Þjóðviljinn - 30.09.1949, Page 3

Þjóðviljinn - 30.09.1949, Page 3
F&jtudagur 30. 3eptember-1949. ÞJtoVIUINN' . tKi.í;'. M inningarorS), Guðjón 1 JórLHSon fyrrv. verk- stjóri í PiptiverksmiSjuníii er hórfíim '6jónuin: okkar. Fyrir úm það bil tvóimur ár- um varð haaa fyrir heilsu- ■ bresti, < sem fljótlega ágerðist svo að hann varð að fara í sjúkrahús, þaðan hann ekki , átti. afturkvæmt. Oft Vár hin langa . sjúkrahúsvist honum þrautasöm og erfið. En hann tók því öllu með langlundargeði, hugarró, og þeirri karlmennsku- lúnd, sem honum hafði verið gefin í svo ríkum mæli. Guðjón starfaði samfleytt, að fráskildum nokkrum misserum, ura 30 ára skeið í Pípuverk- smiðjunni h.f. hér í bænum. Hann. var mikill dugnaðarmað- ur, sem daglega... sameinaði rnikil afköst og gamviakusam- lega vinnu. Trúmennska hans óg skyldurækni var frábær. Enda ávann haan sér traust, virðingu og vináttu þeirra sem að fyrirtækinu stóðu í gegnum árin. Guðjón Jónsson.; Við sem áttum þvi láni að fagna,: að eiga þig svo lengi fyrir. samverka-. mann og félaga, minnumst þín nú og æfinlega raeð þakklæti og söknuði. Minningin um þig verð ur ávalt björt, hugljúf og kær. Við þekktum þreklyndi þitt og æðruleysi í erfiðri lífsbar- áttu. Umbótavilja þinn og sam- úð með þeim sem stóðu höllum fæti. Við minnumst dómgreind- ar þinnar, sem aldrei var dóm- hvöt, en var rík af umburðar- lyndi og málsbótum. Við mun- um hógværð þína og hjarta- lilýju sem svo oft yljaði okkur. Við gleymum ekki bjarta ynni lega brosinu þínu, sem var end- urspeglun manngöfgi þinnar og kærleika. Við þökkum fyrir vináttu og kærar minningar, sem verða í eigu okkar til æviloka. Vertu blessaður og sæll. Kr. G. * 1 dag verður til moldar bor: inn Guðjón Jónsson, Hrauh- teig 15, sem um langan aldur, var kenndur við Pípuverksmiðj- una. Guðjón var fæddur 18 okt. 1884 í Jórvík í Álftaveri Vest ur-Skaftafellssýslu. ‘ Foreldrar hans voru Jón Jónsson og Guðríður Klemens- dóttir, sem þar bjuggu. Þar ólst Guðjón upp og dvald ist þar eystra til 1912, en þá fluttist hann hingað suður. Fyrstu árin vann hann,. sem daglaunamaður á Eyrinni, en '1917 hóf hann vinnu í Pípuverk smiðjunni og vann þar meðan hanum entust kraftar til. . Guðjón var kvæntur Stein- unni Þorkelsdóttur ættaðri úr Skaftafellsaýslu ðg eignuðust þau Í0 börn; .sex af þeim eru enn á lífi og öll uppkomin. Fyrir rúmum tveim árum tók Guðjón sjúkleika, sem svifti liann kröftum. og fótavist og bjó honum aldurtila. Hann and aðist 23. sept’ember 1949. Þetta er í fæstum orðum sú -gamal- kunna skýrsla sem gefin' er þegar samferðamennirnir falla í valinn. Við svona skýrslu er ekkert að athuga, ea í raunmni gefur. ,hún. oklcur enga heildaxmynd. , Kannske er það stærsta og veg- legasta hlulverk mannsins, að, kýnnast manninum og ekki. sízt vegna þess, að sú kynning neyð ir mann til.að kynnast sjálfum sér um leið, en þar troða marg ir ókunna stigu. Kynhi mÍQ af Guðjóni voru- aðeins um 10 síðustu ár hans, ,en inér ef hann mjög mianis- stæður. Guðjón