Þjóðviljinn - 06.07.1948, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.07.1948, Blaðsíða 4
4 £> JOÐ VIL JINN Þriðjudagur 6. júlí 1948. Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb). Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason. Ritstjórn, afgreiðsla. auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðu- stíg 19'. — Sími 7500 (þrjár línur) Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánuði, — Lausasöluverð 50 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Sósíalistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Simi 7510 (þrjár línur) Marshallfjölr&r — sama dagúia og Þjóðviljitin Urii rit- rtjtú’nargrein.. með þessu nafni og varaði við því óhugnauiega tilræði við frelsi og sjálfstæði íslendinga sem j'fir vofði, undir- ritaði Bandaríkjaleppuriiin Bjarni Benediktsson ásamt banda- ríska sendiherranum í Reykjavík samning, sem í íslandssögunni mun jafnan talinn til mestu smánarsamninga er íslenzkir inenn hafi látið fleka sig til að veia viðriðnir. Og það er ríkisstjórn íslands, stjórn fullvalda íslenzks lýðveldis, sem ’leggst svo lágt að gera slíkan samning, en það er iíka ríkisstjómin ein sem tek- ur á sig hina þungu ábyrgð af g-arð samningsins. Það liafa Bandaríkjalepparnir íslenzku þó lært að ekki sé varlegt að ræða landráðasarnninga á Alþingi, ekki einu sinni þó það sé á kjörtímabili liinna þrjátíu og tveggja. Til að forðast um- ræður á AJþingi og meira að segja í utanríkismálanefnd hik- ar ríkisstjórnin eltki við að sniðganga ísl-anzk lög og stjórnar- skráirákvæði, ófrelsisfjötrinum er smeygt á þjóðina án þess að hún hafi átt þess nokkurn kost að velja eða hafna. Sjálfsagt muna einhverjir eim léttúðaryfirlýsingar Bjarna Ben. í Morgunblaðinu um þátttöku íslands í Parísarráðstefn- unni, er Þjóðviljinn krafðizt skýringa. Þátttaka íslands átti þá að vera einskonsr sýning á því að ísland væri ekki háð Rússum eðá þá að það ætlaði að hjálpa til við endurreisn hinnar herj- uðu Evrópu — að sögn málgagns utanríkisráðherrans. Síðan var sett í gang áróðursherferð um ágæti Marshalláætlunarinnar og allt hugsanlegti gert til að gylla jTirgangs fyrirætl- anir Bandaríkjaauðvaldsins. Loks er samið við Bandaríkjastjórn um Marshall„aðstoð“ með slíkri leynd að utargíkismálanefnd fær ekki að vita urn form eða inniliald samningsins, enda þótt hér sé um að ræða jafn mikilvægt mál og það að leggja niður alla landvörn gegn bandarísku auðvaldi og semja um freklega íhlutun þess um innanríkismál íslands, opna landið fjtrir banda- rískri þátttöku í atvinnulífi og viðskiptalífi íslendinga svo að samband ríkjanna verður líkara þvi sem gerist milli stórveldis og nýlendu en milli tveggja sjálfstæðra íríkja. Og utanríkisráð- herra fslands, ötl ríkisstjórn islands, stendur með hatta í hönd- unum og þakkar innilega hinum glottandi liúsbændiun náðina sem þeir veita íslenzku þjóðinni. „Hann gerði allt sem hundur kann, hefði hann aðeins rófu“, stendur skrifað. Ríkisstjórnin sem gerir þennan landráðasamning komst ekki til valda með heiðarlegu móti. (Það var meira að segja tal- ið vafasamt á Alþingi að aðalmaður hennar, Bjami Benedikts- son hafi koroizt á þing með heiðarlegu móti). Stjéfmin er í al- gerri andstöðu við þjóðarvilja. Enginn stjórnarflokkur bauð kjósendum sínum við síðustu kosningar að styðja þá óþokka- og landráðastefnu sem leppstjórn Bjarna Benediktssonar liefur fylgt. Hver sem vill getur hugleitt fylgi þess flokk er gengið hefði til kosninga 1946 með þau stefnumál að stöðva nýsköpun- ina, gera Keflavíkursamninginn, mynda leppstjcm til að a.uð- velda Bandaríkjamönnum hvers konar yfirgang í skjóli þess samnings, og loks að gera ætti þann landráðasamning sem Bjarni Benediktsson undirritaði í fyrrakvöld. Þjóðin óttast og hatar þessa óheillastefnu, er leitt getur til sjálfsmojðs íslenzka lýðveldisins, sé ekki frá henni horfið. Þjóðin .Jyrirlítur