Þjóðviljinn - 28.07.1948, Page 4
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 28. júlí 1948.
-*3
þlÓÐyiLIIHN
Ctgefandl: Sameiningarflokkur alpýðu — SósíalistaflokkurinD
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb).
Fréttaritstjóri: Jón Biarnason.
Blaðam.: Ari Kérason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
! Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánuði. — Láusasöluverð 50 aur. eint.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðia. Skóiavörðu-
Rrentsmiðja Þjóðvlljans h. f.
Sósialistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Sími 7610 (þrjár línur)
„Víðsýni og hjálpfýsi“
Alþýðublaðið skrifar í gær mjög fagurlega um Marshall-
áætlunina, hún ber vott um „víðsýni“ og „hjálpfýsi" og „sam-
ábyrgðarhug“, segir blaðið, og er „einstæður viðburður í ver-
aldarsögunni hingað til“. Er engu likara en Stefán Péturssón sé
kominn í bróðurlega samkeppni við Bjarna Benediktsson um
Ijúfmæli, en sá síðarnefndi kallaði Marshall-hjálpina „aldahvörf
til góðs“ sem alkunnugt er. Tilefni þessa mjúka tungutaks Al-
þýðublaðsritstjórans, sem hingað til hefur verið kunnari fyrir
annað en geðprýði, er það að Þjóðviljinn benti á það á sunnu-
daginn, að íslendingar hefðu verið neyddir til að taka 15 millj.
króna Marshall-lán, enda þótt þeir hefðu viljað fá venjulegt
lán með almennum kapitalistakjörum, og væri það óvenjulegur
og nýstárlegur ,,samábyrgðarhugur“ áð neyða hjálp upp á þjóðLr
sem vildu fyrir alla muni losna við hana. Þetta er „fíflslegur
málflutningur", segir Stefán Pétursson, „þvert á móti leituðum
við sjálfir eftir láninu vestan hafs, að veittri heimild alþingis
til þess síðast liðinn vetur.“
Við skulum athuga þessa staðhæfingu ritstjórans í Ijósi stað-
xeyndanna. Þegar lántökuheimildin var samþykkt á Alþingi var
það tekið fram skýrt og skorinort af öllum aðilum að lieimildin
næði aðeins til venjulegs láns með venjulegum skilyrðum, en ekki
til Marshall-láns. I efri deild hafði Hermann Jónasson framsögu
um þetta mál fyrir hönd fjárhagsnefndar og tók þetta fram
mjög skilmerkilega og bætti því við að þessa heimild gæti ríkis-
etjórnin ekki notað til neins annars en venjulegs láns. Til frekari
áréttingar bað Brynjólfur Bjarnason Jóhann Þorkel Jósefsson
fjármálaráðherra að lýsa yfir því opinberlega að ríkisstjórnin
myndi ekki nota heimildina til þess að taka lán með óvenjulegum
-fikilyrðum, svo sem Marshall-lán, og gerði fjármálaráðharrann
það mjög greiðlega. Sama sagan endurtók tig í neðri deild, að
því undanskildu að þar lét fjárhagsnefnd sér ekki nægja að láta
formann sinn lýsa yfir skilmálum sínum í framsöguræðu, heldur
felldi þá inn í sjálft nefndarálitið, og skrifuðu allir nefndarmenn
undir það, að heimildin næði ekki til Marshall-lántöku. Einnig í
neðri deild kom fjármálaráðherra með samskonar yfirlýsingu.