var greindur í bezta lagi og rýninn á tilveruna, skemmtinn, glaðvær og sífellt með spaugsyrði á reiðum hönd- um. Slík skapgerð er gott vega- nesti 10 bama föður. Eg þekki ekki heimiii Guð- jóns en veit af sögn, að fyrir börnum sinum háði hann bar- áttu eftir beztu getu. Sjálfsagt hefur hlutverk móðurinnar þar ekki minnu ráðið, en yfir það vill karlkyninu oft sjást, þó slíkt úrættist nú heidur. En glaðværð og spaugsyrði Guðjóns voru engin gríma til að halda raunveruleikanum ut- an gátta. Hann viidi kanna eðli hlutanna og var ekkert hræddur' við mennina, jafnvel þó hann væri í fastri vinnu, en oft þarf ;ekki stærri hlut en það til, að menn gangi með lífið í lúkunum og verði ofsahræddir um að nú komi einhver og taki þetta af þeim og því sé nauð3ynlegt að að skipa sér ,í þann arra, sem hafi hemil á vinnandi fólki. Einn vinur Guðjóns hefur sagt mér, ,að hann hafi sagt sér það, að fyrst eftir.að hann kom suður, hafi hann kosið 'með þeim sem teljast „máttar- stoðir þjóðféiagsins", en brátt hafi hann farið að hugsa úm hvort hann væri þar á réttri leið. Þetta leiddi til þess að hann skipti um set og skip- aði sér við hlið hins vinnandi fólks og stóð þar. þar til yfir iauk, í hinum róttækasta armi verkalýðsins. Hann var einn af stofnend- um . Pöntunaffélags verka- manna og Kron og gegndi þar trunaðarstörfum... Eftir að hann að no.fninu lét af verkstjórn í Pípuverksmiðj- unni, gekk hann strax í Iðju félag verksmiðjufólks -og sat þar í stjófn og trúnaðarráði. „Eg þarf eklíi að. ganga í Iðju sagði hahn Við mig, „en mig. langar 'ekkerf rtil áð 3tanda út- an við samtök þess fóíks, sem ég vinn með og stendur vörð um minn hag.“ Veraldarsagan er að mestu saga þeirra, sem. kölluð eru stórmenni og enginn neitar hæfi iéikum þeirra, en þó er það svo að fegurstu dæmin þar eru uifl menn, sem vildu samstarf og samvinnu til heilla bæði sér og öðrum. Guðjón á engin stór spor eft ir skó, sem voru smíðaðir rang- lega stórir, en ástvinum hans | og félögum má vera það yl- ríkari hugsun, að úr sporum hans draup hvorki blóð, mann- hatur né grimmd. Hann talaði aldrei um mót- herja sína sem .vertú menn, en hann sá að velferð sín og ann- arra gat ekki legið í því, að hver og einn reyndi að eyða orku sinni í það, að stela lífs möguleikunum hver frá öðrum. Guðjón neitaði því með bliki í augunum, að mennirnir ættu að brjóta hvern annan undir sig, heldur ættu þéir að brjóta •undir sig heiminn í félagi, gera hann bjartari og fegurri og hækka með því gengi sjálfs síns. Gengi mannsins, en ekki' gjaldmiðilsins, vildi hann að réði. „Mér er persónulega vel við marga mína.