Bandaríkjaleppana sem svikizt hafa til valda með Því að Ijúga fyrir kosningar að þeir fylgi nýsköpun og íslenzk- um málstað. Og nóg er aðgert þó nú sé tekið í taumana. Ríkis- stjómin hefur samið réttindi áf íslendingiun til miklu lengri tíma en hún hefur frekast von um að hanga í völdum. Ætlar fólkið í Framsókn og Alþýðuflokknum að gerast samsekt um þessi fjörráð við lýðveldið? Eða hafa menn nú loks lært nóg til að samfylkja gegn þeim skuggalegu öflum sem ekki liika við £>ð farga dýrustu þjóðréttindum Islendinga. Of háir skat'iar ? Daginn eftir að Skattskrá Reykjavíkur kom út birti Morgunblaðið, eign hlutafélags- ins Árvakur, leiðai’a um skatta- málin og hélt því fram í upp- hafi að skattar væru orðnir of þungbærir og erfiðir. Undir þá skoðun munu allir launavinnu- menn hafa tekið og undrazt fláttskap blaðsins, sem styður einmitt þá menn, sem ráða deöfet*** íweði í lan-dinu og höf- uðborg þess. En þegar leiðarínn var lesinn til enda kom í ljós að blaðið var að sjálfsögðu ekki að liugsa um launavinnumenn, heldur aðstandendur sína, auð- mennina, liluíhafa Arvakurs. Röksemd blaðsins gegn skött- unum var nefnilega sú, að þeir gerðu ókleifa verulega eigna- söfnun! ★ 200 eiga 500.000.000.00! í fyrstu þótti mér þessi rök- semd harla óskammfeilin. Það er nefnilega á allra vitorði hversu óhemjuleg eignasöfnun hefur átt sér stað meðal fá- menns hóps síðustu árin, og þarf fólk ekki annað en svip- ast um á götunum til þess að fá um það stöðug dæmi. Og op- inberar skýrslur tala ekki síður sínu máli. Samkvæmt framtali síðasta árs áttu 200 félög og einstaklingar J/4 hluta af öllum eignum Reykvikinga, 103 millj- ónir króna samkvæmt matí, en það samsvarar ekki minni upp- hæð en 500 milljónum króna á núverandi gangverði. Almenn- ingm- mun kalla þetta allálit- lega eignasöfnun, en hluthafar Árvakurs láta sér sem sagt fátt um finnast. ★ En hvað með Silla og Valda? En þegar ég fór að blaða í hinni nýju skattaskrá sá ég brátt að þetta mál er ekki eins einfalt og ég liafði áður haldið, og að eignasöfnun sú, sem blað Árvakurs li. f. telur svo eftír- sóknarverða er háð einhverjum kjmlegum reikningskúnsturn, sem mér eru huldar. Eg sló t. d. upp á nöfnum tveggja virðu- legra borgara, Sigurliða Krist- jánssonar kaupmanns og Valdi- mars Þórðarsonar kaupmanns, mæti mörgum milljóniun króna. 'Eg get því ekki með orðum lýst undrun minni, þegar ég las i Skattskrá Reykjavíkur að eignaskattur Sigurliða Kristj- jánssonar er kr. 0,00 qg. eigna- skattur Valdema.rs Þórðarsonar einnig kr. 0,00! Frammi f\TÍr hinu opinbera eiga þessir hen’- ar þannig hvor um sig undir 10 þús. kr. eignir, en það er sem kunnugt er lágmark skatt- skyldra eigna. . . * Auðvitað sköttunum að kenna Eg átti sjálfur enga viðunan- lega skýringu á þessu dularfulla fyrirbrigði, hveniig á sama tíma er hægt að eiga fasteign- ir, sem að andvirði nema millj- ónum króna og þó ekki meira en 10.000 kr. frammi fyrír skattayfirvöldunum! Og í vand- ræðum mínum leitaði ég aftur til Morgunblaðsins, sem sérfræð ings í þessum efnum, og sá mig neyddan' til að fallast á skýr- ingu þess meðan ekki var völ annam betri. Þetta er auð- vitað allt bannsettum sköttun- um að kenna! Þessir örsnauðu menn, Sigurliði Kristjánsson og Valdimar Þórðarson, hafa auð- vitað engin ráð á að borga skatta þá sem ríki og bær leggja þeim á herðar, og verða að taka lán til að greiða l*á! Á þessu ári eiga þeir að greiða hvorki meira né minria en kr. 600.087.00, en það gerir til jafn- aðar rúmar 6 ruilljónir á 10 árum. Og ef aumingja mennirn- ir verða að taka lán til að borga þessi ósköp, þá hrökkva fa-steignirnar auðvitað vart fyr- ir skuldunum, og þá er ekki von að yfirvöldin fari að taka af þeim eignaskatt ofan á allt ann- að. Og um leið og ég þakka Morgunblaðinu skýringuna votta ég hinum fátæku kaup- mönnum, Sigurliða Kristjáns- syni og Valdimar Þórðarsyni, einlæga' samúð níma. Það er sannarlega ókleift að stunda eignasöfnun hér á landi, og engir menn eru eins örsnauðir og þeir sem eru skrifaðir fyrir dýrum lóðum og voldugum skrauthýsum! Selfoss er í Reykjavik. Reykjafoss fór frá Larvik í gær til Hull og Roykjavíkur. Tröllafoss kora til New York í fyrradag fiá Reykja- vik. Horsa er i Leith. Madonna lestar í Hull 7/7. |r _ ■ í Útvarplð í dag: 19.30 Tónieikar: Ziegunalög (plöt- ur). 