Þær yfirlýsingar sem ríkisstjómin hefur sent frá sér síðar
um þessa lántöku eru einnig í beinu áframhaldi af þessum á-
kvörðunum Alþingis. Þegar Poul Hoffman, forstjóri Marshall-
áætluninnar, lýsti yfir því opinberlega að Island hefði fengið
15 millj. kr. Marshall-lán, rauk ríkisstjórnin upp til handa og
fóta og kvaðst ekki hafa tekið lánið enn, vegna þess að ekki hefði
gengið saman um skilyrði, þ.e.a.s. vegna þess að hún hefði ekki
heimild Alþingis til slíkrar lántöku. Þegar ríkisstjómin guggnaði
fiíðan og tók lánið í algeru heimildarloysi og braut því gefin heit
afsakaði hún sig með því að ætlunin hafi að sjálfsögðu verið að
taka lánið „sem venjulegt viðskiptalán án atbeina bandarískra
stjórnarvalda. Sú raun varð á að lánið var ófáanlcgt með þessum
hætti og fékkst aðeins f.vrir atbeina stofnunarinnar til viðreisnar
Evrópu.“ Ríkisstjórnin telur sig sem sé ekki hafa átt annars
kost, hún hafi verið neydd til að taka Marshall-lán, þótt hún
hafi ætlað sér að taka „venjulegt viðskiptalán".
Ritstjóri Alþýðublaðsins er þannig enn einu sinni staðinn að
því að fara með alger ósannindi. Ríkisstjórnin hafði enga heimild
til Marshall-lántöku og „leitaði ekki eftir henni“ að eigin sögn.
Hinsvegar voru Bandaríkjamenn svo „víðsýnír" og „hjálpfúsir".
að þeir neyddu okkur til að þiggja ,,hjálp“ sína. Hitt er annað
mál, hvort ríkisstjórninni hefur verið sú ,,hjálp“ óljúf, að
minnsta kosti hafði hún hvorki framtak í sér til að leita til al-
(þjóðabankans eða Sviss, og eru þó taldir góðir lántökumöguleik-
á báðum stöðunum.
Hvernig yrði þeim innan
brjósts?
Stundum velti ég því fyrir
mér, hvernig ritstjórum sumn
borgarablaðanna yrði innan -
brjósts ef þeim gæfist kostur á
að lesa þau málskjöl sögunnar,
sem lögð verða fram, þegar kyn
slóðir komandi tíma eiga að
dæma umpersónur þeirra og at-
ferli allt. — Tökum til dæm’.s
ritstjóra Morgunblaðsins.
Þar munu komandi kynslóðir
dæma mann, sem valdi sér
snemma það starf að vera and-
stæðingur alls hins vinnandi
fjölda, lá í launsátri, hvenær
sem alþýðan hóf sókn upp bratt
ann til betri lífskjara, ötull soi-
dát í áróðurssveit yfirstéttarinn
ar, ávallt reiðubúinn að vega til
mótstöðumanna með saurugu
sverði blekkinga og rógs.
★
ilmannlegri. Ekkert tilefni var
svo auðvirðilegt, að hann reyndi
ekki að nota það til hins svívirði
legasta rógs um andstæðinga
sína. Hið sauruga sverð hans
varð sífellt saurugra.
í fám orðum
Málskjöl sögunnar um þenn-
an mann munu í fám orðum
hljóða þannig: Maðurinn, sem
notaði líf sitt til að berjast gegn
hagsmunum hins vinnandi
fjölda; maðurinn, sem var fús
til að farga fullveldi þjóðar
sinnar, ef erlent herveldi taldi
sér hag í þvi; maðurinn, sem
notaði þær bardagaaðferðir, er
einna lítilmannlegastar hafa
orðið í íslenzkum stjórnmálum;
maðurinn, sem sameinaði í per-
sónu sinni alla spillingu hrörn-
andi þjóðfélagsafla; sá maður
var Valtýr Stefánsson.
