Þjóðviljinn - 08.05.1949, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 08.05.1949, Blaðsíða 5
Sunnudagur 8. inaí 1949. ÞJÓÐVILJINN 3 Paul Kobeson hefur sem j kunnugt er ferðazt um Evr- | ópu undanfarið, sungið og tal að í Englandi, Frakklandi og á Norðurlöndum. Sérstaka athygli vakti koma hans til Danmerkur, þar sem hann neitaði að syngja fyrir Poli- tiken vegna afstöðu þess ’ biaðs til Atlanzhafssáttmál- I ans cn söng í slaðinn á veg- um Land og Folk. í Svíþjóð I söng hann fyrsta maí á úti- fundi kommúnista. Þjóðviljinn hefur fengið margar fyrirspurnir um það hvort ekki væri hægt að fá Kobeson til fslands. Það var reynt en reyndist ókleift að þessu sinni, þar sem hann á nú að mæta fyrir rétti í Bandaríkjunuin í sambandi við galdraofsóknirnar gegn kommúnistaleiðtogunum þar. I staðinn birtir Þjóðviljinn í dag viðtal við þennan heims fræga listamann og gáfaða menntamann. Er það tekið úr 1. maí blaði Land og Folk. ★ Hvers vesna var Truman kosinn? Þú hefur oft komizt þannig að orði að framfaraöflin í Bandaríkjunum væru langtum sterkari en við héldum, Ýmsum hefur komið þetta á óvart og^ mig langaði til að biðja þig að skýra það svolítið nánar út. Robeson hallar sér' aftur á ba.k í stólnum. Hann hugsar sig andartak um en talar svo með ákafa, en þó íhugull. -— Það er nauðsynlegt að ( skyggnast hálft ár aftur í tím- ann og spyrja sjálfan sig: Hvers vegna var Truman kosinn forseti? Kvers vegna fékk Wallace aðeins eina milljón at- kvæða, þegar allir höfðu talið víst að hann fengi 10 milljónir? Það er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir þessu atriði, og þá verða menn fyrst og fremst að minnast þess að Bandaríkja-' menn hafa ævinlega — og ekki sízt fyrir forsetakosningarnar í fyrra — gert ákveðinn greinar mun á innanlands- og. alþjóða- málum. Truman fékk bændaat- kvæðin vegna þess að hann lof- aði bændum í miðvesturríkjun- um hærra verði; hann fékk verkamannaatkvæðin vegna þess að verkamenn héldu að hann myndi afnema Taft-Hart-1 ley-lögin, sem höfðu fjötrað verkalyðssamtökin; og negrarn- ir kusu hann vegna þess að þeir héldu að hann myndi færa þeim almenn mannréttindi. Já, en þetta var einmitt inntakið í New Deal áætlun Roosevelts? — Það er rétt. Tilgangur Roosevelts með New Deal var að tryggja almenningi lífvænleg kjör og fylkja honum gegn aft- urhaldinu. Sþurningin var hvor væri arftaki New Deal Truman eða Wallace. Hin áhrifamikla styrjaldaröflin til fríðar og byggjum heim jafn- réffis og fullra mannréffinda — Viðtal við Peml Hobesmt lýðræðislega athafnanefnd, sem er raunverulega flokkur banda- rískra sósíaldemókrata með frú Roosevelt í broddi fylkingar, snerist upphaflega gegn Tru- man og óskaði þess að Eisen- hower yrði frambjóðandi, en nefndin gekk í lið með Truman og styður hann nú með því skil- yrði að demókrataflokkurinn haldi áfram New Deal-stefn- unni, Það var kosið um New Deal eða fasisma t — Lofaði Truman því ekki einnig ? — Jú, ræður hans, ekki sízt í lok kosningabaráttunnar, voru þess eðlis. Það hafa einhverjir sannfært hann um að það væri nauðsynlegt að ráðast afdrátt- arlaust gegn afturhaldinu. Truiuan gekk meira að segja svo langfc að hann tók undir með VVallace og kallaði andstæðing sinn republikanann Dewey untl- irstöðuna að bandarískum ný- fasisma. I augum kjósendanna var þess vegna um tvennt að velja: New Deal eða fasisma. Það var enginn