Þjóðviljinn - 23.12.1947, Page 6
6
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 23. des 1947-
83.
Samsærið mikla
> eftir
MICHAEL SAYERS oa ALBERT E. KAHN
Hinn 28. október 1930 var prófessor Ramsín, ásamt
mörgum öðrum foringjum Iðnaðarflokksins, handtekinn.
OGP.U-enndrekar gerðu samtímis húsrannsóknir víðsveg-
ar um Sovétríkin og meðlimir leynihreyfinga þjóðbylting-
armanna, mensévika og hvítliða teknir fastir, og með
þeim allmargir pólskir, franskir og rússneskir njósnarar.
Réttarhöldin yfir Iðnaðarflokknum voru háð í
hæstarétti Sovétrikjanna í Moskvu, og stóðu frá 25. nóv.
til 7. des. 1930. Sakborningarnir átta, þeirra á meðal
prófessor Ramsín og Viktor Laritseff, voru sakaðir um
þátttöku í samsærum útlendinga gegn Sovétríkjunum,
um njósnir og skemmdarverk og tilraunir að kollvarpa
sovétstjóminni.
Er sakborningar urðu áskynja um sönnunargögnin sem
fyrir lágu gáfu þeir upp vörn hver af öðrum og játuðu
sekt sína. Framburður þeirra gaf nákvæmar upplýsinga.
um njósnar- og skemmdarstörf þeirra, og kom einnig
upp um Sir Henri Deterding, Joiuville ofursta, Leslie
Urquhart, Raymond Poincaré og fleiri fræga evrópska
stjórnmálamenn, hernaðarsérfræðinga og iðjuhölda, er
stutt höfðu Iðnaðarflokkinn og Torgprom.
Fimm sakborningar, þeirra á meðal prófessor Ramsín
og Viktor Laritseff, voru dæmdir til þyngstu refsingar,
til dauða, fyrir landráð. Hinir þrír sakbominganna, tækni-
fræðingar er framkvæmt höfðu annarra fyrirskipanir,
voru dæmdir í tíu ára fangelsi. 1.)
2. MÁLAFERLIN GEGN MENSÉVIKUM.
Skömmu eftir ófarír iðnaðarflokksins hófust Sov-
étyfirvöldin handa á ný. Fyrsta marz 1931 voru 14 for-
ingjar víðtæks skemmdarverkafélagsskapar, fyrrverandi
mensévika leiddir fyrir hæstarétt Sovétríkjanna í
Moskva. 2.)
Meðal sakbominga í málaferlunum gegn mensévikum
var fjöldi háttsettra embættismanna úr mikilvægustu
stjórnardeiidum og tæknistofnunum Sovétríkjanna. Á
fyrstu árúm Sóvétstjórnarinnar höfðu þessir mensévikar
þótzt leggja niður fjandskap sinn í garð bolsévika. í
samstarfi við Iðnaðarflokkinn og önnur leynileg and-
sovétöfl höfðu þeir komizt í mikilvægar stöður í stjómar-
kerfinu. Einn af samsærismönnum mensévika., Groman að
nafni, hafði fengið ábyrgðarstöðu í nefnd þeirri, sem út-
býr áætlunina um framleiðslu iðnaðarins (Gosplan), og
reynt að spilla fyrir fyrstu fimm ára áætluninni með því
að semja rangar áætlanir og lækka framleiðslumarkmið í
mikilvægum iðngreinum.
Frá 1928 til 1930 fékk ,,Bandalagsskrifstofan“, sem
var miðstjórn leynifélagsskapar mensévika, fé sem nam
alls um 500.000 rúblum erlendis frá. Ríflegustu fjárfram-
lögin komu frá Torgprom, en önnur öfl fjandsamleg
1) Tveim dögum eftir uppkvaðningu dómsins sendi prófessor
Ramsín og félagar hans fjórir er dæmdir voru til dauða, hæsta-
réttinum náðunarbeiðni. Rétturinh veitti náðun og breytti
dómnum í tíu ára fangelsi með þeim rökum, að Ramsín og fé-
lagar hans hefðu veriö verkfæri hinna raunverulegu samsæris-
manna erlendis, Ári eftir dóminn fékk prófessor Ramsín öll
skilyrði til framhalds visindastarfs, og varð loks eindregið
fylgjandi sósíalistískum samfélagháttum og tók að leggja fram
drjúgan skerf til iðnvirkjunar landsins. Hinn 7. júlí 1943 var
prófessor Ramsin sæmdur I.enínorðu og veitt Stalínverðlaun-
in, um 200 þús. kr., fyrir uppgötvun nýrrar gerðar rafala, sem
talin er hin fullkomnasta í heimi. Samkvæmt fyrirmælum sov-
étstjórnarinnar eiga þessir rafalar að bera nafn uppfindinga-
mannsins.
