Þjóðviljinn - 01.03.1949, Side 4
4
WÓÐVLLJI-NN
Þriðjudagur 1. marz 1949.
Utgefandi: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson (áb*.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Toríi Ólafason, Jónas Árnason.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja. Skólavörðu-
stíg 19 — Simi 7500 (þrjái Unu •)
Áskriftarverð: kr. 12.00 á mánuði.—LausasCluverð 50 aur. eint.
Frentsmiðja Þjóðrtljans h. f.
SÓBiailst.aflokkurlmi, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár linur)
Svik FrantsákiiarfEðkksins
Reykjavíkurvald Framsóknarflokksins, það málalið
sem unir sér hvað bezt í nánustu sambúð við auðstéttina,
hefur unnið algejan sigur á miðstjórnarfundi flokksins,
eins og sjá má af ályktunum þeim sem miðstjórnin hefur
sent frá sér. Mun ályktun hennar um „utanríkis- og örygg-
ismál“ þó vekja mestan óhug, hún er vottur um alger svik
Framsóknarflokksins við þjóð sína, svik sem eru þeim
mun óhugnanlegri sem ýmsir Framsóknarmenn hafa áður
tekið skelegga afstöðu gegn þátttöku íslands í hernaðar-
bandalagi \'3sturveldanna, og ber þar fyrst og fremst að
nefna unga Framsóknarmenn, sem haldið hafa á lofti þeim
hugsjónum sem mótuðu stefnu flokksins fyrir 20 árum.
Ályktun flokksins hefst á venjulegu þvaðri um sam-
stöðu með engilsaxneskum þjóðum, þá er því lýst yfir að
árásarkerfi Bandaríkjanna „stuðli að \'erndun friðar og
eflingu lýðræðis, en vinni gegn yfirgangi og ofbeldi“!! og
síðan segir orðrétt:
„Hins vegar ályktar flokkurinn að lýsa yfir því, að
hann telur Islendinga af augljósum ástæðum eigi geta bun i
izt í slík samtök, nema tryggt sé að þeir þurfi ekki að hafa
hér her né leyfa neins konar hernaðarlegar bækistöðvar
erlendra þjóða í Iandi sínu né landhelgi, nema ráðizt hafi
verið á landið, eða árás á þao sé yfirvofandi. — Á þessum
grundvelli og að þessu tilskildu telur flokkurinn eðlilegc,
að íslendingar hafi samvinnu við önnur lýðræðisríki uiri
sameiginleg öryggismál.“
Umbúðalaust merkir þessi ályktun:
1) Framsóknarflokkurinn er fylgjandi því að íslend-
ingar gangi í hernaðarbandalag það sem bandaríska auð-
valdið er nú að reyna að koma á laggirnar.
2) Þátttakan á að vera bundin því skilyrði að hér
verði ekki hér né hernaðnrlegar(!) bækistöðvar nema ráðizt
hafi verið á landið eða árás „sé yfirvofandi“!!
I
Ályktun þessi er að efni til alveg samhljóða samþykkt
íhaldsins, sem Tíminn hefur þó áður talið mjög „loðna“(!),
aðeins orðalagið er annað og engu betra. Flokkurinn virö-
ist vera samþykkur því að Bandaríkin fái hér bækistöðvar
á friðáftímum, aðeins ef þær eru ekki taldar „hernaðarleg-
:ir.“ í viðbót við Keflavíkurstöðina, gætu þá risið upp stöðv-
ar t. d. á Reykjavíkurflugvalli og í Hvalfirði án þess að
Framsóknarflokkurinn hefði nokkuð við það að athuga.
Síðan má bæta við 'her og hernaðarleguni bækistöðvum ef
árás er talin yfirvofandi. Væntanlega eiga Bandaríkin að
á.kveða hvenær svo stendur á, en eins og öllum er kunn-
ugt prédikar Morgunblaðið nú daglega að árás Sovétrixj-
anna á ísland sé yfirvofandi alveg á næstunni!
