Þjóðviljinn - 27.09.1949, Side 8
Þóff Sovétríkin hafi kjarnorkuvopn
halda þau fast við að banna beri þau
þjóamimij
Samband veiiinga- og gisiihúsaeigenda:
Sovétvísiiidamenii réðu kjarnorkuleyndar
málið 1947 og Molotoff skýrði þá frá því
krefst endurskoðunar veitingalög-
gjafarinnar og vítir viðskiptanefnd
Sovétríkin hafa framleitt kjamorkuvopn og hafa þau
lil umráða, en sovétstjórnin mun engu að síður halda fast
við þá stefnu sína, að fá kjarnorkuvopn og önnur múg-
drápstæki bönnuð og komið á eftirliti til að framfylgja
banninu, segir í tilkynningu, er sovétfréttastofan Tass gaf
-út í fyrradag. < .*■
Tilkynning Tass er gefin út
yegna yfirlýsingar Vesturveld-
anna um að þau hafi sannanir
fyrir, að kjamorkusprenging
hafi átt sér stað í Sovétríkjun-
aun,
Hagnýting kjarnorku við
verklegar framkvæmdir.
Tass segir, að við skurðgröft,
rafveitubyggingar og aðrar stór
framkvæmdir í Sovétríkjunum
séu daglega gerðar stórspreng-
ingar með „nýjustu tækniað-
ferðum“. Ekki sé ólíklegt, að
átt sé við einhverja af þessum
sprengingum í tilkynningu Vest
urveldanna.
Kjamorkufræðingar í Banda-
ríkjunum játa, að hugsanlegt
sé að sovétvísindamenn séu
komnir upp á lag með að nota
kjarnorku til sprenginga við
yerklegar framkvæmdir og séu
þá lengra komnir en Bandaríkja
menn á því sviði.
Fimm árum fyrr en Banda-
ríkjamenn bjuggust, við.
1 tilkynningu Tass er minnt
á, að Molotoff þáverandi utan-
xíkisráðherra Sovétríkjanna
lýsti yfir í ræðu 6. nóvember
1947, að „kjarnorkuleyndar-
málið er löngu hætt að vera
leyndarmál“. Bandarískir vís-
indamenn héldu því fram, að
Moloftoff hefði ætlað að
blekkja með þessari yfirlýsingu
sinni, en þar misreiknuðu þeir
sig, segir Tass. Sovétvísinda-
Nýtt heíti af
Melkorku
f
feomið út
Kvennatímaritið Melkorka, 2.
hefti þ.á., er nýkomið út, og
hefst á grein eftir Aðalbjörgu
Sigurðardóttur er hún nefnir
Föðurland — móðurmál. Þá er
í heftinu greinin Lýðræði í orði
eftir Nönnu Ólafsdóttur; Þóra
Vigfúsdóttir ritar um kvenna-
blaðið Framsókn, er kom út
á Seyðisfirði S. jan. 1895, og
var fyrsta kvennablaðið á Is-
landi; Inga Þórarinsson ritar
um norsku skáldkonuna Cora
Sandel; Auður Sveinsdóttir um
myndvefnaðinn nýja; Grethe
Benediktsson grein er hún nefn
ir: Tízkan breytist, og Nanna
Ólafsdóttir greinina: Húsmæð-
urnar og milljónin og atkvæðin.
Kvæði eru í heftinu eftir Sigríði
Einars og Sigurbjörn Obstfeld-
er, smásaga eftir Stephen
Crane, fréttir af Alþjóðasam-
handi lýðræðissinnaðra kvenna
'menn þekktu leyndarmál kjarn
orkuvopnsins, er Molotoff flutti
ræðu sína, enda þótt bandarísk
ir vísindamenn héldu því fram,
að þeir myndu ekki ráða það
fyrr en í fyrsta lagi 1952.
Enginn þarf að óttast það,
að Sovétríkin ráða yfir kjam-
orkuvopnum, segir Tass, því að
friðarstefna sovétstjórnarinnar
er óbreytt.
K. B. vann haustmótið
Orslitaleikirnir á haustmóti
knattspyrnumanna í Reykjavík,
’í meistaraflokki, fór fram á
laugardag.
K.R. og Valur kepptu til úr-
slita og lauk þeirri viðureign
með sigri K.R., 3:1 eftir nokkuð
góðan leik af K.á. hálfu, og
þó sérlega vel heppnuðum skot-
um„
Leiknum milli Víkings og
Fram lauk með heldur óvæntum
sigri Víkinga 1:0.
K.R. fékk því 6 stig, Valur
3 st„ Víkingur 2 st. og Fram
1 st. Eru þetta síðustu leikirnir
í meistaraflokki á þessu ári.
