Þjóðviljinn - 06.06.1948, Blaðsíða 4
f PJ. CÐVILJI N^i Suníludagur 6. júní 1948.
Fréttaritstjórl: Jón Bjamason
Blaðamenn: Arl Kárason, Magnúa Torf i Olaf Bson, Jönaa Arnason
Kitstjórn afgreiðsla, auglýslngar, prent.PmiMp SkólavörSn
•tig 19. — SímS 7500 (þrj&r linur)
A»kr*ftaverð- kr. 10.00 é. mánuöi. — Lausasoluvern 60 aur ein«
Prentsmlðja Þjóðviljans h. f
Sósíaíistaflokkurlnn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár linur)
Sjémenn eiga inni hjá þjéðinni
Á sjómannadaginn í fyrra ritaði Áki Jakobsson grein í
Þjóðviljann sem hami nefndi „Sjómenn eiga inni hjá þjóð-
inni“. Með skýrum rökum sýndi hann þar fram á nauðsyn
■þess, að þannig yröi búio að sjómannastéttinni íslenzku að
hún héldi áfram að draga til sín sterka og djarfhuga æsku-
meim. Til þess þyrftu mörg mál úrlausnar, en brýnustu úr-
iausnarefni væru þessi:
1. Tryggja þarf, að sjómenn hafi á hverjum tíma
hærri laun en greidd eru í landi og í því efni er
nauðsynlegt að þeim verði tryggí lágmarkskaup, er
sé sambærilegt við laun manna sem í landi vinna.
Bresti útgerðina getu til þess að greiða þessa lág-
jnarkstryggingu, t. d. vegna aflabresís, verour ríkið
að hlaupa undir bagga.
2. Sjómönnum þarf að tryggja sumarfrí með full-
vm launum og þarf í því sambandi að gera ráðsíaf-
anir af hálfu hins opinbera til þess að sjómenn geti
hagnýtt sér fríið sem bezt.
3. Sjómönnum sé áskilinn réttur til að fá nokkurn
gjaldeyri til kaupa á ýmsum tækjum, svo sem heim-
ilsisvélum, jafnvel til kaupa á bíl eða til ferðalaga
-erlendis.
4. Togarasjómönnum verði með löggjöf tryggð 12
síunda hvíld á sólarhring.
5. Sjómenn hafi skattfrjálsar ekki minna en 20
Jiús. kr. tekjur.
Greinarhöfundur bætir við: íslenzkir sjómenn verða engir
gustukamenn þó þjóðin bui að þeim eins og hér hefur verið
lý*st. Nei, sjómemiimir eiga inni hjá þjóðinni og það er
"henni sjálfri fyrir beztu, að sá reikningur verði jafnaðm-.
Hvað yrði um íslenzku þjóðina ef sjómennimir okkar vildu
allir fara í land og taka þar upp störf, sem síður þreyta, em
áhættuminni en jafnframt betur borguð. Allir Islendingar
vita svarið.
★
Á því ári sem liðið er síðan þessi athyglisverða grein var birt,
liefur ekkert verdð gert í þá átt að bæta kjör íslenzku sjómanna-
Ætéttarinnar eftir þeim leiðiun sem bent er á. Núverandi ríkis-
«jóm hefur látið sér nægja að taka við nýju skipunum, sem keypt
voru fyrir forgöngu og atbeina sósíalista í nýsköpunarstjóminni
-og nýbyggingai’iáði, og að sjálfsögðu liefur koma þei2’ra mildl
áhrif á afkomumöguleika sjómannastéttarinnar og þjóðarinnar
allrar. En í stað þess að halda áfram á nýsköppnarbrautinni hef-
Tir núverandi ríkisstjórn stöðvað mikilvæg nýsköpunarfyrirtæki
i sjávarútveginum og ekki einungis hætt skipakaupmn heldur er
í þann veginn að selja gömlu togarana úr landi, þrátt. fyrir ein-
-dregin mótmæii sjómanna. Við þessar afturhaldsaðgerðir bætist
svo bein árás á lífskjör sjómanna með festingu vísitÖlunnár og
sívaxandi dýrtíð, og rán af aflahlut þeirra með svindli á verðlagn-
ingu sildarafurðanna. í stað þess að veita sjómönnum auknar
skattaívilnanir hafa verið afnumin hlunnindi á því sviði er sjóm.
höfðu frú stríðsárunum. 1 stað þess að leyfa sjómönnum að nota
örlítið brot af þeim milljónagjaldeyri sem þeir afla og öll þjóðin
lifir á, setti Emil Jónsson 15 punda regluna alræmdu!
