Þjóðviljinn - 27.11.1947, Síða 5

Þjóðviljinn - 27.11.1947, Síða 5
Fimmtudagur 27. nóv. 1947. ÞJÓÐVILJINN 5 Aukin f ramleiðsla sjávarútvegsins - betri hagnýting gjaldeyrísins Um fátt hefur verið rætt og ritað meira hér á landi i seinni tíð en svokallaða dýrtíð og nauðsyn þess að vinna bug á henni. Núverandi rikisstjórn hefur gert það að aðalstarfi sinu að halda uppi þessum um- ræðum og það án þess, að hún hafi fram að þessu borið fram nokkra tillögu um lausn vandamálanna. Rauði þráðurinn í öllum umræðunum um dýrtíðarvandamálin frá hendi núveraaidi ríkisstjórnar hefur verið lækkun kaupgjalds og launa. Þessi áróður hefur allur beinzt að því að reyna að sannfæra almenning urn það, að eina orsök dýrtíðar séu há laun og því sé lækkun á laun- um eina ráðstöfunin, sem( þarf til að leysa vandamálin. Það þarf raunar tæpast að taka það fram, að þetta er fjarri öllum sanni. Sú hækkun lauua og kaupgjalds, sem orðið hef- ur, stafar að langmestu leyti af þeirri dýrtíð sem orðið hef- ur í landinu. Kaupgjald og laun yfirleitt voru að vísu óeðlilega lág fyrir stríð, sem stafaði af því stöðuga kreppu- og at- vinnuleysisástandi, sem borg- araflokkunum tókst að koma hér á og viðhalda, og hefur verkalýðslireyfingin leiðrétt þetta þjóðar heildinni til mikils gagns. Langmestur hluti þeirra launaliækkana, sem orðið hafa, stafa af því, að dýrtíð og verð- lag í landinu hefur gert þær óhjákvæmlegar. Orsakir dýrtíðarinnar eru margvíslegar Orsakir dýrtiðarinnar eru vit- anlega mjög margvíslegar, og sumar af þeim orsökum og ekki þær veigamihnstu stafa. af at- burðum, sem skeð hafa erlendis og ekki er á færi ísléndinga að hindra. Aðrar stafa beinlínis af ráðstöfunum íslenzkra stjórnar- valda og eru því alveg á valdi þjóðarinnar að fyrirbyggja. Þær orsakir felast í því livoru- tveggja, að ísl. stjórnarv. hafa gert ráðstafanir, sem hafa prð- ið til þess að stórauka dýrtíð- ina, eða ekki gert í tíma ráð- stafanir ti! þess að hindra, að áhrif af viðburðum erlendis yllu óeðlilegri dýrtið í landinu. Frá sjónarmiði Sósíalista- flokksins var það ein höfuðor- sök gjaldevrisskorts, atvinnu- leysis og þeirra vandamála, sem atvinnuvegirnir eiga nú við að stríða vegna dýrtíðarinnar, að höfuðatvinnuvegur þjöðarinn- ar, sjávarútvegurinn, var ekki búinn þeim tækjum, hvorki livað snerti fiskiskip og báta né heldur Verksmijukost i landi til þess að geta staðið und ir. þörfum þjóðfélagsins fýrir gjaldeyri og atvinnu. Ástandið í þessum efnum fyrir stríð var með sh'kum ósköpum, að eng- inn hefur treyst sér til að mæla því bót. Fiskiflotinn var bæði lítill og auk þess voru flest skipin og bátarnir of gömul og mjög dýr í rekstri. Auk þess var verksmiðjukosturinn í landi allt of lítill. Síldarverksmiðjurn ar höfðu ekki nærri undan að vinna síldina, ef nokkuð veidd- ist, hraðfrystihús voru svo fá og smá, að þau gátu ekki unnið úr öðru en örlitlum hluta af fiskaflanum. Þær stjórnir, sem hér sátu að völdum fyrir strið, létu reka á reiðanum og andvara leysi þeirra í sjávarútvegsmál- um gekk meira að segja svo langt, að eftir