Þjóðviljinn - 24.02.1948, Qupperneq 4
á
ÞJÖÐVIL JINN
Þriðjudagur 24. febrúar 1948.
(MÓÐVIUIN
Útgefandl: SameSningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn
Kitstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Préttaritstjóri: Jón Bjarnason
Blaðamenn: AriKárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðu-
stíg 19. — Sími 7600 (þrjár línur)
Áskrlftaverð: kr. 10.00 á mánuði. — Lausasöluverð 60 aur. eint.
Prentsmiðja ÞjóðvUjans h. f.
Sósíalistafloklcurinn- Þórscrötu 1 - Rimi 7510 (þrjár línur)
Nýsköpnnarmál
Nú þegar er komið í ljós að því var ekki ófyrirsynju
getið til hér í blaðinu að afturhaldsöflin á þingi ætluðu sér
að koma frumvarpinu xim landshöfn í Höfn í Homafirði
fyrir kattarnef. Það mátti vita að þeir þingmenn, sem telja
það hlutverk sitt fyrst og fremst að leggjast gegn ný-
sköpunarframkvæmdum slíkum sem byggingum landshafna
létu sér ekki segjast við ráðninguna sem þeir fengu við
aðra umræðu málsins í efri deild. Gísla Jónssyni og Pétri
Magnússyni hafði með fylgi Sigui’jóns Á. Ólafssonar tekizt
að mynda meirihluta í sjávarútvegsnefnd deildarinnar er
lagði til að frumvarpið yrði fellt. En fylgi Sigurjóns dugði
ekki til skemmdarverksins. Það óvenjulega gerðiste þegar
til deildarinnar kom, að meirihluti þingmanna fylgdi minni-
hluta nefndarinnar, Steingr. Aðalsteinssyni og Birni Krist-
jánssyni og samþykkti frumv. gegn atkv. íhaldsráðherranna
beggja, Péturs Magnúss. landsbankastjóra og fóstbræðr-
anna Gísla Jónss. og Þorst. Þorsteinss. og auðvitað Sigur-
jóns Á. Ólafssonar sem ekki var feiminn að leggjast gegn
þessu mikla nauðsynjamáli alþýðunnar á Austurlandi. Þeg-
a,r málið korn til 3. umræðu í gær, fékk Gísli Jónsson um-
ræðunni frestað þar til seint í vikunni með tómum vífi-
lengjum.
Um það þarf enginn að efast að þetta mál er brýnt.
hagsmunamál ekki einungis fyrir Hornf-irðinga heldur og
allan bátaútveginn á Austurlandi. Ekki einu simii andstæð-
ingar málsins hafa reynt að sanna að málið ætti ekki rétt
á sér, bardagaaðferð þeirra hefur verið sú að telja byggingu
landshafnar í Hornafirði óframkvæmanlega af ýmsum tylli-
ástæðum. Málið hefm' verið flutt á tveim undanförnum
þingum og var undir þinglok i fyrra samþykkt við 2. umr.
.í efri deild, einnig þá gegn mótmælum ríkisstjórnarimiar.
Heima í héraði og austanlands á málið eindregnu fyigi að
fagna og vitamálastjóri er málinu mjög fylgjandi enda
hníga sterk rök að því að einmitt þarna þurfi að koma upp
Iandshöfn.
★
Síðustu áratugina héfur Höfn í Homafirði verið aðal-
fiskihöfn Austanlands á vetrarvertíð, vegna legu sinnar
nálægt hinum auðugu fiskimiðum við Suð-Austurland. En
léleg höfn hefur staðið vexti útvegsins fyrir þrifum. Þó
hefur komið þar á land dýrmætur afli. „Árin 1942—46, er
fiskurinn var fluttur út ísvarinn, nam fob. verð aflans af
ca. 30 litlum vélbátum frá 1,8—2,97 milljónum króna. Nú
hefur söluverð í Bretlandi verið 2,5—3 sinnum hærra og
mun því söluverð heildaraflans hafa numið allt að 9 milljón
um króna það árið sem bezt var“, segir i greinargerð frum-
varpsins. Þó ber þess að gæta að hafnarskilyrðin valda því
að í Hornafirði er útgerðin öll með litlum bátum.
Flutningsmenn frumvarpsins benda einnig á að frá
engri höfn á landinu er eins auðvelt að sigla með fiskinn
nýjan til hafna á Bretlandi og meginlandi Evrópu. Hefur
það Jíomið greinilega í ljós síðustu árin með útflutning á
ísvörðum fiski, og getur munað allt að tveimur sólarhring-
um sem sigling frá Hornafii'ði er styttri en frá mörgum
öðrum útflutningshöfnum.