efi á því að Dewéy var f jandsamlegur verk- lýðshreyfingunni og New Deal, og að þeir sem hötuðu Roose- velt stóðu á bak við hann. Og það herbragð að gera opinbera áætlunina um að senda Vinson hæstaréttardómara í sérstaka ,;friðarför“ til Moskvu fékk kjósendurna meira að segja til að halda að Truman myndi vilja beita sér til að tryggja friðinn. Hafði þetta atriði mikla þýð- ingu fyrir hann? —Varla. Á þeim tíma var Bandaríkjamönnum ekki Ijós baráttan fyrir friði. Kosningarn ar snerust í aðalatriðum um inn anríkismál. Fólk kaus í sam- ræmi við hagsmuni sína innan- lands, en það kom sérstaklega greinilega í ljós af því að bænd- urnir kusu Truman vegna þess að þeir höfðu áhuga á ríkisstyrk til að halda verðinu uppi. Wallace sagði þróunina fyrir ■— Hvernig snerist Wallace þá við? — Wallace lagði áherzlu á bar áttuna fyrir friði og hvatti eins og Roosevelt til friðar og vin- áttu við allar þjóðir gegn stríði. Ef hægt er að gagnrýna kosn- ingabaráttu framfaraflokksins hlýtur það að vera vegna þess að við töluðum ekki við bænd- ur og verkamenn um hagsmuna mál líðandi stundar. En Wallace sagði nákvæmlega fyrir það sem er að gerast í dag. Nú, liálfu ári síðar er öllum ljóst að baráttan um stríð eða frið er náfcengd innanlandsmál- unum, þar sem þau eru nú háð harðvítúgri styrjaldar-fjármála stefnu. Verkamenn geta nú ekki Iengur hækkað laun sín eða bætt lífskjör sín. Sjálfur hinn frum- stæði verkfallsréttur liefur ver- ið tekinn af þeim. Og ef negr- arnir spyrja hvers vegna svo auðveldlega gekk að kveða nið- í ur lögin um mannréttindi þeirra, þá er svarið: Vegna þess að við verðum að halda áfram með Atlanzhafssáttmála, Mars- halláætlun, hergagnahjálp o. s. frv. Þess vegna varð að fórna mannréttindum til þess að nnd- irbúa þennan nýja yfirgang. Niirnbérgréttarhöldin „ólögleg” — Það er þannig enginn mun- ur á Dewey og Truman? — Síður en svo, því Truman framkvæmir stefnu Deweys hraðar en Dewey hefði getað sjálfur. Það er eins og Wallaee hefur alltaf lagt áherzlu á eng- inn raunverulegur munur á þeim auðhringum sem styðja republikana og hinum sem styðja demókrata. Allir Évrópu menn hljóta einnig að hafa gert sér ljóst í hverra þágu Mars- halláætlunin er — bandarísku auðhringanna! Þeir liafa fært Evrópu aðstoð til þess að geta drottnað yfir henni. Og livað er þá aðalatriðið í hinnl svokölluðu endurreisn Ev- rópu fyrir þá auðhringa sem að henni standa? Það er, að mið- púnktur og möndull alls, sem gert er, er endurreisn Vestur- Þýzkalands og yfirdrottnun þess í Evrópu. Þeir reyndu um skeið að draga dul á það, en nú er það öllum ljóst. Já, sjálf bandaríska stjórnin játar sjálf að hvergi í Vesturþýzkalandí hafi nazisma'n um verið útrýmt að nokkru gagni. Og fyrir fáeinum dög- um var almenningi gefið það í skyn að líta verði á öll Núrn- bergréttarhöldin sem ólögleg, þar sem þau hafi verið fram- kvæmd undir bandarískri lög- sögu, og slík réttarhöld séú ó- j lögleg samkvæmt bandhrískum réttarven jum! Milljónirnar koma til okkar aftur — Hvaða áhrif hefur öll þessi þróun í Bandaríkjunum? — Já, nú er baráttan einmitt komin á það stig sem Wallaee spáði. Aðalatriði kosning'anna næsta ár,' verður einfaldlega hvort almenningur vill styðja þennan stöðuga stríðsundirbún- ing, þetta fasistíska kerfi og styrjöld. Og nú erum það við í framfaraflokknum sem getum talað við verkamenn um kröfur líðandi stundar. Hinir