Þjóðviljinn - 25.09.1947, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 25.09.1947, Blaðsíða 8
«----------------------1 Landrdð I X. kafla hinna almennu hegningarlaga sem fjallar um landráð segir svo í 91. grein að allt að 16 ára fang- elsi sæti hver sá „sem falið hefur verið á hendur af ís- lenzka ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við ann- að ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenzka ríkisins í þeim erindisrekstri“. Bjarna Benediktssyni hef- ur verið falið það ábyrgðar- mikla verk að semja við er- lend ríki um kaup á íslenzk- um afurðum. Hann hefur vit- andi vits selt verulegan hluta afurðanna fyrir stórum lægra verð en sannanlega er hægt að fá annarsstaðar. Og nú stundar hann daglega þá iðju að skrifa um það greinav í blöð að íslenzkar afurðir séu of dýrar — á sama tíma og hann er að semja um sölu þeirra t. d: við Hollendinga. Almenningur á hægt með að finna sambandið milli 91. gr. í X. kafla hinna almennu hegningarlaga og athafna Bjarna Benediktssonar, en utanríkisráðherrann nýtur þess að sjálfsögðu að hann þarf ekki að óttast afskipti dómsmálaráðherrans. *----------------------♦ Er kannski farið að leitaáþeim bandarísku? Enn var leit gerð á farþegum, síðast þegar Drottningin fór héð an. . 1 þetta sinn höfðu 23 menn srlendir og innlendir, gerzt sek ir um að reyna að smygla gjald eyri út úr landinu. I leit þessari að óheimilum peningum varð bezti fengur hjá einum manni 635 krónur. Voru peningar þessir gerðir upptækir. En meðal annarra orða, hel'- ur tolleftirlitið á Keflavíkurflug vellinum verið skerpt? Er kann ske farið að leita á þeim banda- rísku þegar þeir koma og fara. Hefur máske smyglleiðinni um loftskeytastöðvarkampmn þa>- syðra verið harðlega lokað? Allir iðnaðarmenn eigi þarhiu! að máli Þing Iðnnemasambandsins hef- ur samþykkt áskorun til ríkis- stjórnarinnar um að sniðganga ekki fulltrúa Iðnsveinaráðs Al- þýðusambandsins og Iðnnema- sambandsins, þegar leitað er um sagna um mál er þessa aðila varða. Ályktun þingsins er svo- hljóðandi: „5. þing I.N.S.Í. beinir þeirri áskorun, til háttv. ríkisstjórnar að hún hlutist til um, að þegar hið opinbera leitar umsagna um mál varðandi iðnað, iðnaðarnám eða iðnaðarmenn þá leiti það umsagnar bæði Iðnsveinaráðs Alþýðusambands íslands og Iðn nemasambands íslands, ásamt Landssambandi iðnaðarmanna". Þrettáa ára dreng er bjargaði 3ja ára barni úr brennandi bragga voru veitt fyrstu verðlaun úr verðlaunasjóði Gunnairs Hafberg Fyrstu verðlaunin úr verðlaunasjóði Gunnars Hafbergs hafa nú verið veitt 13 ára pilti, þlÓÐVIUINN 99 Voru ræður þeirra merkilegar . .en hvort gleymdust þessi mál? íhaldið héit fund í húsi sínu við Austurvöll á mánu- daginn var til að leiða óbreytta flokksmenn sína í allan sannleika um bæjarmálefni. „Voru ræður þeirra merki- legar og fengu fundarmenn ýmsar merkilegar upplýs- ingar um málefni bæjarins“, segir Morgunblaðið. Gunn- ar Thoroddsen ræddi um innlieimtu útsvara, Auður Auðuns um hitaveituna, um umhyggju bæjaryfirvald- anna fyrir börnunum(!) og Jóhann Hafstein um TIL- LÖGUR um heilsuverndarstöð, stækkun Landspítal- ans, geðveikrahæli, byggingu sjúkraheimilis pg fávita- liælis — allt eru þetta verk sem bærinn hefur vanrækt árum saman. Enntremur