Þessi ályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins er
sönnun þess að þeim flokki er í engu treystandi, stjórn
hans er í höndum reykvískra afturhaldskurfa sem ganga
erinda peningamannanna og hafa engin raunwruleg, líf-
ræn tengsl við alþýðu sveitanna. Iiún er mikið áfall fyrir
þá Frarnsóknarmenn sem vonað hafa að flokkur þeirra
bæri gæfu til að skipa sér um málstað íslends og hún gef-
ur ömurlega mynd af þeim ,,vinstri“ mönnum í forustu
flokksins sem aldrei virðast þreytast á að beygja sig,
jhvað sem í húfi er.
Loðnu yfirlýsingarnar.
Þær tiðkast núna loðnu yfirlýs
ingarnar varðandi sjálfstæðis-
mál þessai’ar þjóðar. Miðstjórn
Framsóknarflokksins hefur fet-
að í fótspor annarrar borgara-
legrar stjórnmálaforustu og
mótað afstöðu sína til íslenzkr-
ar þátttöku í hernaðarbandalagi
með þanniglagaðri ályktun, að
engu er líkara en hún hafi verið
dregin uppúr brjóstvasanum á
sérstökum sendimanni frá her-
málaráðuneytinu í Washington.
Hin nýja lína landsölumanna
birtist þarna jafnvel ennþá ber-
legar en í samsvarandi ályktun
íhaldsins. Jú, það vantar sosum
ekki, að miðstjórn Framsóknar-
flokksins er andvíg herstöðv-
um og hersetu á Islandi.
Henni þykir bara rétt að gera
þann fyrirvara í samþykktinni,
að andstaða hennar gegn slík-
um viðbúnaði telst ekki í gildi,
ef árás á landið er yfirvofandi.
*
Sama tóbakið.
„Stefna beri að því að hér sé
engin herseta á friðartím;im, og
ekki herskylda," sagði íhaldið.
Þetta cr allt sama tóbakið. Eða
hvenær er árás á landið ekki
yfirvofandi samkvæmt málflutn
ingi manna þeirra, sem nú fara
með æðstu völd í íslenzku stjórn
málalífi? Spyrjið Bjarna Bene-
diktsson utanríkisráðherra.
Hann hefur vissulega ekki spar
að þjóðinni aðvaranir um þá á-
rásarhættu sem linnulaust vofir
yfir landinu. — Veit þá ekki
miðstjórn Framsóknarflokksins,
að einn lítill pakki, sem dettur
í Reykjavikurhöfn, getur falið
í sér fyllstu ástæðu til að Is-
lendingar gangi í hernaðar-
bandalag? Og hver mundi mót-
mæla herstöðvum hér, þegar
veðurathugunarbelgir yfir Kefla
víkurflugvelli taka á sig gerfi
austrænna njósnaflugvéla ? Því-
næst fréttist um tékkneska vís-
indamenn, sem hafa fengið sér
göngutúr útá Seltjarnarnes; —
og getur þá nokkur heilvita
maður andmælt nauðsyn þess,
að íslenzk æska læri vísindalegt
manndráp. í viðjum herskyldunn
ar ?
★
Því ekki úníform strax?
Nei, þessi miðstjórnarálykt-
un Framsóknarflokksins blekkir
engan Iiugsandi mann, fi-ekaren
samsvarandi ályktun íhalds og
aðstoðaiúhalds. Dag eftir dag
eru málgögn ríkísstjórnarinnar
yfirfull af allrahanda ægilegum
gróusögum, sem hafa þann til-
gang einan að æra þjóðina útí
þá villu, að vopnuð árás vofi
yfir landinu. Svo kemur mið-
stjórn Framsóknarflokksins og
segist vera andvíg þátttöku í
liernaðarbandalagi, — nema
siík árás vofi yfir! — Það er
beinlínis furðulegt, að Eysteinn
skuli ekki hafa mætt á fund-
inum í Edduhúsinu sl. laugar-
dag, íklæddur bandarískum gen
erálsbúningi.
