Þjóðviljinn - 22.06.1949, Blaðsíða 6
1
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur .32. júní 1949.
EVELYN WÁÚGH :
47. DAGUR.
KEISARARIKID AZANIA
ASM. JONSSON
þýddl.
Var sannkölluð hetja dágsins,;JPlöggihí vörii, festJ,?
sem hann — eins og stóð í hinu prúðmannlega
afsvari hans — starfaði aðallega innan enska
safnaðarins á staðnum sem þegar var fullkunnugt
um þessar fyrirætlanir og hafði gert sínar ráð-
stafanir viðvíkjandi þeim, og mundu þessvegna
ekki líða neitt tjón við þessar nýju aðgerðir keis-
arans. Hinsvegar óskaði hann hans heilagleika
velgengni í hinni drengilegu baráttu hans fyrir
varðveizlu hreinleika heimilislífsins. Hann hvatti
hann til að biðja fyrir sér, og bennti honum á, að
hann ætti sjálfur í flóknum brösum við Fram-
faraflokkinn, sem hótaði að rífa dómkirkjuna
hans til grunna. Hann vildi því ekki auka á ring-
ulreiðina með því að blanda inn í það öðrum
deilumálum, hversu ágæt sem þau annars: kynnu
að vera. ' *,» n-joV,
Einn árangur fundarins var, að hans heilag-
leiki samdi hirðisbréf í glæsilegum kirkjustíl, og
sendi afrit þess í allar áttir með hraðboðum. Ef
kirkjan hefði haft sterk ítök meðal íbúanna, hefði
hátíðin verið dæmd til að mistakast fulikomlega,
en, eins og áður er getið, þá var kristnun lands-
jns mjög ófullkomin, og meiri hluti íbúanna varð-
veitti enn þá hin eldri trúarbrögð innra með sér,
og stefnu Seths barst að lokum hjálp úr ólikleg-
ustu átt — nefnilega íbúum þorpanna.
Þessi gangur málanna var eingöngu að þakka
hæfni manna til að laga sig eftir kringumstæð-
unum. Á hinum myrku dögum, þegar fordómar
fólks hans umkringdu hann úr öllum áttum, og
jafnvel Basil gekk svo langt að geta þess, að
skynsamlegast væri að fresta hátíðahöldunum,
fann keisarinn í bókunum, sem hann fékk mánað-
arlega frá Evrópu nokkrar mjög áberandi og ó-
tvíræðar rússneskar auglýsingamyndir. 1 fyrst-
unni virtist algjörlega óframkvæmanlegt að
prenta eftir þeim — prentsmiðja Couriers gat
ekki prentað myndir. Seth var að hugsa um að
láta þræla teikna myndirnar, þegar hr. Youkoum-
ian uppgötvaði, að fyrir nokkrum árum síðau
hefði einhver framtaksamur auðkýfingur gefið
ameríska baptistaskólanum litprentunartæki, í
þeim tilgangi að kenna hinum innfæddu lit-
prentimariðnina. Tækin höfðu lifað endalok þess-
ara tilrauna af, og hr. Youkoumian keypti þau
af prestinum og seldi Nýsköpunarráðinu þau
með sæmilegum hagnaði. Nú var dubbaður upp
listamaður úr armensku nýlendunni, sem tók
að sér, samkvæmt fyrirskipunum hr. Youkoum-
ians, að útfæra tillögur Seths í einstökum atrið-
um. Árangur allra þessara umbrota birtist að
lokum almenningi í gríðarstóru plaggi'í sterkum
litum ■— einkar heppilegu til að koma ólæsu
fólki í skilning um blessun fæðingatakmarkana.
Þetta var að ýmsu leiti stórbrotnasti sigur Ný-
sköpunarráðsins til þessa, og hr. Youkoumian
upp um alla Debra-Dowa borg, þau voru límd á
veggi hvers einasta salernis meðfram járnbraut-
arlínunni milli höfuðborgarinnar og strandarinn-
ar, þau voru send inn í hálendið til allra undh’-
konunganna og klínt upp í kofa hvers einasta
höfðingja, þau voru hengd upp í fangelsunum og
hermannaskálunum og límd á gálgatrén, og hvar
sem þau voru fest upp þyrptust þegar að þeim
hópar áhugasamra og undrandi Azaníubúa.
Plaggið sýndi tvo ólíka heima. Öðru megin
var sýndur andstyggilegur og sóðalegur sírákofi,
og allt í kring um hann börn á öllum aldri, þjáð
af öllum hugsanlegum sjúkdómum; krypplingar,
vansköpuð, blind, hitaveikissjúk og brjáluð. Við
tóman pottinn sat faðirinn á hækjum sér, úttaug-
aður og ellihrumur fyrir aldur fram, af heimilis-
áhyggjum og brauðstriti, og gegnum dyrnar sá
inn í kofann, þar sem móðirin, upptærð af oftíð-
um barnsburðum og hnýtt og skökk af þindar-
lausu striti, horfði örvæntingar-augum á allt of
lítinn matarskammt, sem átti að nægja allri f jöl-
skyldxmni. Hinumegin á myndinni sást inn í
bjarta dagstofu með borði og stólum. Móðirin,
sem var bæði ung og fögur, sat í þægilegum
hægindastól og borðaði hrátt kjötstykki, en mað-
ur hennar reykti í friðsæld úr langri arabískri
vatnspípu, (sem var tákn þjóðfélagslegrar vel-
megunar um allt landið), en á milli þeirra sat
stórt og heilsulegt barn og las í blaði. Á miðri
myndinni, á milli þessara mynda, voru stórar og
nákvæmar teikningar af nýjustu og öruggustu
getnaðarvörnum, ásamt þessum orðum á sakuyu:
HVORT HEIMILIÐ VELUR ÞÚ?
Myndin vakti alstaðar óskipta athygli. Um
alla eyna kinkaði fólk svörtum kollum, svartar
hendur bentu og svartar tungur skelltu í góm
við oddsorfnar tennur. Það var hvergi nokkur
minnsti vafi um áhrifamátt nýja og litskrúðuga
plaggsins.
fullkomna málverkabókin komin
Fyrsta
25 mynclir prentaðar í eðlilegnm litum
Hrein opinberun íyrir þá, sem dá íslenzka nátiúru
og meta einhvers íslenzka listmenningu.
30 myndir og icikninga? í svöriu.
Saga listamannsins eítir Gunnlaiig Schevmg ©g
Bjama GaBnrnndssoj! (£. ensku).
Flótíi unclan eldgosi.
Þeir, sem gerast áskriíendur að öllum þrem bókunum, bók Ásgríms, Jóns Stefánssonar
greiða aðeins 125 kr. fyrir hverja bók.
og Kjarvals
Békaútsala
ritföng h.f
Bœkur
Áskriftarskrifstofa og afgreiðsla
Veghúsástíg 5 (áður Smjörlíkisg. Smári)
Sími 1651.
RMS9Þ