Þjóðviljinn - 26.02.1949, Qupperneq 4
4
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 26. febrúar 1949.
PIÓÐVILJINN
Ctgeíandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
*•
Ritstjórar: Magnús Kjartanssoa. Sigurður Guðmundsson (áb'.
Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýalngar, prentsmiðja. Skólavörðu-
stíg 19 — Sími 7600 (þrjár línur)
Askriftarverð: kr. 12.00 & mánuðl.—LausasOluverð 60 aur. eint.
Prentsmlðja Þjóðvlljans h. f.
Sóslalistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Simi 7810 (þrjár línur)
BÆ J ARPOSTIRIN N
lœiH!ni!P«liispra
FySgið undanhaSdi Alþýðnsambands-
stjórnarinnar eftir til fulls sigars
Alþýðusambandsstjórnin er nú komin á alvarlegt
undanhald fyrir kröfum verkalýðsfélaganna um afnám
kaupránsins er ríkisstjórnin framdi með setningu dýrtíðar-
iaganna um festingu kaupgjaldsvlsitölunnar í 300 stigum.
Undanhald hennar hófst nokkru fyrir jól, þegar fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambandsins lét haf aþað eftir sér að
sambandsstjórnin hefði samþykkt „mótmæli“ til ríkis-
stjórnarinnar gegn dýrtíðarlögunum, og yrðu þau mót-
mæli birt almenningi.
I ársbyrjun 1947 lagði ríkisstjórnin tugmilljóna tolla-
áiögur á almenning. Um áramótin 1948 setti hún kaupráns-
iö^in er bundu kaupgjaldsvísitöluna í 300 stigum ng um
síðustu áramót lagði ríkisstjórnin enn nýjar byrðar á al-
menning. Kröfur verkalýðsins um leiðréttingu mála sinna
urðu þá að sjálfsögðu háværari. Verkalýðssamtökin kröfð-
ust þess að sambandsstjórnin skýrði frá því hvað hefði
farið miili 'hennar og ríkisstjórnarinnar. Þjóðviljinn flutti
þessa kröfu verkalýðsins hvað eftir annað, en Alþýðusam-
bandsstjórnin þagði yfir þessu „heilaga leyndarmáli“ sínu
°S „fyrstu stjórnar sem Alþýðuflokkurinn myndar á ís-
landi,“ og þorði ekki að birta mótmæli sín. í þess stað hélt
hún áfram að sitja á makkfundum við ríkisstjórnina.
AlþýÖusambandsstjórnin komst þó ekki hjá því að
það kæmi í dagsins ljós hvað hafði farið milli hennar og
ríkisstjórnarinnar. I bréfi er hún sendi sarnbandsféiögun-
um 23. jan. sl. kom í ljós að „mótmæli“ hennar höfðu ver-
ið í því fólgin að viðurkenna kaupránið sem frair.ið var
með festingu kaupgjaldsvísitölunnar í 300 stigum, ef r.kis-
stjórnin fengist til að greiða samkvæmt þeirri vísitölu-
hækkun er yrði yfir 319 stig — viðurkenndi þar með að
launþegarnir skyldu sætta &3g við 19 stiga rán á vísitölu
uppbótinni.
Síðan þetta vitnaðist hefur mótmælum verkalýðsfé-
laganna gegn þessu rignt yfir sambandsstjórnina og kröf-
um um að hún endurskoði afstöðu sína í málinu og kref j-
ist fullrar vísitöluuppbótar. Þetta eru sameiginlegar kröf-
ur allra verkamanna, hverjum pólitískum flokki sem þeir
fyigja.