★
Sjómannastéttin íslenzka er nógu sterk til að láta ekki bjóða
-eér slíka smánarmeðfei’ð. í dag, á sjómanuadaginn, á hún að
.. .strengja þess heit að samfylkja til baráttu fyrir þeim lífskjörum
sem henni ber, fyrir rétti síntim í þjóðfélaginu. Sú bai'átta verður
^Æigursæl ef hún er háð í bandalagi við aðrar vinnustéttir, en þær
jmunu minnugar þess sem vaidamönnunum gieymist nú. að sjó-
jaenenn eiga inm h,já þjóðinni.
X
Allan daginn stendur
þar lögregluþjóiuv
I fyrradag ræddi ég stund-
ar korn við einn kunningja
minn i liði lögregluimar, þar
sem’ hann stóð fyrir framan
verzlunina Vísi og gætti þess
að bifreiðarnar sýndu umferðar
reglunum kurtéisi í straumið-
unni, þar sem Skólavörðustíg-
ur rennur saman við Laugaveg.
AHan daginn stendur lögreglu-
þjónn vakt á þessum stað, því
O
allan daginn er yfirvofandi um
ferðarflækja á þessum gatna-
mótum. — Á nóttunni er ekki
talin þörf lögregluþjóns á þess-
um stað, enda grípa þá inn-
brotsþjófar tækifærið og
skreppa niðrí kjallarann hjá
Andrési Andréssyni að stela þar
„tveim nýjum jökkum úr Ijósu
sumarfataefni, en ekki öðru
svo að séð verði“ (Samanber
Vísi umræddan dag).
¥■
Regnkápuþáttar
Eg sagði við kunningja minn
í liði lögreglunnar, að lítið væri
nú sólin búin að skína á okkur
í sumar. Hann sagði já og var
í regnkápu. Ég spurði, hvort
hann gerði ekki ráð fyrir, að
veðrið færi að skána. Hann
kvaðst allteins gera ráð fyrir
að veðrið færi ekki að skána;
- virtist eiga von á að vera
í regnkápu eitthvað frameftir
árstíðinnl. Ég spurði, hvort
hann héldi kannski að þetta
sumar yrði eins og sumai’ið í
fyrra. Hann sagði, „þvi ekki
það“ og ég fór að óska þess
að ég ætti regnkápu.
¥
Vonum hið bezta
Það er sagt, að veðurspeki
almennings hafi farið minnk-
andi á síðari árum, vegna þess
að almenningur þurfi nú miklu
minna að trej'sta á eigin for-
vizku i þessum efnum, þar eð
nú starfar fjöldi fólks að því
að lesa útúr mælitækjum,
hverju má búast við á morg-
un. Önnur ástæðan er talin sú,
að með vaxandi bæjalífi standa
menn ekki eins berskjaldaðir
fyrir dutlunum veðráttunnar,
hafa Jiessvegna minni áhyggj-
ur af jjeim. — Þó hljóta lög-
rcgluþjónar liér að vera und-
antekning, í vissum skilningi.
Starf þeirra er þannig, að vont
veður eða gott hlýtur að ráða
öllu um, hv'ort það er ömur-
legt starf .eða viðunandi. —- En
vonum samt, að bölsýni kunn-
ingja míns í liði lögreglunnar,
reynist ástæðulaus. — Því ef
við eigum nú aftur að þola aðra
eins útreið veðráttunnar og í
fyrrasumar, verður ekki annað
séð en lögreglueftirlitið hjá
æðri máttarvöldum þarfnist
rækil.egrar endurskoðunar.
