Þjóðviljinn - 04.12.1949, Síða 4

Þjóðviljinn - 04.12.1949, Síða 4
4 ÞJOÐVILJINN Sunnudagtir 4. des. 1949 ÞlÓÐVILIINN Útgefandi: Bamelningarflokkur alþýðn — SósíaUstaílokkurinn Ritstjórar: Magnúa Kjartanseon (áb.), SlgnrBur GuðmundsBon Fréttarltatjórl: Jón Bjarnaaou BiaBam.: Arl KArason, Magnú* Toríi Ölafcscn, Jócu Ársaaon Auglýsingastjórl: Jónstelnn Haraldsson Rítstjóm, efgrelðsla, augiýslngar, prentsmfBja: Skóisvörðn- rtig 19 — Bizni 7500 (þrjár linur) IskriftarverO: kr. 12.00 & mócuSl — Lausasöluverð B0 aur. sisL Prentsmlðja Þjóðviljan* h.í. SAstaUstaflokkurLun, Þórsgðtu 1 — Slmi 7510 (þrjfir linur) Sameinuð alþýða gegn auðmöngurunum 7. þing Sósíalistaflokksins iagði sem kunnugt er megin- áherziu á það að nú sem aldrei fyrr væri alþýðu landsins nauðsynlegt að standa saman, láta ekki raunveruiegan ogj ímyndaðan skoðanamun skyggja á hina sjálfsögðu og eðli-j legu samstöðu, heldur fylkja liði sameiginlega til sóknar ogl varnar í þeirri alvarlegu kreppu sem framundan er. Þessi stefna hafði þegar komið til framkvæmda með tilboði þing- flokks Sósíalistaflokksins til formanns Framsóknar um sameiginiegt átak til að koma á vinstristjórn í landinu. Hún er einnig færð yfir á grundvöll dægurbaráttunnar með þeirri yfirlýsingu stjórnmálaályktunarinnar að ,,við bæjar- stjómarkosningarnar verði á hverjum stað athugaðir aílir möguleikar til samfylkingar aiþýðunnar gegn afturhald- inu.“ Sósíalistafiokkurinn beitir sér þannig af aiefli fyrir samvinnu aiþýðustéttanna um ríkisstjóm og um stjóm bæjarfélaga. Viðbrögð Aiþýðublaðsins og Tímans, sem telja sig máipípur verulegs hluta alþýðustéttanna, voru í fyrstu nckkuð hikandi. En í gær hafa blöð þessi fengið málið og gera bæði að umræðuefni í forustugreinum þing Sósíalista- flokksins og stefnuyfirlýsingar þess. Forustugreinar þessar eru að efni til algerlega samhljóða og gætu verið skrifaðar af sama maimi, enda er enginn ágreiningur milli eysteins- klíkunnar og alþýðublaðsklíkunnar. Efni forustugreinamia er aðeins eitt samfellt óp: Moskva, Moskva, kommúnistar, kommúnistar. Blöð þessi spúa enn sem fyrr eitri sundur- lyndis og forheimskunar jfir lesendur sína. En sósíalistar munu ekki verða uppnæmir yfir þessum viðbrögðum. Þeir hafa aldrei ímyndað sér að hægt væri að tala af alvöru og einlægni við Stefán Pétursson og Þórarinn Þórarinsson, þessa launuðu sundrungarpostula auðborgár- anna í Reykjavík. Og það eru ekki þessir menn og klíkur þeirra sem taka ákvörðun um það hvort alþýðustéttirnar þoka sér samaa í öflugt bandalag, heldur fólkið sjálft. Og víst er um það ao bændurnir sem' kjósa Fram- sóknarflokkinn sem vinstriflokk og alþýðumennimir sem kjósa Alþýðuflokkinn í þeirri trú að hann sé einnig vinstri- flokkur, þeir telja sér ekki hag í því að alþýðustéttimar séu sundraðar á sama tíma og auðmannastéttin er í einni öflugri fylkingu. Almenningur í landinu gerir sér það full- vel