Þjóðviljinn - 06.12.1949, Side 4
4
ÞJOÐVILJINN
Sunnudagur 4. des* 1949
PIÓÐVILJINN
ÚtgafaBdl: Bameinlngarflokkor alþýOu — BósiaUataflokkurlnn
Bitstjórar: Magnús Kjartansaon (áb.), BigurSur GuSmundsaon
Fréttari t»t 16ri: Jön Bjarnason
BlaSam.: Arl K&rason, Magnús Torfl Úlalsson, Jönaa Ámason
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsaon
Bltstjðrn, afgreiSala, auglýsingar, prentsmlSja: BkólavðrOu-
st&g U — Bimi 7600 (þrj&r linur)
2skrlftarrsrS: kr. 12.00 & m&nuSl — LausasóluvazS 60 aur. aint
PrentsmlSja PJóOvUjacj buf.
BMaBataiaakkurlnn, ÞórsgStu 1 — Slml 791« (þrj&r Hnur)
I Sjómenn eiga að stjórna
Það er alkunna að togarasjómenn eru almennt mjög
óánægðir með gildandi kjarasamninga. Sú þriggja árs-
fjórðunga reynsla, sem fengin er af þessum samningum
hefur leitt það í ljós að nú verða togarasjómenn að inna
af hendi meiri vinnu fyrir talsvert lægra kaup en samkvæmt
eldri samningum, er gilt höfðu s.l. 7 ár og þóttu orðnir úr-
eltir og sjómönnum óhagstæðir á ým-sa lund. —
Þeim sem fylgzt höfðu með gangi mála við samningana
í fyrravetur kom vissulega ekki á óvart sú reynsla sem
fengin er af þeim nú, og er því ekki úr vegi þegar velja
skal að nýju félagsstjóm fyrir Sjómannafélag Reykjavíkur
að rif ja þetta upp í nokkrum dráttum.
Sjómönnum er það enn í fersku minni að núgild-
andi kjarasamningar eru raunverulega ekki samþykktir af
þeim, heldur sviknir hreinlega inn á þá af núverandi stjórn
Sjómannafélags Reykjavíkur, þeim Sigurjóni, Sæmundi og
Co. Sáttatillögur þær, er greitt var atkvæði um og sam-
þykktar að nafninu til 26. marz, voru svo sem kunnugt er
bornar fram fyrirvaralaust og án þess að sjómönnum væri
gefinn nokkur kostur á að kynna sér þær. Nefnd sjómanna
úr baknefndinni var beinlínis synjað um að fá að kynna sér
þær, af ótta við að hún gæti þá komið réttum og tímabærum
upplýsingum til sjómannanna um innihald sáttatillagnanna.
En þetta þótti þeim Sigurjóni, Sæmundi og Co. ekki nóg.
Þeir béinlínis gerðu allt til að blekkja sjómennina með vill-
andi og röngum upplýsingum varðandi efni tillagnanna. Svo
langt gekk refskák þeirra í hinni fyrirvaralausu atkvæða-
greiðslu, að margir sjómenn, einkum í Hafnarfirði voru
látnir standa í þeirri meiningu, að sáttatillögurnar sem
stjóm S.R. var að gylla væru tillögur baknefndarinnar.
Kórónuna settu þeir Sigurjón og Co. á skömm þessa al!a
með því að rugla saman og telja í einu lagi atkvæðin úr
Hafnarfirði og Reykjavík og pína tillöguna þannig í ^gegn
með rúmlega 50 atkv. meirihluta. — Þar með var hundsað-
ur meirihluta-vilji Reykjavíkursjómanna, sem vitað var að
felldu tillöguna fyrir sitt leyti, því þeir höfðu, þrátt fyrir
slæma aðstöðu, betri skilyrði til að varast 'blekkingar for-
ystunnar heldur en hafnfirzku sjómennirnir
m r *
Á þennan hátt fengu útgerðarmenn og þeir Sigurjón
og Co. vilja sínum framgengt gegn vilja sjómanna.
Reynslan af gildandi samningum ’liefur sýnt sjómönn-
um hverjir hafa hagnazt á svona vinnubi’ögðum. Þess
vegna em sjómenn ákveðnir í því nú við stjórnarkjörið að
fá endi bundinn á slík vinnubrögð, með því að gefa núver-
andi landkrabbastjórn frí og setja menn úr eigin hópi í
staðinn.
Allur þorri starfandi sjómanna harmar þá ódöngun
sem komizt hefur í Sjómannafélag Reykjavíkur á seinni
árum, vegna þess að forysta félagsins hefur látið pólifíska
þröngsýni og flokkspólitísk tillit sitja í fyrirrúmi fyrir
hagsmunum sjómanna. Núverandi forysta félagsins hefur
glatað tiltrú 'starfandi sjómanna, um það efast enginn, en
hún rígheldur sér í völdum með þeirri sérstöku tegund
„vestræns lýðræðis" sem Alþýð^flokkurinn berst fyrir og
igerir fámennum „landher", flokksklíku Alþýðuflokksins
fært að halda félaginu niðri í ófremdarástandi.
