Þjóðviljinn - 28.11.1947, Blaðsíða 5
Föstudagur 28. nóv. 1947
ÞJÓÐVILJINN
5
Merkasti atburður á Al-
þingi þessa viku er tvímæla
laust flutningur frumvarps
ins er þrír þingmenn Sósíal-
istaflokksins, Einar Olgeirs-
son, Áki Jakobsson og Lúð-
vík Jósepsson bera fram, til-
lögur flokksins um ráðstafan-
ir gegn dýrtíð/inni og til að
t'ryggja rekstur útvegsins.
Tillögur sósíalista í þessum
málum hafa vakið mikla at-
hygli, og þá fyrst og fremst
alþýðu og útvegsmanna. Þyk-
ir ekki ástæða að rekja sjálf-
ar tillögurnar hér, því rúmi
Þjóðviljans er þessa dagana
mikið til varið í kynningu
frumvarpsins. En þeim les-
endum sem ekki hafa kynnt
sér málið rækilega, er ráð-
lagt að lesa vandlega frum-
varpið sjálft, er birt var í
laugardagsblaðinu, hluta úr
greinargerð þess á fimmtu-
síðu blaðsins i gær (fimmtu-
dag) og aðrar greinar er blað
ið birtir. Um þetta mál má
enginn _ sósíalisti láta sér
nægja hraflþekkingu. hver
flokksmaður verður að geta
sagt með vissu hverjar til-
lögur flokksins eru og fært
rök að þeim. Nákvæm þekk-
ing er undirstaðan, sjálf-
stæð hugsun og rökfærsla
fyrir góðum málstað auðveld
á þeirri undirstöðu.
★
Nokkuð má ráða af við-
tökum frumvarpsins að and-
stæðingar sósíalista finna hve
þessar tillögur í dýrtíðarmál-
unum eiga víða hljómgrunn,
að hér er komið með raun-
hæfar úriausnir á þeim vaiida
sem glímt er við. Morgun-
blaðið hreytir skætingi að
frumvarpinu, Tíminn skrifar
um það broslega vit-
lausan leiðara í ófræging-
arskyni enda þótt hér sé í
meginatriðum fylgt leiðum
þeim sem foringjar Fram-
sóknarflokksins hafa talið
æskilegar. En einkennileg- i
ust eru þó viðbrögð ríkis- i
stjórnarinnar sjálfrar. Hún j
lætur Tímann tilkynna s. 1. |
mánudag og því er útvarpað j
með þingfréttum að von sé j
á tillögum ríkisstjórnarinnar.l
í dýrtíðarmálunum og hafi j
ráðherrarnir unnið af kappi
síðustu dagana við samn-
ingu frumvarps Um það mál!
En kapp ráðherranna virðist j
ekki hafa dugað til. Ftum-
varp ríkisstjórnarinnar um
lausn á dýrtíðarvandanum er
enn ófætt, og var það þó boð-
að með belgingsræðum sem
aðalverkeí’ni stjórnarinnar
fyrir níu mánuðum. En sá
meðgöngutími virðist ekki j
hafa nægt.
Tvo mánuði hefur Alþingi j
setið að fundum án þess að |
ríkisstjórnin hafi nokkuð lát- |
ið frá sér fara um þessi mál'!
annað en hrunræður og svart- :
sýni prédikanir. Þegai' svo
stjórnarandstæðingar' bera
fram frumvarp og benda á
færar leiðir, grípur ríkis-
stjórnin til þess að hindra að
Þingsjá Þjóðviljans
28. nóv. 1947
URRÆÐI ALÞYÐUNNARl
eða úrræði afætufólksins
tillögurnar fái þinglega með-
ferð! Hvorki í gær né fyrra-
dag var fundur haldinn í
neðrideild, og virðist það ein-
göngu gert til að hindra 1.
umræðu um dýrtíðarfrum-
varp sósíalista, þar til kapp-
vinna ráðherranna hefur bor-
ið árangur og stjórnin þarf
ekki að standa frammi íyrir
þjóðinni í allri eymd sinni
og úrræðaleysi, en geti þó
veifað einhverjum tillögum.
Á íslenzka lýðveldið skilið
svo vesæla stjórn?
En það fer ekki dult að
miklai' vonir eru tengdar við
þetta frv. sósíalista. Verka-
mönnum. sjómönnum og öðr-
um launþegum er það fagnað-
arboðskapur, að fram eru
bornar tillögur er fela í sér
lausn dýrtíðarmálanna, án
þess að rýra þurfi lífskjör
alþýðu og tryggja aðalat-
vinnuvegi þjóðarinnar, sjáv-
arútv., bærileg og batnandi
kjör. Það kemur enn í ljós
að sósíalistar. vegna þekking-
ar sinnar á þjóðfélaginu og
þjóðfélagslögmálum, eru fær-
ari um að leysa flókin vanda-
mál en aðrir stjórnmála-
flokkar landsins. Hitt skilur
þó ef til vill enn meira: Sósía
listar miða úrlausnir sínar
við hag aIþýðunnar, raun-
verulega hagsmuni mikils
meirihluta þjóðarinnar, við
ráðstafanir gerðar á
kostnað afætufólksins sem
drekkur arðinn af starfi
sjómannsins og lætur báta-
útvegsmanninn ganga slypp-
an frá góðri vertíð. Á kostnað
afætanna sem raka arði sjáv-
arútvegsins í gróðabrallsverzl
un, stela hundruðum þúsunda
af dýrmætasta gjaldmiðli
landsins með ,.löglegum“ og
ólöglegum aðferðum og bæt-
ast árlega. við tölu milljóna-
burgeisanna í Reykjavík.