Þetta kallar Morgunblaðið meðnæii!
Stjóm B.S.R.B. hefur á fundi
sínum 16. desember 1947 ein-
róma samþykkt svohljóðándi á-
lyktun vegna framkomins frv.
tO laga um dýrtíðarráðstafan-
ir:
„Stjóm B.S.R.B. telur tíma-
bært að gerðar séu ráðstafanir
til þess að stöðva verðbólguna
og telur frv. ríkisstjórnarinn-
ar tilr’avm í þá átt.
Hins vegar er það álit banda
lagsstjórnarinnar að ákvæði
frumvarpsins, sem þar að lúta,
fullnægi ekki kröfu launþeg-
anna um sanngjama skiptingu
þeirra byrða, sem lagðar em á
þjóðfélagsþegnana og telur að
ákvæðin um eignaaukaskatt nái
langt of skammt, og rétt að
þeim ákvæðum verði breytt svo,
að la^ ðar verði á víðtækur og
allþungur stóreignaskattur.
Þá vill stjómin og benda á
það ,að ákvæði 12. gr. frum-
varpsins em óviðunandi fyrir
lamiþega, nema tryggt verði að
framfærslukostnaður hækki
ekki frá því sem nú er.
Verði samþykkt þessa frv. til
þess að stéttafélög með frjáls-
an samningsrétt, knýi fram
grunnkaupshækkanir, telur
stjómin sjálfsagt réttlætismál,
að opinberir starfsmenn fái sam
svarandi kjarabætur, enda hafa
þegar, svo sem kunnugt er, nær
öll stéttafélög náð fram stór-
felldum grunnkaupshækkunum
frá því er núgOdandi launalög
voru samin.
Loks vill stjómin ítreka fyrri
kröfur bandalagsins um endan-
lega afgreiðslu laga um réttindi
og skyldur opiriberra starfs-
mairna."
Morgunblaðið segir í gær að
þetta séu meðmæli með þræla-
lögunum og að Þjóðviljinn og
Brynjólfur Bjamason hafi farið
með staðleysu, að kalla sam-
þykktina andmæli. Virðist sjálf
sagt að stjóm Bandalagsins
skeri úr um hvor skilningurinn
sé réttur, að samþykktin sé með
mæli eða mótmæli!
Einn af sambandsstjómar-
mönnum B.S.R.B. hefur þegar á
fundi í einu bandalagsfélaganna
túlkað samþykktina sem „mót-
mæli“ gegn fmmvarpi ríkis-1
stjórnarinnar.
Of borginn!
Nasturlæknir ei i læknavarð-
tofunni Austui oæjarskólanum,
sími 5030.
Næturakstur B.S.R. sími 1720
Útvarpið í dag:
19.25 Tónleikar: íslenzkir kór-
ar syngja (plötur).
20.20 Jólakveðjur.
— Tónleikar (plötur).
22.00 Fréttir.
22.05 Jólakveðjur.
-— Tónleikar: Létt lög'
og danslög (plötur).
Dagskrárlok kl. 1.00 eða
síðar.
Trúlofun. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Svala Guð-
mundsdóttir, Vegamótum Sel-
tjamamesi ogSverrir Haralds-
son, Hólum á Rangárvöllum
Jólaleikritið.
Einu sinni var eftir Dracbmann
Síldin
Framhald af 8. síðu.
gærkvöld var verið að/ lesta
Hvassafell pg Pólstjörnuna,
að öðru leyti var lestað í þró
á þessu tímabili.
Þessi 49 skip komu:
Vörður Th. 800, Dóra 1050,
Morgunstjaman 550, Blakknes
1200, Hafborg 1850, Elsa 900,
Andey 400, Fróði og Bragi 1000,
Steinunn gamla 1100, Stjama
1350, Andvari Th. 750, Þor-
steinn RE. 950, Græðir 700,
Siglunes 1550, Síldin 1100,
Freyja 650, Fifsnes 1400, Sleipn
ir 700, Dux 1000, Ingólfur GK
1300, Fram 1000 Helga R 1450,
Björn Jónss. 100, Fagrikl. 1600,
Andvari 1000, Vilborg 1300, Vís
ir og Trausti 1100, Heimaglettur
900, Ármann 900, Andvari TH.