Þetta varð til þess að knýja Alþýðusambandsstjórn-
ina til alvarlegs undanhalds. I bréfi er hún sendi sambands-
félögunum 22. þ. m. skorar hún á þau að segja upp samn-
ingum sinum, „þar sem enn hafi ekki fengizt breytingar
þær á vísitölunni sem miðstjórn A.S.Í. gerði kröfur til“, —
sem sé þær að verkalýðssamtökin afsali sér 19 stigum ef
þau fá greitt samkvæmt vísitölu það sem hún verður
umfram 319 stig! Alþýðusambandsstjórnin er enn þess
sinnis að sætta sig við aðeins þriðjung þess sem verkalýð-
urinn hefur verið rændur með vísitölulögunum.
Þetta er alls ekki samkvæmt kröfum verkalýðsfélag-
anna. Þau kref jast fullrar greiðslu samkvæmt gildandi vísi-
töiu. Verkalýðssamtökin geta alls ekki sætt sig við það að
fara út í verkfallsbaráttu til að kaupa sér smávægilegar
bætur með því að afsala sér 19 stigum af þeirri uppbót er
þau eiga skýlausan rétt á — svo ekki sé minnzt á fölsun
vísitölunnar og að raunveruleg vísitala er nú á l'immta
hundrað stig. Verkalýðsfélögin verða að fylgja undanhaldi
Alþýðusambandsstjórnarinnar eftir og knýja fram fulla
ltaiipgreiðálu samkvæmt gildandi vísitölu, eða grunnkaups-
hækkanir til jafns við launaskerðingu vísitolulaganna.
Nýr maður í húsa-
kynnum blaðsins.
Lítill patti, 11 ára, hefur
fengið sérstakan áhuga á því,
sem gerist hér í húsakynnum
blaðsins. Hann kemur á öllum
tímum dags og stundum líka á
kvöldin til að kynna sér málin.
í fyrstu hélt ég, að hann ætlaði
að verða blaðamaður. „Nei, al-
deilis ékki,“ svaraði hann og
horfði á mig meðaumkunarfull-
ur. Hver kærði sig um að vera
bara venjulegur blaðamaður ?
Hann ætlar að verða ritstjóri.
— Þetta er hressilegur náungi,
mátulega hortugur, ef því er að
skipta, þekkir ekki feimni frek-
aren reyndustu heimsborgarar.
Eg hygg að hjá honum megi
finna flest það, sem öðru frem-
ur einkennir reykvíska stráka
í dag. Má mikið vera, ef hann
hefur ekki einhverntíma kastað
snjókúlu í hattinn á sjálfum
Víkverja.
*
Forvitni I prentsmiðj-
unni.
Langtímum saman unir hann
sér niðrí prentsmiðju, spyrjandi
hversvegna þetta eða hitt sé
haft svona en ekki hinsegin.
Prentararnir kyarta ósjaldan
um að hann sé forvitinn. En þeir
fyrirgefa það samt oftast nær
á þeim grundvelli, að Edison
var lika forvitinn. — Svo tekur
hann sprettinn upp stigana til
áð athuga hvaða dellu ég sé
nú að skrifa í Bæjarpóstinn.
Hann ber svo grálega litla virð-
ingu fyrir venjulegum blaða-
mönnum. Kannski reyni ég svo
að komast innundir hjá honum
með því að bjóðast til að birta
einhverjar uppástungur hans
varðandi fyrirkomulag tilver-
unnar. En hann gengst ekki
upp við neinum slíkum sleikju-
skap. Nema þá ég vildi reyna að
útvega alminlegu fólki lengra
jólafrí, og kannski líka lengra
páskafrí? Mér skilst, að jóla-
frí og páskafrí þyrftu helzt að
mætast einhversstaðar á miðri
leið.
★
„Gam’i skröggur“.
Þó slettist aldrei neitt veru-
lega uppá vinskapinn. •—■ Jú,
þegar hann kallar mig gamla
skrögg, þá slettist uppá vin-
skapinn. „Ertu í vondu skapi
nuna, gamli skröggur ?“ segir
hann, er ég læt í ljós litla á-
nægju yfir því, hvernig hann er
búinn að tæta til á borðinu hjá
mér. Siðan hóta ég honum ei-
lífri útskúfun frá skrifstofunni
í hegningarskyni fyrir nafn-
giftina. Og með það sama breyt
ir hann um taktik, friðmælist:
„Nei, elsku vinur“, segir hann.