Það er ekki hægt að
tryggja rekstur útgerðarinn-
ar og gera ráðstafanir gegn
dýrtíðinni án þess að ein-J
hver verði að borga. Barátt-i
an sem nú er háð er um það
einfalda atriði hver eigi að
borga.
Annarsvegar í þeirri bar-
áttu er hin mikla fylking
launþega landsins og allra
frjálshuga manna, sem vilja
að hindrað verði arðránsstarf
milljónaburgeisanna og arður
inn af vinnu landsmanna
fái að streyma frjóls um at-
! vinnulíf þjóðarinnar. Þa-3
sjónarmið er rauður þráður
í tillögum Sósía li s taflok k s -
ins.
Hins vegar er hagsmuna-
fylking afætufólksins. Það
fólk hefur líka ákveðnar til-
L
ílögur um hver eigi að borga.
i Það vill að alþýðan, launþeg-
arnir, fát.œkasta fólkið í land-
inu borgi dýrtiðarráöstafan-
'irnar, tillögur afætufólksins
miðast allar við þá ..lausn“
að lífskjör alþýðu séu rýrð.
Ýmsum mun þykja það ó-
sennilegt þrátt fyrir allt, að
„fyrsta stjórnin sem Alþýðu-
flokkurinn myndar“, að þrír
stjórnmálaflokkar, Sjálfstæð-
isflokkurinn, Framsókn og
Alþýðuflokkurinn sameinist
um að bera fram á Alþingi
þessar frekjukröfur arðráns-
fólksins sem sína lausn á
dýrtíðarmálunum. Næstu
dagar skera úr því.
ik
Geri þeir það. er það i
trausti þess ,að alþjóð láti
enn blekkjast. blekkjast lengi.
í trausti þess að því verði
trúað að „allir eigi að fórna".
í trausti þess að Rússagrýlan
hræði nógu marga frá raun-
hæfri hugsun um íslenzk
stjórnmál. í trausti þess að
bjargálnamanninum Emil
Jónssyni og hinum stríðs-
óða skrifstofustjóra í félags-
málaráðuneytinu verði trúað
til þess að verið sé að heyja
heilagt stríð við ,.Rússa“
þegar í raun og veru er bar-
izt um lífskjör íslenzkrar al-
þýðu.
Skyldi þeim ekki skjátlast
þessu sinni?
S. G.
Félög Sameiniiðii felóianna
‘T • ’
Við stofnun S.Þ. var mjög
byggt á þeirri reynslu, sem
fékkst af starfsemi Þjóða-
bandalagsins gamla. Menn
reyndu að meta styrkleika og
veilur þess og leituðu eftir
raunsæjum skýringum á van-
mætti þess til að leysa v?.nda
málin í sambúð þjóðanna ogj
hversvegna það reyndist ó-,
megnugt að leysa ætlunar-j
verk sitt af hendi.
Niðurstöður þessara athug-|
ana birtust m.a. í því sameig-j
inlega áliti forvígismannaS.Þ. j
að ein af höfuðás.tæðum fyrir |
vanmætti Þjóðabar.dalagsins
hafi verið sú. hve samband
þess við alþýðu manna í
hinum ýmsu löndiun var
veikt og er á reyndi naut
það ekki stuðnings fólksins.
Það hafði verið vanrækt að
gróðursetja hugsjóní" Þjóða-
bandalagsins í huga almenn-
ings, en hugsiómr eru sá
tengiliður, sem gildi hefur
á þeirn vettvangi t re.ynd-
inni var Þjóð.abandalagið
ekki stofnun fólksins, held-
ur samband ríkisstjórna. semj
hinum óbreytta borgara
fannst sér óviðkomandi og
fann þvi ekki köllun hjá sér
til að ljá því hollustu sína.
Þessi örlagaríka reynsla
Þjóðabandalagsins skyldi nú
hagnýtt i þágu Sameinuðu
þjóðanna. S.Þ.. eru að formi
til samband ríkisstjórna, en
framsýnustu. brautryðjendur
telja að megin skilyrði fyr-
ir farsælu gengi þeirra sé
fólgið í því, að takast mætti
að vinna hug og hollustu.al-
þýðu manna um allan heim
við hugsjónir þær. sem liggja
til grundvallar fyrir stofnun
og starfsemi þeirra.