aftur- háldssömu verkalýðsfélagafor-, menn geta það ekki, því þeir eru neyddir til að sætta sig við lægri laun svo að hægt sé að halda hervæðingunni áfram, og stjórnin hefur valio sér að bandamönnum fasistískt Þýzka- land, fasistískt Grikkland og hiha nýfasistísku Norðurafríku. Tilvera verkamanna er nú háð baráttunni um stríð eða í'rið. Milljónirnar sem fylgdu okkur í raun og veru en létu Truman blekkja sig, koma til okkar aftur með langtum fleiri með sér. Þær tryggðu að tyegt var að bjóða Wallace fram og nú sjá þær að hann hafði rétt fyrir sér. Ef við náum ekki til þeirra er það aðeins af dug- leysi og slóðaskap. — En ef það verður stríð ? — Eg hef ekki trú á að neitt stríð sé yfirvofandi. Það er auð vitað alltaf hætta á því að fá- einir ofstopamenn geti valdið styrjöld, og ef bandarísku heimsvaidasinnarnir fengju tækifæri til, færu þeir í styrjöld, Það er einmitt það sem þá dreymir um. En það er löng leið frá draumi til veruleika. Ef það væri ekki hefði styrjöld þegar skollið á í fyrra þegar Berlínardeilan stóð sem hæst. En hverju hafa þeir ekki á- orkað með stríðshótuninni einni saman. Á dögum Roosevelts áttu auðhringarnir samkvæmt New Deal áætluninni allt undir verkalýðsfélögunum upp á von og óvon. Nú hefur þetta snú- izt við vegna stríðsógnunarinn- ar. Nú eru það auðhringarnir sem í eigin þágu hafa getað neytt styrjaldarbúskap upp á þjóðina. Þess vegna þurfa verkamennirnir að berjast fyrir því að koma aftur á friðar- j stefnu til þess að geta fullnægt daglegum þörfum sínum. Og enda þótt þeir séu hræddir eins og nú standa sakir, þá sjá þeir engan tilgang í að hallast ekki á sveif með þeim öflum sem telja friðarstefnu framkvæman- lega. „Við erum afarsterkir” Robeson hefur talað um horf- urnar á þingkosningunum 1950 með svo mikilli sannfæringu í rómnum að ég óttast næstum að hann fyrtist þegar ég bendi honum á að ef til vill verði reynt að rífa allt þetta niður sem haldlausa kenningu og spyr hvort hann geti þess vegna ekki látið ökkur hafa nokkur und- irstöðuatriði í trú sinni á styrk „annarrar Ameríku“. En þvert á móti. Spurningin virðist gefa Paul Robeson kærkomið tæki- færi til að undirstrika að fram- faraöflin ráða þegar í dag yfir mörgum þýðingarmildum stöðv um í amerísku þjóðfélagslífi. — Við erum afarsíerkir í verkalýðsfélögunum á vestur- ströndinni, og þegar þar var hafnarverkfall kom í ljós að meðlimir verkalýðsfélaganna á austúrströndlnni kærðu sig koli- ótta um afturhaldsstjórnir sín- ar og hófu samúðar^erkföll með verkamönnum vesturstrand arir.nar. Við ráðum yfir stærsta sambandi rafvirlíja og vél- virkja, hinu stóra sambandi skinnvöruverkamanna, sam- bandi opinberra starfsmanna, sem í eru bæði starfsmenn rík- isins og kennarar, miklum hluta af stáliðnaðinum, þar sem fjöl- margir austurevrópumenn eru nýliðar, miklum hluta af kola- námunum og bræðslustöðvium (auk útibúanna í Kanada) og sjómannafélögunum, sem eru einnig í sambandi við Ástralíu og Kanada. Það er yfirleitt augljóst mál, hvað sem stjórnendurnir segja, að framfaraöflin hurfu eigi þótt þau kysu Truman. Lítum á negrana í suðurríkjunum. Það eru 10 af þeim 14 milljónum negra sem eru í Bandaríkjunum (og gleymið ekki að einnig með al okkar er mikill munur á kjör- Framhald á 6. síðu. Paul Kobeson og franslia stórskáldið Aragon á í'riðar- þinginu í París.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.