hætta að streyma, þjóðin rná
ekki vitkast meira. Það getur
verið hættulegt, ef hún fer
að hugsa.
Fólk á ekki einu sinni að
geta þvegið þvottinn sinn
eða fengið sér skó. Hvað þá
heldur að geta eignazt þak
yfir höfuðið. Sá lúxus hefur
ævinlega átt að vera fyrir
hina útvöldu.
Og nú á þjóðin að hætta
að jifa menningarlífi í bili,
taka ó sig háttu bjarnarins
og leggjast í dvala' um ó-
komna tíma. Enginn veit hve
lengi. Heildsalastjórnin ræð-
ur. Hér hlýtur annar hvor
aðiljinn að vera dauðadæmd-
ur, ríkisstjórnin eða íslenzka
þjóðin.
Bardaginn er hafinn. Það
þýðir því ekkert fyrir þjóð-
ina að snúa fyrirspurnum
sínum til heildsalastjórnar-
innar. Þjóðin verður að snúa
sér til hlutlausrar nefndar
hagfræðinga úr öllum stjórn-
málafiokkum til þess a§ fá
rétt og einföld svör um dýr-
tíðarmálin.
Nokkrar spurningar:
1) Hvernig er reikningum
þjóðarbúskaparins háttað? Er
það vandamál aðeins fyrir sér
fræðinga úr einum stjórn-
málaflokki? Eða geta sérfræð
ingarnir vegna kunnáttuleys-
is ekki stillt reikningunum
þannig upp, að meðalgreind-
ir Islendingar geti skilið þá
til hlítar án þess að leggja á
sig sérstakt erfiði? Eða eru
þjóðarbúskaparreikningarnir
myrkraverk örfárra manna?
2) Hvað voru heildartekjur
þjóðarinnar mestu stríðs-
gróðaárin? Og hve miklar
deilt á hvern einn vinnandi
fbúa landsins?
3) Hvað mikið af þessu
tekjumagni var flutt inn í
vörum til heildsalanna?
4) Hvaða stéttir fengu að-
allega peningalán út úr bönk
unum helztu stríðsgróðaárin
og síðar?
Og hvað mikið væri hægt
að græða á því að braska
með þau lán? (Með því að
byggja hús og selja o. fl.).
5) Myndi það brask ekki
Jónas Árnason:
Myndir úr Reykjavíkurlífinu
„RíkiJ" með stórum staf
Eg var búinn að skoða hið
mikla hús Rúgbrauðsgerðar-
innar h.f. og gekk Skúlag.
aftur ofaní bæ. — A þeirri
leið verður á einum stað á
vinstri hönd lágt hús en allt
uppá lengdina, sami bygging-
arstíll og við sjáum á göml-
um verzlunarhúsum svo víða
ó íslandi, heitir Nýborg, aðal
útsölustaður áfengisverzlunar
hins íslenzka ríkis, nú al-
mennt nefnt Ríkið með
stórum staf.
Klukkuná vantaði um það
■bil kortér í tólf, þegar ég kom
að þessu húsi á laugardagsm.
Þar var stöðugur straumur
rnanna út og inn. Hér var
efni í þáttinn ,,Heyrt og
séð.“
Mikil ös var inni. Þétt röð
manna stóð meðfram öllu af-
greiðsluborðinu, sem að lík-
indum er nálægt tíu metrum
að lengd. Hér virtist enginn
láta sér detta í hug að taka
tillit til regluimar urn, að
menn eigi að fá sig afgreidda
í þeirri röð, sem þeir koma.
Hér var hafður sá íslenzki
máti, að láta hæfileikann til
að bola sér áfram, skera úr
um það, hvort maður fékk
sig afgreiddan seint eða
snemma. Forgangsréttur bel-
jakans heitir þetta. — íslend-
ingar virðast seint munu geta
tileinkað sér fyllilega það
menningarfyrirbrigði, sem
heitir að skipa sér í biðröð.
Enda eru ekki nema fá ár
síðan þeir viðurkenndu rétt
biðraðarinnar við miðaaf-
greiðslur kvikmyndahúsanna,
— og þess vegna ekki að
undra þótt þeir hafi enn ekki
viðurkennt hana í áfengis-
verzlunum líka. Það er ekki
við því að búast, að við ís-
lendingarj sem rétt nýlega
höfum lært að kaupa bíómiða
eins og siðaðar þjóðir, séum
búnir að komast uppá lagið
með að kaupa brennivín eins
og siðaðar þjóðir.
Þarna inni í Nýborg voru
menn úr öllum stéttum þjóð-
félagsins. Nokkrir voru með
skjalatöskur og stungu þar í
■varningnum.
,,Eg þarf að fá kokk-
teilinn í hvelli,“ hrópaði einn
þeirra, fékk kokkteilinn,
stakk flöskunni í skjalatösk-
una, skjaíatöskunni und-
ir handlegginn og gekk
út með sama virðulega
| yfirbragðinu og fulltrúi hins
opinbera á leiðinni að gera
lögtak.
Þarna komu verkamenn —
beina leið úr vinnunni; gengu
inn með hita-brúsa í öðrum
buxnavasanum en ekkert í
hinum; — gengu út með hita-
brúsa í öðrum buxnavasan-
um og brennivínsflösku í hin
um. Þarna komu unglings-
piltar, þrír og fjórir saman,
stóðu andartak afsíðis, tóku
upp 15 eða 20 krónur hver,
fengu alla peningana í hénd-
ur þeim stæðilegasta og
sendu hann síðan í þvöguna.