*
Samræmið —
Harmonían.
Öllum ætti nú að vera orðið
nægilega ljóst, hvernig aftur-
haldið ætlar sér að svíkja þjóð-
ina til þátttöku í því hernaðar-
bandalagi, sem kann að tákna
endalok Islandsbyggðir. Milli
hinna loðnu yfirlýsinga, sem
forustumenn stjórnarflokkanna
láta samþykkja á fundum sín-
um, og áróðurs þess, sem mál-
gögn þeirra reka, er hið fyllsta
samræmi. Blekkingarnar harm-
ónera hver við aðra. En þess
ber og að gæta, að afstaða for-
ustumannanna segir ekki nema
að litlu leyti til um vilja allra
liinna mörgu óbreyttu flokks-
manna. Styrkur hins íslenzka
málstaðar og þeirrar hreyfing-
ar, sem um hann hefur risið,
er sá, að í öllum stjórnarflokk
unum finnast einlægir ættjarðar
vinir, sem vilja standa vörð
um landsréttindi. Á þetta
ekki hvað sízt við um Fram-
sóknarflokkinn. Því varla munu
menn einsog t. d. Pálmi Hannes
son rektor, sem fyrir tveim mán
uðum stóð í ræðustóli á stúdenta
f-undinum í Listamannaskálan-
um og flutti af djörfung og
drengskap hin dýpstu rök Is-
lands gegn útlendum málstað,
varla munu slíkir menn innan
Framsóknarflokksins hafa lagt
blessun sína yfir hina lævíslega
orðuðu blekkingarályktun í
Edduhúsinu síðastliðinn laugar
dag.
ir
★
HÖFNIN:
Goðafoss kom í fyrradag frá
Hull. Hermóður fór norður i
fyrradag. Reykjafoss kom í fyrra-
dag. Franskur togari, sem hér hef-
ur verið til viðgerðar, fór í fyrra-
dag. Garðar Þorsteinsson og Helga
fcll komu frá útlöndun? í fyrradag.
Tveir franskir togarar komu í
fyrrinótt, annar bilaður. Keflvik-
ingur kom í fyrrinótt. Marz var
lagt á Kleppsvík í gær. Enskur
togari kom hingað í gær vegna vél
bilunar.
1 ÍFISKSALAN :
26. f. m. seldi mótorskipið Björn
Jónsson, 809 kits fyrir 2721 pund
í Fleetwood.
RlItlSSKIP:
Esja var á Kópaskeri í gærmorg
un á norðui'leið. Hekla er í Ála-
borg. I-Ierðubreið er á Vestfjörðum
á norðurleið. Skjaldbreið var í
Stykkishólmi í gærmorgun á leið
til Króksfjarðarness og Flatcyjar.
Súðin er í Genova. Þyrill er i Hull.
Hermóður lá á Aðalvílt í gær á
norðurleið.
'Þ'' ÍSÍí-HP
Einarsson & Zoega:
Foldin er í Reykjavík. Lingest-
room fór væntanlega frá Færeyj-
um í gærkvöld til Rvíkur. Reykja-
nes er á förum frá Grikklandi.
EIMSKIP:
Brúárfoss cr í Rvik. Dettifoss fór
frá Rvík 26. 2. til Grimsby. Fjall-
foss fór frá Halifax 22. 2. til Rvík-
ur. Goðafoss kom til Rvíkur 26.
2. frá Hull. Lagarfoss fór frá Rvík
25. 2. til Leith, Gautaborgar og
Kaupmannahafnar. Reykjafoss
kom til Rvíkur 27. 2. frá Hull. Sel-
foss kom til Antwerpen 26. 2. frá
Immingham. Tröllafoss fór frá
Rvík 16. 2. til Halifax. Horsa fór
frá Skagaströnd 28. 2. til Rvikur.
Vatnajökull er í Vestmannaeyjum.
Katla kom til N. Y. 25. 2., fer það
an væntanlega 2. 3. til Rvíkur.
