Þjóðviljinn - 06.06.1949, Side 4

Þjóðviljinn - 06.06.1949, Side 4
3 ÞJÓÐVILJINN Föstudagar 6. tuai 1949. PIÓÐVIUINN Otgfefandí: Bamelningarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokkurlnn Bltatjórat: Magnúa Kjartansson. Sigurður GuSmundsson (&b)<, Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaöam.: Xrl Kárason, Magnúa Torfl Ótaíason. Jónas Árnason. Ritstjórn, afgrelðsla, auglýslngar, prsntsmiöja. Skólavörðn- ■tíg 33 — Sími 7500 (þrjár línu r)' Áskrií'arverð: kr. 12.00 á mánuöi. — LausaaðluvarS 50 aur. slnt. PrentsmlBja ’ÞjóBviyaua tu £, SósialistanckkurJnn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár línur) Dýrtíðarstjórnin lýsir sjálfri sér Almenningi er efiaust ekki sérlega minnisstæður „mál- efnasamningur“ núverandi ríkisstjórnar, hann var ekki til <þess fallinn að grópast fast í hug manna, fullur af hinum alkunnu hálfyrðum „eftir því sem frékast er unnt“, „eftir megni“ og „eftir því sem kringumstæður leyfa“. Þó var í honum eitt atriði afdráttarlaust, ríkisstjórnin leit á það sem meginhlutverk sitt, að berjast gegn dýrtíð og verð- bólgu. „Það er stefna ríkisstjórnarinnar að vinna að því af alefli, að stöðva liækkun dýrtíðar og framleiðslukostn- aðar og athuga möguleika á lækkun hennar!“ ★ Þetta meginstefnumál rikisstjórnarinnar var síðan boð- að af einstæðu harðfylgi í málgögnum hennar. Allt, sem ríkisstjórnin gerði var „ráðstafanir gegn dýrtíð og verð- bólgu“ eða ,,dýrtíðarráðstafanir“. Seinna orðið virtist brátt meira sannmæli, því öllum almenningi var ómögulegt að skilja annað en að allar aðgerðir stjórnarinnar \*æru við það sniðnar, að magna dýrtíðina og auka verðbólguna. Tollar og óbeinir skattar hafa verið þrefaldaðir í tíð fyrstu stjórnar Alþýðuflokksins, og hingað til hafa menn haldið að það héti verðbólga. Á sama tíma hafa tekjur laun- þega verið rýrðar stórlega með kaupránslögum og stórum minni atvinnu, og það hafa menn til þessa haldið að væri öruggur vottur vaxandi dýrtíðar. En stjórnarblöðin halda fast við sinn keip; þetta voru aðeins byrðar og fórnir, sem þjóðin varð að taka á sig til að „stöðva hækkun dýr- tíðar og framleiðslukostnaðar“, eins og komist \-ar að orði í ,,málefnasamningnum“! Stjórnarblöðin og yfirboð- arar þeirra hafa aldrei viðurkennt að verðlag færi hækk- andi í landinu, þvert á móti berðist ríkisstjórnin hinni góðu baráttu við að halda því í skef jum og við sérstaklega hátíðleg tækifæri var því meira að segja haldið fram, að verðlag hefði verið lækkað! ★ En síðan, rúmum tveimur árum eftir að „málefna- samningurinn“ var birtur og eftir rúmlega t\’Jggja ára góða baráttu, til að framkvæma ákvæði hanS, um að „stöðva hækkun dýrtíðar, og framleiðslukostnaðar“ kemur fram á Alþingi, stutt og yfirlætislaus greinargerð fyrir frumvarpi, um hækkun tóbaks. Sú greinargerð, mun ef- laust grópast fastar í hug manna en „málefnasamningur- inn“ forðum tíð, en hún hljóðar Svo í öllu látleysi sínu: „Verðlag hefur farið stöðugt hækkandi almennt í landinu undanfarið, og er eðlilegt, að verðlag á tóbaks- vörum, sem rikissjóður nýtur hagnaðar af, fylgist með. Til þess þarf að rýmka lagaákvæðin um álagningu tóbaks- einkasölunnar, og er það gert með frumvarpi þessu.“ Það er enginn bumbusláttur í kring um þessa greinar- gerð eins og „málefnasamninginn" forðum, og þó rennur manni næstum til rifja uppgjafartónninn. Og þegar þess er gætt, að t. d. sígarettupakkinn kostaði í janúar 1947, áður en ríkisstjórnin tók við, kr. 3,60, en á nú að hækka upp í kr. 5,75, þá er greinargerðin yfirlýsing um að verð- lag hafi almennt hækkað um 'hvorki meira né minna en 60% í tíð fyrstu stjórnar Alþýðuflokksins! Öllu átakan- le^ri yfirlýsingu um uppgjöf hrunstjórnarinnar er ekki hægt að hugsa sér. EINAESSON & ZO.