Þeir voru ,,að splæsa“ í eina,
eins og. það er kallað.
Og áfram hélt sala áfengis-
ins.
Afgreiðslan er svo hröð á
þessum stað, að ekki er hægi
að nota algenga peninga-
-hafa nein áhrif á verðbólg-
una:
6) Hvaða stétt á hlutfalls-
lega mest af fasteignum? Er
ekki hægt að braska með
fasteignir eins og maður væri
banki og braskari í senn?
7) Er það rétt, að fámenn j
klíka Reykjavíkurbæjar eigi,
allt að því þrjá fjórðu eða
jafnvel f jóra fimmtu allra
verðmæta Reykjavíkurbæjar? '
8) Hvað er heildsalastéttin
fjölmenn?
9) Hvað margir af heildsöl-
unum eru einnig smásalar?
10) Hvað voru heildartekj-
ur skrifstofusveina, búðar-
þjóna og annarra starfs-
manna hjá heildsölunum?
Skattaframtöl heildsalanna
kæmu þessum útreikningi ekk
ert við. enda ekkert að marka
hvað braskarar telja fram til
skatts. Sumir jafnvel færa
eignir sínar yfil á aðra og
borga þeim á laun, til að
lækka beinar tekjur og fela
eig'nir.
Ennfremur mætti athuga
heildartekjur manna innan
stéttarsamtaka Alþýðusam-
bandsins og utan þeirra. (Allt
rniðað við sama tímabil).
Sérstakan reikning yrði að
gera yfir heildartekjur bænda
vegna úrelts fyrirkomulags
landbúnaðarins.
Síðan þarf að rannsaka
heildartekjur atvinnurek-
enda. Margir þeirra ei’u hinir
verstu braskarar, svífast eins-
kis.
Einnig vantar almenning
einfaldar skýringar á ríkis-
rekstrinum og áhrifum ný-
sköpunarinnar á þjóðarbú-
skapinn. Að þessu sundurlið-
uðu og samanlögðu, þ. e. tekj
um hinna ýmsu stétta ásamt
ríkisrekstri má bera heildar-
upphæðirnar saman við upp-
haflegar tekjur þjóðarinnar,
samanber 2. spurningu.
Það þarf sem sé að leita
samsvara tekna launþeganna
annarsvegar og atvinnurek-
endanna og braskaranna hins
vegar. En það þýðir ekki að
íeimblína á skattauppgjöf at-
vinnurekendanna og braskar-
anna, heldur í'yrst og fremst
vbraskgóss þeirra, svo sem inn
fluttar vörur, fasteignir o. fl.
Fraxnhald á 7. síðu
kassa, heldur hefur verið út-
búinn venjulegur trékassi
fyrir miðjum vegg, og á hon-
um allvítt op, þar sem gjald-
miðillinn hverfur niður. me.st
rauðir hundraðkrónuseðlar,
blandaðir grænum fimm-.
hundruðkrónaseðlum. A borði
í öðru horninu sá ég - auk
þessa álitlega seðlahrúgu og
■bar þar einnig mest á hinum
rauða og græna iit.
Mér flaug í hug, er ég sá
þessa meðhöndlan pening-
anna, að eitthvað svipuð
mundi hún hafa verið hér
áður, þegar voldugir land-
eigendur létu ánauðuga leigu
liða sína ganga fyrir sig og
greiða sér gjöld.
Og ófram hélt sala áfeng-
isins.
Menn keyptu misjafnlega
mikið. Flestir keyptu eina
eða tvær flöskur. Tvo menn
sá ég kaupa fulla kassa. Eg
fylgdist, með þeim, eftir að
þeir voru komnir út. Þeir
létu kassana inn í stöðvar-
bíla, settust við stýrið og óku
burt.
Öðru hvoru komu inn
rnenn, sem báru sérstakan
svip ömurleikans. Hin órök-
uðu andlit þeirra vitnuðu um
mikla vanlíðan. Það var ein-
kennilegur hrollur í þessum
mönnum, líkast því sem þeir
væru staddir í hráslagaveðri
úti á víðavangi og hvergi
skjól að finna; — enda höfðu
þeir flestir brett upp krag-
ann á jakkanum. Samt var
auðséð, að þett'a stafaði ekki
af veðurfarinu. Menn þessir
voru þannig leiknir af hrá-
slaga sjálfs lífsins. Þeir gengu
varlega inn eítir gólfinu,
stöldruðu við andartak og
litu í kringum sig, án örygg-
is, jafnvel flóttalega. Það var
eins og þeim liði illa hér
inni, en gætu þó alls ekki
slitið sig burt frá staðnum.
Stöku sinnum hittu þeir ein-
hvern, sem þeir þekktu, —
tóku hann afsíðis, töluðu við
hann í hálfum hljóðum og
mændu á hann augum, sem
báðu um hjálp í neyð, sárri
neyð. Illt er að skorta afl
til þeirra hluta, sem gera
skal.
Og áfram hélt sala áfeng-
isins. Hrúgur hinna rauðu og
grænu seðla hækkuðu stöð-
ugt og svo var allt í einu
búið að loka.
Á í’úmu kortéri hafði ég
horft á Reykvíkinga kaupa
áfengi fyrir þúsundir króna,
jafnvel tugþúsundir.
Og þetta gerðist á þeim
tímum, þegar talin var á-
stæða til að skammta margar
algengustu nauðsynjavörur á
íslandi.
,,Þjóðin verður að spara,“
segja stjórnarvöldin.
(Kajli úr útvarpsþœttinum
,'Heyrt oc: séÖ“.).