JMæturiæfcntr er 1 læfcnavarðsto'f-
unni, Austurbæjarskólanum. —*
Simi 50301
18.00 Barnatími:
Fr.amhaldssaga
(frú Solveig Péturs
dóttir). 18.30
Dönskukennsla. —
19.00 Ensku-
kennsla. 20.20 Ayarp frá Rauóa
krossi Islands (Bjarni Jónsson
læknir). 20.30 Tónleikar Tónlistar-
skólans: Trió i G-dúr eftir Mozart
(Wilhelm Lanzky-Otto, Björn
Ólafsson og dr. Heinz Edelstein).
20.50 Erindi: Loftslagsbreytingar á
jörðinni; VI. Enn um loftslags-
breytingu síðustu áratuga (di\ Sig
urður Þórarinsson). 21.15 Kirkju-
tónlist (plötur). 21.30 Upplestur:
Úr blöðmn Laufeyjar Valdimars-
dóttur (frú Ólöf Nordal les). 22.15
Endurteknir tónleikar: „Appollo
Musagetes" eftir Strawinsky (plöt
ur).
Gullfaxi fór í morg
un til Prestvíkur
og Kaupmanna-
hafnar með 29 far-
þega. Væntanlegur
hingað á morgun.
— Geysir fór til New York kl. 10
á sunnudagsmorgun^ með 17 far-
þega. Flaug Geysir beint til New
York, án viðkomu, og lenti þar
kl. 12 á miðnætti eftir íslenzkum
tima. Ekki var ílogið innanlands
í gær vegna snjóþyngsla á flug-
völlum.
Hjónunum Sigríði
Guðjónsdóttur og
Hauki Guðjóns-
syni, Sólvallagötu
31., fæddist dóttir
(14 ’/2 mörk) í
27. febrúar. — Hjónunum
Jónsdóttur og Einari
Braga Sigurðssyni, Vestmannaeyj-
um, fæddist sonur (ekki dóttir eins
og hér hefur ranglega verið hermt
áður) þann 12. febrúar.
fyrradag,
Kristinu
t gær upplýsir
Mánudagsblaðið
skringilegt uppá-
tæki tékkneskra
. logregl utnanna,
Þeir Hggja seni só
í leyni á þjóðvegununi og stöðva
blfreiðar „til að athuga, hvort far
jiegar séu hreinir.“ — Hingaðtil
hef ég lialdið að pólitílð fyrir aust
an járntjöld beittl skammbyssum
cn ekki þvottapokum gagnvart
friðsönium almenningi.
Nýlega voru
gefin saman í
hjonaband, ung-
frú Sólveig Eng
ilbertsdóttir frá
Súðavík og
Hjálmar Karlsson sjómaður frá
Djúpavogi. Heimili brúðhjónanna
er á Baldursgötu 3 í Reykjavik. —
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band í kaþóisku kirkjunni, ung-
frú Erla Guðmundsdóttir ,og Leo
Iloffmann, starfsmaður á Kefla-
víkurflugvelli.
Syrpa, 1. tbl.
þessa árgangs,
er komin út. í
heftinu eru
þessar greinar
m. a.: Land
hins blessaða friðar, eftir Aðal-
björgu Sigui-ðardóttur. Húsgögn og
híbýli ,eftir Helga Hallgrímsson.
Matthías — frá rómantík til raun-
sæisstefnu eftir dr. Björn Sigfús-
son. Kaflar úr ferðasögu, eftir Guð
rúnu Sveinsdóttur. Karladálkur.
Menning — ómenning? Bækur.
Heímilisritið, febrúarheftið 1949,
er komið út. Efni: Blá gluggatjöld,
smásaga eftir Vilhjálm S. Vil-
hjálmsson. Sally bjargar málinu,
smásaga eftir Lister. Dularfulla
höfðingjasetrið, smásaga eftir
Batzac. Hvað er kynvilla?, grein
úr Magazine Digest, o. m. fl.