- mótherja", sagði hann einu sinni, „en þó verður maður í fyllstu alvöru að gera þeim það ljóst að þeir séu á rangri leið, því lífið krefst þess og ég held að okkur sé óhsétt að bera merkið fram í þessa átt, því með því einu getum við minnst þeirra föllnu, sem ruddu leiðina, þeirra sem falla — og rísa. HaUdór Pétursson. Vaxandi biaðaút- gáfa sósíalista Á undanförnum árum hafa sósíalistar víðsvegar um land tekið frumkvæði að útgáfu bæja- eða héraðsblaða. Koma sum reglulega út én önnur ó- reglulega. Hafa blöð þessi ver- ið mjög vel séð af alþýðu manna, .enda borið vitni um mikið og fórnfúst starf, því að við mikla erfiðleika er oft að etja, einkum þar sem sækja þarf prentun til annarra staða. VIKUBLÖÐ, sem sósíalistar gefa út, eru þessi: BALDUR á ísafirði, MJÖLNIR. á Siglufirði, VERKAMAÐURINN á Akur eyri, EYJABLAÐIÐ í Vestmanná eyjum. BLÖÐ, sem koma út rrián- aðarlega eða óreglúleta eru: DÖGUN á Akranesi, RÖÐULL í Borgarnesi, NEISTI í Hafnarfirði, SKAFTFELLINGUR í Vest- ur-Skaftafellssýslu, KEILIR í Gulibringu- og Kjósarsýslu, ÁRBLIK í Neskaupstað (fjölritað), - ÞINGEY í Suour-Þingeyjar- sýslu. - • í Árnessýsiu eru sósíalistar að undirbúa nýtt sýslublað. Enginn .annar flokkur en Sós- íalistaflokkurinn getur sýnt fram á slíkt frumkvæði með- lima sinna, enda er hann eini vaxandi flokkurinn. Minnkandi tsfisksala Framhald af 1. síðu. við að stjórnin skýri frá þeim fyrir kosningar. Marshallstofnunin átti, sem kunnugt er, samkvæmt loforð- um ríkisstjómarinnar að tryggja markaði fyrir afurðir hinna ýmsu lánda. Eini tilgang urinn, sem ríkisstjórnin reyndi að verja inngöngu sína í „Efna- hagssamvinnu“ Marshallland- anna með, var að nú tækist að tryggja Islandi markaði. Nú kemur í ljós að þetta eru „sam starfslöndin“ að svíkja. Þau áuka vægðarlaust útgerð sína og fást ekk'i til að híiðra neitt til fyrir hag.smunum íslendinga, enda er hagsmimakröfum ís- lendinga af hálfu þessarar ríkis stjómar framfylgt af slíkum aumingja- og undirlægjuhætti, að ekki er við því að búast að kaldrifjaðar auðmannastjórair Marshalllandanna taki tillit til þeirra. Ríkisstjórain hefur gert þá reginvitleysu í þessum mark aðsmálum að slíta viðskiptasam böndin við Sovétríkin sam- kvæmt kröfu. Bandaríkjanna og þarmeð stefnt markaðsmál- um frámtíðarinnar í stórhættu. Með MarsháHþólitíkinhi 'er ríkis stjórnin -því að stofna. lífsaf- komu íslendinga í voða, að leiða yfir þjóðina markaðsvandræði, kreppu og atvinnuleysi fyrir- stríðsáranna. Sósíalistaflokkurinn Varaði eins eftirminnilega og hægt var við því hvert þessi Marsh- allpólitík leiddi, og það áður en ríkisstjórnin undirskrifaði samn inginn við Bandaríkin 3. júlí 1948. Hefði ríkisstjórnin verið að hugsa um hagsmuni íslend- inga, hefði 'hún því átt að staldra við á glötunarbraut sinni. I útvarpsumræðunum 15. okt. 1947 varaði Einar Olgeirsson fyrir hönd Sósíalistaflokksins ‘ ríkisstjómina við því að sleppa jtækifærinu til að semja við lAustur-Evrópulöndin til margra |ára, þá strax það haust. Sagði hann þá m. a.: „Nú liafa ríkin þar, sem kimnagt er komið á hjá sér á- ætlunarbúskap. þaiinig að þau eru nú í HAUST að gera samn inga sín á milli og við aðra um innkáupin næstu 3—5 ár. Island getur gert slika samn- lnga, ef það gerir þá nú þegar og tr.vgrgt þannig kreppulausa örugga markaði með föstu verði til margra ára og þessi iönd liafa undanfarin ár greitt hæst verð