að- flestir salt- fiskmarkaðir landsins höfðu lokazt, voru ekki gerðar ne n- ar stórfelldar ráðstafanir til þess að koma upp harðfrysti- lnisum eða öðrum fiskiðjuver- run. Ástæðan fyrir því, að hægt var þó að halda úti hinum gamla og úrelta fiskiflota, og það þó ekki hafi venö hægt að gera annað við aflann en að salta hann, umfram það litil- ræði, sem fyrir stríð var hægt að flytja út af ísfiski, var sú, að í landinu voru að staðaldri þúsundir manna atvinnulausar ■ og þeir, sem atvinnu höfðu, unnu t f>Tir svo lítið kaup, að á engan hátt var mannsæm- andi. Það var með öðrum orð- um örbirgð almennings, sem gerði það kleift að halda sjávar útveginum gangandi með hm- um úreltu tækjum. Leiðin til að skapa at- vinnuöryggi í landinu Eftir að stríðið byrjaði og at- vinna varð nóg handa öllum við föst störf í landi, var augljóst, að miklir erfiðleikar yrðu á því að halda sjávarútveginum gangandi með hinum lélegu tækjum. Þetta kom ekki að veru legri sök á meðan markaður í Englandi fyrir ísfisk var ótak- markaður og það fyrir hátt verð. En það hlaut að vera öll- um ljóst, að hin mikla ísfisk- sala var styrjaldarfyrirbrigði, enda kom það á daginn. Þegar fór að líða á stríoið, varð sá markaður sífellt. óstöðugri, og eftir að stríðinu lauk, kom það fljótt í ljós, að ekki var hægt að treysta honum. í sjávarútveginum íslenzka var um tvent að velja, annars- vegar að láta sér nægja þau ófuílkomnu og úreltu treki, sem notazt var við fyrir stríð, og til þess að hægt væri að reka þau með að hverfa til sama á- stands í atvinnumálum og var fyr'ir styrjöldina, stórlækka launin og tekjurnar og koma á atvinnuleysi, til þess að ætíð væri fyrir hendi stór hópur manna, sem einskis annars átti úrkost en að taka vinnu á úr- eltu fiskiskipunum fyrir lágt kaup. Hins vegar að ráðast í stórfellda nýsköpun á sviði sjávarútvegsmála, afla nýrra| og fullkominna togara og fiski-j báta, byggja síldarverksmiðjur, liraðfrvstihús, beinamjölsverk- smiðjur og fleiri verksmiðjur til vinnslu fiskmetis og leggja áherzlu á að hagnýta sem full- komnastar vélar í hvívetna. Á þessa leið benti Sósialistaflokk- urinn sem þá einu, er gæti leitt til þess að skapa fullkomið at- vinnuöryggi í landinu, þannig að ekki þyrfti að koma. til at- vinnuleysis og allir gætu búið við mannsæmandi kjör. Sósíal- istaflokkurinn hafði þegar fyr- ir stríð flutt tillögur um það á þingi, að ráðist væri í stór- fellda endurnýjun fiskiflotans, en þeim tillögum var illu heili ekki sinnt. Rökin fyrir því að fara leið Sósíalistaflokksins voru mjög sterk, einkum þegar það var at- hugað, að gjaldeyrisforði sá, sem þjóðih hafði safnað á striðstímanum, gerði þjóðinni kleift að ráðast í þessar aðgerð- ir án þess að stofna til skulda eplendis. Aróður auðmanna- stéttarinnar gegn öflun framleiðslutækja Þó að leið nýsköpunarinnar hafi verið sú eðlilegasta og raunar ekki hægt' að skáka gegn henni neinum frambæri- legum rökum, var þó langt frá þvi, að hún hlyti viðurkenningu meiri hluta Alþingis bardaga- laust. Auðmenn Reykjavíkur töldu það öruggast hagsmunum