Þegar hann átti um
tvennt að velja
★
Þegar erlent herveldi lét i
ljós ágirnd sína á því landi, sem
þjóð þessa manns hafði lært að
elska svo mikið, að sú ást var
henni sjálft lífið, þá átti hann
um tvennt að velja: Annarsveg-
ar stóð hið volduga herveldi og
spurði, hvort hann vildi ganga á
mála hjá sér við framkvæmd
þeirra áforma að breyta landinu
í herstöð. Hinsvegar stóð hin fá-
menna þjóð hans með nýfengið
fullveldi, árangurinn af óeigin-
gjarnri baráttu beztu sona
sinna og gleði hennar yfir því
var jafn björt eins og skinandi
fannirnar á tindum hinna ís-
lenzku jökla. — Þessi maður
skipaði sér til fylgis við liinn
volduga, — sveik málstað þjóð-
ar sinnar og hóf um leið bar-
áttuna til að veikja viðnáms-
þrótt hennar, blekkja hana,
spilla öllum þeim eðlisverðmæt-
um, sem höfðu veitt henni þrócf
til að vera þjóð, og fá hana
þannig til að sætta sig við hlut-
skipti sitt. -—- Það hafði borið
skugga á hina íslenzku jökla.
¥•
■'Sí'ö'- —
Enn var leitað til hans
Þegar svo hið erlenda her-
veldii tók enn að færa sig upp
á skaftið og hugðist með brögð-
um slá eign sinni á íslenzkar
auðlindir, þá leitaði það sem
fyrr til Morgunblaðsmannsins
og þeirra siðsplltu afla, sem
hann var fulltrúi fyrir, og bað
um liðveizlu. Og ekki stóð 4
Morgunblaðsmanninum. Þegar í
stað hóf hann blekkingabarátt-
una fyrir málstað hins volduga
gegn málstað hinnar fámennu
þjóðar sinnar. Henni skyldi tai-
in trú um, að íslenzku atvinnu-
lífi yrði þannig bezt borgið, að
erlendir auðjöfrar hefðu úrslita-
vaid um stjórn þess. — Og jafn-
framt því sem hann sökk dýpra
og dýpra í fen spillingarinnar,
urðu baráttuaðferðir hans æ lít
1 gær kom brezka oliuskipið
British Drummer með oliu í Skerja
fjörð. Norski hvalfangarinn „Hval-
ur 1“ kom snöggvast inn á höfn-
ina til að láta i land veikan mann
en fór strax aftur. — Helgafeli
kom i fyrrakvöld frá Þýzkalandi.
Auk þessa voru hér í gær: Horsa,
Westhorn og Þyrill.
Isfisksalan
Þegar blaðið átti tal við skrif-
stofu Fiskifélagsins í gær höfðu
engin íslenzk skip selt í Þýzka-
landi né Englandi siðan Akurey
seldi i fyrradag 211,2 tonn.
RfKISSKIP:
Hekla fór frá Fáskrúðsfirði ki. 1
í gærmorgun á norðurleið. Esja
fór frá Reykjavik kl. 24,00 í fyrra-
kvöld til Glasgow. Súðin var a
Isafirði kl. 10 í gærmorgun. Herðu-
breið fór frá Hornafirði í gær-
morgun kl. 10 á suðurleið. Skjald-
breið fór héðan kl. 20 í gærkvöld á
Húnaflóahafnir. Þyrill er í Reykja-
vík.
EIMSKIP:
Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss
kom tii Hamborgar í fyrradag frá
Siglufirði. Goðafoss kom til New
York i fyrrakvöld frá Reykjavík.
Lagarfpss er i Gautaborg. Revkja-
foss lór frá Patreksfirði i gæ.-
kvöld til Akraness. Selfoss fór frá
Amsterdam i fyrradag til Antwerp-
en. Tröllafoss kom til Reykjavík-
ur 25. júlí frá Halifax. Horsa ev i
Reykjavík. Madonna fór fra
Reykjavík 22. júlí til Leith. South-
ernland fór frá Hull i gær til
Reykjavíkur. Marinier fór frá
Reykjavík 22. júlí til Leith.
Útvarpið í dag:
15.30 Miðdegistónleikar. 19.-I0
Tónleikar: Lög leikin á banjó og'
balalaika (plötur). 20,30 Útvarps
sagan: „Jane Eyre" eftir Charlotte
Bronte, XXII. (Ragnar Jóhannes-
son skólastjóri). 21.00 Tónieikar:
„Petroushka" eftir Igor Srawinsky
(endurtekið). 21.35 Erindi: Postu-
línsborgin við Saxelfi; minningar
frá 1925 (Sigríður Einars frá Mun-
aðarnesi). 22.05 Dansiög (plötur).