,,Þú ert ekkert gamall skrögg-
ur; þú ert ungur skröggur.“
Spyr síðan, hvort ég hafi ekki
tímarit Náttúrufræðingafélags-
ins. En ég hef því miður ekki
annað en tímarit Verkfræðinga
félagsins. — Hann sökkvir sér
niðrí grein um eimtúrbinustöð-
ina við Elliðaár eftir Steingrím
Jónsson rafmagnsstjóra; — og
það ríkir aftur ró á skrifstof-
unni. Þetta er auðsæilega hin á-
gætasta grein.
*
Grunaður um skróp.
Það er sama, á hvað tima dags
maður spyr hann, hvort ekki sé
bráðum kominn skólatími hjá
honum; hann kveðst alltaf vera
búinn að ljúka af sínum skyldu-
störfum á þeim vettvangi. Mað-
ur getur ekki að því gert að
gruna hann um skróp. Samt
segist hann aldrei fara niður-
fyrir 9,8 í lestri; og kunnugir
fullyrða, að staða hans í bekkn
um sé venjulegast í námunda
við númer eitt. Eg skil þetta
ekki. En kannski er þar að finna
skýringuna, að hann láti aldrei
framhjá sér fara neitt af því
sem birtist í bókmenntum af
tagi áðurnefndra timarita nátt-
úrufræðinga og verkfræðinga.
Að minnsta kosti hló hann mik-
ið, þegar í ljós kom, að ég vissi
ekki uppá meter vegarlengdina
til tunglsins.
★
Iðrun.
Það mætti skrifa miklu meira
um þennan mátulega hoi'tuga
Reykjavíkurstrák, en rúmlítill
Bæjarpóstur verður hér að láta
staðar numið. — Og líklega
hefði 6g aldrei átt að segja
þessa sögu. Eða hver mundi
vilja vera i sporum mínum í
dag, þegar sjálf söguhetjan
kemur með tilheyrandi fyrir-
litningarsvip og segir: „Getur
enginn alminlegur maður fengið
að vera í friði fyrir dellunni úr
þér, gamli skröggur?“
ir
ATHYGLI lesenda skal vakin
á því, að á morgun mun Bæj-
arpósturinn birta bréf, þar sem
Isleifur Högnason, 1 forstjóri
KRON gerir.grein fyrir tilhög-
un þeirri sem kaupfélagið hef-
ur á úthlutun afgreiðslunúm-
era.
I Hjónunum Hildi
{, Björnsd. og Að-
s'""” k' — alsteini Michelsen,
æJI Bergþórug'öt.u 53,
Ér t fæddist 18 marka
^ sonur 18. febrúar.
„Vi5 straumana," kvikmynd
Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
verður frumsýnd í Gamla Bió kl.
1.30 e. h. á morgun. — Myndin er
tekin af Kjartani Ó. Bjarnasyni,
og er í eðlilegum litum.
/
Beikrit:
Wynyard
II Ö F N I N :
Kári kom af veiðum í gær og
fór áleiðis til útlanda í gærkvöld.
Venus kom hingaö inn, með bilað
stýri, í gær. Egill Skallagrimsson
kom af veiðum síðdegis í gær.
Einarsson Æ Zoega:
Foldin er í Reykjavík. Linge-
stroom fór frá Hull siðdegis á
fimmtudag áleiðis til Reykjavíkur
með viðkomu í Færeyjum. Reykja-
nes er í Grikklandi.
RIKISSKIP:
Esja er á Austfjörðum á norð-
urleið. Hekla er í Álaborg. Herðu
breið fer frá Reykjavík í kvöld til
Vestfjarða. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík í kvöld til Breiðafjarö-
ar. Súðin er i Genova. Þyrill er á
leið frá Danmörku til Rotterdam.