Allt mælir með því að byggð verði á Hornafirði góð
fiskihöfn fyrir vaxandi heimaútgerð og vélbátaflota Aust-
urlands á vetrarvertíðinni. Hitt er augljóst. að Hafnar-
hreppur, með rösklega 300 íbúa, hefur ekki bolmagn til að
leggja fram að sínum hluta kostnað þeirra hafnarmann-
virkja sem þarna þarf, enda er málið ekki einkamál Horn-
firðinga heldur „eitt stærsta hagsmunamál alirar vélbáta-
útgerðar á Austurlandi og þar mcð alls Austfirðingaf jórð-
ungs“, eins og flutningsmenn Jtornast að orði. Hafnarfram-
kvæmdirnar sem gera þarf í Höfn verða ekki gerðar nema
ríkið ráðist í þær eins og lagt er til í frumvarpinu um
landshöfn í Hornafirði.
Ekki skrifstnfublók hjá
bæuum, — 40 kr. sekt
„Það er ekki von að þið vitið
það, börnin góð. Drottinn al-
máttugur veit það ekki einu
sinni, og varla ég sjálfur,,“
sagði kunnur klerkur fyrir aust
an fjall við fermingarbömin.
Maður nokkur kom inná
skrifstofur blaðsins fyrir
skömmu og skýrði frá því, að
hánn hefði fengið 40 kr. í sekt,
(og túkall í málskostnað), sam-
kvæmt úrskurði umferðadóm-
stólsins, fyrir að láta bíl sinn
standa framan við Nora Maga-
zin, meðan hann skrapp inn til
að kaupa skrúfjám. „En væri
ég skrifstofublók hjá bænum,“
sagði maðurinn „gæti ég látið
bíl minn standa þama um alla
eilífð, saklaus eins og lamb fyr-
ir umferðadómstólum Guðs og
manna.“
Starfsmenn á skrifstofum
bæjarins eru nefnilega aðnjót-
andi þeirra sérréttinda að mega
láta bíla sína standa um eilífð
í Pósthússtræti, frá horni
Reykjavíkurapóteks og útað
Borg. Hvað á þetta að þýða?“
—* En við sögþumst ekki vita,
hvað þetta ætti að þýða. —
Og þá kom maðurinn með ofan-
skráða tilvitnun í klerkinn fyrir
austan fjall.
¥
Vissara að fara á harða-
hlaupum fyrir hornið?
Og maðurinn nefndi fleiri
dæmi þessu lík. Þannig sagði
hann, að bankamenn, og mig
minnir líka Moggamenn, mættu
ósektaðir láta bíla sína standa
á vissum stöðum í Austurstræti
eins lengi og þá lysti; en það
kostaði að mmnsta kosti 40 kr.
(plús 2 í málskostnað) fyrir
annað fólk! — að ógleymdri yf-
irheyrslu. „Væri ekki réttast að
skipta Miðbænum í mörg smá
svæði handa hinum og öðrum
flokkum manna að láta bíla
sína standa á; — án þess að
verða 40 krónum fátækari?“
sagði maðurinn. „Mér þætti þá
gott, ef ég gæti fengið að vita,
hvaða flokki ég til lieyrði. a, b
eða c, ha?“ Og um leið og hann
fór út úr dyrunum: „Skyldi
maður annars sjálfur mega
stanza á gangstétt Pósthússtræt
is í námunda við Nora Magazin,
verandi ekki skrifstofublók hjá
bænum? Er ekki vissara að
fara næst á harðahlaupum fyr-
ir hornið á Reykjavíkurapó-
teki?“
Eg birti hér með þetta. bréf
til þenkingar fyrir umferðavitr-
inga hins íslenzka höfuðstaðar.
*
Sorptunnur íhaldsins við
Holstein
Og svo var það húsmóðir ein,
sem hringdi til mín og sagði,
að hún væri ekki beint geðsleg
lyktin af sorptunnum íhaldsins
við Holstein. Kvaðst konan hafa
átt leið framhjá því fræga húsi
norðanverðu, og þá leið mundi
hún ekki aftur fara fyrst um
sinn. Konan á nefnilega vanda
fyrir ógleði.
Það er útaf fyrir sig ófor-
svaranlegt að íhaldið láti sínar
i
Síldin
Framh, af 8. síðu
hafa hætt síldveiðum og farið
á þorskveiðar; sumir vegna
þess að þeir voru samnings-
bundnir á línuveiðum.
Síðan í fyrrakvöld til ld 9 i
gærkvöld höfðu 21 skip komið
hingað með sEimtals 14.650 mál
af síld. Þau eru: Sleipnir NK
með 300 mál, Ingólfur RE 50,
Fagriklettur 1100, Edda 500,
Viðir AK 1100, Andey EA 900,
Rifsnes 900, Sigurður SI 900,
Jökull 1600, Hólmaborg 200,
Víðir SU 800, Sigurfari 300,
Fróði GK 200, Narfi 500, Jón
Valgeir 300, Ingólfur GK 1250,
Siglunes 1000, Akraborg 700,
Keilir AK 550, Helgi Helgason
1100 og Viktoría 400 mál.