Bikar sá sem keppt er lun er
gefinn til minningar um Ólaf
heitinn Þorvarðarson, og var
keppt um hann í fyrsta sinn
nú.
Slys á
Siiðiirlandsbraiit
I fyrrinótt kl. 23,10 varð
kona fyrir bifreið á Suðuriands
braut, en ekki var vdtað í gær
hve meiðsii hennar eru alvar-
leg.
Kona þessi heitir Þjóðbjörg
JónEdóttir, og á heima að
Hrauni við Kringlumýrarveg.
Þjóðbjörg var að ganga yfir
brautina á móts við benzín-
stöð Shell, er hún varð fyrir
bifreiðinni. Hún var þegar í
stað flutt í Landsspítalann.
Var hún komin til meðvitundar
í gær, en hinsvegar ekki vitað
hve meiðsli hennar voru alvar-
leg.
og Menningar- og minningar-
sjóð kvenna o.fl. Margar mynd-
ir eru í hefti þessu, sem er hið
vandaðasta.
Allar konur þurfa að lesa
Melkorku, því það er tímaritið
sem ræðir hagsmunamál kven-
þjóðarinnar af mestri djörfung
og hreinskilni, auk þess að það
flytur ýmiskonar fróðleik og
skemmtiefni.
Mðikjasölndaguz
minningarsjóðs
1 dag er merkjaaöludagur
Menningar- og rninningar-
sjóðs kvenna. Sjóður þessi
var eins og kunnugt er stofn
aður fyrir dánargjöf Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur og barna
hennar. Hann hefur nú starf
að í 4 ár og veitt 49 þúsund
krónum í námsstyrki .til efni
legra lista- og mennta-
kvenna.
Það mun vafalaust ekki
standa á Reykvíkingum að
styrkja þennan s jóð með því
að kaupa merki hans í dag.
Stjórn Kvenréttindafélags
íslands óskar eftir börnum í
dag til að selja merkin og
eru þau afhent eftir kl. 9,30
í Elliheimilinu Grund, Gagn-
fræðaskólanum á Skólavörðu
holti og í skrifstofu Kven-
réttindafélag íslands, Skál-
holtsstíg 7.
Aðalfundur Sambands veit-
ingar og gistihásaeigenda var
haldinn í Tjarnarcafé s. 1. mið
vikudag. Sátu fundinn rúnilega
20 eigendur og framkvæmda-
stjórar 20 helztu veitinga- og
gististaðanna í landinu.
Fundurinn samþykkti að í-
treka áskorun veitingamanna
til Alþingis og ríkisstjórnar
þess efnis, að veitingalöggjöfin
yrði endurskoðnð með hliðsjón
af samskonar löggjöf á Norður-
löndum, og gæfist veitingar-
mönnum kostur á að eiga full-
trúa í væntaulegri nefnd, sem
annaðist endurskoðunina.
Fundurinn samþykkti enn-
fremur að ítreka áskorun til
sömu aðila um það, að veitinga-
skatturinn yrði felldur niður,
eða upphæðinni að öðrum kosti
varið til lána til nýbygginga og
endurbóta á gisti- og veitinga-
húsum.
All víðtækar breytingar voru
gerðar á lögum sambandsins, —
þær helztar, að æðsta vald í mál
efnum þess er nú í höndum
fulltrúa fyrir hin ýmsu hags-
munasvið, sem stéttin verður
greind í. Þannig er einn fulltrúi
fyrir gistihús í Reykjavík, þrír
jfulltrúar fyrir veitingahús í
Ný alhyglisveið siaiisemi:
M§örgtinarfélagiö VAKA
heiuz með höndum bílatiyggingaz og hiözgunaisiaií
Fyrir nokkru var stofnað hér í bænum „Björgxmar-
félagið Vaka“ og tekur það að sér að flytja bilaðar bif-
reiðar og þungavöru, aðstoða ef óveður, vatnsflóð eða slys
ber að höndum. Ennfremur tekur félagið upp sjúkraflutn-
ing jafnskjótt og það hefur fengið sjúkrabifreið.
Félagið starfrækir einnig bílatryggingar, þannig að
þeir sem tryggja bíla sína fyrir ákveðna upphæð á ári fá
bíla sína flutta ókeypis ef þeir bila — innan vissrar f jar-
Iægðar frá Reykjavík.
Bifreiðatryggingin er þannig
að sá er tryggir bifreið sína
greiðir 150-500 kr. á ári og fyr-
ir það gjald sækir Vaka bifreið-
ina ef hún bilar í allt að 50 km.
fjarlægð frá Reykjavík. Félag-
ið flytur að sjálfsögðu einnig
bilaðar bifreiðar fyrir þá sem
ekki hafa þær tryggðar hjá fé-
laginu, en þá fyrir gjald sem fer
eftir ástæðum í hvert sinn.