ljóst að framundan eru geigvænlegir tímar; kreppa, at- vinnuleysi, árásir á efnahagslegt og stjórnmálaíegt frelsi almennings, ef svo verður fram haldið sem nú stefnir. Al- þýðan skilur það fullvel að auðmannastéttin mmi ekkert víla fyrir sér í því ragna vrökkri sem hún er nú að leiða yfir þjóð sína vitandi vits og í ósjálfræði. Hún lætur sér aðeins segjast við eitt: vald alþýðusamtakanna, styrk alþýðustétt- anna. Þess vegna er samfylking þeirra stétta nú öllu öðru mikilvægari. Þetta skilur verulegur hluti af kjósendum Framsóknar og Ajþýðuflokksins og samfylkingarhugsjónin bergmálar í hug þeirra. Einnig það er skýringin á hinum trylltu ópum klíkuritstjóranna. Þeir finna að hlutverk þeirra, sundrung- in, forheimskunin, verður erfitt í framkvæmd á næstunni. Alþýðan veit að sameinuð megnar hún flest, en sundruð fær hún ekki staðizt árásir auðmangaranna í Raykjavík og leiguþýja þeirra. maður, sem virðir iýðrœði, haga sér eftir því.“ ■ Reykjavíkursýningin. í dag er síðasti dagur sýningar innar. 1 kvöld skemmta börn úr barnaskólunum i bænum. Salfið á götunum og skórnir okkar Hér er umícvörtun, sem allt af kemur á hverjum vetri, þegar hált er á götunum: ,,... Eg skil ekki annað en að fyrir- byggja megi hálkuna með ein- hverri betri aðferð en þeirri, að strá salti á hana... Við eigum í sannleika sagt alls ekki að sætta okkur við þenn- an saltmokstur, því að hann hefur í för með sér eyðilegg- ingu fyrir skóna okkar. Salt- ið síast inn í leðrið, og þeg- ar svo skórnir þorna, þá verða eftir hvítar skellur, sem seint eða aldrei hverfa með öllu... Vilja nú ekki hinir vísu verk- fræðingar eða efnafræðingar reyna að finna einhverja nýja aðferð til að berjast við hálk- una, svo að skórnir okkar séu ekki undirlagðir skemmdum í hvert sinn sejn við förum út fyrir hússins dyr... — K.G.“ □ Var Karl í Ásbyrgi? Hér er fyrirspurn, sem snert- ir nýja útgáfu á ljóðum Krist- jáns Fjallaskálds: „Skyldi Kari Isfeld hafa verið í Ás- byrgi 28. júní 1942, þegar Benedikt frá Hofteigi hélt þar ’ ræðu á 100 ára afmæli Krist- jáns Jónssonar Fjallaskálds ? — Nú gefur Karl út úrval af ljóðum Kristjáns á vegum Menningarsjóðs og Þjóðvina- félagsins, og ritar formála með útgáfunni. En það er und arlegt við þennan formála, að maður kannast þar við sumt úr ræðu Benedikts, en þeirrar ræðu munu flestir, er við- staddir voru, minnast lengi... Nema þeir séu svona andlegn skyldir Karl ísfeld og Bene- dikt frá Hofteigi, að eitt mál flytji báðir? — Einn, sem var í Ásbyrgi.