Bergmálið í SundhöUinni
hefur versnað.
: • B • i • &« a « n ts a■£ a « s aai
B. skrifar: .......„Það er
Sundhöllin, sem mig langar að
tala um. Hún var nýlega opnuð
eftir viðgerðina, sem staðið
hafði frá því í júlí. Þessi langa
viðgerð bar samt ekki þann á-
rangur, sem búast hefði mátt
við, því að þarna gleymdist að
lagfæra það, sem helzt af öllu
þurfti lagfæringar við, og á
ég hér við bergmálið í laugar-
salnum. Bergmálið var slæmt
áður, en núna, eftir að búið er
að þétta veggina með máln-
ingu, hefur það versnað um
allan helming, svo að varla
heyrast lengur orðaskil, þegar
taiað er saman. Það fyrsta,
sem hefði þurft að gera, var
að klæða veggina innan ipsð
plötum sem „hefta“ hljóðið, ;ein
angrunarplötum.
□
Hvernig er hægt að
kenna þarna?
„Sagt er, að ekki hafi feng-
izt innflutningsleyfi fyrir efni
til slíkra framkvæmda, en þetta
er samt ekki hægt að taka sem
frambærilega afsökun, því að
kostnaðurinn við kaup á slíku
efni er svo hverfandi lítill, —
það, sem þarna þurfti til, gat
varla kostað meira en einn lúx-
usbíll, en til innflutnings á þess
konar ,,nauðsynjum“ virðist
alltaf vera nógur gjaideyrir ..
í öllum samkvæmissölum er
það talið höfuðatriði, að ein-
angra þannig veggina, að ekk-
ert bergmál heyrist. En í Sund
höllinni, þar sem öll sund-
kennsla skólanna fer fram, er
það ekki talið nauðsynlegt. Mér
er óskiljanlegt, hvernig hægt er
að kenna í öllum þessum há-
vaða. Og hvernig fer starfsfólx
ið að því að hafast við í öll-
um þessum glymjanda 8 stund
ir á dag? ...... Þar við bæc-
ist, að þessi hávaði hlýtur að
draga úr aðsókn, sérstaklega að
því er snertir fullorðið fólk.
□
Skellur komnar á nýja
málninguna.
„......Þegar maður svo
horfir upp í loftið í laugarsaln
um, og reyndar víðar, þá sér
maður, að komnar eru skellur
á það. Það eru komnar skellur
á nýmálað lofíið. Hvernig stend
ur á þessu? Er ekki nýafstaðin
viðgerð, sem hefur staðið yfir
i marga mánuði? Hvernig stend
ur á því, að ekki var áður gert
við þakið, með því að setja
plötur á það, en hætt við þessa
blessaða tjöru' sem ekkert dug-
ar? — B.“
□
Hættan af vinnupöll-
unum umhverfis hús
Sveins Egilssonar.
Maður nokknr, sem vinnur
skammt frá hinu nýja húsi
Sveins Egilssonar á mótum
Laugavegar og Hverfisgötu,
hefur beðið mig fyrir eftirfai’-
andi tilmæli: Eg vil mæl
ast til þess að meira öryggis
verði gætt í frágangi vinnupall
anna, sem verið hafa umhverfis
þetta hús Sveins Egilssonar
núna seinustu árin. Eg hef veitt
því athygli, að ef eitthvað hvess
ir í veðri, þá losna margar fjal
ir og önnur stykki á pöllum
þessum og falla niður á gang-
stéttina. Er í rauninni mesta
mildi, að ekki skuli hafa orðið
nein slys af þessu ennþá. Verði
hinsvegar sama ástand látið
baldast, þá hlýtur að því að
reka, að þarna verði slys. Og
geri einhverntíma verulegt
hvíissviðri, þá kæmi mér ekki
á óvart þótt pallarnir hryndu
allir niður eins og þeir leggja
sig.....Þessa aðvörun þótt-
ist ég skyldugur til að setja á
framfæri opinberlega. — Dd.“
□
Umferðariögregíunni •
þakkað.
Maður nokkur, sem býr við
Miklubraut, bað mig í haust
fyrir tilmæli þess efnis, að um-
ferðarlögreglan gæfi meiri gæt-
ur að akstri á Lönguhlíð og
Miklubraut, því að þar stafaöi
stöðug hætta af óstjórnleguin
hraða og glannaskap þeirra,
sem bifreiðum stjórna. Nú hef-
ur maður þessi aftur beðið mig
fyrir orðsendingu til umferðaf-
lögreglunnar, að þessu sinni vill
hann færa henni beztu þakkir
fyrir þáð, hve vel hún brást við
tilmælum hans. Siðan þau birt-
ust, hafa ágætir lögregluþjónar
komið á götur þessar til að
hafa hemil á umferðinni í há-
deginu og á öðrum tímum
dagsins, þegar hún er mest.