Kosmunaskrl'::.
Sósíalisiaí!c3:!:::::s
Þóisgötu 1. sLvri 7320.
Kosningaskrifstofa C-Iistans
að Þórsgötu 1, er opin kl 1—
7 í dag.
Athugið kjörskrána, eink-
um þeir sem hafa flutt í bæ-
inn um síðustu áramót.
C-Ustínn.
Vaka hefur sett upp vaktstöð
í Tripoli og er þar vakt allan
sólarhringinn. Sími félagsins er
81850.
Félagið hefur sótt um leyfi
fyrir sjúkrabifreið og segja for
stöðumenn þess svo um fram-
tíðarfyrirætlanir sínar: „Ætl-
unin er að stofna hér björgun-
arfélag er geti hvenær sem er,
á nótt eða degi, aðstoðað ef
slys ber að höndum, með vindu-
bifreið, sjúkrabifreið, bifreið
með hverskonar tækjum svo
sem dælum, ljósakösturum, stig
um og stroffum, ásamt raf- og
logsuðutækjum o. fl. Sé hætta
á skemmdum vegna óveðurs,
hefur félagið til reiðu yfir-
breiðslur til þess að breiða fyr-
ir dyr og glugga, svo og ofan
á þök, ásamt tilheyrandi tækj-
um.“
Það eru tveir Danir, Niels
Jörgensen og Hans Frost, sem
að fyrirtækinu standa og hafa
báðir starfað lengi hjá sams-
konar fyrirtæki í Danmörk.
Reykjavík, einn fulltrúi fyrir
veitinga- og gistihús á Akureyri
og tveir fulltrúar fyrir veitinga
og gistihús annars staðar á
landinu.
Fjórða grein hinna nýju Laga
er athyglisverð og ljóst af
henni, hverja höfuðgalla veit-
ingamenn telja vera á núver-
andi veitingalöggjöf. Greinin
hljóðar svo:
„Starfsemi þeirra fyrirtækja,
sem vilja gerast meðlimir sam-
bandsins, skal fullnægja þeim
kröfum, sem löggjafinn gerir
hverju sinni um faglega stjóm
og útbúnað veitinga- og gisti-
húsa. Meðan engar slíkar kröf-
ur eru gerðar skal við það mið-
að, að starfsemin sé ekki að
dómi sambandsstjórnar með
þeim hætti, að hún verði áliti
og virðingu stéttarinnar til
hnekkis. Fulltrúaráðið á fulln-
aðarúrskurð um þetta atriði.“
Fundurinn var sammála um
að víta framkomu Viðskipta-
nefndar í garð sambandsins.
Hefur nefndin sem sé virt að
vettugi sambandið og óskir
þess, en í þess stað veitt þau
óverulegu leyfi, sem í hlut
þessa atvinnuvegs hafa komið,
til örfárra veitingastaða. Skort-
ir Viðskiptanefnd að sjálfsögðu
alla þekkingu á högum veitinga
og gistihúsanna, til þess að
geta af nokkurri sanngirni
miðlað lítillj innflutningsfjár-
hæð milli þeirra.
Núverandi stjórn sambands-
ins skipa: Pétur Daníelsson,
Ragnar Guðlaugsson, Frið-
steinn Jónsson og Lúðvík
Hjálmtýsson.
(Frétt frá S. V. G.).
Skemmti- og
fræðslufundir
KR0N
Kaupfélag Reykjavíkur og ná
grennis er um þessar mundir
að hefja almennt skemmti- og
fræðslustarf fyrir félagsmenn
sína. Fyrsta samkoman af
þessu tagi verður í Tjamarcafé
(Oddfellowhúsinu) næstkom-
andi fimmtudagskvöld kl. 8.30.
Þessi starfsemi er tekin upp
samkvæmt fyrirmælum síðasta
aðalfundar félagsins. Tilgangur
inn er sá, að gefa félagsmönn-
um kost á góðum skemmtunum
fyrir sanngjarnt verð, en jafn-
framt að veita nokkra fræðslu
um samvinnumál almennt og
starfsemi félagsins. Á undan-
fömum árum hefur því oft ver-
hreyft,að nauðsyn bæri til að
efla félagsstarfið og auka kynn
ingu félagsmanna í kaupfélag-
inu. Er því ekki að efa að sam-
vinnumenn í Reykjavík og ná-
grenni muni taka þessari ný-
breytni vel og fjölmenna á
skemmti- og fræðslukvöld
Kron.