talaði Hafstein um hina „fjöl- mörgu“(!) æfingarvelli sem bærinn hefur gert fyrir í- þróttamenn. Víslr skýrir frá því að borgarstjóri hafi upplýst að ríkið skuldi nú bænum HÁLFA ELLEFTU MILLJÖN KRÓNA. — Fyrir hálfum mánuði var skuld þessi 9— 10 millj. kr., svo þetta getur orðið álitleg upphæð eítir nokkra mánuði með sama áframhaldi. — En Jtessum smámunum sá Morgunblaðið ekki ástæðu tii að segja frá!! En það eru ýmis mál sem íhaldsforustan virðist hafa gleymt að fræða flokksmenn sína um. Hvort gleymdist að ræða um eftirfarandi: Innkaupastofnun bæjarins sem ekki má kaupa inn r.ema gæðingar íhaldsins geti haft af }>ví sinn niilliiiða- gróða ? Að íhaldið hefur í áratug hindrað eftir mætti að bær- inn gerði skyldu sína að byggja yfir húsnæðislaust fólk? Að bærinn greiddi % úr milljón kr. 1945 til viðhalds i ónýtum blikkskúrum. Að þiisundir Reykvíkinga búa í heilsuspillandi hús- næði, samkvæmt bráðabirgðarannsókn héraðslæknis. Að samkvæmt þeirri bráðabirgðárannsókn þarf bær- inn að byggja á sjöunda hundrað íbúðir til að útrýma heilsuspillandi íbúðum. Hvað iíður byggingu þeirra 300 íbúða, sem íhaldið — eftir að hafa lesið tillögur sósíalista — þorði ekki annað s.l. vetur en samþykkja að byggja? Að ljúka J>urfi fullnaðarrannsókn á heiísuspillandi og óhæfu húsnæði í bænum. Að íhaldið hækkaði á síðastliðnum vetri verð raf- magnsins um 34% þótt ágóðinn af rafveitunni væri 7,4 millj. kr. alls síðustu 5 ár. Hversvegna \arð 48 J>ús. kr. tap á Korpúlfsstaðabú- inu 1945, og er áætlað 42 þús. á þessu ári — og livers- vegna túnið er leigt til hagabeitar fyrir eldishesta einkaframtaksins í stað þess að framleiða þar mjólk fyrir bæinn? Og síðast en ekki sízt: gleymdist að ræða um 10 millj. kr. framkvæmdasjóðinn, sem geymast átti til „hörðu áranna“, cn íhaldið eyddi á góðu árunum? Ilvort gleymdi ílialdið að ræða þessi mál á fundi sín- um, eða var það bara lítillæti íhaldsblaðanna að segja ekki frá umræðunum um Jiessi mál? að bjarga þriggja ára barni út Á árinu 1943 stofnaði Engil bert Hafberg káupmaður sjóð til minningar um son sinn Gunn ar Hafberg, sem fórst af slys- förum þ. 25. júlí 1943. Var sjóð ur þessi, sem nú hefur hlotið staðfestingu Stjórnarráðsins, af hentur Ungmennadeild Slysa- varnafélagsins í Reykjavík til umráða, og skal vöxtum hans varið til þess að veita ungling-, um innan 18 ára aldurs, viður- kenningu fyrir eftir talin af- rek: 1. Að bjarga mannslífi á sjó eða landi. 2. Að sýna sér- stakt snarræði og þekkingu við að aftra slysum. 3. Að sýná Sir Gerald Shepherd hveður Sir. Gerald Shepherd, sendi- herra Breta hér, fer alfarinn héðan í dag. , Hann hefur verið sendiherra Breta hér síðan 1943 og var full trúi þeirra þegar. lýðveldið var stofnað hér 1944. Hefur hann é þessum árum eignazt hér marga vini. Eftirmaður hans verður Char les William Baxter er verið hef- ur deildarstjóri í brezka utan- ríkisráðuneytinu. Er hann vænt anlegur hingað um mánaðamót in. /•-----------------------' Mesti hiti sem fundizt hefur við jaröboranir I fyrradag gaus ný bor- hola í Reykjakoti í Ölfusi. Er talið að vatnsstrókurinn hafi stigið 60—70 m. í loft upp, eða svipað og Geysisgos. Borun hófst þarna á s.l. vetri til að rannsaka hitastigið með gufuvirkjun fyrir aug- um. Var liitinn