*
llugmynd, sem vakti
athygli
Hugmyhd sú sem liér var
sett fram um sumarleyfis-
ferð til Grænlands, vakti sér-
staka athygli, og margir vinir
Bæjarpóstsins hafa beðið hann
að ítreka hana. Það skal hér
með gert og jafnvel lögð áherzla
á, að þama er einstakt tækifæri
fyrir duglega starfsmenn Ferða
skrifstofunnar, að láta nú hend-
ur standa fram úr ermum. En
hvað segja kollegarnir við hin
blöðin? Eru þeir málinu ekki
fylgjandi ? Hefði Víkar t. d.
nokkuð á móti því, að skreppa
til Grænlands í sumarleyfinu,
þegar Víkverji kemur aftur?
Togrararnlr Egill Skallagrimsson,
Kári og Fylkir komu af yeiðum
í gærmorgun.
EiKISSKIP:
Esja var á Norðfirði kl. 10 1
gærmorgun. Súðin var væntanleg
til Vestmannaeyja á hádegi í gær.
Herðubreið fór frá Þórshöfn kl.
7.30 i gœrmorgun. Skjaldbreið fóv
frá Djúpavogi í fyrramorgun. Þyr-
ill er væntaniegur hingað á morg-
un.
Hjónaband. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Aðal-
björg Guðmundsdóttir frá Harðbak
á Melrakkastéttu og Rögnvaldur
Sæmundsson, kennari írá Ólafs-
firði.
Félag Dana á íslandi, „Det dansko
Selskap", varð 25 ára í gær, stofn
að 5. júní 1923. Núverandi formað-
ur þess er Kornerup-Hansen.
Útvarpið í dag:
11.00 Messa í dómkirkjunni (séra
Jón Auðuns). 14.00 Útvarp frá úti
samkomu Sjómannadagsins á Aust
urvelli: Ræður og ávörp (Sigur-
geir Sigurðsson blskup, Emil Jóns-
son siglingamálaiáðherra, Jakob
Hafstein framkvæmdastjóri, Jó-
hannTómasson sjómaður). Lúðra-
svelt Reykjavíkur leikur (Albert
Klahn stjórnar). 15.15 Miðdegistón
leikar (plötur): Ýmis lög. 16.15 Út
varp til Islendinga c-rlendis: Stutt
erindi: (Sigurjón Ólafsson alþm.),
fréttir og tónleikar.. 18,30 Barna-
tími (Jón Oddgeir Jónsson o. fl ).
19.30 Erindi: Um dvalarheimili
aldraðra sjómanna (séra Jón Thor
arensen). 20.20 Dagskrá sjómanno
dagsins: a) Ávörp (varaformaður
sjómannadagsráðs, Þorvarður
Björnsson, og fulltrúi bæjarstjórn-
ar Reykjavíkur, Jóhann Hafstein
alþm.). b) Leikþátt.ur eftir Loít
Guðmundsson: „A3 Arnarhóli",
gaman og alvara á sjómannadag-
inn (ffivav ICvaran og fleiri). e)
Samtöl við aldraða sjóriienn (Gils
Guðmundsson ritstjöri). Ennfrem
ur íslenzk lög (plötur). 22.05 Dans-
lög ’ frá Sjálfstæðishúsinu. 24.00
Danslög (plötur til kl. 1. )
Útvarpið á raorgnn:
19.30 Tónleikar: Xxig úr óþerett-
um og tónfilmum (plötur). 20.30
Útvarpshl jómsveitin: Hollenzk
þjóðlög. 20.45 Um daginn og veginn
(Helgi Hjörvar). 21,05 Einsöngur:
Stefán Islandi syngur (plötur).
21.20 Eríndi: Úr Ólafsfirði (Rögn-
valdur Sæmundsson magistey).
21.45 Tónleikar (plötur). 21.50
Spurningar og svör um náttúru-
fræði (ÁstvaJdur Eydal licensiat).
22.05 Vinsdíl lög (plötur).
Helgidagslaekmr, Karl Sig. Jóns-
son, Kjartansgötu 4. —- Sími 3925.
Næturakstur í nótt og aðra nótt
annast Hroyfill. — Sími 6633.
Næturvðrður er í Ingólfsapóteki.
— Sími 1330.
Sjómannablaðlð Víkingur, mai-
heftið, er uýkomið út. Efni: Um
nýmóðins siglingatæki, starfrækslu
þeirra og meðferð, eftir Jón Éiriks
son skipstjóra; Fiskiðjuver ríkis-
ins viðtal við Jakob Sigurðsson;
Neptúnus setur glæsilegt? aflamet;
Sumarsíldveiðin 1947, eftir dr. Her
mann Einarsson; Við segl og ár-
ar eftir Vilhjálm J. Sveinsson o. fl.