Hermóður fer f^á Reykjavík
kvöld til Húnaflóa.
Skopmyndasýnlngin í sýningar-
sal Ásmundar Sveinssonar við
Freyjugötu er opin daglega kl.
14—22.00
19.25 Tónleikar
Samsöngur. 19.45
Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.30 Út-
varpstríóið: Ein-
leikur og tríó. 20.45
„Sumarsólhvörf" eftir
Browne (Leikendur:
Arndís Björnsdóttir, Regína Þórð-
ardóttir, Klemenz Jónsson, Herdís
Þorvaldsdótttir og Anna Guðmunds
dóttir. — Leikstjóri: Þorsteinn Ö.
Stephensen). 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. — 22.05 Fassíusálmar.
22.15 Danslög (plötur). 24.00 Dag-
skiárlok.
Nýlega opinberuðu
trúlofun sína, ung
frú Hildigunnur
Sveinsdóttir ritari,
Mávahlið 39 og
Guðm. Björgvins-
son, rafvirkjanemi, Efstasundi 9.
— Nýlega opinberuðu trúlofun
sína, Ragna Guömundsdóttir frá
Isafirði og Pétur Jónsson, Akur-
braut 22, Akranesi.
Geysir fer til N. Y.
kl. 8 n. k. sunnu-
dagsmorgun. Gull-
faxi fer til Prest-
víkur og Kbh. n.
k. þriðjudag. Hekla er í Reykja-
vík. Ekkert jnnanlandsflug í gær.
í dag verða.
gefin saman í
hjónab. af séra
Árna Sigurðss.,
ungfrú Dómbild
ur Á Gúðmunds
dóttir og Árni Valdimarsson. Heim
ili brúðhjónanna verður í. Drápu-
hlíð 2.
Dómkirkjan.
Guðsþjónustur á
morgun: Kl. 11 f.
h. — Séra Jón Auð
uns. Kl. 5 e. h.
Séra Bjaimi Jónss.
(Altarisganga). —
Hallgrímskirkja. Guðsþjónustur á
morgun: Kl. 11 f. h. ■— Séra Sig-
urjón Árnason. Kl. 5 e. h. -----•
Séra Jakob Jónsson (Ræðuefni:
Eigum vér að sækja kirkju?)
Barnaguðsþjónusta kl. 1.30 e. h.
— Séra Sigurjón Árnason. Sam-
koma kl. 8.30 e. h. á morgun. Kristi
leg skólasamtök annast samkom-
una. Laugarneskirkja, Messa kl.
2 e. h. á morgun, séra Garðar
Svavarsson. Barnaguðsþjónusta kl.
10 f. h., séra Garðar Svavarsson,
FriklrUjan. Barnaguðsþjónusta kl.
11 f. h. á morgun. Messa kl. 2 e. h.
— Séra Árni Sigurðsson. Nespresta
lcall. Messa kl. 2 á morgun í kapell
unni í Fossvogi. Séra Jón Thorar-
ensen.
Ba-zar heldur kvennadeild Dóm-
kirkjunnar föstudaginn 11. marz
í húsi K. F. U. M. og K. Nefndin
óskar að þcir sem vildu stuðla
að góðum árangri bazarsins komi
gjöfum til frú Áslaugar Ágústsd.
og frú Bentínu Hallgrímsson og
frú Dagnýjar Auðuns fyrir 9,
marz, ,eða hús K. F. U. M. þann
10. þ. m.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Volpone kl. 8 á sunnudagskvöld.
Næturakstur í nótt annast B.S.R.
— Sími 1720.
Naeturvörður er í Laugavegsapó-
teki. — Sími 1616.
Forseti íslands, hr. Sveinn
Björnsson liggur enn rúmfastur.
Hann er á batavegi, en mun
' þó liggja rúmfastur enn um
hríð.
Veðurspáin í gærkvÖld: Suð-
vestan átt. Hvassviðri með
morgninum. Éljagangur.