Þjóðviljinn - 11.09.1949, Side 6
6
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagnr 11. september 1940
" FRAMHALDSSAGA:
HOS STORMSINS
EFTIR
bíignon G. Eberhart
Speanandi ASTAJISAGA. —
IK 31. DAGUR.
dóm. Eg er ekki að reyna að hræða þig Jim. Eg
■vil ekki að þú verðir hengdur fyrir morðið á
Hermione.“
„Eg myrti hana ekki,“ sagði Jim.
„Gott og vel; ég trúi þér. En — Nonie —
þetta var áfall fyrir mig. Við skulum ekki tala
um það núna — ég býst við að hvorugt ykkar
hafi getað að þessu gert. En... við verðum að
hugsa.“
Jim vætti varirnar, leit örvæntingarfullu augna
ráði á Nonie og sagði: „En brúðkaupið —“
Árelía sagði fyrir aftan þau: „Auðvitað fer
brúðkaupið fram á tilsettum tíma.“ Ekkert
þeirra vissi að hún stóð þarna rétt fyrir inn-
an dyrnar. Ljósbjarminn frá lampanum náði
ekki út í hornin á herberginu, og Arelía leit
draugalega út, þar sem hún stóð þarna í dauf
litum kjól með fölt andlit. Eldur brann úr aug-
um hennar. Hún sagði við Jim: „Eg trúði þér
*“■ Jim. Eg sagði að það gæti ekki verið að þú hefð-
ir myrt Hermione. En ef þú getur komið svona
fram við Roy, bezta vin þinn, þá er þér trúandi
til alls. Eg krefsf þess, vegna Nonie, vegna Roys,
að brúðkaupið fari fram.“
Jim gekk í áttina til hennar, en hún bandaði
honum frá sér, og í svipnum var eitthvað sem
líktist hatri.
„Þetta er ófyrirgefanlegt, Jim, og ég fyrir-
gef þér það aidrei. Það er að segja,“ hún flýtti
sér að leiðrétta sig, „þú hefur reynt að koma
í veg fyrir brúðkaup Roys og Nonie, þú hefur
reynt að taka konuna frá bezta vini þínum. En
ég skal sjá um að þér takist það ekki.“
Jim sagði seinlega: „Þú getur ekki neytt
Nonie til að giftast neinum, sem hún vill ekki
giftast. Við elskum hvort annað —“
„Elskið hvort annað!“ hrópaði Árelía hæðn-
islega. „Þú veizt ekki hvað ástin er, ef þú get-
ur fengið af þér að svíkjast svona aftan að vini
þínum.“ Hún snéri sér að Nonie með glampandi J
augu. „Segðu honum það, Nonie. Segðu honum
að þú ætlir að giftast Roy. Segðu honum, að
þú verðir hamingjusöm eiginkona í þessu húsi.
Segðu honum að þú viljir ekki sjá hann fram-
ar — hann“, hrópaði Árelía, „mann sem er
— morðingi."
„Nei, Árelía,“ byrjaði Jim, en Árelía snéri
sér til hans og greip fram í fyrir honum óð
af reiði.
„EG HEYRÐI allt sem þú sagðir um nóttina,
þegar þú komst hingað eftir moi'ð Hermiöne.
Þú hafðir hótað að drepa Hermione. Nonie og
Roy heyrðu þig segja að þú gætir drepið hana.
Eg ætla að segja lögreglunni frá því.“
Lögreglunni. Wells majór hafði sagt, að það
hlyti að vera stúlka bak við þetta; að það yki
á líkurnar gegn Jim, ef hann langaði að kvæn-
ast.
Nonie hrópaði: „Nei, nei, Árelía. Það gerirðu
ekki. Ó, Árelia, mér þykir þetta svo leiðinlegt.