sín- um, að sem allra minnatar breytingar væru gerðar. Ný og góð fiskiskip og fullkomin fisk- iðjuver hlutu að verða til þess að draga völd úr höndum þeirr- ar stéttár manna í Reykjavík, sem raltaði að sér óhóflegum gróða í skjóli þess, að þeir fengu til ráðstöfunar gjald- eyri þjóðarinnar sér að kostn- aðarlausu og án þess að taka á nokkurn hátt þátt í þeirri áhættu, sem fylgdi því að fram- leiða liann. Ný og fullkomin at- vinnutæki dreifð um landið hlutu að rýra völd og áhrif þessara gróðamanna og þá um leið rýra gróðamöguleika þeirra. Frá hendi þessara manna var rekinn magnaður áróður fyrir þvi, að ekki yrði ráðizt í öflun nýrra tækja eða byggðar verk- smiðjur. Þeir höfðu um fyrir- ætlanir sínar falleg orð og sögðu, að áður en ráðizt væri í kaup á nýjum fiskiskipum °g byggingu fiskiðjuvera yrði að tryggja fjárhagsgrundvöll atvinnulífsins. Hið þröngsýna sjónarmið auðmanna Reykjavíkur var boð að af miklum krafti af ríkis- stjórn Björns Þórðarsonar. Sú stjórn taldi það sitt hlutverk að reyna að sannfæra þjóðina um, að henni bæri að hafast ekkert að í nýsköpun atvinnu- lífsins á íslandi fyrr en búið væri að stórlækka kaupið og skapa hér jafnvægi í atvinnu- lífinu, sem svo er kallað, það er, að komið væri nægilegt at- vinnuleysi til þess að menn tækju með þökkum því sem að þeim væri rétt, bæði hvað snerti laun, vinnuskilyrði og vinnu- öryggi. Stjórn Björns Þórð- arsonar sat að völdum í nærr: tvö ár og fylgdi fram þessaxi stefnu, að ekki yrði ráðizt í neina nýsköpun atvinnuveg- anna. Nýsköpunarstefna sósialista átti almennu fylgi að fagna Haustið 1944 var svo kom- ið, að stefna Sósíalistaflokks- ins um xxýsköpun á sviði ísl. sjávarútvegs til þess að skapa almenningi öi-yggi um næga at- vinnu við góð lífskjör, með nýj- um og fullkomnum fiskiskip- um og bátum og fullkomnum 'fiskiðjuvei'um til þess að hægt væri að vinna til hlýtar úr afl- anum, átti svo almennu fylgi að fagixa með þjóðinni, að þing- menn borgaraflokkanna gátu ekki lengur skellt skollaevrtun við henni. Með samstarfi þriggja flokka Sósíalistafiokksins ,Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðufiokksins, var í október 1944 mynduð rík- isstjórn, sem gerði það að. að- alatriði i stefnuskrá sinni að afla atvinnuvégunum xxýrra og fullkominna tækja, og þá einkum sjávarútveginum, og verja til þess megninu af hinum erlendu innstæðum. Elcki er á- stæða til þess að rekja héi' störf og framkvæmdir þcirrar stjórnar, það hefur verið gert oft áður. Freunsókn skatrst úr Ieik Þegar nýsköpunarstjórnin var mynduð, skarst einn flokk- urinn, Fi'amsókn, úr leik og vildi eigi eiga þátt í því átaki, sem gera átti á sviði atvinnu- málanna. Framsóknarflokkur- inn tók sér hluíverk ríkisstjóni- ar Björns Þórðarsonar og hamr aði stöðugt á því, að ekki mætti i'áðast í kaup nýrra framleiðslu tækja, ekki kaupa ný skip eða báta eða byggja verksmiðjur fyrr en búið væri að skapa ör- uggan fjái'hagsgrundvöll fyrir atvinnulífið, þ. e. lækka kaup- ið og minnka atvinnuna. Þess- um lestri fylgdi hjáróma söng- ur um ægilega