Þjóðviljinn - 24.10.1947, Síða 5

Þjóðviljinn - 24.10.1947, Síða 5
Föstudagur 24. okt. 1947. ÞJOÐVlLJINN 5 HJörn ssan: Seinni grein Nýr heimur Það, sem aðallega vekur at- hygli Vesturlandabúans, þegar hann kemur til Tékkóslóvakíu, er hinn gjörbreytti hugsunar- háttur fólksins og breytta við horf þess til framtíðarinnar frá því, sem hann á að venjast. „Hér er mjög heiinæmt and- legt andrúmsloft“, var hið venju lega viðkvæði vestrænna manna, hvort sem þeir voru frá Árgentínu, Noregi eða ein- hverju landi þar á milli, og hvaða skoðanir, sem þeir höfðu í einstökum atriðum, þegar ég spurði þá, hvernig þeim geðj- aðist að gista Tékka. Svart- sýnin og barlómurinn er að mestu rokinn út í veður og vind. Tékkar virðast ekki dulir og þumbaralegir, heldur allopinská ir og auðvelt er að kynnast þeim. Hvaða maður, sem tek- inn er tali, hefur frá ein hverjum framförum, einhverj-J um ávinningum að segja úr þjóðlífinu. Lögfræðistúdent eys miskunnarlaust yfir mig fræðslu um framfarir í skatta málum, þótt mér finnist það fremur leiðinlegur lestur. Aldr- aður skrifstofumaður vill endi- lega láta mig læra utanbókar ýmsar tölur varðandi ívilnanir, sem fjölskyldufeður njóta og fara eftir stærð heimila þeirra. Kennari tekur andköf af áhuga, þegar hann skýrir fyrir mér framfarir í fræðslumálum. „Við hér í Tékkóslóvakíu metum manngildið nú orðið eftir hæfi leikum manna en ekki í krónu tali eins og þið gerið á Vestur löndum“. Hann verður bráð- mælskur þegar hann fer að lýsa því tapi sem þjóðfélagið biður við það, að hæfileika- snauðir menn þyrpast í opinber ar stöður, af því að þeir geta keypt sig gegnum skólana. Nú skal því lokið, hæfileikarnir einir eiga að ráða. Opinber starfsmaður segir mér það í óspurðum fréttum, að allri skoðanakúgun sé aflétt í land inu. Þér megið hafa, hvaða skoð anir, sem þér viijið. Ekkert til lit tekið til þeirra við embætta veitingar. Hann virðist trúa því, að yfirburðir þjóðnýting- arinnar komi meðal annars fram í því, að hún geri skoð- anakúgjin óhugsandi. Ég átti bágt með að skilja þær stað- liæfingar hans, en komst síð- ar að því, að Tékkar virðast eiga bágt með að skilja, að sá möguleiki sé til, að stjórnin sé lilutdræg. Harðsvíraður íhalds maður, sem fór fyrirlitningar- orðum um verkalýðinn, fullviss aði mig um það, að sér geðj aðist að stjórninni. „Öllum geðjast að stjórninni, því að við erum lýðræðissinnar og hjá okkur ríkir eilíf þjóðstjórn. Allir eru meira og minna hrifn ir af flokki sinum!“ sagði hann og pataði út í loftið. Verkalýðurinn virðist næst- um því barnalega hrifinn af einhverju, sem hefur snortið hann og er ánægður með kjör sín. Mér virtist oft eins og gamla kynslóðin hefði að nokkru leyti kastað ellibelg. Á kvöldin sáust oft hópar af körlum og kerlingum á labbi um göturnar og jafnvel lögðu þau leið sína inn á veitir.ga- húsin. Síðasta kvöldið, sem ég dvaldi í Praha, lenti' ég allt í einu í hópi brosleitra hús- mæðra á fimmtugs- til sex- tugsaldri. Þær voru að safna rithöndum eins