orðinn svo mikill á botni lioiunnar, að á 192 m. dýpi varð hann ekki mældur með mælum, heldur aðeins með málmblöndum, sem látnar voru bráðna á holubotninum. Dagana áður en gosið hófst var hitinn orð inn 215—220 stig, en það svarar til þrýstings s*em nem ur 20 loftþyngdum. Er J>að mesti hiti, sem mældur hefur verið í borholu hér á landi. Þess skal getið að borholan sem iar virkjuð í Reykja- koti hefur 1,3 loftþyngda þrýsting. Holan er 2 lA þuml. við neðst. Er nú unnið að því að ná bornum upp, en hann hafði festst í holunni nokkrum dögum áður en gos ið hófst. Á meðan á því stend ur er konúð í veg fyrir gos með því að dæla köldu vatni í holuna. Þórði Ölafi Þorvaldssyni, fyrir úr brennandi bragga. þekkingu og dugnað í því að veita hjálp í viðlögum, ef slys ber að höndum. Or sjóði þessum, sem er orð- inn kr. 10.000,00 að upphæð, hefur nú verið ákveðið að veita. í fyrsta sinni, kr. 500,00 í verö laun, ásamt heiðursskjali, og hlýtur þá sæmd 13 ára drengur. Þórður Ólafur Þorvaldsson að nafni. Hann VANN það afrek að bjarga 3 ára telpu út úr í- búðarskála við Kleppsveg, sem var næstum orðinn alelda. Sýndi Þórður frábæran kjark og snarræði við björgun þessa, og er talið víst að bamið hefði brunnið inni ef Þórðar hefði ekki notið við. Þórður og móðir lians, Katrín Einarsdóttir, eru við vinnu úti á landi, en koma til bæjarins um næstu mánaðamót. Verða því peningarnir lagðir inn í banka- bók, sem verður afhent honum ásamt heiðursskjali, á næsta fundi Ungmennadeildarinnar í byrjun október, af forseta Slysa varnafélags Islands, Guðbjarti Ölafssyni, sem jafnframt er for maður sjóðsins. Björgunarverðlaunum úr sjóði þessum verður úthlíftað árlega í framtíðinni, á afmælisdegi Gunu ars heit. Hafberg, sem er 25. september. Innbrot í birgða- geymslu á flug- vellinum í fyrrinótt var brotizt inn i birgðageymslu á flugvellinum. Hafði þjófurinn farið inn um glugga og stolið ullarteppum, stálburstum og e.t.v. fleiru úr geymslunni. -Þá var nýlega brotinn upp vinnuskúr við Eiríksgötu og stoi’ ið þaðan vinnustakki úr gúmmíi. Vinnan Vinnan, límarit Alþýðusam- bands íslands, 7. tbl. þ. á. er ný komin út. Stefán Ögmundss. skrifar þar grein er hann nefnir: Hvað hef ur komið fyrir? Björn Bjarnass. segir frá miðstjórnarfundi Al- þ jóðasam bands verkalýðsins, sem haldinn var á s.l. sumri í Prag. Br. Sigurðsson skrifar greinina: Það mælti mín móðir. Sagt er frá dómi í máli því er Vinnuveitendafél sílands höfð. aði í sumar gegn Hlíf i Hafnar- firði — og tapaði. Birt er bréf Alþýðusambandsins frá 18. júlí s.l. til Jóhanns Þ. Jósefssonar. Rannveig Kristjánsdóttir skrif- ar Vettvang vinnandi kvenna. Þá eru í heftinu minningarorð um alþýðuleiðtogann Pétur G. Guðmundsson. Grein um Vél- stjórafélag ísafjarðar 15 ára, nokkur kvæði, sambandstíðindi o.fl. 3 400 krónur gefnar landgræ,ðslu- sjoði Landgræðslusjóði hafa í sum ar áskotnazt gjafir frá ýmsum velunnurum sjóðsins, að upp- liæð alls kr. S400.00, og kann Ekið á riðandi mann I fyrradag ók bifreiðin R 5431 á ríðandi mann, Jóhannes Lax- dal, skammt frá Baldurshaga. Hlaut Jóhannes nokkur meiðsli við að falla á götuna, en hest- urinn slasaðist. stjórn sjóðsins gefendunum hin ar beztu þakkir fyrir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.