750, Þorsteinn RE 950, Græðir
700, Ág. Þórarinsson 1100, 111-
ugi 1100, Siglunes 1550, Síldin
1000, Freyja 650 Rifsnes 1400,
Sleipnir 700, Dux 1000, Ingólf-
ur GK 1300, Fram AK 1000,
Helgi RE 1450, Bjöm S. 1000,
Guðmundur Þorlákur 100.
Frumsýning á annan í jóhim
á ævintýraleiknum „Einu sinni
var“ eftir skáldið Holger Drach
/ mann. Mikil og fögur músík
eftir Lange-Muller. Leikstjóri
er Lárus Pálsson, hljómsveitar-
stjóri er Þórarinn Guðmnnds-
son.
Aðalhlutverkin leika Alda
Möller, Ævar R. Kvaran og
Lárus Pálsson.
Dæmdir fyrir stríðs-
glæpi
Framhald af 1. síðu.
stríðslok var talinn ríkasti mað
ur Þýzkalands. Hann var ákærð
ur fyrir að hafa notað hertekið
fólk til þrælkunarvinnu og að
hafa staðið fyrir ránskap og
gripdeildum í hernumdum lönd-
iun. Var hann fundinn sannur
að sök um bæði ákæruatriðin og
dæmdur í 7 ára hegningarvinnu.
Nánustu samstarfsmenn hans
fengu 5 og 2 ára fangelsi.
Tvö önnur stríðsglæpamál gegn
forstöðumönnum auðhringanna
I. G. Farben og Krupps eru nú
á döfinni í Niimberg.
Leikarar, söngvarar og dans-
fólk alls 44 manns og tólf
manna hljómsveit.
Einsöngvarar eru Guðmunda
Elíasdóttir, Birgir Halldórsson
týraleikur Drachmanns, með
hinni yndisfögru músik Lange-
ólfsson hefur málað leiktjöldm.
„sígauna“-dans.
Balletmeistarinn Kaj Smith
Mjög er vandað til allra bún-
hefur æft dansana og dansar
sjálfur mjög skemmtilegan
inga og leiktjalda. Lárus Ing-
og Pétur Á. Jónsson.
Þessi fagri og fjörugi ævin-
Miillers, á geysimiklum vinsæld
um að fagna um öll Norðurlönd
óg víðar, enda leikinn víðsveg-
ar á hverju ári, t. d. verður
hann sýndur nú í vetur á
konunglega leikhúsinu í Kaup-.
mannahöfn og í Bergen, og
stutt er síðan að hann var
leikinn í Stokkhólmi.
Árið 1925 sýndi Leikfélagið
„Einu sinni var“ undir stjórn
Adams Poulsen, sem lék þá
hlutverk prinsins. -— Var leikið
9 kvöld í röð, alltaf fyrir hús-
fylli og mikla hrifningu' en oft-
ar var ekki hægt að leika þá
vegna þess að Poulsen gat ekki
dvalið hér lengur.
D A V I Ð
2) Mensévikar voru sérstakur armur innan rússneska Sósí-
aldemókrataflokksins, sem var fvrstu, skipulögðu samtök rúss-
neskra Marxista. Á öðru þingi rússneska Sósíaldemókrata-
flokksins, sem haldið var i Itondon 1903, klofnaði flokkurinn í
tvo andstæða hópa. Þessir hópar stofnuðu síðan hvor sinn
flokk. Fylgismenn Iænins voru nefndir Bolsévíkar (dregið
af bolshinstvo, sem þýðir meirihluti), andstæðingar I.enins
voru nefndir Mensévikar (dregið af menshinstvo, sem þýðir
minnihluti). Bolsévikarnir tóku.sér síðar að ráði Benins nafn-
ið kommúnistar, og opinbert nafn Bolsévikaflokksins varð:
Kommúnistaflokkur Rússlands (Bolsévikar). Mensévikar svör-
uðu til sósíaldemókrata og sósíalista annarsstaðar í Evrópu,
og bundu við þá persónuleg og félagsleg tengsl.