20.20 Einsöngur: Jussi Björ- ling (plötur). 20.35 Erindi: Sahara (Baldur Bjarnason raagister). 21.00 Tónleikar: „Myndir á sýningu" eftir Moussorgsky (plötur). 21.35 Upplestur: „Hansina Sólstað", sögu kafli eftir Peter Egge; þýðing Sveinbjarnar Sigurjónssonar mag- isters. (Þýðandi les>. 22.05 Djass- þáttur (Jón M. Árnason). Næturalcstur í nótt annast HreyfiU. — Sírai 6633. Næturlæknir er i iæknavarð^ot- unni, Austurbæjarskólanuna, —< Næturvörður er í Ingólfsapóteki. — Simi 1330. KROSSGÁTA NR. 67. Lái’étt skýring: 1. Goshver, 4. Hár 5. Húsdýr, 7. Matur, 9. Fauti, 10 Efni, 11. llát, 13. Kný, 15. Mælir, 16. Skipalest. Lóðrétt skýring: 1. Gelti, 2. Rótað upp, 3. Keyr, 4. Hangir, 6. Læknir, 7. Kraftameðal, 8. Gangur, 12. Líttu á, 14. Vitlaus, 15. Tónn. Stefán Islandi, óperusöngvari hejdur söngskemmtun í Austur- bæjarbíó kl. 7.15 á ínorgun. Við hljóðfærið vei-ður Fritz Weiss- happel. Geflð ykkur tíma tll að Jesa auglýsingarnar í blað- inu. Hjónaefni: Nýlega hafa opinber- að trúlofuu sína, Dóra Guðmunds- dóttir, Akranesi og Karl H. Karls- son, Arnarhvoli, Reykjavík. Hjúskapur: S. 1. laugardag voru gefin saman í hjónaband, ungfrú Katrín Gísladóttir, Hafnarfirði og Marteinn Marteinsson, deildarstj. í Kaupfélagi Hafnfirðinga. — Ný- lega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Laufey Karlsdóttir, Þver- holti 5 og Jón B. Hjálmarsson, prentari, Steinhólum við Klepps- veg. — Nýlega voru gefin saman í hjónaband, ungfrú Elín Torfa- dóttir, Laugaveg 147 og Guðmund- ur J. Guðmundsson, Ásvallagötu 65. —- S. 1. laugardng \-oru gefin saman í hjónaband Guðný J. Krist mundsdóttir, Nökkvavogi 21, Rvík og Samúel J. Valberg, húsgagna- bólstrari, Bci'gstaðastræti 51. Rvík. Heimlli þeirra verður að Bergstaða stræti 51. Séra Sigurjón Árnason gaf brúðhjónin saman. öðru nafni Silla og Valda, og ætlaði af eignaskatti þeirra að ráða hverjum afrekiun þeir hefðu náð í eignasöfnun síðustu árin. Eg vissi, eins og ailir Reykvíkingar, að þessir tveir menn eru einliverjir umsvifá- mestu fasteignaeigendur hér í bæ, þeir eiga eiiia lóðina ahnarri dýrmætari, aðallega homlóðir, og eitt húsið öðru reisulegra og glæsilegra. Hús þeirra eru sem kunnugt er svo víð til veggja, að þeir geta leigt urnfangsmikl- um ríkisfyrirtækjum, eins og t. d. skömmtunarbákninu, hið rúmbezta húsnæði. Hús og lóð- ir þessara manna nema að verð- Esperantistafélaglð Auroro held- ur fund í Breiðfirðingabúð fimmtu dnginn 8. þ. m. kl. 9 e. h. Marianne Vei-maas frá Rotterdam talar. Fé- lagið efnir til ferðalags um næstu helgi, og eru væntanleglr þátttak- endur beðnir að gefa sig fram á íundinum. Fundurinn verður ekki boðaður i bréfi, —■ Gestir cru vol- komnir. Lagarfoss fór í strandferð i gær. Kveðjusámsseti gengst Rimna- Búðanes fór til útlanda i fyrra-félagið fyrir að Slr William A. dag. Akurey kom frá útlöndum.Craigie verði haldið i Tjarnarcafé Bjarni Ólafsson af veiðum og fóruppi, mánudaginn 12. júlí kl. 7. til útlanda. Skailagrímur var væntÁskriftalisti, jafnt fyrir félags- anlegur frá útlöndúm í gær ogrnenn sem utanféiagsmenn, ligguv Ingólfur Arnarson og Egill Skalla frammi í Bókaverzlun Snæbjarnar grimsson af veiðum. Jónssonar & Co., Austurstræti 4, til föstudagskvölds. Húsrúm leyf- EIMSKIP : ir aðeins móttöku 50 gesta. Brúarfoss er í Leith. Fjalifoss er í Reykjavík. Goðafoss er í Ant- Veðrtð i dag: Norðan kaldi við- werpen. Lagarfóss er. á Akranési.ast léttskýjað.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.