og unga fclkið og skemmta sér niðri á Vacla- vské námésti, aðalgötu Praha. Óperugestir í vinnu- skyrtum Bjartsýni og lífsgleði er þó ekki alls ráðandi- hjá öHum þegnum þjóðfélagsins. Stundum verða Cvrir manni emr-lakling- ar, sem v:uðast hafa allt á horn. I um sér, en sameiginlegt eia- kenni þeirra er fyrirlitning og jafnvel hatur til verkalýðsins. Þessir menn fræða mann stund um um hina furðulegustu hluti. Einn sagði mér, að öll fyrir- tæki landsins væru rekin með tapi. „Eg skal segja yður, hvað þjóðnýting er í fram- kvæmd“, sagði ung kona við mig. „Fyrir stríð var fimm sinnum ódýrara að fara í bíó en nú er, og þá græddu bíóin. Nú skaðast þau þrátt fyrir okrið“. „Eg held, að ríkið sé segir, að verkalýðurinn væri eina stétt þjóðfélagsins, sem gæti veitt sér þann ,,lúxus“, að fara á leikhús, óperur og kaupa bækur. Þetta geri hann ekki. Leikhúsin standi tóm og bæk- urnar seljist ekki. Eg fór nokkr um sinnum á söngleikahús í Praha. Þau eru mörg og glæsi leg í borginni, flest byggð af keisurum Hins heilaga þýzk- rómverska ríkis, meðan þeir höfðu aðsetur sitt þar. Húsin voru alltaf nokkurnveginn full setin, þegar mig bar þar að, en þar var ekki margt um prúð- búið hefðarfólk. Mest bar á almúgamönnum, sem virtust hafa skroppið heim, áður en þeir fóru í leikhúsið, þvegið sér og farið í lireina skyrtu. Jakkinn skiptir ekki miklu máli í Praha að sumarlagi. Konurn- ar voru flestar í léttum lérefts kjólum. Listagyðjan setur nið- ur í augum sumra, er henni hlotnast slíkir aðdáendur. Kaupgjald í landinu er all- mismunandi eftir atvinnugrein um og afköstum. Lágmarks- kaup var talið um 3000 kr. (um 400 kr. ísl.), en faglærðir menn geta fengið um 7000 kr. (um 900 kr. ísl.). á mánuði. Algengasta verkamannakaupið er 5000—6000 kr. á mánuði. Verðlag er yfirleitt mjög lágt á okkar mælikvarða, þegar ís- lenzka fiskinum sleppir. Af hon um kostar 56 kr. kílóið í flök um. Lítið verð er á kjötinu. Tékkar eru bölvaðar kjötætur Tékkóslóvakía er mikið ferðamannaland bæði að vetur- og sum- arlagi. M. a. eru þar mjög góð skilyrði til skíðaferða. Á myndinni sézt eitt af hinum mörgu skíðahótelum landsins. aður er ekki sjáanlegur, þó mun eitthvað kveoa að „kunn- ingjaverzlun“ með einstakar tegundir matvæla, Til saman- burðar má geta þess, að svip- uð máltíð á ódýrum veitinga- húsum kostar um 1/60 úr viku kaupi í Praha, 1/ 44 í Reykja- vík, 1/20 í London og 1/15 í París. Þessar tölur sýna á eng- an hátt hlutfallið milli kaup- gjalds og framleiðslukostnaðar í þessum borgum, en ég býst við að þær bendi í áttina. Óhæg banalega Eftir heimkomuna virðist mér ég skilji betur en áður, af hverju öll svartsýnin og bar- lómurinn stafar hjá okkur og öðrum vestrænum þjóðum. Við búum við stjórnarfar, sem er hluti af fortíðinni og þolir ekki að sjá árroða nýrrar aldar, sem gerir mannlegum verðmætum hærra undir höfði en áður tíðk aðist. Fylgjendur auðhyggjunn ar finna að völdin forréttind- in eða rás viðburðanna fer allt af hörðum höndum um það, sem veitir