Ferðaféiag Templara efnir til
þriggja daga skemmtiferðar vest-
úr á Shæfellsnes um verzlunai-
mannaheigina.
Víkverji í'ór suður í Sóivaila-
kirkjugarð nýlega og kom aftur
með rosafrétt: „Leiði ráðherrans
og verkamanns-
ins eru þarna
hlið við hlið.“ —
Álita nienn, að
aldrei fyrr haíi
Víkverja tekizt
að færa íram
jafn veigamiki-
ar saunanir fyrir gildi
ræna lýðræðis, — og þessar sanu-
anir sótti hann í kirkjugarðinn.
Hvi' biðst hann ekkl afsökunar?
Gylfi Þ. Gislason skýrði frá því
í útvarpinu i fyrradag sem mikilii
fyrirmynd um heiðarleika að
brezkur þingmaður hefði eitt sinn
beðizt opinberlega afsökunar á þvl
að hann hefði sagt ósatt tveim
dögum áður. En það er auðveldat-a
að heiðra boðorðin en halda þau.
Þessi sami Gylfi Þ. Gislason sagði
vísvitandi ósatt um látið norskt
stórskáld fvrir tæpum fimm mán-
uðum og hann er ekki farinn að
biðjast afsökunar enn.
Itaupendur Landnemans I
Reykjavík. Þeir áskrifendur Land-
nemans i Reykjavík, sem hafa
skipt urn heimilisfang í vor og
sumar ,eru vinsamlega beðnir uin
að tilkynna skrifsíofu Landnem-
ans, Þórsgötu 1, sími 7510 hið nýia
heimilisfang sitt, við fyi’sta tæki-
færi og verður þeim þá um had
sent hið nýútkomna 6. tölublað
blaðsins.
Trúlofun
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Kristín Sveinsdóttir
Torfalæk A.-Hún. og Vigfús Vig-
fússon, Lundi við Nýbýlaveg, starfs
maður hjá Vélsm. Héðinn.
Bólusetning gegn barnaveikl
heldur áfram og cr tólk minnt á
að láta endurbólusetja börn sín.
Pöntunum veitt mottaka i sinia
2781 alla daga kl. 10—12 nema
laugardaga.
Næturakstur annast Litla bí'-
stöðin, sími 1380.
Næturvörður er í Iðunnar apó-
teki, sími 7911.
Ivrossgáta nr. 71
_ ■
■ Já WJ
bt.
s 1 r_
pt“
í3-
m ■
Lárétt: 1. Getur rúllað, 4. Lik-
amshluti, 5. Samhljóðar, 7. Gæði,
9. Fremsti oddi, 10. Ilát, 11. Svefn,
13. Sérhljóðar, 15. Hvað, 16. Hæð.
Lóðrétt: 1. Bókstafur, 2. Pest, 3.
Ókyrrð, 4. Fyrir vökva, 6. Óglæsi-
legan mann, 7. Máttur, 8. Vökvi, 12.
Undir berum himni, 14. Sund, 15.
Gleðihljóð.
Gefið ykkui tíma til að
lesa auglýsingarnar £ blað-
inu.
Barnaheimilið Vorhoðinn Rauð-
hólum. Allar heimsóknir strang-
lega bannaðar á heimilið.
Söfnin: Landsbókasafnið er opið
kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga nema laugardaga, þá kl. 10—
12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 2
—7 alla virka daga. Þjóðminjasafn-
Ið kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. Bæjarbókasafnið kl. 10—30
alla virka daga, nema yfir sumar-
mánuðina, þá er safnið opið kl.
1—4 á laugardögurr og loknð 6
sunnudögum.
Veðurútlit í gærkvöld: Vax-
andi suðaustanátt, allhvasst
undan Eyjafjölium, víða rign-
ing með morgninum.
t -