Til þess að vinna að þessu
marki. hafa verið stofnuð fél-
ög Sameinuðu þjóðanna
(United Nations Associations
skammstafað: UNA) innan
vébanda flestra meðlima
þjóða S.Þ. Þessi félög eru
óháð S.Þ. og ríkisstjórnum,
en eru frjáls félagssamtök
almennings.
Megin tilgangur félaganna
er að kynna almenningi hug-
■sjónir, starfsemi og eðli S.Þ
og hervæða almenningsálitið
til stuðnings við þær. Jafn-
fram því vinna þessi félög
að hverskonar viðfangsefnum
sem eru í anda hugsjóna S.Þ. ,
svo sem aukinni kynningu og
skilningi milli þjóða, að eíla
og treýsta vináttu og sam-
vinnu þeirra um að bæta. ogi
fegra líf mannkynsins. Tak-i
mark þeirra er að gera al-j
menning allra landa virkanj
þátttakanda gegnum félög |
S.Þ. í því alþjóðasamstarfi j
sem S.Þ. hafa forustu um. |
Þegar hafa . verið stofnuð j
félög S.Þ. í 27 löndum, þar
af 25 meðlimum S.Þ. og 2|
utan þeirra. Auk þess eru
starfandi undirbúningsnefnd-
ir í 10 meðlimalcndum S.Þ.
Þannig hafa félögin formlega
hafið starfsemi eða verið að
undirbúa stofnun þeirra í 35
meðlimalöndum S.Þ. og 2 ut-
an þeirra, én meðlimir S.Þ.
eru nú 55. Ætlast er til að
slík félög starfi innan vé- !
banda allra meðlimaþjóð-1
anna. Á Norðurlöndum hafa
félögin verið stofnuð ailstað- j
ar nema í Finnlandi og á ís-1
landi.—
Félögin eru hugsuð sem
frjáls samtök. sem nái til j
alls almennings í hverju i
landi, óháð ríkisstjórnum og j
S.Þ. Þau séu dreifð út um
löndin, en hvért land myndar
landssamband Landssambönd j
in hafa þegar myndað al- j
þjóðasamband (World Fed-
eration of the United Nations
Assocations), sem stofnað var
l
á s. 1. ári. Forseti þess er Jan
Mazaryk utanríkisráðherra
Tékkóslóvakíu.. Heiðursfor- j
setar eru þeir friðarvinurinn
brezki Cecil greifi, frakk- i
neski skörungurinn Joseph |
Paul Boncour og kínverjinn I
Dr. Chu-Chia-Hua. Samb.
hefur aðalbækistöðvar í New
York og París. Aðalfram-
kvæmdastjóri þess er Mr.
John Ennals ungur Englend-
ingur, sem hefur unnið mik-
ið starf íyrir félögin.
Alþjóðasambandið er þann-
ig í rauninni frjálst sainband
alþýðumanna í heiminum.
sem vinnur af sjálfsdáðum
fyrir hugsjónir S.Þ. Þetta
samstarf byggist á því raun-
sæi, að örlög allra manna á
jörðinni séu svo tengd að
samvinna um sköpun þeirra
sé nauðsyn og þá fyrst og
fremst gegnum farsæla starf-
semi S.Þ.
Félög sameinuðu þjóðanna
eru ópólitísk og hafa innan
vébanda sinna menn allra
pólitískra flokka og skoðana
sameinaða um meginhugsjón
félaganna. Meðlimir þeirra
geta verið einstaklingar,
hverskonar starfandi félags-
samtök, sambönd og stofnan-
ir. Þau reyna að tryggja sér
opinberan stuðning forustu-
rnanna þjóðlífsins í stjórn-
málum og á öðrum sviðum
og bera blæ af einhuga sam-
starfi almennings.
Starfsemi íélaganna er eink
um fólgin í umræðufundum
sem taka afstöðu til mála og
geta á þann hátt haft áhrif
á afstöðu ríkisstjórna og jafn
fram reynzt þeim stuðningur
um afstöðu til alþjóðamála.—
Félögin eiga að verða eins-
konar miðstöð um slík efni,
sjá meðlimunum fyrir og út-
vega blöð. bækur og bæk-
linga. Sjá um þýðingar mik-
ilvægra gagna, gefa út rit
er sé helgað hugsjónum SÞ
log alþjóða samstarii. Þar
hafa ibrusicu .um þátttokr
almennings í hátíðahöldun
bundum við S.Þ., alþjóðlega
daga og hvað annað, sem al-
menning varðar um þau
efni.
Með þátttöku sinni í starfi
S.Þ. hefur ísland þegar tekið
á sig siðferðislega skyldu um
að auka kynni ög skilning
þjóðarinnar á hugsjónum S.Þ.
og að vinna að stuðning og
hollustu hennar við þær. Fé-
lög sameinuðu þjóðanna- er
heppilegt fprrn fyrir starf-
semi, er beindist að því
marki. Er í ráði að athuga
möguleika fyrir stofnun
slíkra félaga hér á landi.—•
í septembermánuði s. 1.
Framhald á 7. síðu.