mótspyrnu. Það er hægt að stífla fljótið í bili, en það brýzt alltaf einhvers stað- ar fram og leitar til sjávar. Á öllum tímum hafa togazt á framsækin öfl og afturhald. Afturhaldið hlýtur jafnan í sögunni þungan áfellisdóm hvort sem menn hafa glæpzt til fylgis við það af fáfræði, illgirni eða afglapaskap. En umbótamennirnir mega ekki telja sig hafa höndlað allan sannleika, því að einn góðan veðurdag vakna þeir þá við að vera staðnaðir í rás tímans. Eg spurði Tékka oft að því, hvort þeir væru ekki ánægðir með þá skipun málanna sem þeir hefðu komið á hjá sér. Svör þeirra voru oft á þessa leið: „Við erum ekki ánægðir, af því að við erum umbóta- menn. Við getum gert betur. Sjáið þér til“. að fara á hausinn", sagði ann- og vilja helzt ekki fisk, nemajin eru að dragast úr höndum ar. „Verkalýðurinn og þjóðaýt ingin sliga það. Eg held, að verzlunarjöfnuðurinn sé mjög óhagstæður". Þegar ég athug- að hagtíðindi, sá ég að verzl- unarjöfnuðurinn hafði verið hagstæður um nokkra milljarða króna síðastliðið ár. thaldssamur menntamaður fræðir mig á því, að verka- lýðurinn sé að drepa alla and lega starfsemi í landinu. Hann síld. Kvenfólkið er í holdugra1 sér. Þeir finna að „dagur reiði, lagi, og er nauðsynlegt að benda því á að éta fisk til þess að hlaupa ekki í spik á unga aldri. Á ódýrari veitingahúsum er hægt að borða dágóða máltíð fyrir 20 kr., en á dýrari stöð um fyrir um 40 kr. Af þessu sést, að almenningur lifir ekki í neinu óhófi. Nokkur skortur er á sumum vörum og margt dagur bræði“ nálgast. Þegar ég var krakki, las ég söguna af Ivari Hlújárni. Fremst í bókinni var mynd af Reginvaldi uxaskalla á banasænginni, þar sem allskonar ófreskjur og minningar um forna glæpi sækja að honum. Auðvaldinu er líkt farið. Því er fremur óhæg banalegan, og mun hún er skammtað, en svartur mark þó verða óhægri síðar. Þróun Ársstefna ungmennafélaga Tékkóslóvakíu, er hún var haldin á ny eftir lO .ára hernám Þjóðverja Kvenskátafélag Reykjavíkur 25 ára Miðvikudaginn 15. okt. minnt- ist Kvenskátafélag Reykjavíkur 25 ára afmælis síns með hófi að Skátaheimilinu við Hringbraut. Frú Hrefna Tynes, félagsfor- ingi, flutti ávarpsorð og bauð gesti velkomna. Undir borðum voru margar ræður fluttar. Skátahöfðingi dr. Helgi Tómas- son flutti félaginu árnaðarósk- ir og gaf því göngufána. Einnig veitti hann frú Hrefnu Tynes Þórsmerkið í viðurkenningar- skyni fyrir mikið og gott starf í þágu skátamála. Frú Áslaug Friðriksdóttir rakti sögu félags- ins umliðin 25 ái í stuttum drátt um. Frú Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti flutti kvæði, sem hún gaf félaginu í tilefni afmælisins. Fyrsti félagsforingi Kvenskátafélags Reykjavíkur frk. Jakobína Magnúsdóttir yf- irhjúkrunarkona var kjörin heiðursfélagi. Félaginu barst f jöldi gjafa og skeyta. Eftir að borðum hafði verið rutt hófst varðeldur. Þar skemmtu skátastúlkur með sög um, hljóðfæraleik, smáleikþátt- um og söng. - Framhald á 7. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.