kreppu, ólxjá- kvæmilegt hrun og hvei's kon- ar voða, ef út í stórhuga fram- kvæmdir yrði lagt. Framsóknar flokkurinn gerði sjónarmið þröngsýnustu auðmanna Rvík- ur að sínum og hafði allt á liornum sér, sem gert var til eflingar atvinnulífinu. Þessi söngur FramsóknarflQkksins var eins og gefur að skilja lxjáróma og fann ekki hljóm- grunn með þjóðinni, endá kom. það gi’einilega í ljós í síðustu kosningum, að yfii’gnæfandi meiri hluti þjóðarinnar fylgdi nýsköpunarstefnunni. S jálf stæðisf lokkur inn hefur snúið við blaðinu Það var og vitað frá upp- hafi, að innan Sjálfstæðisflokks ins var mikil andstaða gegn nýsköpunarstefnunni. Það voi'u áhrif hinna þröngsýnustu pen- ingamanna, sem vildu fyrir hvern mun hindra framkvæmd nýsköpunarinnar og koma á sanxs konar ástandi i atviixxxu og fjárhagsmálunx eins og lxér var fyrir strið. Þessi öfl færðu sig mjög upp á skaftið og stefndu að því að koma nýsköp- unarstjórninni frá. Nýsköpunin. var eitur í þeirra beinum og þeim fannst þegar búið að gera allt of mikið. Nú hafa þessi afturhaldsöfi orðið ofan á í flokknum. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur snúið við blaðinu. Áð- ur starfaði hann að framkvæmd nýsköpunar í atvinnulífinu, þrátt fyrir hrunsöng afturhalds seggjanna. Nú er öllu snúið öfugt. Bjarni Benedikts., hæstv utanríkisráðherra, gengur fi'Eim fyrir skjöldu til þess að ófrægja fyrrverandi ríkisstjóni og sann færa nxenn um, að hennar stefixa í atvinnumálum hafi ver- ið röng. Hxunsöngurinn, sem Framsókn var mikið til ein um í tíð fyrrv. ríkisstjórnar, er nú orðin sameiginleg trúarjátn- ing stjórnarflokkanna þriggja. Hlutverk núverandi ríkisstjóni- ar er í samræmi við þennan söng og hagsmuni þeiri'a þröng sýnu auðmanna, sem að lienni standa. Stjónxin virðist hafa þessi þrjú höfuðverkefni: 1) að stöðva nýsköpunina, 2) að stöðva atvimiuframkvæmdir yf- irleitt og koma á atvinnuléysi, og 3) að lækka lífskjör almenn- ings. Þetta telur stjórtiin sig þurfa að gera til þess að koma liér aftur á því ástandi, sem var fyrir stríð, en það virðist xrera óskadraumur liennar. Ríkisstjói’nin héfur farið mjög dult með, hvaða tillögur hún ætlar að bera franx, ef hún er þá búin að taka unx það nokkrar ákvarðanir. Hin ýmsu vandamál biða óleyst og Al- þingi er stai'fslaust. Almennt var búizt við þvi, að ríkisstjórn- in, sem tók við völdum í byrjun febrúar s. 1. og sifellt hefur hami’að á því, að þjóðin væri komin á glötunarbarm og að ekkert geti bjargað lienni ann- að en djarfar og gagngerðar, en þó umfram allt skjótar dýr- tíðarráðstafanir, skuli ekki hafa. lxaft neinar tillögur að leggja fyrir Alþingi, er það kom sam- an 1. október. Aiíkin gjaldeyris fram leiðsla og betri hagnýt- ing gjaldeyrisins er lausnin í dýrtíðarmál- unum Með frv. því, er Txirt var hér í blaðinu síðasliðin laugardag, leggur Sósíalistaflokkurinn fyrir Alþingi nxegintill- lögur sínar um lausn á vanda- málum dýrtíðarinnar og at- vinnuveganna. Sósíalistaflokk- ui’inn er þeirrar skoðunai', að í Framhald á 7. síðu,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.