ÉGA: Foldin er væntanleg til Hull á föstudagsmorgun, fermir þar sama dag. Spaarnestroom er væntanleg- ur til Amsterdam á föstud. Lingo- stroom er í Færeyjum, væntanleg- ur til Reykjavíkur eftir helgina. Það vantar bremstir. Sumir menn eru í vissum skiln ingi bremsulausir. Þeir gerast t. d. sekir um óheppilegt asna- strik, en í stað þess að láta sér segjast, þegar á þetta er bent, álpast þeir í þráa sínum áfram á sömu braut, og lenda að lok- um útí skurði almenns athlægis. Nærtækt dæmi má nefna þessu til sönnunar: Valtý Stefánssyr.i varð á sú skyssa síðastliðinn þriðjudag að birta í blaði sínu fimbulfáránlegar lygasögur um hátíðahöldin 1. maí. Og reyk- vískur almenningur, sem hefur húmorískan sans, gat ekki stillt sig um að hlæja. Valtýr Stef- ánsson er hinsvegar illa búinn þessum sansi (sem og raunar fleiri sönsum), og hann hefur — þrátt fyrir fjölda vinsam- legra ábendinga — endurtekið sömu fáránlegu lygarnar á hverjum degi alla vikuna, með þeim afleiðingum, að nú er ekki bara hlegið, heldur skelli- hlegið að honum. — Þannig er Valtýr Stefánsson í þessum skilningi bremsulaus einsog bil- aður gamliford. * staðreynd, sem öllum er ljós .. — En eins og menn vita, var það í byrjun loforð núv. ríkis- stjórnar, að halda dýrtíð í skefj um, og þá náttúrlega að hafa helzt hemil á verðlagi helztu neyzluvara........ 'k Nýr, tilfmEtanlegur nefskattur. ..... En hvað gerist svo? Jú, verð á algengustu neyzluvör um hefur farið síhækkandi, ýmist beint eða óbeint, og tó- bak t. d. hefur hækkað í verði upp úr öllu valdi, seinast núna um mánaðamótin, þegar síga- rettur hækkuðu t. d. úr kr. 5.00 í kr. 5,75 pr. pakka. Tóbaks- reykingamenn brúka mest síga- rettur, og mun láta nærri að flestir reyki einn pakka á dag .... Geta menn af þessu séð, hvað þessi nýi nefskattur krata stjórnarinnar er tilfinnanlegur fyrir allan almenning . . Þetta er máske smávægilegt atriði móts við margt annað á hinu stóra syndaregistri ríkisstjórn- arinnar, en smávægilegu atriðin verða líka munuð við næstu EIMSKIÍ: Brúarfoss kom til Reykjavíkur í fyrradag 4.5. frá Antwerpen. Dettifoss fór frá Reykjavík 3.5. til London og Hull. Fjallfoss er í Ant werpen. Goðafoss fór frá N. Y. 29.4. til Reykjavíkur. Reykjafoss fór frá Kph. 30.4. er væntanlegur til Reykjavíkur árdegis í dag 6.5. Selfoss er í Borgarnesi. Tröllafoss fór frá Reykjavík 3.5. til Halifax og N. Y. Vatnajökull fór frá Vest- mannaeyjum 30.4. til New Castle- on-Tyne. Laura Dan kom til R- vikur 1.5. frá Antwerpen. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími 7911. Næturlæknir er i Læknavarðstof unni, sími 8030. 19.30 Þingfréttir. 20.20 Skíðaþáttur (Georg Lúðvíkss.). 20.30 Útvarpssag- an: „Catalína" eft- ir Somerset Maug- ham; III. lestur (Andrés Björnss.). 21.00 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett í Es-dúr eftir Mendels- sohn. 21.15 Frá útlöndum (Jón Magnússon fréttastjóri). 21.30 Tónleikar. 21.35 Sagnaþættir eftir Bólu-Hjálmar (Gils Guðmundsson ritstjóri fiytur). 22.05 Vinsæl lög. £2.30 Dagskrárlok. Leiðréttlng. 1 grein um garð- yrkju eftir Sigurð Sveinsson er birtist í kvennasíðu Þjóðviljans í gær er prer.tvilla í 5. línu. Þar stendur vetrarauðn en átti að vera vetrarúðun. Undirskrift páfans, Eg veit ekki hversu lengi Val týr hyggst halda áfram þessum kjánaskap. Minnsta kosti sjást þess énnþá engin merki að draga muni úr ferðinni, því sein ast í gærmorgun birtir hann grein með sömu fullyrðingun- um um, að einungis -1300 manns hafi verið í hinni vSldugu kröfu göngu Fulltrúaráðsins. Og til að sannfæringarkraftur greinar innar skuli í engu bregðast, skrifar Valtýr nafn sitt fullum stöfum undir hana, einsog þar sé fólgið sama vald og í nafni páfans, sem getur skipað þegn- um sínum að trúa nákvæmlega hverjú sem