fyrir vöru okkar. Alia þessa samningamögu- leiká, alla þessa markaði i Sov- étrikjunum, Tékkóslóvakíu og öðrum löndum þar eystra er nú ríkisstjórnin að eyðiteggja, lik- lega með þeím afieiðingum aö þeir að fullu giatist fslandi og ýmsar þessara þjóða fari jafn- vel sjálfar að gera út hingað nöjrður í stórum stfl:“ Ríkisstjómin skeytti engu um viðvaranirnar. Henni. var það þvert á móti áhugamál að eyðileggja viðskiptin austur á bóginn, sem nýsköpunarstjórn- in hafði skapað. Ríkisstjórnin veifaði ísfisksamningnum við Þýzkaland þann vetur framan í þjóðina, til þess að reyna að sætta hana við eyðileggingu. Austur-Evrópumarkaðanna, Sósíalistaflokkurinn varaði þá við því að láta blekkjast af framtíðardraumum um öryggi Þýzkalandsmarkaðsins. I út- varpsræðu við eldhúsumræðurn ar í marz 1948 sagði Eiaar Olgeirsson éftirfarandi um end- urbyggingu þýzka togaraflot- ans og þýzku ísfisksamning- ana: „Vlðreisn þýzka togaiaflot- ans, sem ákveðin var í Frank- furt, er stríðsyfirlýsing gegn sjávarútvegi fslendinga. Það sem nú er undirbúið í Vestur-Þýzka landi, er ránsherferð á fiski- mið fslendinga. Og það eru eng ilsaxnesku veldin sem stjórna henni. Við eigum að fá að selja físk inn til Þýzkalands, meðan hungraðir Þjóðverjar eru að byggja upp fiskveiðifiotaim gegn okkur. Síðan fáum við sparkið, — eftir 2—3 ár.“ Þettá virðist nú vera að koma fram. íhaldið, Alþýðuflokkur- inn og Framsókn sameinuðust um að svíkja ísland undir efna- hagseinveldi Marshalllandanna. Þessum ríkjum þótti gott að nota Islendifiga, meðan sultur- inn svarf að þeim. Nú eru þeir að gefa okkur sparkið að laun- um. Og það eina, sem landráða- stjórnin biður þá um, er að fresta sparkinu frarn yfir kosn- ingar, svo heimska og gjald- þrot verzlunarstefnu hennar verði ekki þjóðinni augljós. Ætlar ríkisstjórn- in að stöðva » bifreiðarnar? 1 Framhald af 8. síðu. hlutum til bifreiða undanfarin ár, svo af þeim ástæðum er öryggi í umíérðamálum vorum í alvarlegri hættu, en nú um. skeið hafa nefndir hlutir alis ekki verið fáanlegir, þótt upp- iýst sé að birgðir af þessjim vörum eru til í - landinu, en ríkisstjórnin neitar um yfir- færslu. Það er ekki nóg að þessi ríkisstjórn sem allra ríki3- stjórna hefur gengið lengst í því að skerða í ríkum mæli atvinniunöguleika bifreiðastjóra með-niðurskurði verklegra fram kvæmda ráðist siðan á stéttina með óheyrilegum tollum, skött- um, höftum og allskonar órétt- ' læti, heldur ætlar þessi ríkis- stjórn að enda sitt ömurlega valdaskeið með því að svifta atvinnubifreiðastjóra atvinnu sinri með því að stöðva tæki þeirra vegna þess að hún neifc- ar um yfirfærslu á vörum sem vörugeysnsluhúsin eru full af. Það er ekki ófyrirsynju að íslenzka þjóðin fellir þungan dóm yfir þessari ríkisstjórn, þegar tækifæri gefst til að gera upp við hana, og það er ekki hvað sízt ástæða fyrir stétt atvinnubifreiðastjóra að f.ylgj- i ast með og taka þátt í því upp- I gjöri. Atviunubifreiðastjóri. I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.