“ □ Þegar póstmenn voru látnir vinna. Mér hefur borizt bréf þar sem rætt er um það ranglæti, sem póstmenn og símamenn urðu fyrir 1. desember, að þeir voru látnir vinna allan daginn. I bréfinu segir meða-1- annars: ,,. . Þessi fádæma ráðstöfun Hlíðdals er ekki eingöngu móðgun við þessar tvær stéttir, heldur er hún líka nróðgun við alla íslenzku þjóðina og fullveldishugsjó’i hennar... Enda væri sæmra fyrir þennan embættismann ab minnast fullveldisins á annan hátt en að halda undirmönnum sínum við vinnu, sem óþörf er, og auka þannig vinnuskyldu þeirra. □ Hefði átt að strengja heit um endurbætur. „Það hefði verið sæmra fyr- ir hann að heita að minnast fullveldis Islands. með því að heita að bæta skipulag póst og sípj.a, eða rréttarai::is3gt fylgj- ast betur með því, sem hann á að stjórna. Eða þá hitt að stiga á stokk og strengja heit að endurbæta hið gamla póst- hús í Reykjavík, eða byggja nýtt. — Að svo stöddu skal það aðeins tekið fram, að þessi ráðstöfun Hlíðdals verður or- sök þess, að póst- og símamál verða á næstunni betur gagn- rýnd í blöðum en verið hefur. — Þ.“ □ RIKISSKCP: Hekla fór frá Reykjavik um há degi í gær austur um land í hring ferð. Esja fór frá Reykjavík kl. 21.00 i gærkvöld vestur um land í hringferð. Herðubreið fer frá R- vík á morgun til Breiðafjarðar og Vestfjarða. Skjaldbreið er á Húna flóa á suðurleið. Þyrill er á leið- inni frá Englandi til Reykjavíkur. Skipadeild S.l.S. Arnarfell leggst að bryggju kl. 10 sunnudagsmorgun. Hvassafell fór frá Keflavík í fyrrakvöld á- leiðis til Póllands. JE Ili ARSSON&ZOfiGA: Húsmæðraféiag Reykjavíkur held ur fund annað kvöld kl. 8.30 í Borgartúni 7. 11.00 Messa í Hall grímskirkju (séra Sigurjón Árnason) 15.15 Útvarp til Is lendinga érlendis. 15.45 Miðdegistón- leikar. 18.30 Barnatimi (Þorsteinn Ö. Stephensen). 19.30 Tónleikar. 20.20 Einleikur á fiðlu (Þorvaldur Steingrimsson). 20.40 Erindi: Fyrsti barnaskóli í Reykjavik. (Ár mann Halldórsson skólastjóri). 21.05 Tónleikar: Sönglög við texta eftir Hannes Hafstein. 21.15 Upp- lestur: Kvæði eftir Hannes Haf- stein (Jakob Hafstein les). 22.05 Danslög. 23.30 Dagskrárlok. Út- varpið á morgun: 18.30 Islenzku- kennsla; I. •— 19.00 Þýzkukennsla; II. 19.25 Þingfréttir. —. Tónleikar. 20.30 Útvarpshljómsveitin: Islenzk alþýðulög. 20.45 Um daginn og veg inn (Árni G. Eylands stjórnarráðs fulltrúi). 21.05 Tónleikar. • ;21.59 Siórinn og sjávarlífið (Ástvaldur Eydal lincensiat). 22.10 Létt lög. 22.30 Dagskrárlok. Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík heidur fund mánudag inn 5. nóv. kl, 8.30 i Tjarnarcafé. Til skemmtunar: Einsöngur: (Guð mundur Jónsson) upplestur o. fl. Helgidagslasknir: Þórður Þórar- son, Miklubraut 46. — Sími 4655. Sjötug er í dag Þóra Guðmunds- dóttir frá Unaðsdal, nú til heimil- is að Skipasundi 4. Foldin kom til Grimsby á föstu dag. Lingestroom er í Amsterdam. Dómkirkjan. Messa kl. 11 f. h. — Séra Jón Auð- uns. — Mesga kl. 5 e. h. — Séra Bjarni Jónsson. — Laugarnespresíakall. Messa kl. 2 e. h. — Séra Garðar Svavarsson. Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. — Fríkirkjan. Messa kl. 5 e. h. — Séra Sigurbjörn Einarsson. Ungl- ingafélagsfundur kl. 11 f. h'. --- Nesprestakall. Messa í kapellu há- skólans kl. 5, sr. Jón Thórarensen. — Fólk er beðið að athuga breytt an messutíma. — Guðsþjónusta á vegum guðfræðideildar háskólans, verður í kapeliu háskólans í dag kl. 2 e. h. Prófessor, dr. C. J. Bleeker frá Amsterdam mun pré- dika en Ásmundur Guðmundsson prófessor þjóna fyrir altari og endursegja meginefni prédikunar- innar á ísienzku. Kirkjukór Nes- sóknar, undir stjórn Jóns Isleifs- sonar söngstjóra, annast sönginn. Næturaksíur í nótt annast Litla bílstöðin. — Sími 1380. Aðra nótt annast B.S.R. næturaksturinn. — Sími 1720. í gær voru gefin saman í hjónaband ung frú Guðrúa Kjartansd. og I-Iannes Þórólfs son, lögregluþjónn. Heimili ungu hjónanna verður á Öldugötu 41. — 1 gær voru gefin saman í hjóna hand af séra Bjarna Jónssyni, ungfrú Kristjana Kristjánsdóttir og Willy Black Nielsen, hárskeri Hólavalíagötu 11. — 1 gær voru gefin saman í hjónaband af séra Sigurbirni Einarssyni, ungfrú Þor- björg Lýðsdóttir og Kristján Jón Benónýsson. Heimili þeirra er á Holtsgötu 14. Leiðrétting. 1 ræðu Ólafs Halldórssonar, sem birt var í blaðinu í gær, hefur slæðzt inn prentvilla' í 9. 1. a. n. Rétt eT setningin þannig: „Þeir eiga að sjá um það, að fulltrúar þeirra fari að vilja þeirra i stór- málum, (letuxtn:. hér). eða -rvilti af> þingi elia, og mun þá hver þing- Silfurbrúðkaup eiga í dag hjónin Elísabet Magnúsdóttir og Helgi Jónsson, Grettisgötu 43. Herbergisgjöf til Hallveigarstaða. Meyvant Ó. Hallgrímsson, Grund- arstíg 17 hefur gefið Hallveigar- stöðum 10 þúsund kr. til minning- ar um móður sina Vigdisi Erlends dóttur frá Breiðabólstað. Fjár- öflunarnefndin, þakkar hjartan- lega þessa rausnarlegu gjöf. Munið Bazar Hringsins á mánu- dag kl. 1.30 hjá Andrési Andrés- syni Laugaveg 3 uppi. Blaðamannafélag Islands heldur fund á Hótel Borg kl. 4 o. h. í dag. Fyrirlestur um Ivar Aasen, Cand. mag. Hallvard Mageröy sendikenn ari flytur fyrirlestur i I. kennslu- stofu háskólans um hinn kunna norska fræðimann og skald Ivar Aasen, miðvikudaginn 7; desember kl. 8 e. h. Öllum er heimill aðgang ur. Nýlega opinber uðu trúlofun sína, ungfrú Unnur Ein arsd. frá Skafta- felli í Öræfum og Ólafur Magnússon, húsasmiður, Hafnarfirði. — Ný- lega hafa opinbera'ð trúlofun sína, Súsanna ICristjánsdóttir Njálsgötu 30 Reykjavjk og Magnús Bjarna- son, Suðurgötu 13 Hafnaríiröi. Stafabók barnanna. Blaðinu hefur borizt Stafabók barnanna. Er þetta myndskreytt stafabók prentuð í litum og hin vandaðasta að frágangi. Hver staf ur stafrófsins hefúr sína síðu í bókinni. Þá er og vísa um hvérn staf, og fylgir Mikki Mús mynd hverri síðu. Á forsíðu kversins er stór litmynd af börnum i jeppa. Má gera ráð fyrir að bók þessi verði vinsæl meðal yngstu lesend- anna, enda stöðugt vaxandi eftir- spurn eftir snotrum stafa-, mynda- og vísnabókum. Bókasafan Alliance Francaise, er opið á'Ásvallagötu 69. Alla þriðju- dagá kI.-3—S5 siðd., :fimöitudagá- -kl. 5—7 og laugardaga 8—5. ; :

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.