Skólasýningin í Miðbæjarskólan-
um er opin almenningi í dag kl.
10—12 f. h. og 1—10 e. h.
Halldór frá
Kirkjubóii og
Tónas frá
Hriflu deil.i
nú allharka-
lega um inn-
réttinguna í
Edduhúsinu.
Mun Jónas hafa skrökvað því upp
£ Ófelgi, að ekkl hafl verið nema
einar dyr milli viimulierbergja
Halldórs og Daníels Ágústíuusson--
ar, meðan báðir voru starfandi
þarí húsinu. — En Halldór iætur
engum manni líðast að segja um
sig reyfarasögur, og í fyrradag
lýsir hann því opinberlega yfir, að
milii þeirra Daníels hafi verlð
þrennar dyr, —hvorki meira né.
minna — og þó er ótalinn heill
gangur. Þetta var „skemmsta leið",
segir Halldór. —
Ja, hérna Jónas! Farinn að
skrökva á gamalsaidri! — Farinn
að segja reyfarasögur um Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli!
AUiance Francaise. Sl. þriðjudag
hélt Alliance Francaise skemmti-
fund í Sjálfstæðishúsinu. Franski
sendikennarihn, André Rousseau,
flutti stutt erindi um leikritagerð
í Frakklandí. Sýndur var gaman-
leikur frá 15. öld, og voru leikend
ur ungfr. Mf-.rie-Madeleine Voillery
og Guðrún Hallgrímsdóttir og'
Franz Siemsen, en letkstjórn hafði
A. Rousseau annazt. Sýningin
tókst ágætlega og vakti hina
mestu hrifningu. Franskar frétta-
myndir voru sýndar, og var þeim
vel teklð. Þá þakkaði varaforseti
félagsins, Björn L. Jónsson, sendi
kennaranum vel unnin störf í þágu
félagsins í vetur. Siðan voru veit-
ingur og loks var dans stiginn til
kl. 1. Fundinn sóttu á annað hundr
að manns, og var hann i alla staði
hinn ánægjulegasti.
Úngbarnavemd Liluiar, TeinpN
arasundi 3, verður opin fyrst um
sinn þriðjudaga og föstudaga kl.
3.15-4.
Fyrir barnshafandi konur mánu--
daga og miðvikudaga kl. 1—2.
Lausn ú krossgátu nr. 48
Lárétt, ráðning: 1. Rengi, 4. Hó,
5. bæ, 7. ala, 9. roð, 10. röð, 11.
aka, 13. af, 15. ár, 16. fjóla.
Loðrétt, ráðning: 1. Ró, 2. Níl, 3.
Ib, 4. harpa, 6. æíður, 7. aða, 8.
Ara, 12. kró, 14. F.F., 15. áa.
KJIOSSGAAAtA NR. 49.
Lárétt, Klíýring: 1. Fremur hægur
vindur, 4. skinn, 5. tónn, 7. fum,
9. þjálfa, 10. efni, 11. vernd, 13.
rykaguir, 15. óður, lö. svikull.
Lóðrétt, skýring: 1. Bókstafur, 2.
eggjárn, 3. á fæti, 4. gera ótta-
sleginn, 6. árás, 7. framkoma, 8.
kenning, 12. Iátinn, 14. friður, 15.
húsdýr.
Frá listiðnaðarsýningunni. Á
morgun, manudag og næstu daga
kl. 2—10 e. h. verður tekið á móti
munum á Listiðnaðarsýninguna.
Þeir sem þegar hafa lofað munum
og aðrir, sem vilja lána eitthvað á
sýninguna komi með munina í
Listartiannaskálann eða geri að-
vart í síma 6369.
Þakkir frá norska sundflokku-
um. ISl hefur fengið bréf fi;á
norska sundsambandinu. .er þakk
ar. binnar ágætu móttökur, sem
norsku sundmeanirnir fengu hér
og sendir ölluni súndmörtnum og
sundfrömuðum beztu vinscmdar
kveðjur. j