Breiðfirðlng'afélagið heldur
félagsfund í Breiðfirð.ingabúð j
kvöld, söngur og dáiis á eftir.
k xfsniöfpas. :' | ■
Skipun ráðunqytis Ólafs Thors
fer fram á ríkisráðsfundi fyrir
hádegi í dag.
(Frá forsetaritara)
Nýlega ' voru
gefin saman í
hjónaband af
séra Garðari
Svavarss., ung-
frú Anna
Pálmadóttir (Einarssonar land-
námsstjóra) og Guðmundur Guð-
mundsson bifreiðarstjóri. Heim-
ili þeirra verður að Skipasundi 8.
0 /
Samtíðin, 10.
hefti þessa ár-
gangs, er kom-
in út. I heftinu
er þetta efni
m. a.: Islenzkt
ríkisleikhús; Sumarkvéðja, kvæði
eftir Auðunn Br. Sveinsson; Eg
byrjaði að teikna þriggja ára gam
all, samtal við Halldór Pétursson
listmálara; Á háhesti, eftir Loft
Guðmundsson; Belgjagerðin h. f.
15 ára; Austræn þjóð með vest-
ræn sjónarmið; Biðraðir eftir
Sonju B. Helgason; Nýjar norsk-
ar bækur; Ensk listaverk á ís-
lenzku; Nýjar amerískar bækur.
yy' 18.00 Framhalds-
saga barnanna:
„Fljóti hreinninn"
eftir Per Wester-
lund; II. lestur
(Stefán Jónsson
námsstjóri). 18.30 Dönskukennsla;
II. 19.00 Enskukennsla; I. 1925
Þingfréttir — Tónleikar. 20.20
Tónleikar: „Saga hermannsins
tónverk eftir Strawinsky (plötur)
20.45 Erindi: Yísindalegt þjóðfé-
lag; síðari hluti (Gylfi Þ. Gísla-
son prófessor). 21.15 Tónleikar
(plötur). 22.10 Vinsæl lög (plöt-
ur). 22.30 Dagskrárlok. (
Bókasafan AUiance Francaise, er
opið á Ásvallagötu 69. Alla þriðju-
daga kl. 3—5 síðd., fimmtudaga ki.
5-—7 og laugardaga 3—5.
Næturakstur annast Hreyfill —
Sími 6633.
EIMSKIP:
Brúarfoss kom til Amsterdam
5.12., fer þaðan til Kotterdam,
Antwerpen, Hull og Reykjavíkur.
Fjallfoss kom til Kaupmanna-
hafnar 5.12. frá Bergen. Dettifoss
fór frá Reykjavík 3.12, vestur og
norður, lestar frosinn fisk. Goða-
íoss fór frá Reykjavík 29.11. til
Gdynja 4.12., kom til Kaupmanna-
hafnar 5.12. Selfoss kom til
Reykjavíkur 3.12. Tröllafoss kom
til New York 19.11. frá Reykja-
vík. Vatnaiökull kom til Reykja-
víkur 4.12. frá Leith.
RÍKISSKIP:
Hckla er á Austfjörðum á nörð-
urleið. Esja er á Akureyri. Herðu
breið fór frá Reykjavik í gær-
kvöld til Breiðafjarðar og Vest-
fjarða. Skjaldbreið kom til
Reykjavíkur seint í gærkvöld að
vestan og norðan. Þyrill var vænt
snlegur til Reykjavíkur j morgun
frá Englandi. Helgi fer frá
Reykjavík í kvöld til Vestmanna-
eyja.
EINABSSON&ZOfiGA:
Foldin er í Grimsby, fermir i
'Hull á miðvikudag. Lingestroom
er í Amsterdam.
SKIPADEILD S. 1. S.
Arnarfell er í Reykjavík.
Hvassafell fór frá Keflavík 2.
desember áleiðis til Gdynia.
Hafnarbíó:
Hitler — líís eða liðiirn
Þegar maður hefur séð þessa
mynd, er sú spurning ofarlega
í huganum, hvort ekki mætfi
stofna til verulegrar verzluti-
ar milli Reykjavíkur og Holly-
tvood. Reykvíkingar flytji út
gæja til þess að framleiða
kyikmyndir, en fái í staðinn dýr
mæta dali. Yrði að þessu land-
hreinsun og gróði í Reykjavík,
en liðsauki í Hallywood, og
ætti að verða almenn lukka
með skiptin. M. a. gætu kvik-
myndahússgestir Reykjavíkur
vænzt öllu skárri mynda að
vestan en þeirrar, sem sýnd
er nú í Hafnarbíó.
Efni hennar er annars það,
að tveir gangsterar eru gerðir
út fyrir milljón dali til þess
að drepa Hitler. Auðvitað tekst
það, því að ekkert er ómátt-
ugt amerískum dölum og bóf-
um, þegar þeir leggja saman.
Þessi fagnaðarboðskapur
myndarinnar er þó ékki höfuð-
einkenni hennar, heldur hitt,
hvað hún er innilega vitlaus
og leiðinleg.
Einkunn: 2. ' “
pB,