Eg —“
„Leiðinlegt,“ hrópaði Árelía. „Það bætir lít-
ið úr skák að þykja það leiðinlegt." Hún leit
reiðilega á Jim og bætti við: „Ef þú elskar
Nonie í raun og veru, þá ættirðu að skammast
þín fyrir að biðja hana að giftast þér, þegar
gálginn vofir yfir þér.“ Hún tók andann á lofti
og hrópaði: „Þú hótaðir Hermione! Þú sagðist
Happdrætti í. R.
býður yður
Isskáp
Þvotíavé!
og
Baihft-rðfirncigttseidðvél
fyrir aðeins 2 krónur
Dregið 8. okléker næstka-mandi
'i
TLÖGUR FRÁ BRETLAN8!
Gegn nauðsynlegum Ieyfum útvegum vér frá umbjóðendum vorum, SmitJis
Motpr Accesories, í Bretlandi „Ethylene GIycol“ frostlög, er inniheldur sömu
eiginleika og hinn þekkti „Zerex“ frostlögur, er vér höfum haft undanfarin ár.
Frostlögurinn er til afgreiðslu strax. Leitið því tiiboða hið allra fyrsta.
Friðrik Rertelsen & £o. h.f.
Hafnarhvoli. — Sími 6620.
Ragnheiður Pálsdóttir
28. ágúst 1870 — 2. september 1949
Ragnheiður Pálsdóttir var
jarðsett frá kapellunni í Foss-
vogi s.l. fimmtudag. Hún and-
aðist á Elliheimilinu Grund
þann 2. þ. m.
Ragnheiður fæddist að Prests
bakka á Síðu 28. ágúst 1870.
Faðir hennar var er. Páll, f. 4.
okt. 1836, sonur Páls prófasts
Pálssonar í Hörgsdal, f. 17.
maí 1797. Kona Páls prófasts
var Guðríður, f. 1. okt. 1809,
Jónsdóttir hreppstjóra á Kirkjj
bæjarklaustri. Báðar þessar
ættir eru alkunnar. Móðir Ragn
heiðar var fyrri kona sr. Páls,
|Guðrún, f. 31. des. 1831, Þor-
steinsdóttir lögregluþjóns í
Reykjavík Bjamasonar. Albróð-
ir Ragnheiðar er Páll, kennari
á Reyðarfirði. Síðari kona sr.
Páls var Steinunn Eiríksdóttir,
bónda í Hlíð í Skaftártungu. Af,
því hjónabandi eru Sveinn, býr
í Vogum og Geir, hér í Reykja-
vík.
Sr. Páll faðir Ragnheiðar
vígðist aðstoðarprestuv til föð-
ur síns að Prestsbakka 1861
Varð prestur að Stafafelli í'
Lóni 1877 og fékk Þingmúla- og'
Hallormsstaðaprestakali 1881]
og sat í Þingmúla. Hann var
snnálaður gáfumaður og gat
sér mikinn orðstír að kenna
mállausum og heyrnalausum og
sarndi hann bækur, sém út voru
gefnar um það efni. Hann átti
tvívegis sæti á Aiþingi. Sr. Páll
druknaði í Grímsá í Skriðdal
4. okt. 1890.
Ragnheiður giftist 20. maíl
1891 Jóni Isleifssyni frá Arn-|
hólsstöðum í Skiiðdal. Jón var
fæddur á Sómastöðum í Reyð-
arfirði 6. apríl 1864. Þau Ragn-
lieiður hófu búskap á Víðilæk
í Skriðdal og bjuggu síðar að
Arnhólsstöðum og Hryggstekk
og mörg ár að Þingmúla. Þau
hjón fluttust til Eskifjarðar ár-
ið 1907. Framan af fékkst Jón
við barnakennslu á vetrum en
vegavinnu á sumrum, en aðal-
ctarf hans varð vegavinna.
Hann var verkstjóri við hana
um eða yfir fjörutíu ár. Því
starfi gegndi hann á meðan
kraftarnir leyfðu. Hann lézt á
Eskifirði 20. maí 1942, réttu
ári eftir að þau hjón héldu há-
tíðlegt gullbrúðkaup sitt.