vera skal, af því hann er, fyrir náð almáttugs guðs, óskeikull í sínum dómum. Annars er ekki ástæða til frekari orðalenginga um þetta mál. -Nema hvað rétt er 'að skjóta þeirri vinsamlegu vís- bendingu til valdamanna íhalds ins, að oft var þörf en nú er nauðsyn á haldgóðum bremsum — helzt glussabremsum — handa stjórnanda Morgunblaðs- ins. ★ Tóbak er ein helzta neyzluvaran. Reykingamaður skrifar: „Það er nú einu sinni svo, að Islend- ingar hafa vanizt á að reykja, og ekki gott við því að gera héðan af. Sennilega lætur nærri að allt að því 70% ísl. karl- manna séu með þessu marki brenndir. Og stór hluti hinna notar a. m. k. neftóbak..... Þannig er tóbakið ein af helztu neyzluvörum þjóðarinnar eins og bent hefur verið á. Þetta er kosningar. — Reykingamaður. ★ Nauðsyn brýtur lög. Það hefur borizt bréf, þar sem látin er í ljós mikil óá- nægja út af því, að garðeigend- ur skuli aftur vera farnir að nota mikið húsdýraáburð hér innanbæjar, þvert ofan í settar reglur., Sennii. er ekki gott við þessu að gera. Það ríkir Alþýðu flokkshallæri í landinu, og inn- flutningur lítill, einnig hvað tilbúinn áburð snertir. En eitt- hvað verður að bera á blettina, — og nauðsyn brýtur lög. II Ö F N I N: Þórólfur fór á veiðar í gær. Hall veig FróSadóttir liom af veiðum og fór áleiðis til útlanda. Eiliðaey var tekin í slipp. Þrir fææreyskir og einn hollenskur togari fóru héöan í gær. EIKISSKIP: Esja fer frá Reykjavík í kvöld vestur um land i hringferð. Hekla er á Austfjörðum á norðurleið. Herðubreið fer frá Reykjavík um hádegi í dag tii Vestfjarða með við komu í Stykkishólmi og Flatey. Skjaldbreið var á Húnaflóa í gær á norðurleið. Þyrill er í Faxaflóa. Oddur fer frá Rgykjavík í Uag til Hornafjarðar. ISFISKSALAN: Gylfi seldi 5053 vættir fyrir 11048 pund, 4. þ. m. i Fleetwood. Mótor- skipið Goðaborg seldi 4. þ. m. í Ab- erdeen, 1280 vættir fyrir 3494 pund. Pólstjarnan seldi 2. þ. m. í Aber- deen, 3893 kits fyrir 9944 pund. Geysir fer í kvöld til Kaliforrru. Verð ur þar 3 vikur til viðgerðar. Hekla er í Reykjavík. I gær fóru flugvélar Loftleiða til Akur- eyrar, Bildudals og Patreksfjarðar (sjúkraflug), og austur í Grafning. ----- Gullfaxi kom frá Kph. og Osló kl. 9.30 í gærkvöld. Iönskólaalbúmin 1948 eru tilbúin og verða afhent í skrifstofu Iðn- nemasambandsins, að Hverfisgötu 21 í kvöld kl. 8.30. Þeir sem enxx hafa ekki greitt albúmin, eru beðn ir aö greiða þau við móttöku,- Bekkjarráð Iðnskólans 1948. Hjónunum Guð- rúnu Rafnsdóttur og Eggert Þor- bjarnarsyni Lang- holtsveg 33. fædd- ist.19 marka dóttir í fyrradag, miðvikudaginh 4. maí. Uiigbarnavcrnd Líknar, Templ- arasundi 3f er opin þriðjudaga og föstudaga kl. 3.15—4 e. h. Múrarafélag Reykjavíkur heldur fuxid í Baðstofu Iðnaðarmanna u. k. föstudag 6. maí klukkan 8.30 síðdegis. Dagskrá: Rætt um upp- sögn samninga og kaupgjaldsmál. Fclagar mætið vel og réttstundis. Stjórnin. Söfniix: Landsfcókasafnið er opið kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka claga nema laugardaga, þá kl. 10— 12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 1 —7 alla virka daga. Þjóðminjasafn- iff'kl. 1—3 þi'iðjudaga, fimmtudaga cg sunnudaga. Listasafn Einara Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu- dögum. Bæjai-bókasafnið er op- ið alla vii'ka daga kl. 10—10, út- lán þá frá kl. 2, nema á laugar- dögum en þá er safnið opið kl. 10—4 og útlán kl. 1—4. Dr. Jens Hald vei-ður ásamt Al- freð lækni Gíslasyni til viðtals í dag og á moi'gun kl. 5.30------ 6.30 í upplýsinga og hjálparskrif- stofu Áfengisvarnarnefndar Reykjavikur í Templai'ahöllinni, Fríkirkjuveg 11. Mun hann gefa leiðbeiningar og upplýsingar þeim sem til hans leita vegna áfengis- bölsins. ! •

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.