Félag járniðnaðar-
manna
Framh. af 8. síðu
vara þeir Baldur Ólafsson og
Jóhannes Jónsson,- Endurskoð-
endur voru kjörnir þeir Þórir
Skai’phéðinsson og Hafsteinn
Guðmundsson og til vara ís-
leifur Arason. Samþykkt var að
félagsgjald haldist óbreytt en
það er 10,00 kr. á viku.
★
Vísir gerði í gær þessa kosn
ingu að uppsláttarfrétt um ó-
sigur „kommúnista". Hinn vilti
fögnuður þessa afturhaldsmál-
gagns yfir formansskiptunum,
er athyglisverður, og óvíst
hvort hann er hinum nýja for-
manni mikið fagnaðarefni
í þessum kosningum samein-
uðust allir afturhaldsflokkarnir
Þetta mál er tvímælalaust eitt merkasta málið sem nú
liggur fyrir Alþingi. Það hefur þegar komið í ljós að það
á miklu fylgi að fagna. En hitt hefur einnig sézt, að sterk
afturhaldsöfl reyna að eyða þessu nýsköpunarmáli og
hindra að það komist gegnum þingið nema þá stórskemmt.
Enn er tvísýnt um framgang málsins, en þeir flokkar sem
tækju á sig þá ábyrgð að híndra afgreiðslu frumvarpsins
um landshöfn í Hornafirði yrðu látnir standa á því reikn-
ingsskap hvar sem þeir sýna sig á Austurlandi.
sorptunnur standa á almanna-
færi. En þegar þar við bætist,
að sorptunnuraar, sem standa
undir norðurhlið Honsteins, eru
opnar, — á þeim engin lok, —
þá freistast maður til að lcalla
reykvískt íhald sóðalegt íliald.
4r
Eitt af hinum „viðkvæmu
málutm" ?
Konan, sem hringdi til mín,
sagði ennfremur, að fyrir
nokkru hefði þess verið krafizt
af sér, í nafni heilagrar heil-
brigðisreglugerðar, að hún setti
nýtþ lok á sína sorptunnu. Sorp
tunnan hennar var sem sagt
ekki loklaus; — heilbrigðisreglu
gerðin heimtaði bara betra lok,
dýpra lok.
íhaldið hefur nú um langan
tíma látið sorptunnur sínar
standa við Holstein loklausar.
En aðilar þeir, er eiga að gæta
hagsmuna heiibrigðisreglugerð-
arinnar, virðast láta sér það
vel líka. Eru ilmtaugar þeirra
þá úr samfcandi, þegar óþefur-
inn stafar frá íhaldinu? Eru
sorptunnurnar við Holstein eitt
af hinum „viðkvæmu málum“ ?
„Þetta er að mmnsta kosti
pólitískur daunn,“ sagði konan.
¥■
Stuðlaðar hugletðingar
um lífsnauðsynjaútdeil-
inguna
Loks eru tvær vísur sem lýsa
jhugleiðingmn aldraðs manns
um lífsnauðsynjaútdeilingu rík-
isstjórnarinnar;
Að þér stjóröin illa mylki
ellihrumum, kvíð ci neitt:
Tvennu kiæddur kjólasilki
kaffibréfið færðu eitt.
Oft var líf þitt hálft í liúmi
á hundrað ára rólunum. —
Blessaður kararkarl í rúmi,
kvíddu ekki jólunum.
og héldu uppi mánuðum saman
skipulögðum áróðri og rógburði
um fyrrverandi stjórnarmenn.
Hve kosningin var gífurlega
harðsótt sést bezt á því að mað
ur var sóttur austur í sveit
til að greiða atkvæði! Ætlun
þeirra var að ná völdum í Fé-
lagi járniðnaðarmanna — en
hún mistókst, þrátt fyrir allt
ofurkappið. Gengi Alþýðuflokks
ins er enn sem fyiT: aðalkratinn
kolféll.
„Sigurvíman" virðist hafa
stigið þeim Vísismönuum held-
ur mikið til höfuðs, því þeir
telja að „andstæðingar komm-
únista eigi 3 menn af 5 í stjórn
inni og fjóra af 5 í trúnaðar-
ráði. Hvorugt er rétt. Samein-
ingarmenn eiga 3 af 5 í stjórn-
inni og 5 af 9 í trúnaðarmanna
ráði.
Þrátt fyrir það eru þessar
kosningar glöggt dæmi
um það ofurkapp sem andstæð-
ingar verkalýðsins leggja nú á
það að komast til valda í veika
lýðssamtökunum, og er jafn-
framt alvarleg hvatning til sam
einingarmanna livarvetna að
standa vel á verði gegn þeim
fyrirætlunum afturhaldsins að
ná yfirráðum í verkalýðssam-
tökunum.
>