Ævisaga hvers einstaklings
er með tvennu rnóti. Sú saga,
sem við þekkjum dálítið til, er
saman tekin af röð ytri atburða
og kynnum okkar af viðkom-
andi einstaklingi. Þar eru aðal-
drættirnir mótaðir af því, sem
heimurinn snýr að persónunni.
Hin ævisagan gerist meira hið
innra með hverjum einum, Þar
eru höfuðdrættimir viðhorf ein-
staklingsins sjálfs til lífsins og
tilverunnar, og þar geta sömu
atburðir og gerast í hinni ævi-
sögunni, tekið á sig allt aðra
mynd en við sjáum. Þá sögu er
enginn fær um að segja nema
sjálfur hver. Það hafa margir
gert og sumir snilldarlega. Af
slíkum ævisögum sjáum við, að
líf hvers einstaklings er verald-
arsaga út af fyrir sig. Þótt um-
gerðin um ævi margra virðist
úr sama viði skorin, eru mynd-
irnar sín með hverju móti.
Sú mynd, sem við þekkjum
af Ragnheiði Pálsdóttur mótast
af sterkum dráttum. — Það
sem lífið rétti henni var stór-
brotið. Miklir harmar og raun,
ir, en einnig gæfa og gleði T
ríku mæli.
Glæsileg, gjafvaxta.. mær
missti hún föður sinn með
sviplegum hætti. Sá atburour
var henni jafnskýr í liuga alla
ævi, en við föðurinn voru einnig
tengdar unaðslegar æskuminn-
ingar. Ragnheiði var ekki gjarnt
að láta mikið bera á sínum til-
finningum, en þeir, sem heyrðu
hana segja frá þessu hvoru-
tveggja gleyma því ekki.
Einnig í heimilislífi Ragri-
heiðar voru andstæðurnar sterk
ar. Annars vegar giftusamleg
sambúð við góðan mann og
heimilisgleði með uppvaxandi,
myndarlegum börnum. — Hins
vegar þungar sorgir og veik-
indi. Unga dótthm, Guðríður,
drukknaði 9 ára gömul í Geit-
dalsá, þverá, sem rennur í
Grímsá, sem faðir Ragnheiðar
fórst í. Skriðdalur bjó henni
þannig sára harma, en þó-------
eða er það þessvegna — hygg
ég að Þingmúli hafi verið henni
allra staða hugfólgnastur. Önn-
•ur dóttir, Pálína, en þær Guð-
ríður voru tvíburar, lézt upp-
komin. Yngsti sonur þeirra
Ragnheiðar og Jóns náði fulh
orðinsaldri en var lengstum
veikur og þarfnaðist stöðugrar
umhyggju og alúðar, en al-
kunna er hversu þau börn, sem
mest þarf fyrir að hafa, verða
móðurinnj ástfólgin. Hann and
aðist árið 1925. Páll, elzti son-
urinn, sem bar föðurnafn Ragu-
lieiðar, var gáfumaður miki'.I
jog hvers manns hugljúfi. Hann
f ékkst við verzlunarstörf á
Norðfirði og Eskifirði, bjó síð-
an í Reykjavik og að Krossum
á Snæfellsnesi, en þaðan var
kona hans, Stefanía Asmunds-
dóttir. Hann lézt eftir Iangvar-
andi veikindi árið 1938. Fráfall
lians fékk mikið á Ragnheiði,
sem þá var komin fast að sjö-
tugu.
Allt um þetta er ekki hægt
að segja annað en Ragnheiður
ætti miklu barnaláni að fagna.
Eftir að sonur hennar, Arn-
finnur, sem nú er skólastjóri
Austurhæjarskólans í Reykja-
vík, kom heim frá námí í Þýzka
landi, 1923, kvæntur þýzkii
konu, Cliarlotte, settist hann
að á Eskifirði og var þá að
meiru og minna leyti sameig-
inlegt heimili hans og foreldr-
anna. Þar voru einnig dæturn-
ar, Nikólína, ljósmóðir á Eski-
firði, var einnig mest í foreldra
húsum og þó að hún ætti sitt
eigið heimiii á Eskifirði, munu
Framhald á 7. síðu.